Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 30

Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 30
30 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigurður Þor-berg Auðunsson fæddist á Yzta- Skála undir Vestur- Eyjafjöllum hinn 12. júní 1921. Hann lést á Landspítalanum hinn 22. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Auðunn Jónsson bóndi á Ysta-Skála, f. 11. júní 1892, d. 15. jan- úar 1959 og kona hans Jórunn Sig- urðardóttir, f. 10. ágúst 1895, d. 11. janúar 1983. Sigurður ólst upp í stórum systk- inahópi, 14 alls og eru 7 þeirra látin. Hann lauk barnaprófi frá Ysta-Skála 1935 og lauk síðan minna vélstjóraprófi 1942, sem síðan varð hans ævistarf. 14 ára fór hann til Vestmannaeyja og vann þar við bústörf, en fór heim í sveitina sína á sumrin. Í Eyjum kynntist hann eftirlif- andi konu sinni Guðmundu Björg- vinsdóttur frá Hvoli við Heima- götu, f. 20. október 1927. Hún er dóttir hjónanna Björgvins Páls- þeirra eru Emma Kristín, f. 1965, Sigríður Guðný, f. 1968 og Gunn- ar Már, f. 1974. 3) Auður, f. 27. mars 1948, d. í Danmörku 23. júní 1985. Maki Kári Jacobsen, f. 24. júlí 1946 og var heimili þeirra í Færeyjum. Börn þeirra eru Guð- mundur, f. 20. október 1968, Sól- berg, f. 17. ágúst 1971 og Maj- britt, f. 13. febrúar 1973. 4) María, f. 20. september 1950. Maki Jón Haukur Guðlaugsson, f. 2. október 1950. Dætur þeirra eru Sigurlaug, f. 1973, og Andrea, f. 1980. 5) Petrína, f. 8. febrúar 1955. Maki Guðni Friðrik Gunnarsson, f. 8. apríl 1953. Dætur Petrínu eru Lilja Björk, f. 1974, Elín Rut, f. 1979, og Sandra Dögg, f. 1989. Barnabörnin eru því 16 og 14 á lífi. Langafabörn Sigurðar eru nú 30. Sigurður stundaði sjómennsku á ýmsum Eyjabátum á árunum 1938–1945, einnig sem vélstjóri eftir 1942. Hann var vélstjóri hjá Fisk og Ís hf. í Vestmnnaeyjum 1945–1948 þegar Vinnslustöðin tók við rekstrinum. Síðan var hann vélstjóri hjá Vinnslustöðinni í hartnær 50 ár, er hann hætti störfum. Sigurður hlaut heið- ursskjöld Vélstjórafélags Vest- mannaeyja á sjómannadaginn 1986. Útför Sigurðar verður gerð frá Landakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. sonar, f. á Lambafelli í A-Eyjafjallahreppi 3. júlí 1906, d. 19. maí 1997, og Gunn- hildar Guðmunds- dóttur, f. á Akurhóli í Grindavík 17. ágúst 1904, d. á Selfossi 24. september 1987. Sig- urður og Guðmunda giftu sig hinn 8. des- ember 1945. Heimili þeirra í Vest- mannaeyjum var að Hvoli v/Heimagötu og Kirkjubæjarbraut 16. Eftir gos var heimili þeirra lengstum að Hásteinsvegi 64. Í júl- íbyrjun árið 2000 fluttu þau til Þorlákshafnar til að vera nær dætrum sínum og fjölskyldum þeirra. Dætur þeirra eru: 1) Björghildur, f. 16. ágúst 1945. Maki Stefán Jónasson, f. 24. des- ember 1945. Börn þeirra eru Guð- rún Hrönn, f. 1964, Sigurður Freyr, f. 1973, og Stefanía Þöll, f. 1978. Einnig áttu þau tvö börn andvana fædd. 2) Jóna, f. 16. sept- ember 1946. Maki Guðni Þór Ágústsson, f. 29. apríl 1944. Börn Á kveðjustund leitar hugurinn til baka. Á haustmánuðum 1993 birtist ég ásamt Petu minni á Hásteinsveg- inum í Eyjum. Þið Munda höfðuð heyrt af stráknum frá Gilsbakka og hann var veginn og metinn. Ég var tekinn inn í fjölskylduna fljótlega. Það var gott fyrir okkur að eiga þig og Mundu að, stelpurnar hafa notið samvera ömmu og afa og haft þar öruggt skjól. Hjá þeim var Siggi afi kletturinn í tilverunni. Fyrir mig er þessi tími ómetanlegur, oft var spjallað um gamla tíma bæði í Eyj- um og frá Eyjafjöllunum, sem þú unnir svo mjög. Oft lagðir þú leið þína austur á Heimaey til að horfa „heim“ að Skála undir Eyjafjöllum. Einnig minnist ég þess að standa við hlið þér í Ysta-Skála og horfa „heim“ til Eyja. Þar eydduð þið rúmum 60 árum, áður en þið eltuð okkur Petu á fastalandið. Ekki var farið langt, stoppað í Þorlákshöfn þar sem nýtt heimili var stofnað, þar sem sjá mátti fjallstopp- ana í Eyjum. Sem betur fer urðu samveru- stundirnar allnokkrar og gott að koma á Egilsbrautina. Oftast var umræðuefnið tengt Vestmannaeyj- um og eða íbúunum þar. Afkomendurnir voru þér ofarlega í huga, en alltaf var spurt um hvern- ig þeim gengi, ekki síst eftir að stelpurnar okkar fóru til náms í Danmörku. Þér var alltaf umhugað að krakkarnir hefðu það sem best og stæðu sig vel. Að leiðarlokum vil ég þakka þér fyrir allt og vona að góður Guð styrki Mundu, stelpurnar og okkur öll hin. Minningin lifir hjá okkur öll- um. Þinn tengdasonur Guðni Friðrik. Elsku afi minn, það er með mikl- um söknuði í hjartanu að ég skrifa þessar línur. Mikið ofsalega finnst mér erfitt að vera svona langt í burtu þegar þú fórst og geta ekki kvatt þig eins og ég hefði viljað. Við systurnar vorum þeirrar ein- stöku gæfu aðnjótandi að fá að alast upp með þér og að geta komið til þín hvenær sem var. Ég á svo margar góðar minningar um þig og ömmu, og ég á alltaf eftir að geyma þær vel í hjartanu. Ég man eftir að fá að borða hjá þér epli með skeið, eitthvað sem ég fékk bara hjá ykkur. Þegar ég fékk að sitja í stólnum þínum í stofunni og halla mér og snúa, það var það skemmtilegasta. Og þegar verið var að þrífa í eldhúsinu og ég fékk að búa til strætó úr stólunum. Mér fannst þú kunna og vita allt, og ef það er einhver sem ég leit upp til þá varst það þú og ég geri enn. Þú varst einstaklega þolinmóður og góð manneskja og mér finnst að allir ættu að fá að eiga afa eins og þig. Ég mun alla ævi búa að því sem þú hefur kennt og sagt mér, og ég mun reyna að verða sú sem þú hefðir getað verið stoltur af. Elsku afi minn. ég veit að þér líður vel núna og ert hvíldinni feginn og ég lofa því að halda minningu þinni á lofti og gleyma ekki að segja Jasmín og Óliver hversu yndislegan langafa þau áttu. Elsku amma, ég veit að missir þinn er mikill, þið afi voruð eins og helmingar sem pössuðu svo vel sam- an og hjónaband ykkar var aðdáun- arvert. Ég vildi að ég væri þarna hjá þér til að halda utan um þig og segja þér að ég votti þér mína dýpstu sam- úð. Ég er hjá þér í huganum og sendi þér allar mínar saknaðar- kveðjur. Elsku mamma, Bjögga, Jóna og María. Megi Guð vera með ykkur í sorginni og munið að halda minning- unum í hjartanu, þið eigið svo marg- ar. Þið áttuð besta pabba í heim- inum. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst. Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá. Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði, sem guð nú fær. Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt. Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman. Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er svo sár. Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth Þorgeirsdóttir) Vertu sæll afi minn og megi Guð vera með þér. Þín Lilja Björk. Ég man þegar þú læddist stund- um í eldhússkápinn til að finna handa mér brjóstsykursmola og hvíslaðir svo að mér, „ekki segja ömmu þinni“, ég kinkaði kolli og tísti yfirfull af gleði. Hugurinn reikar svolítið til baka þegar það líður að endinum, afi minn. Minningar okkar saman eru ógleymanlegar, við skul- um geyma þær vel. Mér þótti alltaf svo gaman að koma til ykkar ömmu eftir leikskóla, við þrjú fórum svo oft í einhvern skemmtilegan bíltúr og keyrðum svo heim til að fá okkur smáhressingu þegar það kom að kaffitímanum. Þú safnaðir mylsnunni saman af brauð- inu sem þú skarst og geymdir hana í poka inni í skáp, svo að þegar það var komið svolítið í pokann kallaðir þú á mig ef það var frost úti og við fórum saman út og gáfum fuglunum en bara ef það var frost úti. Þú gerð- ir allt til þess að öllum liði sem best, hvort sem það voru svöngu fuglarnir úti í kuldanum eða fólkið sem þú unnir mest, vonandi veistu að við verðum þér ævinlega þakklát. Einstaka sinnum fékk ég að gista hjá ykkur ömmu, stundum fór ég snemma heim því ég saknaði mömmu svo mikið en í hin skiptin var ég hjá ykkur svolítið lengur. Þá þegar ég vaknaði á morgnana fór ég fram með sængina mína til að horfa á teiknimyndirnar í sjónvarpinu og þú leyfðir mér að sitja í rauða stóln- um þínum, uppáhaldsstólnum þínum sem þú fékkst í fimmtugs afmælis- gjöf. Í huga mínum ertu enn heima hjá ömmu, sitjandi í rauða stólnum þínum. Þú hefur kennt mér svo mikið, ég man þá helst eftir vísunum sem þú söngst fyrir mig þegar ég var ung og stærðfræðinni sem þú kenndir mér áður en ég byrjaði í skóla. Í gegnum tímann tók ég eftir svolitlu sjálf, þú tókst upp alla smápeninga sem þú sást liggjandi á götunni. Að vissu leyti má segja að þetta sé svolítið sem þú hefur kennt mér líka. Þú brostir alltaf til mín þegar þú sást mig herma þetta eftir þér. Enn í dag er ég yfir mig ánægð þegar ég rekst á krónu einhvers staðar úti á götu, ekki af því að ég hafi fundið pening heldur af því að ég man eftir því hvernig þú brostir til mín. Mér finnst erfitt að hugsa um lífið án þín, ég trúi ekki að ég þurfi að kveðja þig. Ég veit að þú ert enn hjá okkur þó að þú sért ekki enn hjá okkur eins og áður, tilhugsunin um það er erfið. Ég er með vissa mynd af ykkur ömmu í huganum því þú og amma voruð svo dugleg að fara út í göngutúra, þið röltuð um götur Vestmannaeyjabæjar eins og ekkert væri og leiddust hönd í hönd hvert sem þið fóruð. Mundu að halda í höndina á ömmu þegar hún fer út að ganga framvegis. Við, fjölskylda þín og vinir, erum svo heppin að hafa fengið að hafa þig í lífi okkar en við vitum öll að ein- hvern tíman þurfum við að kveðja þá sem við elskum mest, í þetta sinn þurfum við að kveðja þig, afi minn. Því vil ég votta fjölskyldu og vinum afa alla mína samúð. Ég mun sakna þín svo mikið, þú varst mér alltaf svo góður, þú varst mér allt. Minning þín mun ávallt lifa því þú munt ávallt lifa í huga okkar og hjarta því þú munt ávallt lifa í okkur öllum. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Þitt barnabarn, Sandra Dögg. Í dag kveðjum við hann afa okkar, Sigurð Þ. Auðunsson, eða „afa í Eyj- um“ eins og við kölluðum hann þó að hann hefði flutt úr Vestmannaeyjum fyrir 6 árum. Þegar við komum í heimsókn til þeirra ömmu sat afi alltaf við eldhús- borðið og hlustaði á okkur; hann sagði nú ekki alltaf mikið en hann hlustaði alltaf og svo þegar honum fannst hann þurfa að segja eitthvað kom oftar en ekki eitthvað sniðugt, hann hafði svo mikinn húmor og fannst gaman að stríða smá. Þegar amma og afi bjuggu enn í Eyjum og afi var enn að vinna í Vinnslustöðinni komu þau oft til okkar upp á land í sumarfrí. Afi gat aldrei verið verklaus og hann lagaði það sem hann gat lagað og var alltaf að dytta að hinu og þessu. Stundum var meira að segja eitthvað sem gera þurfti geymt þangað til afi kæmi næst í heimsókn. Þegar Sirrý flutti í blokkina fyrir fjórum árum komu þau amma og afi tilbúin að hjálpa til við að bera dótið upp á aðra hæð, afi þá 81 árs gamall og hugurinn bar hann sko hálfa leið því hann fór oft hraðar yfir í hug- anum en hann gat. Hann var líka hálfgerður töfra- maður því ef við vorum með vörtu heimsóttum við hann og hann batt lopaband um vörtuna og sagði svo eitthvað og fór svo með bandið, og viti menn, nokkrum dögum seinna hvarf vartan. Þegar við barnabörnin hans kom- umst á þann aldur að fara að eiga börn hringdi afi oftast í dætur sínar og spurði svona í laumi hvort ein- hver hjá þeim ætti von á barni, hann vissi það oftast áður en allir aðrir og þegar maður fór til að tilkynna það sagði hann oft: „Nú já, ert það þú?“ Einu barnabarninu tilkynnti hann daginn fyrir sónarskoðun að senni- lega væri nú meira en eitt kríli á leiðinni sem reyndist rétt vera. Amma og afi voru búin að vera gift í 61 ár núna í desember síðast- liðnum og hafa gengið í gegnum margt saman, þar á meðal eldgos, dótturmissi og systkinamissi en allt- af stóðu þau saman og studdu hvort við annað. Eftir að afi hætti að vinna voru þau saman öllum stundum, allt- af þegar þau fóru út að ganga, sem þau gerðu mikið af, leiddust þau eins og nýtrúlofað par. Hugur okkar er hjá ömmu sem hefur misst svo mikið en við eigum margar góðar minn- ingar um afa til að ylja okkur við. Elsku afi, hafðu þökk fyrir allt. Emma, Sirrý og Gunnar. Ég mun aldrei gleyma 22. janúar þegar mamma hringdi og sagði mér að þú værir farinn frá okkur. Allar góðu minningarnar hrúguð- ust yfir mig í einu. Ég sat dofinn inni í stofu og hugsaði um þegar þú fórst með mig á bryggjurúntinn úti í Vest- mannaeyjum og kenndir mér nöfnin á öllum fjöllum og eyjunum í kring. Að koma í heimsókn til ykkar út í Eyjar var alltaf svo yndislegt, það gleymist aldrei þar sem þú sast í hægindastólnum þínum og horfðir á fréttir og spjallaðir um heima og geima. Og hvernig er hægt að gleyma því þegar þú bauðst mér guttanum að koma og skoða mót- orhúsið í Vinnslustöðinni í Eyjum, allar þessar vélar, hávaði og amm- oníakslykt. Í fyrstu var ég pínu smeykur en þetta var allt svo flott fyrir smágutta að sjá. Þetta eru allt góðar minningar sem eru vel varð- veittar í mínu hjarta, ég veit að þú verður alltaf með okkur, horfir til okkar með stríðnissvip og brosir. Megi allir englar heims vera með þér og vaka yfir þér. Þinn nafni Sigurður Freyr. Elsku afi minn, það er með sökn- uði í hjarta að ég kveð þig með þess- um fáu orðum. Þið amma hafið alltaf verið fastur punktur í tilverunni minni og er ég mikið þakklát fyrir að hafa fengið þig sem afa, ég gæti ekki hugsað mér betri mann og ég er sannfærð um að betri maður er ekki til. Það eru margar minningarnar sem streyma í hugann þegar ég hugsa til þín, og þær ætla ég alltaf að geyma. Allt frá því að ég var smástelpa fannst mér gott að koma í heimsókn til afa míns, hvort sem það var í blokkina eða að kíkja niður í vinnu til þín þegar ég átti leið hjá, já og stundum kíkti ég líka þangað þótt ég ætti nú ekkert leið hjá og þá löbb- uðum við saman heim ef þú varst bú- inn í vinnunni. Ég man líka hvað ég var yfir mig montin af þér þegar þér voru veitt verðlaun á stakkó fyrir vinnuna þína, sem þú vannst með sóma alla tíð. Svo varstu líka galdrakall, afi minn, þú gast látið vörtur hverfa, mola og kandís birtast í lófunum á litlum stelpum, aurar birtust í tóm- um buddum og svo varstu svo kurt- eis að þú hélst dyrum opnum fyrir fólki sem fæstir sáu. Takk fyrir að hafa alltaf verið mér svona góður, elsku afi minn, ég mun sakna þín alla mína daga og ég veit að þú heldur áfram að passa hana ömmu og halda í höndina á henni í göngutúrunum. Hvíldu í friði og við sjáumst þegar ég er búin hérna megin. Þín Elín Rut. Elsku afi Siggi. Nú þurfum við að kveðja þig. Það var alltaf gott að heimsækja ykkur ömmu Mundu í Vestmanna- eyjum og svo hér í Þorlákshöfn. Ég man ennþá þegar við vorum hjá ykkur í Eyjum 17. júní 2000. Samt var ég ekki einu sinni orðin tveggja ára þá. Ég var á rauðum bekk heima hjá ykkur og sá steinana rúlla niður fjallið. Við hittumst síðast á aðfangadag þegar þú varst á sjúkrahúsinu á Sel- fossi. Þá varst þú nánast eins og vana- lega, gerðir að gamni þínu og beiðst eftir að komast heim aftur. Elsku afi. Takk fyrir allt. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Kær kveðja frá Kristjáni Þór, litla bróður. Þín langafastelpa, Jóna Vigdís Gunnarsdóttir. Sigurður Þorberg Auðunsson ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ARNAR ANDRÉSSON, Bröttuhlíð 8, Mosfellsbæ, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 1. febrúar. Jarðsungið verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík mið- vikudaginn 7. febrúar nk. kl. 13.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en bent er á minningarsjóð FAAS, Félags áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga. Friðbjörg Óskarsdóttir, Lilja Þorsteinsdóttir, Snorri Árnason, Kristín Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Leví Pálmason, Alda Þorsteinsdóttir, Vignir Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.