Morgunblaðið - 03.02.2007, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Það gerist ekki á hverj-
um degi að kind sé stolið frá sauða-
þjófi og það um hábjartan dag. En
síðasti dagur janúarmánaðar varð
fyrir valinu hjá þeim sem hurfu á
braut með gerðarlegan uppstopp-
aðan hrútshaus af Hótel Blönduósi
en þar er meðal annars rekinn veit-
ingastaðurinn Sauðaþjófurinn.
Holgeir Clausen hótelstjóri á
Hótel Blönduósi sagði að hrúts-
hausnum sem var á vegg við inn-
ganginn að veitingasalnum hefði
verið stolið um miðjan dag og að
þrír menn hefðu þá verið við vinnu
inni á hótelinu og einskis orðið var-
ir. Holgeir segir það merkilegt að
engu öðru hafi verið stolið, því sá
sem fjarlægði hrútsa þurfti að
ganga fram hjá afgreiðslu hótelsins
og þar hefðu verið fartölvur og
annað sem er mun verðmætara en
höfuðið af hrútnum.
Holgeir var ekki búinn að kæra
haushvarfið til lögreglu þegar
fréttaritari ræddi við hann í vik-
unni og var á báðum áttum um
hvort hann ætti að gera það því lík-
ast til væri langt síðan Blönduós-
lögreglan hefði fengist við sauða-
þjófnað og það hjá Sauðaþjófnum
sjálfum.
Hrútshaus stolið
frá Sauðaþjófnum
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Horfinn Holgeir Clausen bendir á þann stað sem hrútshausinn góði var.
Vinstra megin við innganginn er enn höfuð af hrúti og það ferhyrndum.
Stokkseyri | Starfsár Veiðisafns-
ins á Stokkseyri hefst með ár-
legri byssusýningu í samvinnu við
verslunina Vesturröst í dag og á
morgun, báða dagana frá
klukkan 11 til 18. Sýningin er í
húsakynnum safnsins á Stokks-
eyri.
Verður fjölbreytt úrval skot-
vopna til sýnis og munu starfs-
menn frá Vesturröst veita upplýs-
ingar um vörurnar sem og
fylgihluti. Einnig verða til sýnis
byssur frá Veiðisafninu sem ekki
tilheyra grunnsýningu safnsins
og skotvopn úr einkasöfnum, m.a.
annars frá Sverri Scheving Thor-
steinssyni og Drífu-haglabyssur
framleiddar af Jóni Björnssyni.
Byssusýning
í Veiðisafninu
LANDIÐ
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
SVIFRYK er töluvert meira við
Glerárgötu á Akureyri en á Grens-
ásveginum í Reykjavík þar sem
ástandið er verst í höfuðborginni.
Þetta kemur fram í mælingum sem
umhverfisfræðingarnir Kristín Sig-
fúsdóttir og Sóley Jóhannsdóttir á
Akureyri gerðu á nýliðnu ári.
Allt árið fór svifrykið 29 daga yfir
heilsuverndarmörk í Reykjavík – ná-
kvæmlega jafnmarga daga og leyfi-
legt er samkvæmt reglugerð Evr-
ópusambandsins. Á Akureyri var
einungis mælt í níu mánuði af tólf en
engu að síður fór svifrykið þar 48
daga yfir umrædd mörk.
Meginástæður svifryks eru út-
blástur frá bifreiðum og malbik og
notkun nagladekkja er mun meiri á
Akureyri en syðra. Kristín segir svif-
ryk eðlilega mun minna þegar snjór
hylur jörð en í fyrra hafi verið snjó-
létt; nánast sumarfæri að vetrarlagi,
en margir ekið á negldum hjólbörð-
um þrátt fyrir það.
Heilsuverndarmörkin miðast við
50 míkrógrömm svifryks á rúm-
metra að meðaltali yfir sólarhring.
Við mælistöð umhverfissviðs
Reykjavíkurborgar við Grensásveg
hefur aldrei mælst meira en á nýlið-
inni nýársnótt; hálftímagildi mæl-
inga þar var hæst klukkan eitt eftir
miðnætti: svifryk þá 1.963 míkró-
grömm á rúmmetra (!), en sólar-
hringsgildið var 137,6.
Kristín segir að marga daga í
fyrra hafi svifryk mælst á milli 100
og 200 míkrógrömm á rúmmetra á
Akureyri en skv. bandarískum stöðl-
um er eldri borgurum og börnum
þar í landi, sem og fólki með önd-
unarfæra- og hjartasjúkdóma, ráð-
lagt að forðast langa áreynslu þegar
svo háttar. Hún segir að víða um
lönd séu gefnar út viðvaranir þegar
svifryk fer yfir ákveðin mörk, eins og
t.d. þegar frjóduft er svo mikið að
það geti valdið fólki með ofnæmi
vandræðum, og mælir eindregið með
því að slíkt verði tekið upp hér.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu fyrir fáeinum dögum bendir
ný og viðamikil bandarísk rannsókn
til þess að sterk tengsl séu á milli
loftmengunar frá hraðbrautum og
langtímalungnaskaða í börnum og
Kristín segir að niðurstöður mæling-
anna á Akureyri séu grafalvarleg tíð-
indi. Ekki þýði að skella skollaeyrum
við þeim og besta leiðin til bóta sé að
draga úr akstri árdegis og síðari
hluta dagsins. „Að fólk gangi eða fari
með strætó til vinnu og í skóla, og
svo að dregið verði úr þessu eilífa
skutli með börnin,“ segir hún.
Kristín segir e.t.v. ekki heppilegt
að miðstýringu sé beitt eða bæjaryf-
irvöld stundi markaðssetningu
ákveðinna hluta – en bætir svo við:
„En mikið væri sniðugt ef Akureyr-
arbær gæfi öllum hjól í fermingar-
gjöf …“
Svifryk mun meira vandamál
á Akureyri en í Reykjavík
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þjóðvegur 1 Glerárgatan sem liggur í gegnum bæinn; svifryk er þar meira en á Grensásveginum í Reykjavík.
VEITINGASTAÐURINN Friðrik V
verður í sumar fluttur úr Strand-
götunni, í eina húsið sem enn á eftir
að gera upp í Kaupfélagsgilinu,
sem svo var nefnt. Þar ætla eig-
endur staðarins einnig að reka
verslun með matvæli úr héraðinu.
Kaupfélag Eyfirðinga á húsið og
gerir það upp á næstu mánuðum, en
framkvæmdastjóri KEA og eig-
endur veitingastaðarins skrifuðu í
gær undir leigusamning til 10 ára.
Húsið, sem er 462 fermetrar að
gólffleti, hefur oft verið kallað
bögglageymslan undanfarið en
gamlir KEA-menn tala gjarnan um
það sem gamla mjólkursamlagið.
Það er neðarlega í Gilinu, ofan við
gömlu höfuðstöðvar KEA.
Húsið var byggt sem sláturhús
1907 en auk þess var þar m.a. rekin
mjólkurvinnslustöð (sem síðar var
ofar í götunni), kaffibrennsla, gos-
drykkjaverksmiðja og verslun.
Bögglageymsla var lengi í kjallara
suðausturhorns hússins, þar sem
verslunin verður staðsett. Líkt og
önnur í Gilinu var húsið byggt upp í
kringum starfsemi KEA og hefur
alla tíð verið í eigu félagsins. Það
hefur staðið autt eftir bruna 1971
og hefur síðan verið notað sem
geymsla. Stefnt er að því að útlitið
verði sem næst því upprunalega.
Friðrik V. Karlsson veit-
ingamaður sagði í gær að „hjarta“
veitingastaðarins – eldhúsið – yrði
miklu stærra á nýja staðnum en í
núverandi húsnæði og veitingasal-
urinn einnig. „Markaðurinn er fyrir
hendi; við stöndum frammi fyrir því
í dag að geta ekki tekið á móti öll-
um þeim viðskiptavinum sem vilja
koma til okkar,“ sagði hann.
Líf færist í síðasta
KEA-húsið í Gilinu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Veitingastaður og verslun Líf verður í húsinu fyrir aftan þremenningana á ný í sumar eftir langt hlé. Hjónin
Friðrik V. Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir ásamt Halldóri Jóhannssyni, framkvæmdastjóra KEA, í Gilinu í gær.
„MÉR leist satt að segja ekkert á
þetta fyrstu vikuna, en nú er að-
sóknin orðin svipuð og áður,“ segir
Sæmundur Ólason, eigandi Amor
við Ráðhústorg, en þar hefur verið
bannað að reykja síðan 15. janúar.
Áður hafa reykingar verið bann-
aðar á kaffihúsum og mat-
sölustöðum í bænum en Amor er
fyrsti skemmtistaðurinn sem setur
þessa reglu.
„Við höfum fengið mikið hrós en
líka skammir. Hingað hefur komið
fólk og farið strax út – og sagst
aldrei myndu koma aftur. En þeir
eru miklu færri en hinir sem eru
ánægðir.“
Í sumar taka gildi lög sem banna
reykingar á skemmtistöðum. „Okk-
ur fannst tilvalið að drífa í breyt-
ingunni strax þegar við máluðum
og gerðum huggulegt hérna eftir
bruna sem varð milli jóla og nýárs,“
segir Sæmundur.
Skammir og
hrós á Amor
OPINN fundur um erlent vinnuafl
og áhrif þess á vinnumarkaðinn
verður á vegum Stefnu – félags
vinstri manna, að Skipagötu 14 í
dag kl. 14. Ræðumaður: Aðalsteinn
Baldursson formaður Verkalýðs-
félags Húsavíkur og nágrennis.
Erlent vinnuafl
KRISTÍN Guðmundsdóttir opnar í
dag kl. 14. listsýninguna Barns-
legar minningar + löstur mannsins
á Café Karólínu. Þetta er fyrsta
einkasýning hennar.
Listsýning á
Café Karólínu
SVIFRYK eru örsmáar agnir í and-
rúmsloftinu. Það er að mestu leyti
til komið vegna útblásturs frá bif-
reiðum og malbiks sem spænist upp
vegna aksturs á nagladekkjum.
Svifryk getur haft slæm áhrif á fólk
með öndunarfæra- eða hjarta-
sjúkdóma, eldri borgara og börn.
Svifryk fór oft yfir þau mörk á Ak-
ureyri í fyrra svo að með réttu
hefði átt að ráðleggja því fólki að
takmarka áreynslu utandyra.
Hvað er
svifryk?