Morgunblaðið - 03.02.2007, Page 33

Morgunblaðið - 03.02.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 33 MINNINGAR Elsku Katla Rún, Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. (Páll Jónsson.) Takk fyrir allar góðu samverustundirnar okkar. Guð geymi þig, snúllan mín. Hrund. HINSTA KVEÐJA Elsku litla dóttir okkar og litla systir. Þú fæddist á sumardaginn fyrsta og færðir sól og gleði í hjörtu okkar allra. Þú varst sannkallaður sólargeisli með fallega ljósa hárið þitt, bláu augun og alltaf brosandi, vær og góð lítil stelpa. Við munum alltaf hugsa til þín þegar sumarið kemur. Þér fannst stóri bróðir alltaf vera fyndnasti maður í heimi. Athafnir hans fengu þig til að hlæja löngum og innilegum hlátri sem gat fengið okk- ur öll til að hlæja með. Jafnvel eftir að augun þín hættu að sjá þá gastu hleg- ið lengi við það eitt að heyra í bróður þínum. Gleðisvipurinn sem lýsti upp andlit þitt í hvert skipti sem mamma og pabbi voru í nánd var gulls ígildi og besta gjöf sem hægt er að hugsa sér. Mamma naut þess að klæða þig í fallegu fötin þín og gera þig fína á hverjum degi, pabbi naut þess að rugga þér í svefn og raula fyrir þig og stóri bróðir smellti alltaf kossi á koll- inn á þér þegar hann átti leið hjá. Þú færðir okkur svo mikinn kærleik. Stóri bróðir segir að litla systir sé ekki lengur lasin því þú sért komin upp til himnaríkis. Nú geturðu leikið þér með dótið þitt og hlaupið um með hinum litlu englunum. Núna ertu komin til guðs, elsku litli engillinn okkar. Við söknum þín- um sárt, hugsum til þín á hverjum degi og þökkum fyrir að hafa fengið að eignast svona yndislega dóttur og systur eins og þig. Þú hefur kennt okkur öllum svo mikið og þú munt lifa í hjörtum okkar að eilífu. Góða nótt Katla Rúna, litla prins- essan okkar, við elskum þig svo mik- ið. Guð geymi þig Pabbi, mamma og stóri bróðir. Elsku litla prinsessan okkar. Nú er þrautum þínum lokið eftir erfiðan sjúkdóm sem þú greindist með að- eins fjögurra mánaða gömul. Þú varst svo falleg þegar þú fæddist á sumardaginn fyrsta og við kölluðum þig oft sumarblóm, vorum svo montin og stolt af þér, elsku litla vina, sem fékkst að vera svo stutt hjá okkur, en gafst okkur svo ótrúlega mikið með fallega brosinu þínu, hlátrinum þín- um, augunum þínum og öllu þessu fallega sem þú bjóst yfir. Þegar leið á þína stuttu ævi nutum við hverrar mínútu sem okkur gafst með þér, hér heima, þegar þú fékkst að gista, uppi í sumarbústað, fyrir norðan og alls staðar þar sem við gát- um verið með þér, mömmu þinni, pabba og Kristjáni bróður þínum. Alltaf var jafn gaman að sjá við- brögð þín þegar mamma þín eða Katla Rún Jónsdóttir ✝ Katla Rún Jóns-dóttir fæddist á Landspítalanum við Hringbraut 21. apríl 2005. Hún lést á Barnaspítala Hringsins seinni- part mánudags-ins 29. síðastliðins. For- eldrar hennar eru Guðrún Birna Hagalínsdóttir, f. 3. júlí 1980 og Jón Öl- ver Kristjánsson, f. 17. júní 1979. Bróðir Kötlu Rúnar er Kristján Hagalín, f. 18. mars 2003. Foreldrar Guðrúnar Birnu eru Guðm. Hagalín Guðmundsson og Kristjana Arnardóttir. For- eldrar Jóns eru Kristján Jónsson og Margrét Rósa Jónsdóttir. Útför Kötlu Rúnar verður gerð frá Blönduóskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14 pabbi komu ef þú varst í pössun hjá okkur, þú varst eins og sólin af gleði enda hafa þau vakað yfir þér hverja mínútu síðan þú fædd- ist og gert allt til að njóta þín og gera hvern dag í lífi ykkar fallegan. Það var undravert hvað persónuleiki þinni var sterkur og gefandi þrátt fyrir þá fötlun sem sjúkdómur- inn olli þér þegar á leið. Þú varst á leikskóla, fórst í sund og gast notið alls þess besta sem frá- bært starfsfólk á Lyngási, einkum þó hún Hrund, veitti þér. Í veikindum þínum naust þú frábærar umönnunar lækna, sjúkraþjálfara og hjúkrunar- fólks á barnadeildinni E-21, og þá verður sr. Vigfúsi Bjarna seint full- þakkað fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur. Við trúum að þú sért komin á fallegan stað og að á móti þér hafi tekið móðurbróðir þinn, hann Guð- mundur Björn, ásamt mörgum góð- um englum. Far þú í friði, elsku litla prinsessa. Minningin um þig mun verða eitt af ljósum lífs okkar. Amma og afi – Kristjana og Hagalín. Elsku Katla Rún, okkur hlotnaðist sá heiður að fá að kynnast þér sem persónu, systurdóttur og stóru frænku. Það kemur svo ótal margt upp í huga okkar núna þegar við setj- um niður og ferðumst aftur í tímann. Hvað þú varst alltaf falleg og fín, hvernig þú andvarpaðir stundum yfir látunum í frændum þínum, hvað þú gast hlegið innilega þegar Kristján bróðir þinn var að bregða þér og leika við þig og hvað þér fannst hrikalega gaman og stinga litlu höndunum þín- um í krullurnar hennar ömmu Sjan- nýjar. Okkur er það sérstaklega minnisstætt þegar þú varst að byrja að borða, þér fannst svo óstjórnlega gaman að puðra með vörunum þegar grauturinn var nýkominn upp í þig og frussa öllu út um allt og yfir þig alla. Þó svo að mamma þín hafi vafið þig inn í viskastykki til verja fötin tókst þér alltaf að klína þig alla út. Við settum þessar vísur saman um þig, elsku frænka, til að festa minn- ingu þína enn betur í minni. Á sumardaginn fæddist þú, og gladdir móður hjarta. Svo undur fögur tær og hrein, – einstök á alla kanta. Smáfætt löng og spengileg, Róleg, hlý og kelin. Með mjúkar kinnar sem minntu á dún, – þú hlaust nafnið Katla Rún. Pabba stolt og mömmu skvísa, stóri bróðir montinn. Afa stelpa, ömmu mús, – prinsessunni oft var gefið knús. Elsku Katla Rún, við höfum átt saman yndislegar stundir sem við er- um þakklát fyrir. Megir þú hvíla í friði, elsku frænka, og sofa þeim svefni sem enginn rænir. Við erum öll sálir sem munum hittast og heilsast á ný. Þangað til, vertu sæl, litla skvísa, við munum sakna þín alla ævi. Stórt knús til þín frá okkur. Arna frænka, Smári og Hólmar Hagalín. Elsku litla gullið. Við hugsum núna um þann dag sem við fengum fréttirnar um að þú værir með þennan hrikalega sjúk- dóm sem ekki væri hægt að lækna. Sorgin var mikil en svo horfðum við á þig svo litla og fallega og ákváðum að einbeita okkur að því að eiga þig og njóta þess á meðan við gætum. Þú gafst okkur svo mikið og við lærðum mikið um lífið af þér. Við munum varðveita allar góðu stundirnar sem við áttum með þér, brosið þitt fallega, yndislega hlátur- inn sem fékk alla til að hlæja með þér og hvað þér fannst Kristján Hagalín fyndinn þegar hann var að segja bööö við þig. Þú varst prinsessan okkar allra og við munum sakna þín svo sárt. Núna ertu farin á betri stað þar sem sársaukinn er horfinn og þú get- ur farið að njóta þín sem lítil stelpa, gengið, hlegið, talað og sungið með Söru dúkku þér við hönd. Þeir segja þig látna, þú lifir samt og í ljósinu færð þú að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá litlu hjarta berst lítil rós, því lífið þú þurftir að kveðja. Í sorg og í gleði þú senda munt ljós, sem að mun okkur gleðja. (Guðmundur Ingi Guðmundsson.) Elsku Rúna, Jón og Kristján Hagalín, megi Guð fylgja ykkur í þessari miklu sorg. Geir Brynjar, Dagmar, Daní- el Hagalín og Tómas Darri. Fyrstu kynni okkar af Kötlu Rún voru heima í stofunni í Goðheimun- um, þar sem fyrsta mæðraskoðunin fór fram og hjartslátturinn hlustaður í fyrsta skiptið. Þá strax eignuðum við okkur stóran part í Kötlu. Ljós- móðirin tók hlutverk sitt alvarlega og fylgdi þeim meira að segja í fyrsta sónarinn. Hún var alveg viss um að prinsessa væri þar á ferð og var tilbú- in með kjólinn þegar stúlkan kom í heiminn. Hún Katla var alltaf svo fín og sæt og var oftar en ekki í bleiku sem fór henni svo vel. En því miður fékk hún ekki að vaxa og þroskast eins og önn- ur börn, því að veikindi hennar gerðu henni það ekki mögulegt. En hún var hetja og alveg ótrúlega sterk, eins og foreldrar hennar og stóri bróðir sem gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að henni liði alltaf sem best. Við vorum þeirra gleði aðnjótandi að fá að fylgjast með lífshlaupi Kötlu litlu og fá að taka aðeins þátt í því með henni. Okkur fannst ekki leið- inlegt þegar við fengum að passa skvísuna eða bara rétt að kíkja í heimsókn. Við erum svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þessari gullfallegu prinsessu og eigum yndislegar minn- ingar um hana Kötlu Rún sem munu fylgja okkur í hjartanu. Í hjartanu vitum við einnig að núna er hún Katla orðinn engill sem dansar og syngur á bleiku skýi. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Elsku Rúna, Jón, Kristján og fjöl- skyldur ykkar. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum og vonum að góður Guð styrki ykkur í sorginni. Ykkar Margrét, Halla og strákarnir. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Í dag kveðjum við litla vinkonu, hana Kötlu Rún. Katla Rún byrjaði á Lyngási í september sl. og eignaðist strax stað í hugum okkar og hjörtum. Katla Rún var fljót að aðlagast öllu því sem fyrir hana var lagt. Oft fylgdi Kristján stóri bróðir systur sinni á leikskólann í Lyngási og tók þar með virkan þátt í tilveru hennar. Okkur er minnisstæð síðasta sundferðin henn- ar og þá kom stóri bróðir með. Einnig er okkur ofarlega í huga jólaballið þar sem við áttum yndislega dag- stund með Kötlu Rún og fjölskyldu hennar. Katla Rún fékk ekki að vera lengi hjá okkur en við trúum því að nú líði henni vel. Um leið og við þökk- um henni samfylgdina biðjum við guð að styrkja Guðrúnu, Jón, Kristján litla og aðra aðstandendur í sorginni. Þó vindur blási á litla logann þinn og líka streymi regn – hann blikar þarna. Því flýgurðu ekki hátt í himininn? Þar hlýtur þú að verða fögur stjarna. (Þýð. Helgi Hálfdánarson) Vinir á Lyngási. Elsku Katla Rún. Þú varst engill af himnum ofan. Þú, sem hefur staðið þig svo hetjulega gegnum þessi erfiðu veikindi. Þú, sem hefur verið stolt allra sem hafa fengið að kynnast þér. Þú, sem hefur gefið okkur svo góðar minningar sem munu lifa í hjörtum okkar að eilífu. Þú ert engill á himni. Elsku Rúna, Jón og Kristján Hagalín. Við fjölskyldan sendum ykkur og fjölskyldunni allri okkar einlægustu samúðarkveðjur á þess- um erfiðu tímum. Erna Hlíf, Snorri Arnar, Jón Arnar og Helga Hlíf. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 LEGSTEINAR Tilboðsdagar Allt að 50% afsláttur af legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk sími 587 1960 www.mosaik.is ✝ Eiginmaður minn, PÉTUR PÁLSSON verkfræðingur, Ásholti 12, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 5. febrúar kl. 13:00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Birna Ásgerður Björnsdóttir. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FINNUR EINARSSON frá Gufuá, Ánahlíð 2, Borgarnesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 31. janúar sl. Jarðarför verður auglýst síðar. Sólveig Sigríður Finnsdóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson, Guðmundur Finnsson, Jenný Halldórsdóttir, Sesselja Valdís Finnsdóttir , Kristján Björnsson, Gróa Finnsdóttir, Ólafur Ingi Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, ÁSGEIR ÁRMANNSSON bókbindari, Ásgarði 63, lést að morgni föstudagsins 2. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda, Lára Herbjörnsdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HRINGUR HJÖRLEIFSSON, Akranesi, áður búsettur á Ósi 2, Skilmannahreppi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 30. janúar. Jarðarförin verður gerð frá Akraneskirkju föstudaginn 9. febrúar kl. 10:30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Sjúkrahús Akraness. Sigrún Halldórsdóttir, Halldór G. Hringsson, Gunnjóna Sigrún Hringsdóttir, Jónas Sigurðsson, Guðbjörg Hringsdóttir, Páll Guðmundsson, Hjörleifur Hringsson, Elín Baldursdóttir, Sigrún Edda Hringsdóttir, Hafsteinn Jónsson, Hinrik Hringsson, Ingibjörg Þráinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.