Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 12
12 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýi fjölnotabíllinn frá Kia er kominn og sameinar
glæsilegt útlit, sveigjanlegt rými og ríkulegan
staðalbúnað. Kia Carens rúmar allt að sjö manns, en
gefur líka endalausa notkunarmöguleika. Að sjálfsögðu
er verðið eftir sem áður í anda Kia.
• ABS og EBD hemlakerfi
• ESP stöðugleikastýring
• Aksturstölva
• Ræsitengd þjófavörn
• 15” álfelgur
• Þokuljós að framan og aftan
• Rafstýrt bílstjórasæti
• Regnskynjari á þurrkum
• Bakkskynjari
• Loftkæling
• Ljósnæmur baksýnisspegill
• Rafgeymavaktari
• Langbogar og þverbogar á toppi
• 3ja punkta öryggisbelti fyrir sjö farþega
• Hraðastillir
... og margt fleira
KIA umboðið á Íslandi er í e igu HEKLU • Laugavegi 172 • Reykjavík • sími 590 5700 • www.kia. is
NÝR KIA CARENS
EINN FYRIR ALLA!
FRUMSÝNING Á NÝJUM KIA CARENS
Opið í dag, laugardag, kl. 11–16.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„ÞRÓUNIN er algjörlega í þá átt að
leggja meira af strengjum og það er
almennur skilningur fyrir því að um-
hverfið kallar á það, jafnvel þótt það
hafi í för með sér aukinn kostnað,“
segir Þórður Guðmundsson, for-
stjóri Landsnets. Í tillögu að mats-
áætlun vegna háspennulína frá
Hellisheiði að Straumsvík, sem hefur
í för með sér bæði ný línustæði sem
og nýjar línur sem fylgi eldri línum,
er aðeins að litlum hluta gert ráð fyr-
ir að rafmagn verði flutt með jarð-
strengjum. Orkuveitan, sem fram-
leiðir orkuna sem um ræðir, hefur
gert athugasemdir við þetta og tekur
Landvernd í sama streng.
Með framkvæmdinni hyggst
Landsnet styrkja raforkuflutnings-
kerfið á Suðvesturlandi frá Hellis-
heiði að Straumsvík vegna hugsan-
legrar stækkunar álvers Alcan.
Framkvæmdirnar eru jafnframt
áfangi í langtímauppbyggingu raf-
orkukerfis í þessum landshluta. Í
þessu skyni verður ráðist í fram-
kvæmdir við níu háspennulínur sem
eru allt upp í um 30 km að lengd.
Línurnar munu flytja rafmagn frá
virkjunum Orkuveitunnar á Hellis-
heiði sem og fyrirhuguðum virkjun-
um Landsvirkjunar í Neðri-Þjórsá.
Er flutningskerfinu fyrst og fremst
ætlað að mæta aukinni eftirspurn at-
vinnulífs fyrir raforku.
Spurður að því hvort ekki sé eðli-
legt að stórfyrirtæki á borð við Al-
can, sem m.a. mun nýta rafmagnið
sem um ræðir, greiði hærra raforku-
verð, sem dýrari flutningsleiðir hafi í
för með sér, til að lágmarka um-
hverfisáhrif, svarar Þórður. „Þetta
verkefni er tengt stóriðjunni og það
þýðir að stóriðjan er því sá aðili sem
þarf að borga brúsann. Við hins veg-
ar lítum svo á að okkar fyrsta lausn
sé að fara þá leið sem ódýrust er. Við
leggjum það fram í frummatsskýrslu
til að fá viðbrögð allra hagsmuna-
aðila, þar með talið almennings. Ef
það eru slíkir almannahagsmunir í
húfi að aðilar telji að við ættum að
fara aðra leið, þá erum við reiðubúin
að skoða það.“
Þórður bendir á að í farvatninu sé
lagning jarðstrengja í stað loftlína
sem og fækkun lína á svæðinu sem
líta megi á sem mótvægisaðgerð.
T.d. eigi að leggja Sogslínu 2 af og
tengja Nesjavelli við flutningskerfið
á Suðvesturlandi með jarðstreng.
Viðhald og viðbætur erfiðar
Á síðustu árum hefur skapast um-
ræða hér á landi og í nágrannalönd-
unum um þann möguleika að leggja
flutningslínur sem jarðstrengi í stað
loftlína til að minnka sjónræn áhrif
háspennulína. Háspennulínur yfir
100 kílóvolt (kV) eru almennt lagðar
sem loftlínur um allan heim. Í mats-
áætlun Landsnets kemur fram að þó
séu dæmi þess að flutningslínur séu
lagðar sem strengir og er það að-
allega gert af öryggisástæðum eða
vegna sérstakra umhverfishags-
muna. Sé eingöngu litið til sjón-
rænna áhrifa er það augljóslega góð-
ur kostur að leggja flutningslínur í
jörð. En verðmunurinn er gríðarleg-
ur. Til viðbótar koma síðan ýmis
tæknileg vandkvæði sem fylgja jarð-
strengjakerfum á hárri spennu. Líf-
tími þeirra er minni en loftlína og
sveigjanleiki til breytinga og aðlög-
unar kerfisins að breyttum þörfum
mun minni. Þá tekur lengri tíma að
gera við jarðstrengi en loftlínur sem
hefur áhrif á afhendingaröryggi raf-
orkunnar.
„Orkuveitan hefur þá skoðun að
skoða eigi jarðstrengi til jafns við
aðra kosti og meta þá annars vegar
umhverfislega og hins vegar kostn-
aðarlega,“ segir Guðmundur Þór-
oddsson, forstjóri Orkuveitunnar.
„Við teljum að [Landsnet] ætli ekki
að skoða nægilega möguleika á lagn-
ingu jarðstrengja og höfum gert at-
hugasemdir við það,“ segir Guð-
mundur. Vill OR að lagt verði að
nýju mat á kostnað við að leggja
jarðstrengi í stað loftlína þar sem því
verði við komið. Umhverfisverndar-
sjónarmið geti kallað á meiri kostn-
að. „En þetta er bara einn af þeim
kostnaðarliðum sem fylgja þessum
verkefnum í dag og taka verður tillit
til. Það er ekki alltaf borðleggjandi
að fara ódýrustu leiðina, til þess setj-
um við framkvæmdir í umhverfis-
mat.“
Spurður hvort honum þyki eðli-
legt að kostnaður við flutning á raf-
magni sé hærri þegar kaupandi ork-
unnar sé stórfyrirtæki en ekki
almenningur bendir Guðmundur á
að Alþingi hafi ákveðið að ein gjald-
skrá myndi yfir alla ganga í þessum
efnum. Hafi kaupandinn mikil áhrif á
kostnað kerfisins á hann að greiða
sérstaklega fyrir það. „Það er alveg
ljóst að í þessu tilfelli myndi kaup-
andinn einn og sér vilja setja upp
eigin flutningsvirki og hafa af því
minni kostnað en af gjaldskrá
Landsnets,“ segir Guðmundur. „Í
þessu tilfelli tel ég að álverið sé að
niðurgreiða [flutningskostnaðinn]
fyrir heildina.“
Orkuveita Reykjavíkur hefur ein-
sett sér að vera í fararbroddi í góðri
umgengni við umhverfið, markmið
fyrirtækisins er að vinna í náinni
samvinnu við viðskiptavini og þjón-
ustuaðila um að þeir uppfylli um-
hverfismarkmið Orkuveitunnar.
„Við skilgreinum okkur sem um-
hverfisfyrirtæki og tökum það mjög
alvarlega og viljum að allir mögu-
leikar við framkvæmdir séu skoðaðir
með það að leiðarljósi,“ segir Guð-
mundur.
Línur ekki áður í umræðunni
Nú mun Skipulagsstofnun fjalla
um matsskýrsluna að teknu tilliti til
athugasemda sem borist hafa. „Ég
geng út frá því sem vísu að það verði
meiri þrýstingur á strengi,“ segir
Þórður hjá Landsneti. „Það verður
líka að skoða þetta með tilliti til þess
að línubyggingar hafa aldrei áður
farið í gegnum þessa umræðu, þ.e.
hvort leggja eigi streng í stað línu.
Þetta er í fyrsta skipti sem við stönd-
um frammi fyrir þessu. Við höfum
skilning á þessum athugasemdum og
viljum gjarnan lágmarka áhrif okkar
á umhverfið.“
!"
# $ %
&
'
" (
'
" (
'
" )(
Strengurinn
margfalt dýr-
ari en línan
Skilningur á því að umhverfissjónar-
mið leiði til meiri kostnaðar