Morgunblaðið - 03.02.2007, Side 36
36 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Um-
sjón: Elías, Hildur Björg og sr. Sigurður.
Gefandi morgunstund fyrir foreldra, afa og
ömmur með yngstu börnunum. Messa kl.
14. Kór Áskirkju syngur, organisti Kári Þor-
mar. Sóknarnefnd býður upp á hressingu í
safnaðarheimilinu að messu lokinni. Séra
Sigurður Jónsson
DÓMKIRKJA | Kl. 11 messa, sr. Hjálmar
Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur, org-
anisti er Marteinn Friðriksson. Barnastarf
á kirkjuloftinu meðan á messu stendur.
GRENSÁSKIRKJA | Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og
unglinga í kirkjustarfinu. Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Samskot til ABC-
barnahjálpar. Molasopi eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Org-
anisti Kjartan Ólafsson. Sr. Sveinbjörn
Bjarnason.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fræðslumorgunn kl.
10. Gunnar Hersveinn rithöfundur flytur
hugleiðingar: Lífsgildi Íslendinga. Messa
og barnastarf kl. 11. Sr. Jón D. Hróbjarts-
son prédikar og þjónar ásamt sr. Birgi Ás-
geirssyni og messuþjónum. 5 ára bókin af-
hent. Mótettukór syngur. Organisti Hörður
Áskelsson. Messukaffi.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Barna-
starf á sama tíma í umsjá Erlu Guðrúnar
Arnmundardóttur og Þóru Marteinsdóttur.
Organisti Douglas Brotchie. Helga Soffía
Konráðsdóttir.
Landsspítali háskólasjúkrahús Foss-
vogur | Guðsþjónusta kl. 10.30 Sr. Ingileif
Malmberg, organisti Helgi Bragason
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Drengjakór Langholtskirkju
syngur undir stjórn Alexanders Ashworths.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Org-
anisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Barna-
starfið hefst í kirkjunni en síðan fara börn-
in í safnaðarheimilið með Rut, Steinunni
og Aroni. Kaffisopi eftir stundina.
LAUGARNESKIRKJA | Kl. 11 Messa og
sunnudagaskóli. Sr. Hildur Eir Bolladóttir
prédikar og þjónar ásamt Auði Pálsdóttur
meðhjálpara, Gunnari Gunnarssyni org-
anista, kirkjukórnum, fulltrúum les-
arahóps, fermingarbörnum að ógleymdum
sunnudagaskólakennurunum þeim Andra,
Stellu Rún, Þorra og Maríu Rut. Kaffi og
djús eftir messu.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sr. Toshiki Toma, prestur innflytjenda pré-
dikar. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar
fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara
síðan í safnaðarheimilið. Kaffisopi eftir
messu á Torginu.
SELTJARNARNESKIRKJA | Útvarpsguðs-
þjónusta kl. 11. Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju leiðir safnaðarsöng. Guðrún
Helga Stefánsdóttir syngur einsöng og
einleikari er Ingunn Hallgrímsdóttir. Org-
anisti er Pavel Manasek og Sigurður Grét-
ar Helgason þjónar fyrir altari. Sunnudaga-
skóli á sama tíma. Verið velkomin.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík | Barnaguðsþjón-
usta kl 14. Nanda, Pétur og Ása Björk
leiða stundina með söngvum, sögu og
leik. Andabrauð í lokin. Kvöldmessa kl.
20. Nanda með vitnisburð um glímuna við
efann. Ásurnar syngja og Jón Atli les úr
ritningunni. Ása Björk þjónar fyrir altari,
Anna Sigga og Kalli leiða sönginn. Alt-
arisganga
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðþjónusta kl. 11 og
sunnudagaskólinn á sama tíma í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Kirkjukaffi á eftir.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Org-
anisti Magnús Ragnarsson. Barnaguðs-
þjónusta á sama tíma í umsjá Elínar, Jó-
hanns, Karenar og Lindu. Hressing í
safnaðarheimili eftir messuna.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl 11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju
A hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á sama
tíma. Súpa í safnaðarsal eftir messu.
www.digraneskirkja.is
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Messa með alt-
arisgöngu kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son, héraðsprestur þjónar. Kór Fella- og
Hólakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn
Lenku Mátéovu kantors. Sunnudagaskóli
á sama tíma. Umsjón Sigríður Rún
Tryggvadóttir og Ingvi Örn Þorsteinsson.
fellaogholakirkja.is
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11 með
fermingarbörnum í Borga-Engja-Korpu og
Víkurskóla ásamt foreldrum þeirra. Prest-
ar: sr. Lena Rós Matthíasdóttir og sr. Vig-
fús Þór Árnason. Organisti: Hörður Braga-
son.Fundur með foreldrum eftir messu.
Barnaguðsþjónusta kl.11. Prestur sr.
Anna Sigr. Pálsdóttir. Umsjón Hjörtur og
Rúna.
GRAFARVOGSKIRKJA - Borgarholtsskóli |
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón: Gunnar,
Díana og Guðrún María. Undirleikari: Guð-
laugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA | Lofgjörðarguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Þor-
valdur Halldórsson, tónlistarmaður, leikur
undir léttan sálmasöng. Barnaguðsþjón-
usta kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 18 (sjá einnig á
www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Stúlkur úr 5. bekk Kárs-
nesskóla syngja undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur kórstjóra. Barnastarf í kirkj-
unni kl. 12.30. Umsjón Sigríður, Þorkell
Helgi og Örn Ýmir. Bæna- og kyrrðarstund
þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi | Guðþjónusta og
sunnudagskóli í Salaskóla kl. 11. Kór
Lindakirkju leiðir safnaðarsöng undir
stjórn Keith Reed. Sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson þjónar. Kl. 13 verður athöfn á
kirkjulóðinni þar sem fyrsta skóflustunga
verður tekin að Lindakirkju. Fjölmennum.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN | Fjölbreytt og
skemmtilegt barnastarf kl.11. Fræðsla fyr-
ir fullorðna í umsjá Friðriks Schram. Sam-
koma kl. 20 með mikilli lofgjörð og fyr-
irbænum. Guðbjartur Árnason predikar.
Einnig verður heilög kvöldmáltíð.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ | Heim-
sókn frá Færeyjum, Pól Johannesen og
fleiri, frá Hvannasundi. Laugardaginn 3.
febr. kl. 20 er kvöldvaka, mikið til gamans.
Sunnudaginn 4. febr. kl. 17 er samkoma,
ræðumaður er Pól Johannesen. Allir vel-
komnir. Kaffi á eftir samkomu.
HJÁLPRÆÐISHERINN | Samkoma sunnu-
daginn kl. 20. Nils Storá talar. Umsjón:
Miriam Óskarsdóttir. Heimilasamband fyr-
ir konur manudaginn kl. 15. Opið hús dag-
lega kl. 16-18 nema mánudaga.
FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskóli kl.
11 fyrir alla krakka! Síðan er almenn sam-
koma kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir pré-
dikar. Söngur og lofgjörð, fyrirbænir í lok
samkomu fyrir þá sem vilja. Barnagæsla
meðan á samkomu stendur og kaffisala
að henni lokinni. Allir velkomnir!
KFUM og KFUK | Samkoma kl. 20. Sr.
Ólafur Jóhannsson talar, Keith Reed sér
um tónlistina með aðstoð Erlu Guðrúnar.
Mikil lofgjörð og söngur. Samfélag og kaffi
eftir samkomuna. Verið öll velkomin.
FÍLADELFÍA | Brauðsbrotning kl. 11. Ræð-
um. Vörður Leví Traustason. Bible studies
at 12.30. Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðum. Hafliði Kristinsson. Gospelkór
Fíladelfíu leiðir söng Fyrirbænir. Barna-
kirkja 1-12 ára. Allir velkomnir . Bein út-
sending á Lindinni eða á www.gospel.is.
Samkoma á omega kl. 20
VEGURINN KIRKJA FYRIR ÞIG | Fjöl-
skyldusamkoma kl 11. Lofgjörð, kennsla,
ungbarna- barnakirkja, Skjaldberar og létt
máltíð að samkomu lokinni. Eiður Ein-
arson kennir. Samkoma kl. 19, Högni
Valsson predikar, lofgjörð, fyrirbænir og
samfélag eftir samkomu í kaffisal. Allir
hjartanlega velkomnir. www.vegurinn.is
BETANÍA | Betanía Kristið Samfélag,
Stangarhyl 1, Rvk. Föstud. kl. 19.30, al-
menn samkoma, Lofgjörð og prédikun
Orðsins. Laugard. kl.20, unglinga-
samkoma. Sunnud. kl. 11, almenn samk.
Lofgjörð og prédikun Orðsins.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, Mormónakirkjan | Mormónakirkj-
an Ásabraut 2, Garðabæ. Sunnudaga:
11.15 sakramentisguðsþjónusta. 12.30
sunnudagaskóli. 13.20 félagsfundir.
Þriðjudaga: 17.30 trúarskóli yngri. 18.00
ættfræðisafn. 18.30 unglingastarf. 20.00
trúarskóli eldri. Allir eru alltaf velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN | Reykjavík, Krists-
kirkja í Landakoti: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18. Virka daga:
Messa kl. 18. Laugardaga: Barnamessa
kl. 14 að trúfræðslu lokinni. Reykjavík,
Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga:
Messa kl. 11. Laugardaga: Messa á
ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl.
18.30. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa
kl. 16. miðvikudaga kl. 20. Hafnarfjörður,
Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Kar-
melklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
08.30. Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík,
Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnu-
daga: Messa kl. 14. Stykkishólmur, Aust-
urgötu 7: Virka daga: Messa kl. 18.30.
Sunnudaga: Messa kl. 10. Ísafjörður:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Flateyri: Laug-
ardaga: Messa kl. 18. Bolungarvík:
Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga:
Messa kl. 19. Akureyri, Péturskirkja:
Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga:
Messa kl. 11.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Messa í
Reynivallakirkju sunnudaginn 4. febrúar
kl. 14. Gunnar Kristjánsson sókn-
arprestur.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi |
Barnaguðsþjónusta í kirkjunni sunnudag-
inn 4. febrúar kl. 11 f.h. Gunnar Krist-
jánsson sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum | Kl. 11
Barnaguðsþjónusta. Litlu lærisveinarnir
og Stúlknakórinn syngja undir stjórn Védís-
ar Guðmundsdóttur. Kl. 14 Guðsþjónusta.
Kór Landakirkju syngur undir stjórn Guð-
mundar H. Guðjónssonar. Gideon félagar
lesa ritningarlestra. Sr. Guðmundur Örn
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur: sr. Jón Þorsteinsson. Kirkju-
kór Lágafellssóknar. Organisti: Jónas Þór-
ir. Sunnudagaskóli í kirkjunni kl. 13. Um-
sjón: Hreiðar Örn og Jónas Þórir.
Prestarnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messudagur
Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju. Messa kl.
11. Altarisganga. Báðir prestar þjóna. Org-
anisti Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Guðrún
Árný Karlsdóttir syngur einsöng, Kór Hafn-
arfjarðarkirkju leiðir safnaðarsöng. Sam-
sæti og léttur hádegisverður í boði Kven-
félagsins eftir messu. Sunnudagaskóli í
Strandbergi og Hvaleyrarskóla á sama
tíma.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjöl-
skylduhátíð kl. 11. Sunnudagaskólinn og
fjölskylduguðsþjónustan saman í einni
stórri fjölskylduhátíð. Barnakórinn og Ung-
lingakórinn syngja undir stjórn Áslaugar
Bergsteinsdóttir. Veitingar í safnaðarheim-
ilinu á eftir.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Umsjón hafa Sigríður Kristín,
Hera og Örn. Poppmessa kl. 13. Andri
Bjarnason syngur ásamt hljómsveit kirkj-
unnar. Prestur: Sigríður Kristín Helgadótt-
ir.
KÁLFATJARNARSÓKN | Kirkjuskóli í Stóru-
Vogaskóla kl. 11.
VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl.11. Í upphafi guðsþjónustunnar er
Hilmari Ingólfssyni fyrrverandi skólastjóra
þökkuð góð störf og sr. Bragi Friðriksson
flytur stutt ávarp. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson leiðir guðsþjónustuna. Kór Hofs-
staðaskóla syngur. Hressing í safn-
aðarheimili.Sjá www.gardasokn.is
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Kór Vídal-
ínskirkju syngur. Organisti Jóhann Bald-
vinsson. Sr Friðrik J Hjartar og Nanna Guð-
rún Zoëga, djákni þjóna. Barn borið til
skírnar. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl.
13.30 og Hleinum kl. 13.40. Allir vel-
komnir! Sjá www.gardasokn.is
Guðspjall dagsins:
Er þér biðjist fyrir (Matt. 6.)
Kirkjan á Sjávarborg í Skagafirði.
NÝR Kia Carens, 7 manna fjöl-
notabíll, verður frumsýndur í dag
hjá Kia-umboðinu, Laugavegi
172, kl. 11–16.
Í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Kia Carens sameinar í einum bíl
þægindi og fjölhæfni í notkun
ásamt sportlegu og kröftugu við-
bragði. Þessi frumleiki birtist
einnig í innréttingunni með ný-
tískulegum litum, vönduðum efn-
um og margvíslegri sætaskipan.
Kia Carens er sjálfskiptur og
kemur með öflugri 2ja lítra, 140
hestafla dísilvél með 305 Nm
snúningsvægi.
Bíllinn er hlaðinn staðalbún-
aði.“
Kia-umboðið frumsýnir
Kia Carens-fjölnotabíl
VILDARBÖRN, ferðasjóður fyrir
langveik börn og börn sem búa við
sérstakar aðstæður, hafa opnað
endurnýjað vefsvæði á slóðinni
www.vildarborn.is. Markmið sjóðs-
ins er að gefa börnum á Íslandi og
í nágrannalöndunum tækifæri til
ferðalaga ásamt fjölskyldum sín-
um. Í tilefni af 70 ára afmæli Ice-
landair er stefnt að því að veita 70
börnum ferðastyrk á árinu.
„Frá upphafi hefur það verið
markmið okkar að sem allra flestir
geti nýtt sér þennan sjóð. Frá
árinu 2003 höfum við stutt yfir 100
fjölskyldur til þess að komast í
langþráð ferðalag og í ár viljum við
gera enn betur í tilefni af 70 ára af-
mæli Icelandair. Með þessari end-
urnýjun erum við að tryggja gott
aðgengi að upplýsingum um sjóð-
inn og einfalda umsókn um styrk
úr honum. Jafnframt höfum við
uppfært vefþjónustu sjóðsins, gert
vefsvæðið aðgengilegt í samræmi
við nútímakröfur og auðveldað
fólki að fylgjast með öllu starfi
sjóðsins í gegnum vefinn,“ sagði
Sigurður Helgason, formaður
sjóðsins.
Sjóðurinn var stofnaður af Ice-
landair sumardaginn fyrsta árið
2003. Verndari sjóðsins er frú Vig-
dís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands. Sjóðurinn er fjár-
magnaður með þrennum hætti. Í
fyrsta lagi með stofnframlagi Ice-
landair að fjárhæð 3 milljónir
króna, í öðru lagi með framlögum
frá félögum í Vildarklúbbi Ice-
landair, sem geta gefið ferða-
punkta sína til sjóðsins, og í þriðja
lagi með afgangsmynt sem farþeg-
um býðst að setja í umslög sem eru
í sætavösum véla Icelandair, og
taka flugfreyjur/-þjónar félagsins á
móti umslögunum. Úthlutað er úr
sjóðnum tvisvar á ári, á sumardag-
inn fyrsta og fyrsta vetrardag.
Næsta úthlutun úr sjóðnum er
sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2007,
og rennur umsóknarfrestur út 1.
mars 2007.
Vefsvæðið er hannað, byggt og
hýst í samstarfi við Hugsmiðjuna,
sem hefur sérhæft sig í aðgeng-
ismálum, og eru til að mynda bæði
Öryrkjabandalag Íslands og
Blindrafélagið meðal viðskiptavina
Hugsmiðjunnar. Öll hönnun vef-
svæðisins tekur mið af þeim stöðl-
um sem gilda um gott aðgengi.
Vildarbörn
opna endur-
nýjað vefsvæði
Stefnt að úthlutun til 70 barna
í tilefni af 70 ára afmæli Icelandair
SALVÖR Nor-
dal, forstöðu-
maður Siðfræði-
stofnunar
Háskóla Íslands,
flytur erindi um
siðfræði dauða-
refsinga á fundi
hjá VIMA – Vin-
áttu- og menn-
ingarfélagi Mið-
Austurlanda í
Kornhlöðunni í Bankastræti kl. 14
á morgun, sunnudag. Að erindi
Salvarar loknu mun hún svara
spurningum fundargesta. „Ekki
þarf að undra þótt félagið taki
þetta efni fyrir í kjölfar lífláts
Saddams Husseins, fyrrverandi
forseta Íraks. Engir þjóðhöfðingj-
ar hafa fagnað aftökunni opinber-
lega nema Bandaríkjaforseti þó
svo að margir hafi litið Saddam
hornauga og talið að ekki léki vafi
á um grimmd hans gagnvart
ímynduðum sem raunverulegum
andstæðingum. Umræður um rétt-
mæti dauðarefsingar hafa aukist í
flestum löndum eftir þennan at-
burð, hvort sem þar viðgangast
dauðarefsingar eða ekki. Því fýsti
félagsmenn VIMA að heyra um
þetta frá Salvöru sem hefur sér-
staklega kynnt sér siðfræði dauða-
refsinga,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fjallar um
siðfræði
dauða-
refsinga
Salvör
Nordal
LJÓSIÐ, endurhæfingar- og stuðn-
ingsmiðstöð fyrir krabbameins-
greinda og aðstandendur þeirra,
býður upp á líkamsrækt í sam-
vinnu við Hreyfingu undir leið-
sögn Guðrúnar Sigurðardóttur
sjúkraþjálfara. Erna Magnúsdóttir
iðjuþjálfi veitir starfinu í Ljósinu
forstöðu, en þangað koma um 110
manns í hverjum mánuði til að
byggja upp andlegt, líkamlegt og
félagslegt þrek. Um er að ræða
tilraunaverkefni Ljóssins og
Hreyfingar í fjóra mánuði þar sem
einstaklingar geta farið í upp-
byggjandi og styrkjandi æfingar.
Hóparnir verða á þriðjudögum og
fimmtudögum í Húsnæði Hreyf-
ingar Faxafeni 14 og skráning í
hópana fer fram í Ljósinu í síma
561 3770 og hófust þeir 1. febrúar
sl. www.ljosid.org.
Ljósið og Hreyfing í samstarf