Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 11
FRÉTTIR
!" "#!! $" %! & $ &% &$'
# & ()! '*! + ,-- . #!&/"' %! &
0'#*& ,, + ,-1 % (20 + 0# 343 13-- + 555
67 LAGERSALA
25. jan. - 7. feb.
50-70%
AFSLÁTTUR
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík,
sími 562 2862
Laugavegi 82, á horni Barónsstígs - sími 551 4473
Útsölu-
lok
Síðustu
dagar
Laugardags-
tilboð
Póstsendum
„ÉG hef áhyggjur af þeirri gjá sem
virðist vera á milli réttarvitundar
almennings, okkar á Stígamótum
og dómskerfisins á Íslandi. Hingað
hafa hringt margar konur í dag [í
gær] af því að þeim ofbýður,“ segir
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stíga-
móta. Sér leiðist að heyra fólk
halda því fram að þeir sem mót-
mæla dómum í kynferðisbrota-
málum sé óupplýstur almúgi. „Það
er alvarlegt þegar þeir sem fyrir
hönd okkar allra kveða upp dóma í
alvarlegum málum virðast komast
að allt annarri niðurstöðu en við
hin,“ segir Guðrún.
Stígamót séu þessa dagana að
taka saman tölur
yfir starfsemi
samtakanna í
fyrra. „Nýjustu
tölur um kærur á
Stígamótum eru
þær að 13 af 299
málum voru
kærð. Og ekki
eru dómar eins
og þessi til þess fallnir að auka
tiltrú fólks á að ná rétti sínum,“
segir hún.
Þá segir Guðrún að það sé
áhyggjuefni að íhaldssemi sé inn-
byggð í réttarkerfið. Af því að dóm-
arar hafi ekki áður treyst sér til
þess að nýta refsirammann í þess-
um málum þá virðist ekki vera
hægt að breyta því. Vegna fyrri
dómaframkvæmda hafi Hæstirétt-
ur ákveðið „að milda dóminn sem
var nógu mildur fyrir í héraðs-
dómi“. Eftir að hafa lesið dómana
sé augljóst að ofbeldi þessa manns
hafi haft djúp og alvarleg áhrif á
þær stúlkur sem fyrir því urðu og
því miður sjái ekki fyrir endann á
afleiðingunum. Þær afleiðingar séu
vel þekktar á Stígamótum. „Miðað
við þann veruleika er þessi dómur
ótrúlegur og enn og aftur fáum við
það staðfest að kynferðisbrot eru
léttvæg fundin á Íslandi.“
Mörgum ofbýður dómurinn
„ÞETTA er afar alvarlegt brot
sem varðar fimm stúlkubörn og
hefur greinilega haft grafalvarleg
og varanleg áhrif á þau og líf
þeirra til framtíðar,“ segir Atli
Gíslason lögmaður um dóminn.
Atli segir að miðað við eðli kyn-
ferðisbrota og alvarlegar og ævar-
andi afleiðingar þeirra sé dómur
Hæstaréttar frá í fyrradag enn ein
staðfestingin á skilningsleysi rétt-
arvörslukerfisins á þessum brot-
um. „Það liggur núna fyrir hald-
bær þekking um þessar afleið-
ingar. Engu að síður vísar
Hæstiréttur til
fyrri dómafram-
kvæmdar. Það
finnst mér í raun
óásættanlegt.
Það eru uppi í
þessum mála-
flokki algjörlega
ný viðhorf og
miklu meiri
skilningur en var,“ segir Atli. Nið-
urstaðan um refsiþyngdina í mál-
inu sé því óviðunandi. Atli segi það
sína skoðun að allsherjar hug-
arfarsbreytingar sé þörf í rétt-
arvörslukerfinu, þar á meðal í
Hæstarétti, sem þurfi að taka sér
tak í þessum málaflokki. Herða
þurfi refsingar og gefa skýr skila-
boð um að þessi brot séu með öllu
ólíðandi. „Ég hef sagt það áður og
ég segi það enn að þessi brot
ganga næst manndrápi að alvar-
leik. Réttarvörslukerfið virðist alls
ekki átta sig á því. Dómur Hæsta-
réttar er enn ein staðfesting á því
og mér finnst það mjög miður,“
segir Atli. Dómurinn sé mikil von-
brigði. „Ég hélt að skilningurinn
væri meiri,“ segir hann.
Staðfestir skilningsleysi
MÁL það sem Hæstiréttur dæmdi í
á fimmtudag snýst um kynferðis-
brot karlmanns á fimmtudagsaldri
gegn fimm stúlkum. Maðurinn hafði
í héraðsdómi hlotið tveggja ára
fangelsisdóm fyrir brot sín, en nið-
urstaða Hæstaréttar var að mað-
urinn skyldi sæta 18 mánaða fang-
elsi og greiða fórnarlömbum sínum
2,4 milljónir króna í skaðabætur.
Í dómi Hæstaréttar sagði að að
virtum þeim atriðum sem greini í
héraðsdómi varðandi ákvörðun
refsingar og að teknu tilliti til
dómaframkvæmdar Hæstaréttar í
málum sem varði með hliðstæðum
hætti brot gegn 1. mgr. og 2. mgr.
202. gr. og 4. mgr. 210. gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19/1940
verði ákærða gert að sæta fangelsi í
18 mánuði.
Brotin sem maðurinn var ákærð-
ur fyrir áttu sér stað á tíu ára tíma-
bili, auk þess sem í tölvu hans fund-
ust 210 barnaklámmyndir.
Maðurinn hafði ljósmyndað tvö
fórnarlömb sín í klámfengnum til-
gangi.
Yngsta telpan var þriggja ára
þegar ákærði braut gegn henni.
Skiptar skoðanir um dóminn
Hæstiréttur mildaði á fimmtudag fangelsisdóm yfir
karlmanni sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot gegn
fimm stúlkum, úr tveimur árum í 18 mánuði. Morg-
unblaðið leitaði viðbragða við dóminum.
Morgunblaðið/Kristinn
Dómur Hæstiréttur mildaði dóm yfir manni sem áður hafði verið dæmdur í
héraði fyrir kynferðisbrot gegn börnum, úr tveimur árum í 18 mánuði.
INGIBJÖRG
Rafnar, umboðs-
maður barna,
segist ekki vilja
tjá sig um ein-
staka dóma
Hæstaréttar.
Spurð um afstöðu
sína til slíkra
mála almennt tal-
að bendir Ingibjörg á að nú sé til
meðferðar á Alþingi frumvarp til
breytinga á hegningarlögum, en þar
sé verið að auka vernd barna tölu-
vert. Ingibjörg hefur skilað inn um-
sögn til allsherjarnefndar vegna
frumvarpsins og segir að þótt það
færi óbreytt fram myndi það auka
vernd barna töluvert.
Meðal þess sem komi fram í því
frumvarpi sem nú liggi fyrir sé refsi-
hámark hækkað. Þá komi inn í
frumvarpið ákvæði um eins árs lág-
marksrefsingu í málum sem varða
brot gegn börnum. „Ég tel að það sé
mikil bót að því,“ segir Ingibjörg.
Það sé kannski ekki spurning um
að hafa refsihámarkið sem hæst
„heldur sýnist mér að ef við viljum
þyngja dóma ættum við kannski að
skoða að setja inn refsilágmark“.
Vernd
barna aukin
„ÞETTA er í
samræmi við
dóma Hæsta-
réttar í samsvar-
andi málum,“
segir Guð-
mundur Ágústs-
son héraðsdóms-
lögmaður um
dóminn frá því í
fyrradag. Hann segir Hæstarétt
ekki hafa farið út fyrir sína línu.
Það sé ekki mikil breyting að fara
úr tveggja ára fangelsisrefsingu
niður í 18 mánuði. „Þetta er engin
stefnubreyting og það er háð mati
hverju sinni hvort [refsingin] eigi
að vera 18 mánuðir, 24 mánuðir
eða eitthvað slíkt.“
Guðmundur segir dóminn sýna
að Hæstarétti hafi fundist dómur
Héraðsdóms vera fullþungur mið-
að við hvernig dæmt hafi verið
undanfarið. „Þetta er engin
stefnumörkun eða -breyting. Þeir
hafa bara skoðað sína dóma og
séð að í samskonar máli hafa þeir
dæmt 18 mánuði,“ segir Guð-
mundur.
Refsingar í kynferðisbrota-
málum hafi verið að þyngjast,
Hæstiréttur hafi smáþyngt dóma
sína. Í máli á borð við það sem nú
sé rætt um hefði hugsanlega fallið
dómur um eins árs refsingu fyrir
tveimur árum.
Ekki stefnu-
breyting
Fáðu úrslitin
send í símann þinn