Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 25
akkúrat ofan í plötuna. Þannig var
hægt að komast hjá því að brúnir
mynduðust og öll þrif eru þannig
mun auðveldari.
Fluttu út í hálft ár
Það er einhvern veginn þannig
að ein breyting kallar á breytingar
á einhverju öðru og þannig var
það í þeirra tilfelli. Á endanum var
nánast allt endurnýjað, allar lagn-
ir, rafmagnstafla, innréttingar,
þakkantur, þakjárn, gólfefni, sett-
ur gólfhiti o.fl. Fjölskyldan leigði
litla íbúð í Hafnarfirðinum, flutti
út meðan á breytingunum stóð og
sex mánuðum síðar áttu þau aft-
urkvæmt heim – við gríðarlegan
fögnuð barnanna. Þá var húsið
nánast tilbúið að undanskildum
smáfrágangi á rafmagni, en rafvir-
kjarnir voru að leggja lokahönd á
verkið. Þau segjast hafa verið
virkilega heppin með alla iðn-
aðarmenn og kannast ekkert við
að þeir standi ekki við sitt. Bygg-
ingameistarinn býr í næsta húsi og
hélt alveg utan um framkvæmdina.
Allt stóðst fullkomlega en þau
benda þó á að svona framkvæmdir
taki í langflestum tilfellum lengri
tíma en áætlað er í upphafi og
kosti talsvert meira. Þau segja út-
komuna sannarlega þess virði að
hafa þurft að flytja að heiman í
hálft ár og að húsið passi núna
akkúrat utan um fjölskylduna.
etra Virkilega smekklegt Rut Káradóttir hannaði skemmtilegarútfærslur inni á baðinu, meðal annars leynihillur þar semsjampóbrúsar og sápur eru geymd.
Borðstofa Hér snæðir fjölskyldan og nýtur birt-
unnar sem kemur inn um þessa skemmtilegu
glugga. Borð og stólar eru úr Epal.
Sjónvarpsskot Hér eyðir fjöl-
skyldan drjúgum tíma enda er sóf-
inn með eindæmum þægilegur.
Hann fengu þau í Exó en mubl-
urnar í Innx.
Fjölskyldan leigði litla
íbúð í Hafnarfirðinum,
flutti út meðan á breyting-
unum stóð og sex mánuð-
um síðar áttu þau aftur-
kvæmt heim – við gríðar-
legan fögnuð barnanna.
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 25
RANNSÓKNIR á mús-
um benda til þess að
nálastungur geti haft
jákvæð áhrif á dópam-
ínmagnið í heilanum.
Með hvaða hætti er
hins vegar ekki vitað.
Parkinsonsveiki er
tengd skorti á boðefn-
inu dópamíni í heil-
anum sem leiðir af því
að heilafrumur sem
framleiða dópamín
deyja.
Forskning.no greinir
frá því að kóreskir vís-
indamenn hafi fundið
vísbendingar um að
nálastungur geti haft
jákvæð áhrif á dópa-
mínframleiðsluna. Þeir
sprautuðu mýs með
efni sem drepur heila-
frumur sem framleiða
dópamín og þannig
framkölluðu þeir sjúk-
dóminn hjá músunum.
Lækkaði hægar
Að því loknu var músunum
skipt í þrjá hópa. Fyrsti hópurinn
fékk nálastungur annan hvorn dag
á tveimur stöðum á fæti, þ.e. í
hnésbótina og ristina. Þessir
punktar á líkamanum hafa frá
fornu fari verið tengdir vöðva-
hreyfingum.
Annar músahópurinn fékk nála-
stungur á tvo staði á mjöðm, en
þeir staðir hafa hingað til ekki
verið taldir sérlega næmir fyrir
nálastungum. Síðasti hópurinn
fékk hins vegar engar nálastung-
ur.
Sjö dögum síðar hafði dópamín-
magnið minnkað í öllum hópunum
en þó var nokkur munur á. Dópa-
mínmagnið var helmingi minna en
venjulega í hópunum sem fengu
engar nálastungur eða stungur í
mjaðmir.
Dópamínið lækkaði hins vegar
mun hægar hjá hópnum sem fékk
nálastungur í hnésbætur og ristar
og var um 80 prósent af eðlilegu
magni eftir sjö daga.
Nálastungur gegn
parkinsonsveiki?
Morgunblaðið/Golli
Rannsókn Nálastungur virðast hafa jákvæð
áhrif á dópamínmagn í heila.