Morgunblaðið - 03.02.2007, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 03.02.2007, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Valþór Sigfinns-son fæddist í Stórulág í Horna- firði 13. júlí 1947. Hann lést á Land- spítalanum í Reykjavík sunnu- daginn 21. janúar síðastliðinn. Hann var sonur Sig- urbjargar Eiríks- dóttur, f. 1922 og Sigfinns Pálssonar, f. 1918, d. 1989, en þau áttu fjóra syni. Þeir eru: 1) Eiríkur, f. 1942, kona hans var Guðrún Ragna Sveinsdóttir, þau slitu samvistum. Hann býr í Reykjavík. 2) Valþór, sem hér er minnst. 3) Sigurður, f. 1953, kvæntur Jó- hönnu S. Gísladóttur. Þau búa í Stórulág. Börn þeirra eru Árni Már, Smári Þór og Hulda Björg. 4) Páll, f. 1958, kona hans var Vigdís Ell- ertsdóttir, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Sigfinn- ur, Vignir Páll og Elín. Valþór átti heima í foreldrahúsum í Stórulág og stund- aði almenna verka- mannavinnu, eins lengi og heilsan leyfði. Um nokk- urra ára skeið átti hann við mikla van- heilsu að stríða og dvaldi á hjúkr- unarheimili HSSA á Hornafirði síðustu árin. Útför Valþórs verður gerð frá Hafnarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Bjarna- neskirkjugarði við Laxá. Þótt fráfall vinar míns Valþórs Sigfinnssonar frá Stórulág hafi átt langan aðdraganda vonaðist ég til þess hinn 6. janúar síðastliðinn þeg- ar við Ingibjörg sátum hjá honum og kvöddum hann, áður en við lögðum á stað í tveggja vikna frí að við mynd- um hittast aftur, en fyrsta fregn þeg- ar við komum var andlát hans þann sama dag. Kæri vinur, þá er þín stranga og erfiða ganga á enda og ég veit að nú líður þér vel í hásætinu sem þú átt skilið, með bjart ljós í kringum þig. Engan þekki ég sem hefur þurft að heyja jafn vonlausa, erfiða og langa baráttu við sjúkdóm og tekið því með jafn miklu æðruleysi og ró eins og þú gerðir öll þessi ár. Leiðir okkar hafa legið sama meira og minna alla tíð bæði í leik og starfi og margs er að minnast sem ég mun geyma í minningunni. Þegar veikindin fóru að gera vart við sig tók það um tvö ár fyrir lækna að átta sig á alvöru málsins, en á þeim tíma vorum við búnir að fara nokkrar ferðir milli lækna bæði aust- ur á land og suður en aldrei man ég eftir að þú kvartaðir, þó svo þú værir sárþjáður, heldur var slegið á létta strengi. Já, þannig er þinni persónu best lýst. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Sigurbjörg mín, hugur okk- ar er hjá þér og þinni fjölskyldu, guð varveiti ykkur öll. Far þú í friði, kæri vinur, og hafðu þökk fyrir samfylgdina. Þrúðmar Þ. og fjölskylda. Það setti að mér þungan trega er mér barst sú fregn að Valþór frændi minn og vinur væri látinn. Hann var aðeins 59 ára, en þessi frétt kom samt ekki á óvart. Fyrir tæpum ára- tug fór að bera á heilsubresti hjá honum sem fljótlega ágerðist uns svo var komið að hann greindist með sjúkdóm sem læknavísindin sáu eng- in ráð við. Hófust þá ferðir hans milli hinna ýmsu sjúkrastofnana þar sem allt var gert til að létta honum lífs- baráttuna á meðan sjúkdómurinn harður og miskunnarlaus vann markvist að því að brjóta niður lífs- þrótt hans. Loks var svo komið að lífsorka var þrotin og hann dvaldist á hjúkrunarheimilinu á Höfn þar sem hann naut frábærrar umönnunar síðustu árin. Valþór ólst upp í foreldraranni í Stórulág ásamt þremur bræðrum sínum. Þar voru oft mikil umsvif og var sveinninn ungi fljótt liðtækur við hin margbreytilegu störf heimilisins. Þá var mikið af hestum í Stórulág og eignaðist Valþór dökkbrúna hryssu sem skírð var því ótrúlega nafni Ljóska. Var hún eitt þekktasta kapp- reiðahross hér um slóðir og víðar og setti mörg met. Oft var mikið annríki við bústörfin og ýmsar framkvæmdir eins og tíðkast til sveita og menn gengu þreyttir til náða eftir anna- saman dag. Allt var þetta hinum unga manni haldgott veganesti þeg- ar hann fór að sækja vinnu utan heimilisins. Hann vann almenna verkamannavinnu á Höfn, stundaði sjósókn um árabil, starfaði í frysti- húsinu og mörg síðustu árin sem heilsan leyfði vann hann í sláturhús- inu og fleira sem ekki verður hér upptalið. Hann var eftirsóttur til vinnu, ekki síst þar sem átaka var þörf því hann var vel að manni. Einn- ig var hjá honum að finna samvisku- semi og trúmennsku sem var hans höfuðprýði. Hans er hvarvetna minnst sem góðs starfsmanns. Val- þór var mikil kempa, myndarlegur að vallarsýn og bar með sér góðan þokka. Hann var sjálfstæður í hugs- un og fór ekki alltaf troðnar slóðir . Hann var ekki allra, eins og sagt er, en var samt vinmargur og vinfastur. Það var gott að eiga hann að vini. Hann var greindur að eðlisfari og hafði einstakt minni og fylgdist vel með öllu sem fram fór, ekki síður eft- ir að heilsu hans tók að hraka. Hann var mjög gamansamur og átti auð- velt með að sjá skoplegu hliðina á til- verunni og hafði gaman af að koma fólki til að hlæja. Og eftir að hann var farinn að eiga erfitt með að tjá sig, þurfti samt ekki alltaf mikið til að koma honum til að hlæja. Valþór sást ekki oft á skemmtunum, þar sem margir voru saman komnir, en naut lífsins vel í hópi vina sinna og þá kom stundum fyrir að hann fór yfir strik- ið eins og hendir marga. Hann átti alltaf góða bíla og naut þess að bregða sér af bæ til að skoða landið sitt og mannlífið. Eina utanlandsferð fór hann er hann brá sér með Nor- rænu til Færeyja með Villa vini sín- um. Hann var mikill ráðdeildarmað- ur vandaður í öllum viðskiptum og vildi engum skulda. Hann var höfð- ingi í lund og hélt sig með reisn með- an heilsan leyfði. Veikindum sínum tók hann með slíku æðruleysi að undrun sætti og kvartaði aldrei yfir hlutskipti sínu. En eigi má sköpum renna. Ævi- skeið Valþórs er á enda runnið og skilur eftir í hugum okkar minn- inguna um mikinn drengskapar- mann. Við gröf hans skiljast leiðir. Við stöndum eftir með sorg í hjarta og söknum vinar okkar. Far þú í friði, kæri vinur og hafðu þökk fyrir sól- argeislana sem þú skildir eftir meðal okkar Hreinn Eiríksson. Valþór Sigfinnsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vinarhug við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, SIGRÍÐAR SIGURGEIRSDÓTTUR frá Súðavík. Daníela Guðmundsdóttir, Sigurjón Þorvaldsson, Grétar Geir Guðmundsson, Agnes Eymundsdóttir, Sævar M. Birgisson, Svanhvít Leifsdóttir, Ólafur Guðmundsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LILJU SIGURÐARDÓTTUR frá Frostastöðum, Víðigrund 28, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks, fyrir hlýju og frábæra umönnun. Sveinn Þ. Gíslason, Sveinn Sveinsson, Anna Dóra Antonsdóttir, Pálmi Sveinsson, Lilja Ruth Berg, Sigurður Sveinsson, Jóhanna Þorvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, ARA JÓNSSONAR, Sólbergi. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæslu- og lyf- lækningadeildar FSA fyrir góða umönnun og hlýju. Fyrir hönd aðstandenda, Svanhildur Friðriksdóttir. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru JÓHÖNNU BJÖRNSDÓTTUR læknis, Bergþórugötu 9, Reykjavík. Ásta Ásbjörnsdóttir, Hulda Ásbjörnsdóttir, Jónína Ósk Pétursdóttir, Pétur Björnsson, Margrét Þorvaldsdóttir, Hólmsteinn Björnsson, Þorgerður Ása Tryggvadóttir, Guðrún R. Björnsdóttir, Lilja V. Björnsdóttir, Jón Ómar Finnsson, Birna Björnsdóttir, Ríkharður Reynisson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU H. STEFÁNSDÓTTUR, Hrafnistu Reykjavík, áður til heimilis á Hólagötu 3, Ytri-Njarðvík. Ólína H. Guðmundsdóttir, Kristófer T. S. Valdimarsson, Júlíana Guðmundsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Þór P. Magnússon, Páll G. Guðmundsson, ömmubörn, langömmubörn og fjölskyldur. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar SVÖVU JÓNU MARKÚSDÓTTUR frá Súðavík, Njörvasundi 37, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við heimahlynningu LSH og starfsfólki á 11 E á Landspítalanum fyrir alúð við umönnun. Einnig þeim fjölmörgu sem styrkt hafa Krabbameinsfélag Íslands í minningu hennar. Beinteinn Ásgeirsson, Ásgeir Beinteinsson, Sigurbjörg Baldursdóttir, Halldóra Beinteinsdóttir Hall, Kjell Hall, Einar Beinteinsson, Jóna Björg Hannesdóttir, Sigríður María Beinteinsdóttir, Hulda Ingvarsdóttir Bethke, Jóhanna Beinteinsdóttir, Magnús Thoroddsen, Markús Þorkell Beinteinsson, Elsa Bára Traustadóttir, Berglind Guðrún Beinteinsdóttir, Haraldur Már Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SÖLVÍNU HERDÍSAR JÓNSDÓTTUR, Lyngholti, Ólafsfirði, síðar dvalarheimilinu Ási, Hveragerði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheimilinu Ási fyrir góða umönnun og hlýju. Guð blessi ykkur. Kristján Reykdal, Guðfinna Ólöf Friðriksdóttir, Gunnar Ágústsson, Margrét Friðriksdóttir, Einar Gestsson, Hildur Friðriksdóttir, Gylfi Ólafsson, Jón Sveinn Friðriksson, Jóna Gunnarsdóttir, Auður Regína Friðriksdóttir, Sævar Anton Hafsteinsson, Eygló Friðriksdóttir, ömmubörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.