Morgunblaðið - 03.02.2007, Síða 31

Morgunblaðið - 03.02.2007, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 31 ✝ Reynir Árnasonfæddist á Ólafs- firði 16. ágúst 1930. Hann lést á sjúkra- húsi Siglufjarðar 27. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðrún Guð- mundsdóttir frá Ólafsfirði, f. 27. mars 1904, d. 3 mars 1985 og Árni Guðmundsson frá Skagafirði, f. 18. nóvember 1898, d. 20. febrúar 1988. Systkini Reynis eru Guðmundur Freymóður, f. 1929, Jóhanna Guðrún, f. 1934, d. 1936 og Brynja, f. 1942. Árið 1955 kvæntist Reynir Jak- obínu Þorgeirsdóttur, f. 30. októ- ber 1933. Börn þeirra eru: 1) Þor- geir, f. 1954. Börn hans og Sóleyjar Sigurðardóttur eru: a) Atli Þór, f. 1974, kvæntur Huldu Axelsdóttur, sonur þeirra Breki, f. 2002, b) Jóna Jakobína, f. 1976, dætur hennar Diljá Sif og Thelma Rut, f. 2000 og c) Guðmundur, f. 1986. 2) Guðrún, f. 1959. Börn hennar og Jóhannesar Lár- ussonar eru: a) Guðlaug, f. 1971, dóttir hennar Guðrún Erla Ragn- arsdóttir, f. 1999, b) Þórunn, f. 1980, maki Christopher Millãn, f. 1980, dóttir þeirra Rakel Rós, f. 2006, c) Reynir, f. 1985, d) Lárus Sig- urvin, f. 1989, d) Re- bekka, f. 1994 og f) Aron Tryggvi, f. 1995. Reynir var mál- arameistari á Siglu- firði og vann við það í mörg ár. Seinni hluta starfs- ævi sinnar var hann húsvörður í Barna- skóla Siglufjarðar og síðar einnig í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar. Hann starfaði mikið að félagsmálum og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hann var í karlakórnum Vísi í mörg ár og síðar í kórnum Vorboðanum, kór eldri borgara. Reynir var einn af stofnendum Kiwanis- klúbbsins Skjaldar á Siglufirði og fékk viðurkenningu árið 2006 fyrir 35 ára starf. Reynir var af- reksmaður í íþróttum og hlaut fjöldann allan af verðlaunum og viðurkenningum fyrir þátttöku sína m.a. í fimleikum, bridge, skák og blaki. Reynir var mikill veiðimaður og var í stangveiði- félagi Siglufjarðar og sat þar í stjórn í fjölda ára. Reynir verður jarðsunginn frá Siglufjarð- arkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ég kynntist þér og ömmu þegar ég var 8 ára þegar ég kom til Siglufjarð- ar með pabba að heimsækja Guðrúnu dóttur þína, sem síðar gekk mér í móðurstað. Þið tókuð mér eins og ég hefði alltaf verið í fjölskyldunni. Þeg- ar pabbi og Guðrún mamma fóru að búa saman varð það hið eðlilegasta mál fyrir mig að kalla hana mömmu og ykkur afa og ömmu. Tilfinningin gagnvart því var hreinlega bara svo eðlileg. Ég hafði misst afa Lárus þeg- ar ég var 7 ára en fékk þig í staðinn. Ferðirnar til Siglufjarðar urðu marg- ar með árunum, til ykkar ömmu. Og það var alltaf líf og fjör í kringum ykkur og allar frænkurnar og frænd- urna sem ég eignaðist á Sigló. Minn- ingar frá samverustundum okkar hrannast upp í huga mér. Ég á minn- ingar um að vera ein með þér að veiða inni í Fljótá, og þar varst þú í essinu þínu, einnig að vera að veiða sjóbirting í fjörunni við Miklavatn, að spila, tefla og svo fengum við að leika okkur í leikfimisalnum þar sem þú varst húsvörður í barnaskólanum. Minningar um tónlist og söng, ten- órar eins og Caruso, Jose Carrera og fleiri. Þú kenndir mér að meta klass- íska tónlist. Þú hvattir okkur systkinin ein- dregið til að stunda íþróttir, enda mikill íþróttamaður sjálfur. Þú stjórnaðir því. Þið amma voruð líka svo einlæg í að fylgjast með okkur systkinunum í öllu sem við gerðum, hvort heldur það var í íþróttum, námi eða öðru sem við tókum okkur fyrir hendur. Elsku afi, tilkynningin um andlát þitt kom sl. laugardagsmorgun. Þar sem þú varst búinn að vera veikur þá vissum við að þetta væri yfirvofandi, en það er engan veginn hægt að búa sig undir það að kveðja. Ég þakka þér, elsku afi minn, fyrir að hafa tekið svona vel á móti mér þegar ég var 8 ára gömul og reynst mér vel. Það er ekkert sjálfgefið í líf- inu og ég er heppin að hafa kynnst þér. Ég veit að þar sem þú ert núna ómar tónlist og söngur og ég sé þig fyrir mér dreymandi á svip að hlusta á heilu aríurnar. Elsku afi, ég geymi minningarnar okkar og í auðmýkt kveð ég þig. Elsku amma mín, ég votta þér alla mína samúð yfir að hafa misst lífs- förunaut þinn og besta vin. Guðlaug Jóhannesdóttir. Elsku afi minn, ég veit ekki hversu lengi ég hef reynt að koma orði á blað. Það er sárt að geta ekki tekið upp símann og hringt eða vitað að ég muni hitta þig í næstu heimsókn. Sem sýnir okkur hversu mikilvægt það er að njóta þess tíma sem við eig- um og ekki alltaf reikna með því að morgundagurinn verði til staðar. En við áttum margar góðar stundir sam- an, og mun ég varðveita þær minn- ingar í mínu hjarta. Þú tókst mig m.a. út að veiða og sást til þess að ég kynntist íslenskri náttúru. Ekki varst þú eigingjarn maður og lærði ég mikið á þeim tíma sem ég fékk með þér. Ég vildi óska þess að við hefðum átt meiri tíma saman. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til þín og ömmu, hlusta á blístrið þitt og sjá bros á andliti þínu. Það sást á þér að þú áttir marga góða daga. Elsku afi minn, ég mun ekki geta faðmað þig aftur en það er erfitt að lýsa þakklæti mínu fyrir að hafa fengið að eiga slíkan fyrirmyndar afa. Margt er af fólki sem hugsar til þín núna og finnur fyrir sorginni sem fylgir því að þurfa að kveðja þig í hinsta sinn. Ég er stoltur af því að vera barnabarn þitt. Reynir Jóhannesson. Elsku afi minn, ég trúi ekki enn að þú sért farinn frá okkur, að þú komir ekki með útbreiddan faðminn á móti mér næst þegar ég kem í heimsókn til Íslands. Ég á svo margar góðar minningar frá því þegar ég var lítil, með þér og ömmu, og eru þær of margar til þess að telja upp hér. En þær munu varð- veitast í hjarta mínu um ókomna framtíð. Elsku amma mín, ég hef hugsað mikið til þín þessar erfiðu vikur og vildi óska þess að hafa getað verið hjá þér og haldið utan um þig allan þenn- an tíma. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig, afi minn, en ég veit að þú vakir yfir okkur og verndar. Ég elska þig. Tóta litla tindilfætt, eins og þú kallaðir mig alltaf, Þórunn Jóhannesdóttir de Millãn, Ósló. Kær bróðir minn er látinn. Bræður mínir Guðmundur og Reynir voru 12 og 13 ára þegar ég fæddist, þannig að þeir voru hálffull- orðnir menn þegar ég man eftir þeim fyrst. Þeir voru flottir íþróttamenn og mjög góðir við mig. Reynir var lengur heima en Guðmundur og á ég margar skemmtilegar minningar um hann. Hann var litríkur persónuleiki, stoltur og snöggur. Hann hafði gam- an af að atast í mér. Ég var dálítið freknótt og hann sagðist ætla að bíta stóru freknuna af nefbroddinum mín- um. Og þá hófst eltingarleikur. Ég var stundum samferða honum niður í bæ. Þá sönglaði hann og stikaði stórum og ég mátti hafa mig alla við að hafa við honum. Ég varð að hafa alveg hljótt þegar hann var að hlusta á tónlist. Hann lá á dívaninum með lokuð augun og hálfopinn munninn og hlustaði. Þá varð ég að læðast og þannig lærði ég að hlusta á óperur og söng. Bara svona hversdagslegar minningar eru ljúfar. Þegar Reynir eignaðist Bínu fyrir kærustu þá fannst mér það ekki spennandi. Og ég var leiðinleg við til- vonandi mágkonu mína, fyrst. En það lagaðist fljótlega. Og þegar hann flutti að heiman til að fara að búa, þá var mér allri lokið. Reynir farinn, heimilið tómt og ég lagðist niður og grét. Þegar hann varð faðir beið ég í eldhúsinu með honum eftir barns- grátinum. Því hann mátti ekki vera viðstaddur fæðinguna, einungis ömmurnar. Hann var stoltur faðir. Margar góðar stundir hef ég og fjöl- skylda mín átt með bróður mínum og mágkonu og börnum þeirra. Þau hjónin höfðu þvílíkan húmor að það hálfa hefði verið nóg. Synir mínir elskuðu þau. Og alltaf var tilhlökkun að hittast, annað hvort fyrir norðan eða sunnan. Heima hjá mér er tré- skál sem heitir Galdraskálin. Reynir var nefnilega galdramaður. Hann galdraði fyrir syni mína. Með fettum, brettum og handapati heillaði hann þá og galdraði síðan bíla undan skál- inni. Og þegar þeir báðu hann um að sanna fyrir vinum þeirra í Njarðvík að hann væri galdramaður, þá fór hann létt með það. Reynir kom suður og málaði fyrir mig heila stóra íbúð, eins og hendi væri veifað. Hann var mikil félagsvera, elskaði söng og lífg- aði upp á tilveruna. Ég þakka fyrir að hafa átt hann sem bróður. Brynja Árnadóttir. Látinn er vinur minn og flokks- bróðir Reynir Árnason á Siglufirði. Reyni kynntist ég ungur, bæði sem dyggum stuðningsmanni hins góða Alþýðuflokks og sem einum af mátt- arstólpum Siglufjarðar. Hann var mikill Siglfirðingur, vel látinn og virt- ur í siglfirsku bæjar- og félagslífi. Þegar ég kynntist Reyni var hann starfandi sem einn af málurum bæj- arins en þeir voru þekktir fyrir glað- lyndi og hæfilega ærslafengni, og féllu því vel inn í hið siglfirska bæj- arlíf. Þeir voru menn sem þekktu alla í gegnum störf sín bæði fyrir einstak- linga og fyrirtæki. Reynir var virkur þátttakandi í ýmsum félagasamtökum á Siglufirði, s.s. Kiwanisklúbbnum, íþróttafélög- um og karlakórnum Vísi. Hann stundaði á sínum yngri árum fimleika sem voru mjög vinsæl grein á Siglufirði í þá daga. Ég minnist Reynis sem eins af strákunum í fim- leikaflokki Helga Sveins, sýnandi listir sínar á ýmsum mannamótum jafnt úti sem inni. Sérstaklega er minnisstætt þegar Reynir sýndi listir sínar ásamt öðrum á stórafmæli bæj- arins 1968, en þá sýndu þeir fimleika á skólabalanum í siglfirsku blíðviðri fyrir framan þúsundir afmælisgesta. Risasveifla á svifrá, æfingar á tvíslá og ýmsar aðrar fimleikaæfingar vöfð- ust ekki fyrir Reyni, sem þá var 38 ára gamall, enda var hann alltaf létt- ur á sér og fimur. Ég átti líka mikil samskipti við Reyni þegar ég starfaði sem íþrótta- fulltrúi á Siglufirði í mörg ár, en þá var Reynir tekinn við starfi húsvarð- ar í barnaskólanum, og síðar í grunn- skólanum öllum. Það fór alltaf vel á með okkur og Reynir, jafnlipur í samskiptum og í fimleikum, lagði sig fram við að létta undir með íþrótta- starfinu til dæmis varðandi gistingu gestkomandi íþróttafólks í skólunum. Reynir var mjög glaðlyndur maður og annað var náttúrlega ekki hægt í þessu umhverfi sem þá var á Siglu- firði, líf og fjör og alltaf mikið um að vera. Síldarárin mótuðu alla Siglfirð- inga, en síldin hvarf og margir Sigl- firðingar neyddust til að flytja burtu úr bænum. Reynir og Jakobína Þor- geirsdóttir, eftirlifandi kona hans, fóru þó hvergi og hafa búið alla sína tíð á Siglufirði. Hann verður því lagð- ur til hinstu hvílu í siglfirskri mold. Moldin er þín. Moldin er trygg við börnin sín, sefar allan söknuð og harm og svæfir þig við sinn móðurbarm. Grasið hvíslar sitt ljúfasta ljóð á leiðinu þínu. Moldin er hljóð og hvíldin góð … (Davíð Stefánsson.) Ekki get ég svo lokið við minning- argrein um vin minn Reyni án þess að minnast aftur á hans pólitísku lífs- skoðun, en hann var alla tíð mikill jafnaðarmaður og virkur í starfi jafn- aðarmanna alla sína tíð. Hann var oft tillögugóður og ræddi málin á hisp- urslausan hátt og lá aldrei á skoð- unum sínum, þó svo að stundum hafi ég grunað hann um að ýkja þær svo- lítið, svona til að fá meira líf í umræð- urnar og meiri skoðanaskipti. Átti þetta jafnt við um formlega fundi og pólitískt spjall á förnum vegi. Ég kveð Reyni Árnason með þökk og virðingu og færi Bínu, eftirlifandi eiginkonu hans, og börnum þeirra, þeim Þorgeiri og Guðrúnu, svo og fjölskyldum þeirra, mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Mikill sómamaður er genginn. Hafðu þökk fyrir allt, kæri vinur. Kristján L. Möller. Þeir hverfa nú einn af öðrum gömlu félagarnir, sem óhætt er að segja að settu svip sinn á bæinn á uppgangs- og síldarárunum á Siglu- firði. Einn þeirra, Reynir Árnason, verður kvaddur í dag. Reynir fluttist ungur að árum til Siglufjarðar frá Ólafsfirði þar sem bernskuárin liðu, en hann varð fyrr en varði jafnmikill Siglfirðingur og hver annar „innfæddur“ án þess þó að gleyma upprunanum, því hann bar ávallt hlýjan hug til fæðingarbæjar- ins. Í upphafi vann Reynir alla algenga vinnu sem til féll, fór á vertíðir og stundaði sjómennsku á togurum og trillum, en hann komst svo á náms- samning hjá Herbert Sigfússyni, málarameistara og málaraiðnin varð eftir það hans ævistarf. Síðar þegar síldarleysi og fólksfækkun dró úr verkefnum fyrir iðnaðarmenn réðst Reynir sem umsjónarmaður við Grunnskólana í Siglufirði og þar lauk hann starfsævinni. Hann var laginn við að umgangast börn og vel látinn af öllu samstarfsfólki þar. Vinátta okkar Reynis hófst þegar við giftumst skólasystrum, sem voru góðar vinkonur og samgangur milli heimilanna varð talsverður eftir það. Einnig lágu leiðir saman í mörgum félögum svo sem Karlakórnum Vísi, Kiwanisklúbbnum Skildi og síðast en ekki síst í Stangveiðifélagi Siglfirð- inga, en þar sátum við saman í stjórn í meira en 20 ár. Reynir var lipur veiðimaður og margar ferðir fórum við til veiða víða um land, en minn- isstæðastar eru e.t.v. ferðirnar, sem farnar voru í Héðinsfjörð og Fljótaá. Fleyg urðu þau orð er Reynir lét falla á einum af mörgum samningafund- um, sem við sátum um veiðirétt í Fljótaánni: „Þið verðið að gá að því drengir að okkur Siglfirðingum þykir miklu vænna um Fljótaána heldur en ykkur Fljótamönnum sjálfum.“ Reynir hafði yndi af söng og tónlist. Hann hafði bjarta og fallega tenór- rödd og söng lengi með Karlakónum Vísi. Einnig sungu þau hjónin, hann og Bína um skeið í Kirkjukór Siglu- fjarðarkirkju og síðustu árin sungu þau í Vorborðunum, kór eldri borg- ara í Siglufirði. Efri árin urðu Reyni fremur erfið. Andinn var reiðubúinn en líkaminn tók að gefa sig og hann átti orðið erf- itt með gang. Þetta var auðvitað þungt hlutskipti að sætta sig við fyrir mann, sem á yngri árum hafði verið talinn fljótasti framherjinn í knatt- spyrnuliði K.S. og lengi einn af burð- arásunum í landsþekktum fimleika- flokki Helga Sveinssonar, en eigi mátti sköpum renna. Reynir og Bína voru samhent hjón og glöð í góðra vina hópi. Við Hadda eigum ótal góðar minningar frá sam- skiptunum við Reyni og Bínu úr sam- eiginlegum ferðum, löngum og stutt- um, en öllum ánægjulegum og nú er komið að kveðjustund. Reynir er lagður af stað í þá langferð, sem við öll eigum í vændum, en enginn veit með vissu hvert leiðin liggur eða hvar hún endar. Kannski verður áð hjá einhverju fengsælu veiðivatni og þá veit ég að Reynir verður glaður og unir vel sínum hag. En við hin sem eftir sitjum ornum okkur við minningar um góðan dreng og glaðværan og greiðvikinn félaga. Við Hadda sendum Bínu, börnum hennar og öðrum aðstandendum Reynis Árnasonar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hannes P. Baldvinsson. Reynir Árnason ✝ Faðir okkar, ALFONS SIGURÐSSON, Digranesvegi 34, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 1. febrúar. Jón Sævar Alfonsson, Sigurður Alfonsson, Magnús Alfonsson, Ragnheiður Alfonsdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ALBERT SIGURÐSSON (Alló), Skarðshlíð 12F, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtu- daginn 1. febrúar. Edith Valborg Þorsteinsdóttir og fjölskylda. ✝ Ástkær eiginmaður minn, HAUKUR INGIMUNDARSON klæðskerameistari, sem lést fimmtudaginn 1. febrúar verður jarðsung- inn frá Digraneskirkju miðvikudaginn 7. febrúar kl. 13.00. Valgerður Jóhannsdóttir, Jóhanna Hauksdóttir, Þórður Helgason, Atli Hauksson, Hafdís Ólafsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.