Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 22
Sól, sól skín á mig, ský, ský burt með þig …“. Þó þess séenn langt að bíða að sumarið gleðji okkur Íslendinga meðnærveru sinni eru vorboðar á borð við hækkandi sól enguað síður farnir að gera vart við sig. Tildurrófum og tísku-
fíklum til ómældrar ánægju er líka farið að bera á nýjum flíkum í
hillum fataverslana innan um útsöluafgangana. Og þó þess sé enn
langt að bíða að léttasti hásumarfatnaðurinn verði kallaður fram á
sjónarsviðið er engu að síður kærkomið að geta lífgað upp á vet-
urinn með sumarlegum innskotum – nýjum litatónum, líflegum
munstrum og jafnvel efnisnotkun sem best á heima innan marka
vísindaskáldskapar.
Þó fjölbreytnin sem einkennt hefur undanfarin tískutímabil
sé enn til staðar virðist eitt af lykilorðum tískusumarsins 2007
engu að síður ætla að verða kvenleiki. Hvort sem um er að
ræða ofurframúrstefnuleg korselett þeirra félaga Domenico
Dolce og Stefano Gabbana, munúðarfulla málmliti, rósótta
rómantík Alexanders McQueen eða sterklega munsturgerð
Diane von Furstenberg og Pucci tískuhússins liggur kven-
leikinn eins og rauður þráður í gegn. Sumarið 2007 stefn-
ir enda í að verða tími mittishárra „babydoll“ kjóla,
leggjaberandi pínupilsa og kvenlegra kjóla – það er þó
óþarfi að rífa í hár sitt í örvæntingu því sumarið mun bjóða
upp á fjölda annarra möguleika.
Mídasmeyjar og Barbarellur
Ekki eru allir straumar sumarsins komnir í hillur tískuversl-
ana hér heima á Fróni enn sem komið er. Nóg er þó að finna af
málmlitum fylgihlutum, sem raunar settu einnig svip sinn á
vetrartískuna. Háglansefni í gylltum og silfruðum tónum færa
götutískuna síðan nær ofurmunaði hátískuhúsanna, þó fínleg,
glansandi satínefni hæfi varla nema fullkomnasta vaxtarlagi.
Fyrir okkur hin er betra að daðra við glitið í stífari efnum.
Glansandi litríki, sem tískuspekúlantar voru ekki lengi að
nefna „gimsteinaliti“, í anda Muccia Prada henta þá einkar vel til
að lífga upp á vetrarklæðnaðinn – græn eða fjólublá satínskyrta
flakkar t.d. auðveldlega milli frosthörku febrúarmánaðar og sól-
ríks sumars.
Framtíðarstraumarnir, sem sumir hefðu síðan talið að erfitt
yrði að flytja frá sýningarpöllum hátískuhúsanna og yfir í götu-
tískuna, eru þá þegar farnir að láta bæra á sér. Þó ekki fari
mikið fyrir Barbarellum í ýktum korsellettum á skemmti-
stöðum borgarinnar eru plastefnin, sem framtíðartískuna
einkenndu, engu að síður farin að sjást. Háglansandi plast-
skór, belti eða aðrir fylgihlutir fela líka í sér vissan húmor – sá
sem þeim klæðist tekur sig varla of alvarlega eða hvað?
Munsturæði og „babydoll“-kjólar
Sterk gulir litatónar ásamt kóngabláum gera þá vart við sig á
ný og er sá guli raunar þegar farinn að lífga upp hillur nokk-
urra verslana, enda vel til þess fallinn að taka á móti vor-
inu, hvort sem er í formi sterkgulrar plastperlufestar,
litglaðs jakka eða sem ráðandi litur í sterkmunstruðum
kjól. Þessi sumarlegi litur fellur líka vel að mynst-
urgleðinni – enn einni sumarstefnunni – sem ólíkt öðrum
straumum getur með einum eða öðrum hætti hentað öllum
stærðum, gerðum og aldurshópum.
Sterkleg munstrin gefa hefðbundnum kjólasniðum til að
mynda nýtt líf, en til að forðast að gera samsetninguna of
frúarlega borgar sig að para þá með flatbotna skóm eða
sandölum – við munsturkjólana eru pinnahælar harð-
bannaðir!
Munsturgleðin nær einnig til stuttra skokka
sem passa vel yngri tískudrósum, sem og þeim sem
vilja hafa afslappað yfirbragð. Skokkarnir ná raunar einn-
ig vissri tengingu við „babydoll“ kjólana og geta virkað sem
hversdagslegri og auðklæðilegri útgáfa af þeim síðarnefndu, sem
raunar fá mun lengri líftíma í fylgd „leggings“-buxnanna og henta
með þeim hætti auk þess betur hinu dyntótta íslenska veðurfari.
annaei@mbl.is
Reuters
Glansandi Sterkir litir hjá
Dolce & Gabbana. Litríkar
skyrturnar, Vero Moda,
2.990 kr., falla vel að stílnum.
„Baby doll“ Rauður og munstraður
kjóll frá Anna Sui. TopShop-skokk-
urinn er ekki ósvipaður, 7.990 kr.
Blómlegt Sterkmunstraður stutt-
ur kjóll frá Gucci. TopShop-kjóll-
inn er síðari en með skemmti-
legum smáatriðum, 7.990 kr.
tíska
22 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Litríkt sumar
og skrautlegt
Þó enn sé vetur á Fróni er sum-
artískan engu að síður rétt
handan við hornið. Anna Sigríð-
ur Einarsdóttir fann fyrir
skyndilegri löngun til að bjóða
vorið velkomið í fataskápinn.
Líflegt Pucci-kjóllinn og blómleg
útgáfa Warehouse, 5.990 kr.
Morgunblaðið/Golli
Barbarella Framtíðar-
straumar frá Dolce &
Gabbana komnir á götuna.
Shoe studio, 14.990 kr.
Kvenlegt Fínlegar línur
frá Betsey Johnson. Sum-
arkjóll, Oasis, 11.990 kr.
Jakki, Vero Moda, 3.990 kr.
Gull og silfur Hér
glitrar allt og glóir
bæði hjá Armani sem
og á Íslandi. Ökkla-
skór Bianco, 10.900
kr. Taska Ware-
house, 2.990 kr. Ball-
erínuskór TopShop,
4.490 kr.
Vorlegt Páskagult hjá Christian
Lacroix. Perlufestin, Oasis, kr. 1.190,
er ekki síður lífleg og mussan, Oasis,
10.990 kr., skemmtilega „sixtís“-
legur. Karen Millen-jakkinn, 16.990
kr., minnir þá örlítið á Chanel.