Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Í FEBRÚARHEFTI hins fram- sækna tísku- og lífstílsblaðs jað- armenningarinnar Dazed & Confus- ed er að finna stutta umfjöllun blaðamannsins Phil Hoad um ís- lenska kvikmyndamenningu. Þar gerir hann að umtalsefni annars vegar bágt úrval kvikmynda í hér- lendum bíóhúsum og hins vegar þann vanda sem blasir við íslenskum kvikmyndagerðarmönnum – og slær reyndar þessum tveimur aðskildu þáttum saman á heldur ruglings- legan hátt. Í lok greinarinnar mælir Hoad hins vegar með fjórum íslenskum myndum. Þar er Mýrin efst á blaði og athygli dregin að þeirri gríð- arlegu aðsókn sem myndin hefur fengið. Því næst er Börn nefnd, sem sögð er „hrífandi lýsing á undirmáls- fólki í Reykjavík“. Heimildamynd Denna Karlssonar um tónleika- ferðalag Sigur Rósar um Ísland í júlí sl., )(, er að sögn Hoad „erfitt að verða sér út um“ en að fyrirhöfnin sé „vel þess virði“. Að endingu er Astrópía nefnd til sögunnar. Fjallað um íslenskar kvikmyndir Dazed & Confused mælir með fjórum Hrífandi Úr bíómyndinni Börnum. ÓPERUSÖNGKONAN Kiri Te Kanawa segir ástæðu þess að hún aflýsti þrennum fyrirhuguðum tón- leikum með áströlsku poppstjörn- unni John Farnham hafa verið nær- föt. Kanawa fullyrti fyrir áströlskum rétti í síðustu að sér hefði snúist hugur eftir að hafa séð myndbrot frá tónleikum með Farnham, þar hann sést m.a. grípa kvenmannsnærbuxur sem kastað var til hans úr áhorf- endastæðunum og halda á þeim sigrihrósandi. „Hvernig gæti ég komið fram undir slíkum kring- umstæðum?“ spurði hin 62 ára söng- kona en ítrekaði þó að hún bæri enn virðingu fyrir Farnham. Skipuleggjandi tónleikanna hefur kært Kanawa fyrir að draga sig til baka og farið fram á u.þ.b. 150 millj- ónir íslenskra króna í bætur. Aflýsti vegna nærfatnaðar SJÓNÞING um myndlistar- manninn Rúrí verður haldið í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi kl. 13.30 í dag. Stjórnandi sjónþingsins er Laufey Helga- dóttir listfræðingur en spyrlar eru Gunnar J. Árnason list- heimspekingur og Halldór Björn Runólfsson listfræð- ingur. Að Sjónþingi loknu kl. 16 opnar sýning á sýnishornum verka frá 33 ára listferli Rúrí- ar. Yfirskrift sýningarinnar, „Tími – afstæði – gildi“, vísar til viðfangsefna Rúríar á liðnum 33 ár- um, viðfangsefna sem eru sígild en einnig áríðandi á hverjum tíma eins og segir í tilkynningu. Sjónþing Tími, afstæði og gildi í list Rúríar Rúrí MÁLÞING um Skriðuklaustur verður haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands kl. 11 og stendur það til kl. 14. Um er að ræða framhald málþingsins sem haldið var um Skriðu- klaustur hinn 11. nóvember síðastliðinn. Fyrirlestrarnir byggjast á rannsóknum hóps fræðimanna á klaustrum og klausturhaldi hérlendis. Upp- gröftur á rústum þess hefur nú staðið yfir í fimm ár og hefur um helmingur klausturbygginganna verið grafinn fram. Stjórn- andi málþingsins er Steinunn Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri Skriðuklaustursrannsókna. Málþing Hlutverk klausturs í miðaldasamfélagi Skriðuklaustur EYGLÓ Harðardóttir opnar sýninguna Leiðsla í Listasafni ASÍ kl. 15 í dag. Á sýningunni eru skjáverk, málverk á papp- ír, teikningar og þrívíð verk. Verkin eru unnin með gryfjuna og salinn í Listasafni ASÍ í huga, rými sem hægt er að hugsa sér eins og skúlptúr eða líkama sem hefur tvo ólíka póla eins og segir í fréttatilkynn- ingu. Pólarnir stefna upp og niður, í líkama sem hefur í sér ótrúlega margar skyn-víddir og minni. Verkin eru unnin á vinnu- stofum í Tékklandi, Tyrklandi og á Íslandi. Sýn- ingin stendur til 25. febrúar. Myndlist Eygló Harðardóttir opnar í ASÍ Eygló Harðardóttir Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is ÍSLENSKU bókmenntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Verðlaunin hlutu að þessu sinni þeir Ólafur Jóhann Ólafsson fyrir bókina Aldingarðurinn í flokki fagurbókmennta og í flokki fræðirita og bóka almenns efnis varð Andri Snær Magnason hlutskarp- astur fyrir bók sína Draumalandið. Þetta er í annað sinn sem Andri Snær hlýtur bókmenntaverðlaunin, en hann var verðlaunaður í flokki fagurbókmennta fyrir barnabók sína, Sagan af bláa hnettinum árið 1999. Eins og fram kom í máli forseta Ís- lands við athöfnina í gær mun þetta vera í fyrsta sinn sem rithöfundur hlýtur verðlaun í báðum flokkum. Fólk er ekki fífl Andri Snær sagðist ekki viss um að verðlaunin kæmu sér á óvart að þessu sinni. „Bókin var búin að valda svo miklu umtali að ég var alveg farinn að von- ast til að þetta gæti orðið,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær. Andri Snær sagði viðbrögðin við bókinni þó hafa verið mun meiri en hann hefði búist við þó það hefði sannarlega verið tilgangur bók- arinnar að ná til sem flestra. En skyldi Andri Snær vera með nýja bók í smíðum? „Maður er alltaf eitthvað að pæla. Það eru fyrirbæri eins og kvótinn sem er stórt mál sem mikilvægt er að taka fyrir ítarlega,“ segir hann en slær þann varnagla að hann sé alls ekki farinn að skrifa bók um kvóta- mál. Draumalandið hefur selst í þús- undum eintaka frá því hún kom út í mars á síðasta ári og Andri Snær segir það merkilegt að „bók um tera- vött skuli seljast með þessum hætti. Máltækið Fólk er fífl er með þessu afsannað.“ Í þakkarræðu sinni sagði Andri Snær bókina hafa bundið enda á stóriðjustefnu stjórnvalda. „Þessi yfirlýsing var sögð í kald- hæðni enda hefur stóriðjustefnunni nú verið varpað yfir á sveitarfélögin sem er ekkert betra.“ Verðlaunin skipta máli Ólafur Jóhann sagðist ekki hafa búist við verðlaununum. „En það er ánægjulegt að fá þau því með þeim er gott fólk að klappa manni á öxlina og segja mann hafa staðið sig vel,“ sagði hann að verð- launaafhendingu lokinni í gær. Í þakkarræðu Ólafs Jóhanns kom fram að honum þættu bókmennta- verðlaunin skipta máli fyrir íslenskar bókmenntir. „Þau eru auðvitað umdeild eins og mörg mannanna verk en þau vekja athygli á bókum og það er gott.“ Ólafur Jóhann segist fyrst og fremst skrifa bækur því honum búi í brjósti sögur sem hann langi að koma frá sér. „Það er auðvitað hægt að gera margt auðveldara við tímann sinn en að skrifa bækur, spila golf til dæmis. Það verður hinsvegar ekki til nein al- mennileg bók nema höfundinum búi eitthvað í brjósti sem hann hefur orð- ið að koma frá sér og hefur fórnað einhverju öðru til að gera það,“ sagði hann. „Bækur lifna þó ekki fyrr en þær eru lesnar og þótt maður sé ekki með einhvern sérstakan lesendahóp í huga við skrifin vill maður auðvitað að verk manns séu lesin. Annars væri maður eins og kokkur sem eld- aði mat sem enginn ætlaði að borða.“ Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent á Bessastöðum í gær Draumalandið og Aldin- garðurinn verðlaunaðar Rithöfundar Þeir Andri Snær Magnason og Ólafur Jóhann Ólafsson hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin 2006 sem veitt voru á Bessastöðum í gær. Morgunblaðið/ÞÖK Í HNOTSKURN »Þriggja manna lokadóm-nefnd, skipuð þeim Sigríði Þorgeirsdóttur, Kristjáni Krist- jánssyni og Stefáni Baldurssyni, valdi úr tíu bókum sem til- nefndar voru til verðlaunanna í desember síðastliðnum, fimm í hvorum flokki. »Bókmenntaverðlaunin nema750 þúsund krónum í hvor- um flokki, auk þess sem sig- urvegarar fá skrautrituð verð- launaskjöl og verðlaunagrip hannaðan af Jóni Snorra Sig- urðssyni. » Í flokki fagurbókmenntavoru auk Ólafs Jóhanns til- nefnd þau Hannes Pétursson (Fyrir kvölddyrum), Ingunn Snædal (Guðlausir menn), Bragi Ólafsson (Sendiherrann) og Auð- ur Jónsdóttir (Tryggðarpantur). » Í flokki fræðirita og bóka al-menns eðlis voru tilnefnd auk Andra Snæs þau Björn Hró- arsson (Íslenskir hellar), Guðni Th. Jóhannesson (Óvinir rík- isins), Halldór Guðmundsson (Skáldalíf) og Þórunn Erlu Valdimarsdóttir (Upp á sig- urhæðir). »Þetta er í fyrsta sinn semÓlafur Jóhann hlýtur Ís- lensku bókmenntaverðlaunin en hann var tilnefndur árið 1991 fyrir Fyrirgefningu syndanna. »Andri Snær fékk verðlauninárið 1999 fyrir Söguna af bláa hnettinum og var einnig til- nefndur árið 2002 fyrir skáld- sögu sína Lovestar. HLJÓMSVEITIRNAR Deep Purple og Uriah Heep hafa boðað komu sínu til landsins í maí, auk þess sem dauðarokksveitin Cannibal Corpse held- ur tvenna tónleika um mánaðamótin júní/júlí. Deep Purple er ein af allra stærstu rokk- sveitum sögunnar og ein þeirra sveita sem skópu það mót sem rokktónlist hefur sprottið úr síðast- liðna þrjá áratugi. Tónlist Deep Purple er fyrir löngu orðin klassísk en tónlistararfleið sveit- arinnar inniheldur nokkur af vinsælustu lögum allra tíma og má þar nefna slagara á borð við „Smoke on the Water“, „Hush“, „Highway Star“ og „Child in Time“. Sveitin spilaði hér í fyrsta skipti 18. júní árið 1971 og troðfyllti þá Höllina. Hún endurtók svo leikinn 33 árum seinna, 23. og 24. júní árið 2004 og fyllti Höllina þá tvisvar. Uriah Heep var stofnuð árið 1969 og heitir í höfuðið á persónu í bókinni David Copperfield eft- ir Charles Dickens. Sveitin hefur verið kölluð Beach Boys þungarokksins vegna þess hversu melódísk lögin hennar eru og vegna vörumerk- isins hennar; margradda bakradda. Meðal stærstu smella þeirra má nefna lög á borð við „Easy Livin’“, „Sweet Lorraine“ og „Stealin’“. Dauðarokksveitin Cannibal Corpse var stofnuð árið 1988 í Tampa í Flórída og vakti strax athygli þegar hún gaf út sína fyrstu plötu, Eaten Back To Life árið 1990. Platan, sem innihélt harðari og átakafyllri tónlist en þungarokksheimurinn hafði séð áður, vakti mikið umtal og varð strax mjög umdeild meðal foreldra og ráðamanna í Banda- ríkjunum og víðar. Sveitin hefur þó áunnið sér virðingu í gegnum árin fyrir mikla spilafærni, framúrskarandi tæknilega getu og djöfulslegar raddanir. Hugmyndaheimur hennar leitar fanga hjá raðmorðingjum, uppvakningum og hryllingi af öllum toga. Hún spilar á NASA 30. júní og 1. júlí. Hippar og dauðarokk til landsins Djúpir Hljómsveitin Deep Purple þegar hún var upp á sitt besta í upphafi áttunda áratugarins. ♦♦♦ BRESKA tónskáldinu Brian Fern- eyhough verða veitt hin alþjóðlegu tónlistarverðlaun kennd við Ernst von Siemens við athöfn í München þann 3. maí nk. Nemur verðlaunaféð 200 þúsund evrum. Í yfirlýsingu frá Ernst von Siemens-stofnuninni segir að Ferneyhough hafi „endurhugsað og varpað ljósi á hina endalausu möguleika þegar unnið er með efni- við tónlistarinnar og farið að mörk- um þeirra möguleika.“ Tónlist hins 64 ára Ferneyhoughs krefst gríðarlegrar færni af hljóð- færaleikurum og er jafnvel sögð óspilandi, ekki síst í tilviki tónverks- ins Unity Capsule fyrir þverflautu. Þess má þó geta að flautuleikarinn Kolbeinn Bjarnason hefur leikið verkið inn á geislaplötu. Ferneyhough verðlaunaður ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.