Morgunblaðið - 03.02.2007, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Líf á nýjum nótum
Alfa II - Námskeið í Neskirkju
hefst 13. febrúar
Kynningarfundur þriðjudaginn 6. feb. kl. 20
Nánari upplýsingar á www.neskirkja.is
og í síma 511 1560.
Umsjón: Sigurvin Jónsson,
sr. Örn Bárður Jónsson,
Úrsula Árnadóttir og
Rúnar Reynisson.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG HELD AÐ ÉG STARI BARA
ÚT Í LOFTIÐ OG NJÓTI NOKKURRA
DAGDRAUMA
ANSANS ÞETTA
ERU ENDUR-
SÝNINGAR
NÚNA FER
BRÁÐUM AÐ
KOMA AÐ
ÞVÍ LÚLLI...
ÞAÐ EINA SEM ÞÚ
ÞARFT AÐ GERA ER AÐ
LABBA INN Í BÚÐIR OG
SYNGJA... ÞÁ GEFUR FÓLK
ÞÉR NAMMI!
ER
ÞETTA
LÖGLEGT?
AUÐVITAÐ
ER ÞETTA
LÖGLEGT!
GOTT... ÉG VIL EKKI VERA
ÁSAKAÐUR UM AÐ TAKA
ÞÁTT Í NEINUM UPPÞOTUM!
ÞETTA HLÝTUR
AÐ VERA DRAUMUR
ALLTAF ÞEGAR MAÐUR ER
AÐ HRAPA Í DRAUMUM, ÞÁ
LÍTUR MAÐUR BARA NIÐUR,
SÉR JÖRÐINA, TEKUR
ANDKÖFUM OG SÍÐAN
VAKNAR MAÐUR
ÉG ER
FARINN ÚT AÐ
RUPLA OG
RÆNA!
VANTAR ÞIG
EITTHVAÐ
SÉRSTAKT?
JÁ, KOMDU
HEIM MEÐ TVÖ RUPL
OG EINA RÆNU
ÉG ER EKKI VISS UM
AÐ ATLI HÚNAKONUNGUR
HEFÐI LÁTIÐ ÞETTA YFIR
SIG GANGA
ER EKKI
KOMINN TÍMI TIL
AÐ ÞÚ FARIR AÐ
KASTA ÞESSU
PRIKI?!?
VIÐ ERUM BÚIN AÐ SÆKJA UM FYRIR
KRAKKANA Í EINKASKÓLANN, NÚNA ÞURFUM
VIÐ AÐ FARA YFIR ÞAÐ
HVERNIG VIÐ ÆTLUM AÐ
BORGA ÞETTA
ÞESSI
EINKASKÓLI
ER MJÖG DÝR
VIÐ HÖFUM
EFNI Á ÞESSU
EF VIÐ LEYFUM
OKKUR ENGAN
MUNAÐ
ÁTTU VIÐ
AÐ FARA ÚT AÐ
BORÐA OG
FARA SAMAN
Í FRÍ?
NEI, ÉG ER AÐ
TALA UM AÐ SELJA
BÍLANA OKKAR OG
NOTA EKKERT
RAFMAGN Á
SUMRIN
VERTU
ALVEG
RÓLEGUR!
ÉG ER
MEÐ
FRÁBÆRAR
FRÉTTIR,
PETER. VEIST
ÞÚ HVER ER
AÐ LEIKA
MEÐ MÉR Í
MYNDINNI?
HVER
ELSKAN?
ROD RAYMOND,
SKÆRASTA STJARNAN Í
H0LLYWOOD! ER ÞAÐ
EKKI FÁBÆRT?
ÉG VAR AÐ LESA AÐ
HANN OG KÆRASTAN HANS
VÆRU HÆTT SAMAN
JÚ,
FLOTT!
Námskeiðið Í hjólför „Mót-orhjóladagbóka“ Róm-önsku Ameríku er haldiðhjá Endurmennt-
unarstofnun HÍ á vormisseri. Hólm-
fríður Garðarsdóttir er umsjón-
armaður námskeiðsins ásamt Stefáni
Á. Guðmundssyni. „Við notum sem
leiðsögumann á námskeiðinu kvik-
mynd Walter Salles um ferðalag Er-
nesto Che Guevara og fjöllum um
sömu slóðir og argentínski bylting-
armaðurinn fór um á ferðalagi sínu um
Suður-Ameríku,“ segir Hólmfríður.
„Leiðin liggur frá Argentínu til Chile,
þaðan til Perú og áleiðs að Karíbahaf-
inu.“
Fjallað er um sögu landanna og
menningu: „Námskeiðið fjallar um
þann margbreytileika sem er að finna í
löndum Rómönsku Ameríku og þá
þróun sem hefur átt sér stað síðan Che
lagði upp í langferð sína,“ segir Hólm-
fríður sem fengið hefur spennandi og
sérfróða fyrirlesara til liðs við sig: „Við
byrjum á almennum inngangi, og fjöll-
um um mannflóru Argentínu og Evr-
ópurætur innflytjendasamfélagsins. Í
annarri kennslustund munu Hólm-
fríður og Stefán Á. Guðmundsson
fjalla um hagkerfi landa Rómönsku
Ameríku og ljósi verður sérstaklega
varpað á efnahagslegar framfarir í
Chile,“ segir Hólmfríður. „Í þriðju
kennslustund ræða Sigrún Á. Eiríks-
dóttir og Stefán um samskipti inn-
fæddra og hvítra í Rómönsku Am-
eríku í aldanna rás, og um
birtingarmynd Perú í verkum rithöf-
undarins Mario Vargas Llosa.“
Í fjórðu kennslustund mun Ásgeir
Sverrisson ásamt Stefáni ræða um
stjórnmálaþróun og vinstrislagsíðu í
heimsálfunni, og í fimmtu kennslu-
stund fjalla dr. Kristín Jónsdóttir og
Þorbjörn Hlynur Árnason um hlut-
verk og stöðu Kaþólsku kirkjunnar í
samfélögum Rómönsku Ameríku: „Í
síðustu kennslustundinni mun Guð-
bergur Bergsson, sem þýtt hefur eftir
marga og mismunandi höfunda Róm-
önsku Ameríku fjalla um bókmennta-
sögu álfunnar og brúarsmíð bók-
mennta milli fjarlægra heimshluta.“
Hólmfríður segir áhuga Íslendinga
á Suður-Ameríku fara vaxandi: „Nám í
spænsku nýtur vaxandi vinsælda og
margar kvikmyndir Rómönsku Am-
eríku hafa vakið mikla athygli hér-
lendis,“ segir Hólmfríður. „Þá eru Ís-
lendingar farnir að ferðast meira og
víðar en áður, oft á eigin vegum og
vilja þá gjarnan hafa fræðst um
áfangastaðinn áður en lagt er af stað.
Við eigum einnig margt fólk sem
sérmenntað er í málefnum Suður-
Ameríku, og er námskeið Endur-
menntunarstofnunar frábær vett-
vangur til að sameina þá þekkingu á
ein stað.“
Fyrsta kennslustund verður næst-
komandi miðvikudag 7. febrúar. Kennt
er frá 20.15 til 22.15 í hvert sinn.
Engar forkröfur eru gerðar til nem-
enda, en æskilegt er að þeir hafi séð
kvikmyndina Mótorhjóladagbæk-
urnar sem fáanleg er á öllum betri
myndbandaleigum.
Nánari upplýsingar og skráning er
á heimasíðu Endurmenntunarstofn-
unar Háskóla Íslands á slóðinni
www.endurmenntun.is.
Menntun | Námskeið hjá Endurmenntun um
sögu og menningu landa Rómönsku Ameríku
Í hjólför Mótor-
hjóladagbóka
Hólmfríður
Garðarsdóttir
fæddist á Seyð-
isfirði 1957. Hún
lauk stúdents-
prófi frá Versl-
unarskóla Ís-
lands, BA-prófi í
spænsku frá Há-
skóla Íslands,
meistara- og síðar doktorsprófi í
suðuramerískum bókmenntum og
-fræðum frá Texasháskóla Í Austin,
og námi í uppeldis- og mennt-
unarfræði við HÍ. Hólmfríður hefur
starfað hjá Háskóla Íslands frá
1998, dósent frá 2001. Hún hefur
gefið út tvær bækur um málefni
kvenna í Rómönsku Ameríku auk
fjölda greina sem birst hafa hér-
lendis og erlendis.
mbl.is
smáauglýsingar