Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 19
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | „Ég er ánægð með
Reykjanesbæ í þessum samanburði.
Við stöndum okkur vel og afburðavel
þegar tekið er tillit til systkinaafslátt-
ar,“ segir Guðríður Helgadóttir, leik-
skólafulltrúi á Fræðsluskrifstofu
Reykjanesbæjar. Í samanburði á
leikskólagjöldum tólf sveitarfélaga
kemur fram að mikill munur er á milli
sveitarfélaganna.
Leikskólafulltrúar eru hjá tólf
sveitarfélögum og tók Guðríður að
sér ásamt leikskólafulltrúanum í
Vestmannaeyjum að taka saman
upplýsingar um leikskólagjöld í jan-
úar. Hún segir mikilvægt að þessar
upplýsingar liggi fyrir. Mikið sé
spurt um leikskólagjöld og þau borin
saman milli sveitarfélaga. Ætlunin sé
að halda áfram að safna þessum upp-
lýsingum þannig að allir sem á þurfa
að halda geti ávallt gengið að áreið-
anlegum upplýsingum.
Reykjavík alltaf lægst
Samanburðurinn leiðir í ljós að
mikill munur er á leikskólagjöldum
milli sveitarfélaga, miðað við átta
tíma vistun með fæði. Gjöldin eru í
öllum tilvikum lægst í Reykjavík í
janúarmánuði, eins og sést á með-
fylgjandi töflu, en hæst í Ísafjarð-
arbæ í tveimur tilvikum af þremur og
í Vestmannaeyjum í einu tilviki.
Reykjanesbær er með fimmtu
lægstu leikskólagjöldin í þessum
samanburði, þegar um er að ræða eitt
barn, þriðju lægstu gjöldin þegar tvö
systkini eru saman og í öðru sæti
þegar reiknaður er afsláttur vegna
þriggja barna.
Guðríður segir að sveitarfélögin
greiði þessa þjónustu mikið niður.
Þannig greiði Reykjanesbær nú 85%
kostnaðar við leikskólana á móti 15%
framlagi foreldra. Þetta hafi breyst
mikið á undanförnum árum, hlutur
foreldra hafi minnkað um helming.
Varðandi samanburðinn tekur
Guðríður fram að ekki sé metið
hvernig máltíðir börnunum standi til
boða en sveitarfélögin séu mislangt
komin í þróuninni. Hún segir að mikil
áhersla sé lögð á hollustufæði á leik-
skólum Reykjanesbæjar, meðal ann-
ars ávexti sem séu tiltölulega dýrt
hráefni, og búið að útrýma unnum
kjötvörum og sykri.
Sjö leikskólar eru í Reykjanesbæ
og sá áttundi tekur til starfa í haust í
Tjarnahverfi. 659 börn eru á leikskól-
unum. Allir leikskólarnir hafa sett
sér skólanámskrá og þeir fyrstu
gerðu það á árinu 2002. Öflugt um-
bótastarf er unnið, meðal annars
tóku skólarnir þátt í lestrarmenning-
arverkefni í Reykjanesbæ með góð-
um árangri.
Allir skólarnir eru með virkar
heimasíður og miðla þannig upplýs-
ingum til foreldra um það hvað börn-
in eru að gera og matseðla. „Ég er
stolt af skólunum, hér er unnið virki-
lega gott og faglegt starf og starfs-
fólkið jákvætt,“ segir Guðríður.
Mikill munur á leikskóla-
gjöldum sveitarfélaga
Í HNOTSKURN
» Leikskólagjöld voru lægstí Reykjavík í janúar en
hæst á Ísafirði og í Vest-
mannaeyjum.
» Leikskólastjórinn íReykjanesbæ er ánægður
með það hvernig bærinn kem-
ur út í samanburðinum.
%"
&//%
4+% 5
"* 6 3
!
& &//%
4+% 5
"* 6 3
'
& &//%
4+% 5
"* 6 3
(
)
&
*
!##$
& & & & &)
& & & &)
)&) & & 4 7 #
' " "+%
7
89 !
4 7 .:
! " .:
3 * %
;.!
5
6 % .:
7
2 " % .:
)&
& & &) )& )& )&)
& & & )& & & 4 7 #
89 !
4 7 .:
! " .:
7
' " "+%
;.!
3 * %
6 % .:
7
5
2 " % .:
)&
&)
& & )&) & & & &) &)
&) & & 4 7 #
4 7 .:
89 !
!" .:
7
' " "+%
3 * %
;.!
5
6 % .:
2 " % .:
7
)&
#
%":%
3
Keflavík | Skólamatur ehf. er að
ljúka við að koma upp salat- og
meðlætisbörum í öllum þeim skól-
um sem fyrirtækið þjónar. Axel
Jónsson, eigandi fyrirtækisins,
segir að þetta sé liður í þeirri við-
leitni sem frá upphafi hafi verið í
öndvegi; að bjóða börnunum sem
heilsusamlegastan mat.
Fyrirtæki Axels Jónssonar, Mat-
arlyst Atlanta ehf., hefur verið
skipt upp í tvö fyrirtæki. Annars
vegar er Matarlyst ehf. sem er
veislu- og framleiðslueldhús og er
það komið í nýtt húsnæði á Iðavöll-
um 3d í Keflavík. Hins vegar er
Skólamatur ehf., framleiðslufyr-
irtæki fyrir skólamáltíðir, sem fær
aukið rými á Iðavöllum 1.
Axel Jónsson segir að of þröngt
hafi verið um starfsemina og svo
starfi þessi tvö fyrirtæki á ólíkum
mörkuðum og í ólíku viðskiptaum-
hverfi, þess vegna hafi verið
ákveðið að skipta fyrirtækinu upp.
Haldið var upp á tímamótin í fyrra-
dag. Axel hefur unnið að þróun
verkefnisins um heitar skóla-
máltíðir og miðlægt skólaeldhús í
tíu ár. Nú framleiðir Skólamatur
ehf. hádegisverði fyrir sautján
skóla og tvo leikskóla á höfuðborg-
arsvæðinu og Suðurnesjum. Hefur
skólunum fjölgað smám saman á
undanförnum árum og sér Axel
fram á áframhaldandi aukningu á
næstu árum. Þá hefur að hans sögn
verið mikil aukning í annarri þjón-
ustu í skólanum, til dæmis sé víða
farið að bjóða upp á síðdegishress-
ingu.
Í næstu viku lýkur fyrirtækið við
að koma upp salat- og meðlæt-
isbörum í öllum skólunum. Mark-
miðið er að auka neyslu barna á
grænmeti og ávöxtum og auka fjöl-
breytni í skólamatnum. Axel segir
að salatbarirnir hafi fengið góðar
viðtökur.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Veisla Fjöldi gesta samfagnaði Axel Jónssyni og samstarfsfólki hans.
Skólamatur ehf. með
salatbar í öllum skólum
TENGLAR
..............................................
www.skolamatur.is
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Árborg | Gert er ráð fyrir fram-
kvæmdum fyrir 1,5 milljarða kr. í
fjárhagsáætlun Árborgar fyrir ný-
byrjað ár. Meginhluti framkvæmda-
fjárins verður tekinn að láni, eða lið-
lega 1,4 milljarðar kr.
Fjárhagsáætlunin var samþykkt á
fundi bæjarstjórnar í vikunni. Vinn-
an hafði dregist vegna meirihluta-
slita í desember.
Gert er ráð fyrir að samanlagðar
tekjur sveitarfélagsins og stofnana
þess verði liðlega 3,6 milljarðar kr. á
árinu sem er 11,6% hækkun frá fyrra
ári. Rekstrarútgjöld eru litlu minni
en afgangur af rekstri er rúmar 84
milljónir.
Fram kom að meirihlutinn leggur
áherslu á að halda lántökum til fram-
kvæmda á árinu 2007 í lágmarki án
þess þó að hefta eðlilega þróun og
uppbyggingu þjónustu.
Stærstu framkvæmdir og fjárfest-
ingar eru endurbætur og nýfram-
kvæmdir við Barnaskólann á Eyrar-
bakka og Stokkseyri fyrir 161
milljón kr., gatna- og stígagerð (að
frádr. gatnagerðargjöldum) kr. 44,5
milljónir, Sunnulækjarskóli, 2.
áfangi ásamt íþróttaálmu, 611 millj-
ónir, fráveita 165 milljónir, vatns-
veita 95 milljónir, hitaveita 301,5
milljón og aðrar fjárfestingar og
endurbætur 94 milljónir.
Sunnulækjarskóli mesta
framkvæmd Árborgar
Eftir Jón Hafstein Sigurmundsson
Þorlákshöfn | Allt iðar af lífi og fjöri í
leikskólanum Bergheimum í Þorláks-
höfn. Ásgerður Eiríksdóttir leik-
skólastjóri gaf sér þó örlítinn tíma í
öllu amstrinu til að spjalla um starf-
semina við fréttaritara. Það leyndi sér
ekki að þarna var á ferðinni mann-
eskja sem er á réttri hillu í lífinu. Ás-
gerður ljómaði af gleði þegar hún
sagði frá.
Miklar framfarir í söng
Það sem henni er efst í huga um
þessar mundir er kórstarf sem hófst í
skólanum síðastliðið haust. „Þetta
hófst allt með því að kirkjan í Þorláks-
höfn vildi leggja til söngkennara gegn
því að börnin syngju í kirkjunni, en í
allri þessari umræðu um að gera ekki
upp á milli trúarbragða og trúfélaga
gekk það ekki alveg upp. Samt sem
áður vildi kirkjan halda þessu áfram
og organisti kirkjunnar kemur í leik-
skólann einu sinni í viku og stjórnar
söngkennslu sem blandast leik
barnanna og gleðin er mikil. Það eru
börn á aldrinum 4 til 6 ára sem taka
þátt kórstarfinu, sem er á fimmtudög-
um og stendur yfir í 40 mínútur. Leik-
skólakennararnir aðstoða kórstjór-
ann að sjálfsögðu.
Fljótlega kom í ljós að hljóðfærið
sem skólinn átti var ekki gott en þá
brugðust félagar í Kiwanisklúbbnum
Ölveri fljótt við, eins og svo oft áður,
og gáfu okkur nýtt píanó. Segja má að
þessi starfsemi hafi vakið verðskuld-
aða athygli því hingað hringja og
koma kennarar víða að. Svo eru börn-
in búin að koma fram á aðventustund
og einnig hafa þau sungið fyrir aldr-
aða og var þeim vel tekið. Julian Ed-
ward Isaacs kórstjóri lætur börnin
syngja barnalög sem allir þekkja og
heldur hann mikið upp á íslensk al-
þýðulög. Mjög miklar framfarir hafa
orðið í söng barnanna og má heyra
margar undurfagrar raddir sem ekki
heyrðust áður,“ sagði Ásgerður.
Hún sagði að þessi söngkennsla
ætti örugglega eftir að skila sér með
börnunum upp í grunnskólann og
vonandi þaðan út í samfélagið. Sam-
starf milli skólastiganna er mikið og
gott. „Það er hægt að hafa samstarf á
svo óteljandi vegu og það má oft sam-
nýta starfskrafta eins og við erum að
gera. Í báðum þessum stofnunum eru
margir Íslendingar af erlendum upp-
runa og kallar það oft á utanaðkom-
andi aðstoð sem gott er að samnýta.
Við á Bergheimum höfum lengi starf-
að eftir kenningum Johns Dwey en
hann segir að best sé að læra hluti
með því að gera þá sjálfur,“ sagði Ás-
gerður.
Organistinn kemur
vikulega í leikskólann
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Leikur Ásgerður Eiríksdóttir, leikskólastjóri á Bergheimum í Þorlákshöfn,
ásamt þeim Júlíu Svansdóttur og Bjarka Fannari Magnússyni.