Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 13
ÚR VERINU
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Bergur-
Huginn hefur á tveimur árum varið
2,8 milljörðum króna til skipa- og
kvótakaupa. Veiðiheimildir félagsins
eru orðnar ígildi 6.500 þorsktonna og
nema 1,6% af öllum úthlutuðum veiði-
heimildum á landinu.
Í gær var tveimur nýjum skipum,
sem sérstaklega eru byggð fyrir flota
Vestmannaeyja, gefið nafn í skipa-
smíðastöð í Póllandi. Skipin eru
byggð fyrir útgerðarfélagið Berg-
Hugin ehf. sem hefur í nær 4 áratugi
stundað umfangsmikla útgerð frá
Eyjum.
Þóra Magnúsdóttir, móðir Magn-
úsar Kristinssonar útgerðarmanns,
gaf fyrra skipinu nafnið Vestmanna-
ey VE 444, en eiginkona Magnúsar,
Lóa Skarphéðinsdóttir, gaf hinu skip-
inu nafnið Bergey VE 544.
Systurskip búin
til ferskfiskveiða
Skipin eru systurskip, 29 metra
löng og búin til ferskfiskveiða, svo-
kallaðir þriggja mílna togbátar. Nýja
Vestmannaeyin kemur í stað vinnslu-
skips með sama nafni sem byggt var í
Japan 1972. Vestmannaey hefur ver-
ið mikið happafley og er áætlað að
skipið komi til veiða í byrjun mars nk.
Skipstjóri á Vestmannaey VE 444
verður Birgir Þór Sverrisson og yf-
irvélstjóri Kristinn Valgeirsson.
Bergey er viðbót við flota Bergs-
Hugins ehf. en félagið átti fyrir
nokkrum árum mikið happaskip með
sama nafni. Áætlað er að Bergey
komi til veiða í september á þessu ári.
Skipstjóri á Bergey VE 544 verður
Sigurður G. Sigurjónsson.
Samhliða þessum skipakaupum
hefur Bergur-Huginn ehf. aflað sér
aukinna veiðiheimilda. Þannig fjár-
festi félagið í varanlegum veiðiheim-
ildum fyrir um 800 milljónir á árun-
um 2005 og 2006. Nú í upphafi árs
hefur félagið keypt tvö minni útgerð-
arfélög, auk kvóta af öðrum útgerð-
um fyrir um einn milljarð króna. Á
síðustu 18 mánuðum hefur félagið
fjárfest í aflaheimildum fyrir nær 1,8
milljarða króna og hafa heimildir
þess aukist um 1600 tonn eða sem
svarar rúmum 1.300 tonnum í þorsk-
ígildum talið. Veiðiheimildir félagsins
eru nú alls tæp 6500 tonn í þorskígild-
um. Veiðiheimildir félagsins í ís-
lenskri landhelgi eru 1,59% af öllum
úthlutuðum aflaheimildum. Þetta
hlutfall var 1,24% í byrjun kvótaárs-
ins 2005/2006 og hefur því vaxið um
0,35% á síðustu tveimur árum.
Björt framtíð
,,Ég tel útgerðina í Eyjum eiga
bjarta framtíð og það er til marks um
þessa sannfæringu að við erum að
fjárfesta í skipum og aflaheimildum
fyrir nær 2,8 milljarða á þessum
tveimur árum. Eyjarnar eru gott
samfélag sem við viljum efla á alla
lund og þetta er liður í því,“ segir
Magnús Kristinsson útgerðarmaður.
Tveimur nýjum skipum
gefið nafn í Póllandi
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Nýsmíðar Þær gáfu skipunum nafn, Þóra Magnúsdóttir, móðir Magnúsar
Kristinssonar útgerðarmanns, og eiginkona hans, Lóa Skarphéðinsdóttir.
Á milli þeirra er Inga Eymundsdóttir, eiginkona Þórðar Rafns Sigurðs-
sonar, útgerðarmanns Dalarafns, en hann var að skrifa undir samning um
smíði á nýju skipi í Póllandi.
Í HNOTSKURN
»Skipin eru systurskip, 29metra löng og búin til
ferskfiskveiða, svokallaðir
þriggja mílna togbátar.
»Hlutfall aflahlutdeildarvar 1,24% í byrjun kvóta-
ársins 2005/2006 og hefur því
vaxið um 0,35% á síðustu
tveimur árum.
»Bergur-Huginn hefur fjár-fest í skipum og aflaheim-
ildum fyrir nær 2,8 milljarða á
tveimur árum.
Bergur-Huginn
fjölgar skipum og
eykur aflaheimildir
FÆREYSKA útgerðin Thor
Fisheries hefur samið um kaup á
tveimur stórum frystistogurum.
Þeir heita Herkúles og Póseidon,
eru 105 metra langir, 20 metra
breiðir og með ríflega 8.000 hest-
afla Wartsila aðalvél.
Þessi skip eru úr svonefndri
Vigo-seríu, en á árunum 1991 til
1996 voru 15 systurskip byggð
þar. Eitt af þessum systurskipum
er Aþena, en þar á Thor pf. hlut í
og gerir skipið út undir færeysku
flaggi.
Togararnir tveir eru í Panama
eins og er og var fyrra skipið,
Póseidon, yfirtekið í lok janúar.
Seinna skipið, Herkúles, verður
væntanlega klár til afhendingar í
lok febrúar. Bæði skipin hafa
verið að veiðum í Kyrrahafinu og
er gert ráð fyrir að þau haldi til
veiða á ný í febrúar og marz.
Ætlunin er að stunda veiðar á
hrossamakríl á alþjóðlegu haf-
svæði utan lögsögu ríkja Suður-
Ameríku. Makríllinn verður heil-
frystur um borð og fluttur í land
á flutningaskipi. Afkastageta
skipanna hvors um sig er um 280
tonn af afurðum á sólarhring.
Um 120 manns verða í áhöfn
hvors skips og í henni verða Fær-
eyingar, Norðmenn, Rússar og
Kínverjar.
Skipin munu sigla undir fær-
eyskum fána og skrásett í Hós-
vík, þar sem höfuðstöðvar Thors
pf. eru.
Kaupin eru fjármögnuð með
aðstoð færeyskra lánastofnana,
þar sem Eik er í forystu. Sam-
anlagt kaupverð skipanna er um
3,6 milljarðar íslenzkra króna.
Færeyingar
kaupa tvo
frystitogara
fyrir fyrirtækið fyrir uppátækin fyrir tómstundirnarfyrir fjölskylduna
Kia Carens CRDi dísil, sjálfskiptur, 2.0 l, 140 hö. Verð frá 2.850.000 kr.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
8
0
5
6