Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 35 MINNINGAR Elsku (amma) Anna, við trúum ekki að þú sért farin frá okkur, þetta gerðist allt svo hratt. Þú ert kominn til Jónu sem þú elskar svo mikið, en við geymum all- ar góðu minningarnar sem við áttum saman. Það var alltaf gott að koma í heim- sókn til þín, maður var alltaf svo vel- kominn. Það var líka gaman að fá þig í heimsókn, þú varst alltaf hrósandi, fyrir fallegt heimili, góðan mat og hvað þér fannst notalegt og gott að koma í heimsókn til okkar. Þú varst mikil og góð vinkona barnabarnanna þinna og þær tala mikið um það. Jafn barngóð mann- eskja eins og þú varst Anna mín, er ekki til. Í dag (20. janúar) hefðir þú átt af- mæli. Hugur okkar er allur hjá þér og þú átt alltaf stórt pláss í okkar hjarta, við elskum þig mjög mikið. Ástar- og saknaðarkveðjur: Sandra, Sævar og Alexandra. Elsku amma Anna, innilega til hamingju með daginn (20. janúar). Fyrir rúmum 2 mánuðum varstu tekin frá okkur mjög snögglega, við fengum ekki að kveðja þig. Þetta hefur verið rosalega erfiður tími fyr- ir okkur öll, allur söknuðurinn og svo að hafa pabba svona veikan uppi á spítala. Það sem huggar okkur Anna Hauksdóttir ✝ Anna Hauks-dóttir fæddist í Reykjavík 20. jan- úar 1948. Hún lést á gjörgæsludeild LSH 9. nóvember síðast- liðinn og var jarð- sungin frá Víði- staðakirkju í Hafnarfirði 17. nóv- ember. smá, er það að nú ertu hjá Jónu Sjöfn þinni og það er eflaust mikil gleði hjá ykkur mæðg- um að vera sameinað- ar á ný. En að hugsa til allra stundanna okkar saman, matar- boðin sem voru ófá og margra rétta, man ekki eftir að einhver hafi farið svangur út frá þér. Allt sem þið gerðuð fyrir barnabörnin, all- ar veiðiferðirnar, saumaskapurinn, eldamennskan, föndrið og allt sem ykkur datt í hug. Ég man ekki eftir að þið hafið ein- hvern tímann sagt nei við þau. Þess- ar minningar lifa í okkar hjörtum og okkur finnst erfitt að fá ekki fleiri svona góðar stundir með þér. Við kveðjum þig nú, elsku Anna okkar, með miklum söknuði og vit- um að þið Jóna eruð nú englar sem fylgjast með okkur. Saknaðarkveðjur, Sara, Ægir, Aldís, Aron og Jökull. Elsku Anna. Í dag hefðir þú átt afmæli. Í dag hefðum við örugglega verið boðin í mat til ykkar pabba. Í mat þar sem allir eru glaðir, þú að elda af þinni einstöku list, þið pabbi að knúsa dúllurnar ykkar og allir að hnoðast í sófanum, krakkarnir búnir að snúa íbúðinni við og þú að segja okkur sögur af einhverjum skandal sem pabbi hafði gert fyrr um daginn og við systurnar og pabbi í hláturs- kasti yfir því. Þetta eru yndislegar minningar, minningar sem fá mann til brosa. Tíminn eftir atburðinn er búinn að vera erfiður og það eru lítil hjörtu sem sakna þín sárt. Núna vonum við svo innilega að pabbi nái sér og við vitum, þó hann sé mikið veikur, að hann saknar þín meira en allt. Enda gátuð þið ekki án hvors annars ver- ið; hvort sem var í gleði eða erf- iðleikum. Við vonum svo innilega, elsku Anna, að þér líði vel í hjarta þínu hjá Jónu Sjöfn þinni sem þú elskaðir svo heitt. Minning um þig verður geymd í hjörtum okkar allra, alltaf, og við lofum að hugsa vel um leiðið hennar Jónu. Megi Guð geyma þig og Jónu. Við söknum þín sárt. Halla og Hjalti. Elsku amma Anna. Það er erfitt fyrir okkar litlu hjörtu að trúa því að þú sért farin. Það er svo sárt. Þó svo að við vitum að þér hlýtur að líða vel hjá Jónu þinni, sem þú elskaðir svo heitt. Þetta er allt svo skrítið Við eigum eftir að sakna þess svo mikið að koma ekki í heimsókn til þín og finna fyrir því að það er ekkert annað í heiminum sem skiptir máli nema við. Að fá símhringingar á afmælis- dögunum okkar og heyra þig syngja afmælissönginn. Að koma til þín á jólunum og föndra. Að fara með ykkur afa að veiða – þó svo að við veiddum sjaldan fisk. Og bara að heyra þig hlæja og sjá þig teygja út armana og segja við okkur: „Amma elskar ykkur svoo- oooooona mikið“. Elsku amma, til hamingju með af- mælið. Við söknum þín svo mikið – takk fyrir allt. Þín elskandi barnabörn; Aldís, Alexandra, Brynja Hlíf og Skarphéðinn. ERMSKI stórmeistarinn Vladim- ir Akopjan sigraði á hinu geysi- sterka móti á Gíbraltar. Þessi ágæti klettur undan stöndum Spánar til- heyrir Bretlandi og kemst alltaf annað veifið í fréttirnar hefur und- anfarið verið vettvangur eins best skipaða opna móts sem fram fer ár hvert. Þeir Stefán Kristjánsson og Jón Viktor Gunnarsson tóku báðir þátt í mótinu. Stefán þarf að bæta stigatölu sína nokkuð til að fá stað- festan stórmeistaratitilinn og ætti ekki að verða skotaskuld úr því. Hann hlaut 5 vinninga af níu mögu- legum en tapaði 17 stigum a.m.k. Jón Viktor hlaut einnig 5 vinninga. Báðir geta betur. Fjölmargir öflugir stórmeistarar eru meðal þátttakenda, þeirra fremstur Michael Adams og aðrir kunnir meistarar, Vadim Milov, Iv- an Sokolov Viktor Korchnoi, Mi- kahael Gurevich, Hikaro Nakamura svo nokkrir séu nefndir. Alls voru keppendur í efsta flokki 180 talsins þar af um 50 stórmeistarar. Efstu menn: 1. Akopjan (Armenía) 2.–4. Areschenko (Úkraínu), Nakamura (Bandaríkin) og Emil Sutovsky (Ísrael) 7 v. Með 6 ½ vinning komu meðal annarra Michael Adams, Iv- an Sokolov og Mikhael Gurevich. Góðvinur vinur okkar Íslendinga, Ivan Sokolov, var lengi vel í far- arbroddi en í næstsíðustu umferð mætti hann Akopjan og reyndist það úrslitaviðureign mótsins: 8. umferð: Vladimir Akopjan – Ivan Soko- lov Spænskur leikur Ivan Sokolov hefur mjög einfald- an smekk í byrjunum. Hann svarar 1. e4 alltaf með 1. … e5 og 1. d4 alltaf með 1. … d5. Það er ekki erf- itt að undirbúa sig fyrir hann en styrkur hans liggur fyrst og fremst í miklum baráttuvilja. Í þessari skák þenur hann stöðu sína kannski meira en góðu hófi gegnir. Skákin er skólabókardæmi um það hvernig veikasti hlekkurinn, í þessu tilviki f5-reiturinn, getur nánast lamað all- an eðlilegan samgang í stöðunni. Það sem einkennir flesta skákmenn frá Armeníu er hversu góða tækni þeir hafa tileinkað sér og Akopjan slær hvergi feilpúst. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. d3 Bc5 6. c3 b5 7. Bb3 d6 8. 0–0 0–0 9. Bg5 h6 10. Bh4 g5 11. Bg3 Bg4 12. Rbd2 Hb8 13. He1 Rh5 14. h3 Bxf3 15. Dxf3 Rxg3 16. Dxg3 Df6 17. He2 Re7 18. Rf1 Rg6 19. Re3 Df4 20. Rf5 Dxg3 21. Rxg3 Kh7 22. Hd2 Bb6 23. Kf1 Re7 24. d4 f6 25. Be6 Kg6 26. a4 h5 27. d5 bxa4 28. Hxa4 a5 29. Ke2 h4 30. Bf5+ Kg7 31. Rf1 Hb7 32. Hc2 Rg6 33. Bxg6 Kxg6 34. Rd2 f5 35. f3 fxe4 36. Rxe4 Hf4 37. Hc4 Hb8 38. Hd2 Kf5 39. Kd3 Ha8 40. b3 Hb8 41. Ha2 Kg6 42. Hc6 Hff8 43. Ha4 Hf4 44. b4 axb4 45. Hxb4 Kh5 46. Rxd6 Svartur gafst upp. Eyjamenn sterkir á Íslandsmóti barna Kristófer Gautason úr Taflfélagi Vestmanneyja sigrað á Íslandsmóti barna sem lauk í húsakynnum Tafl- félags Reykjavíkur um síðustu helgi. Hrund Hauksdóttir, Fjölni, sigraði í stúlknaflokki. Tefldar voru átta umferðir og hlaut Kristófer 7 vinninga af átta mögulegum. Mótið var geysispennandi og snerist upp í hreina baráttu milli Kristófers og félaga hans úr TV, Daða Steins Jónssonar og Friðriks Þjálfa Stef- ánssonar. Í lokaumferðinni mættust þeir Kristófer og Daði Steini og hafði Kristófer sigur þrátt fyrir að vera drottningunni undir fyrir hrók um tíma. Friðrik Þjálfi tapaði hins- vegar fyrir Emil Sigurðssyni í loka- umferðinni. Mótið ber glöggan vott um að hið mikla starf Eyjamanna er þessa dagana að skila ríkulegum ávexti. Þá kemur Fjölnir einnig sterkur inn. Aðstæður á skákstað voru að sumu leyti erfiðar því skák- stjórnin var fáliðuð en hún var í höndum hins dugmikla stjórnar- manns hjá SÍ, Páli Sigurðssyni. Alls voru keppendur 68 en loka- niðurstaðan hvað varðar efstu menn varð þessi: 1 Kristófer Gautason TV, 7 v. 2.–3. Friðrik Stefánsson, TR og Daði Steinn Jónsson TV 6 ½ v. hvor. 4.–9. Emil Sigurðsson, Helli, Theódór Inæssio, Fjölni, Birkir Karl Sig- urðsson, Helli, Jón Hákon Richter, Hauk- um, Hrund Hauksdóttir, Fjölni, og Hjörtur Snær Jónsson, SA 6 vinninga. Reykjavíkurskákmót stúlkna Reykjavíkurskákmót stúlkna fer fram í dag í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni Faxafeni 12. Mótið hefst kl.14 og lýkur eigi síðar en kl.18. Skráning hefst kl.13.30 á mótsstað. Mótið er opið öllum stúlkum 15 ára og yngri (f.1991 og síðar). Veittir verða verð- launagripir og önnur verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og verður sigur- vegarinn krýndur „stúlknameistari Reykjavíkur 2007“ og hlýtur til vörslu veglegan farandbikar í eitt ár. Einungis þær geta orðið stúlknameistarar Reykjavíkur sem eiga lögheimili í Reykjavík eða eru félagsmenn í taflfélögunum í Reykjavík. Núverandi stúlkna- meistari Reykjavíkur er Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunar- tímanum 15 mín. á skák. Ekkert kostar að taka þátt í mótinu. Allar upplýsingar veitir Torfi Leósson, suren@goldenboat.net, s.697-3974 Á brattann að sækja hjá Stefáni og Jóni Viktori Verðlaunahafar Páll Sigurðsson skákstjóri og Óttar Felix hauksson for- maður TR með með nokkrum verlaunahöfum frá Íslandsmóti barna: Mið- röð: Friðrik Þjálfi Stefánsson TR sem var bestur í 1996 árganginum , Óli- ver Aron Jóhannesson Fjölni bestur í árganginum 1998, og Alexander Gautason TV Íslandsmeistari barna 2007. Fremst t.v.: Hildur Berglind Jó- hannsdóttir Helli best í árganginum 1999 og Guðlaugur Gísli Guðmunds- son TV bestur í árganginum 2000 SKÁK Gíbraltar 23. janúar – 2. febrúar 2007 helol@simnet.is Helgi Ólafsson Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Minningargreinar FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá formanni Blaðamannafélags Íslands, Örnu Schram: „Menntamálaráðherra, Þorgerði K. Gunnarsdóttur, hefur í engu tek- ist að útskýra hvers vegna hún kaus að hunsa tilnefningar Blaða- mannafélags Íslands í sérfræðinga- nefnd NJC, norræna blaðamanna- skólans í Árósum. Aukinheldur hefur hún ekki sýnt BÍ þá virðingu að svara erindi þess – frá því í síð- ustu viku – þar sem krafist er skýr- inga. Hún gerði hins vegar grein fyrir afstöðu sinni í Morgunblaðinu í gær. Þær eftiráskýringar stað- festa að ekki stóð til að hafa sam- ráð við Blaðamannafélag Íslands varðandi NJC. Ráðuneytið virðist ekki óska eftir frekara samstarfi við BÍ og neyðist stjórn BÍ til að haga störfum sínum í samræmi við það. Forystumenn blaðamannafélag- anna í Danmörku, Svíþjóð, Finn- landi og Noregi hnykktu á því í bréfi Samtaka norrænu blaða- mannafélaganna til menntamálaráð- herra fyrr í vikunni að samstarf við fagfélög blaðamanna væri eitt af grunngildum NJC. Íslenski menntamálaráðherrann er nú eini ráðherrann á Norðurlöndunum sem hefur kosið að virða þau gildi að vettugi. BÍ tilnefndi fyrir jól, að beiðni menntamálaráðuneytisins, Birgi Guðmundsson, lektor í fjölmiðla- fræði við Háskólann á Akureyri, sem aðalmann í nefnd NJC og Svanborgu Sigmarsdóttur, blaða- mann á Fréttablaðinu, sem vara- mann. Hafi menntamálaráðherra haft athugasemdir við þær tilnefn- ingar, m.a. á grundvelli „hagsmuna- árekstra“, eins og hún orðaði það í Morgunblaðinu í gær, hefði henni verið í lófa lagið að koma þeim at- hugasemdum á framfæri við BÍ. Það gerði hún ekki. Þvert á móti staðfesti starfsmað- ur hennar, Elfa Ýr Gylfadóttir, í símtali við undirritaða hinn 6. des- ember sl. að búið væri að sam- þykkja tilnefningu BÍ um aðal- mann. BÍ komst hins vegar að því fyrir tilviljun í síðustu viku að ráð- herra hefði ekki farið að tilnefn- ingum BÍ. Hann hefur svo bitið höf- uðið af skömminni með því að tilnefna sinn eigin starfsmann, fyrr- nefnda Elfu Ýr, sem varamann í nefndina. Menntamálaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þar sem hugmyndir um breytingar á NJC fælu m.a. í sér að nám í blaðamennsku yrði fært til háskóla- deilda í hverju landi hefði henni þótt rétt að skipa ekki háskóla- mann, enda skapaði það hættu á hagsmunaárekstrum. Rétt þykir að upplýsa menntamálaráðherra um það að í sérfræðinganefnd NJC sitja nú þegar fulltrúar þeirra skólastofnana á Norðurlöndunum sem leitað verður til vegna endur- menntunar blaðamanna, samkvæmt þeim breytingum sem menntamála- ráðherrar Norðurlanda létu gera á starfseminni. Því má bæta við að það er í meira lagi undarlegt að sjá haft eft- ir menntamálaráðherra að það bjóði hættunni heim að tilnefna einstak- ling úr háskólasamfélaginu í nefnd norræns blaðamannaskóla. Þess má að lokum geta að umræddur ein- staklingur, Birgir Guðmundsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskól- ann á Akureyri, hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlum sem og mikla reynslu af útgáfu og norrænu sam- starfi, auk þess sem hann starfar um þessar mundir að ritstjórn og útgáfu fyrir Blaðamannafélag Ís- lands.“ Engin svör frá menntamálaráðherra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.