Morgunblaðið - 09.02.2007, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
()
*+,
-
-
. /
012
-
-
313, 452, %##6&
!!
"
-
-
452,76
(##
-
-
83/2, 0%9,:%
"
-
-
!"
"#$$%
+,
$
,6&
1; ,%<,6&
1
;,6&
1
;,+ %
=,+>
1 %#,%<,6&
?## ,%<,6&
@,%<,6&
,#,6&
A&,/=#<
,B
7<C,#,6&
@#,B
,6&
5
,6&
5%;,6%,6&
=D? E,$E&&,6&
F,6&
-
, !
/G ,6&
,%<,6&
8;
,%<,A%
,6&
8;
;,%<,6&
(H6$,6&
452,1?
."=,6&
."= ,6&
I
,6&
E
,,
,&
+
. ! " #
A?,,6&
A=< $,6&
/ 0
#
!
!
!!
!
!
!
!
!
A
D
#<
.
% ,J,
%#,K
,,7<,,,,,,,
&
&
&& && &
& &
& &&
&& && & &
&
&
& & &
&& &
& && &
& &&
&
&
& & && &
D
D
&
& &
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
I #< ,J,#L=
1.A&,M,1 6
$
#<
D
D
D
D
D
D
J
#&
Uppgjör – Exista hf.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
EXISTA hagnaðist um 37,4 milljarða
króna á árinu 2006. Þetta er minni
hagnaður en árið áður en þá nam
hagnaðurinn 50,3 milljörðum.
Stjórn Exista leggur til við aðal-
fund félagsins, sem haldinn verður í
mars, að hluthöfum verði greiddir
10,8 milljarðar króna í arð vegna árs-
ins 2006. Þá hefur stjórnin einnig
ákveðið að óska eftir því við aðalfund-
inn að hún fái heimild til að sækja um
skráningu á hlutum félagsins í kaup-
höllinni, OMX á Íslandi, í evrum.
Ársreikningur Exista fyrir árið
2006 er fyrsti ársreikningur félagsins
sem birtur er eftir að félagið var
skráð í kauphöllina, OMX á Íslandi, í
septembermánuði síðastliðnum.
Á árinu 2006 breyttist Exista úr því
að vera fjárfestingarfyrirtæki yfir í
fjármálaþjónustufyrirtæki og byggir
starfsemin nú á tveimur meginstoð-
um, rekstri og fjárfestingum. Hagn-
aður ársins 2006 skiptist þannig að
13,9 milljarða hagnaður varð af
rekstrarstarfseminni en 23,5 millj-
arða hagnaður af fjárfestingastarf-
seminni.
Tryggingafélagið VÍS og eigna-
leigufyrirtækið Lýsing bættust í
reikninga Exista á miðju ári 2006.
Fram kemur í ársreikningi Exista að
hagnaður af rekstri VÍS hafi numið
4,8 milljörðum í fyrra og að tekjur af
vátryggingaiðgjöldum hafi hækkað
um 22% á árinu.
Undir fjárfestingastarfsemi Exista
falla kjölfestueignir félagsins, meðal
annars í Kaupþingi banka (23,9%) og
Bakkavör Group (38,9%).
Gengi hlutabréfa í Exista hækkaði
um 6,3% í Kauphöllinni í gær.
Exista hagnast um
37 milljarða króna
&!
$! )
@!*
! !
&!
.-6(1
/.-1
'"#*&
-1-/6
+ &
+(5'
3 !
#
3
E
F;
-5/55/
'1.60'
46566
'04
'&#''
04'/
#',+-
01(/
G
H;
/.-60
.4.5(
!" ;G
#$%&%"
;F
I
;JG I
;JF
gretar@mbl.is
● DV verður prentað í prentsmiðju
Morgunblaðsins í Hádegismóum
frá og með fimmtudeginum 22.
febrúar nk. en þá hefur blaðið
göngu sína aftur sem dagblað.
DV hefur um nokkurra ára skeið
verið prentað í Ísafoldarprent-
smiðju, en var áður um árabil
prentað hjá Morgunblaðinu. Prent-
smiðja Morgunblaðsins mun nú
framvegis prenta fjögur dagblöð,
Morgunblaðið, Blaðið, DV og Við-
skiptablaðið sem kemur út fimm
sinnum í viku frá og með deginum
í dag. Þá mun Morgunblaðið
prenta vikufréttaritið Krónikuna,
sem á að byrja að koma út um
miðjan mánuðinn.
Dreifing DV verður einnig í hönd-
um Morgunblaðsins, en blaðið
verður selt í lausasölu á virkum
dögum, og í áskrift og lausasölu
um helgar.
Prentað í
Hádegismóum
● CENTURY Aluminum, móðurfélag
Norðuráls á Grundartanga, hefur
undirritað viljayfirlýsingu með
stjórnvöldum Afríkulýðveldisins
Kongó um uppbyggingu álvers og
tengdar framleiðslu þar í landi,
m.a. súrálsnámu. Samkvæmt vilja-
yfirlýsingunni á að knýja þessa
stóriðju áfram með 500 MW ga-
sorkuveri.
Í tilkynningu frá Century Alumin-
um er haft eftir forstjóranum, Log-
an W Kruger, að Kongó búi yfir öll-
um þeim kostum sem arðbær
áliðnaður krefst. Einnig ber hann
lofi á stjórnvöld í Kongó fyrir
stuðning við áform fyrirtækisins.
Century Aluminium
fjárfestir í Kongó
● ALFESCA ráðgerir allsherjarkynn-
ingu í Noregi síðar í mánuðinum fyr-
ir þarlendum fjárfestum á sviði sjáv-
arafurða og -vinnslu. Samkvæmt
frétt IntraFish munu stjórnendur fé-
lagsins standa fyrir fundi í Ósló
hinn 22. febrúar nk. Haft er eftir
Anthony Hovanessian, fram-
kvæmdastjóra viðskiptaþróunar Al-
fesca, að það sé hagstætt fyrir fé-
lagið og hluthafa þess að fá inn
nýja fjárfesta. Bendir hann á að í
Noregi séu mörg af stærstu sjáv-
arúvegsfyrirtækjum heims, s.s.
Marine Harvest, Cermaq og Leroy
Seafood Group. Ekki standi til að
skrá Alfesca í kauphöllinni í Ósló en
eignaraðild frá Noregi geti breikkað
eigendahóp félagsins.
Alfesca leggur snörur
fyrir norska fjárfesta
FJÁRFESTINGAFÉLAGIÐ Mile-
stone ehf. hefur gengið frá lána-
samningi við alþjóðlega fjárfestinga-
bankann Morgan Stanley. Um er að
ræða ríflega 16,5 milljarða lán til
þriggja ára.
Í tilkynningu frá Milestone kemur
fram að lánið sé veitt í tengslum við
endurfjármögnun félagsins. Lántak-
an komi í kjölfar erlendrar fjár-
mögnunar Milestone á síðastliðnu
ári þegar annar alþjóðlegur fjárfest-
ingabanki tók þátt í fjármögnun
Milestone vegna kaupa á 100% hlut
félagsins í tryggingafélaginu Sjóvá.
Helstu eignir Milestone auk Sjó-
vár eru ríflega 20% hlutur í Glitni og
85% hlutur í fjárfestingabankanum
Askar Capital.
Frekari fjárfestingar
Haft er eftir Karli Wernerssyni,
stjórnarformanni Milestone, í til-
kynningunni að samningurinn marki
ákveðin tímamót í þróun Milestone.
Fjármögnunin gefi stjórnendum fé-
lagsins byr undir báða vængi til frek-
ari landvinninga í erlendum fjárfest-
ingum. „Samstarf Milestone við
Morgan Stanley er einnig ágætt inn-
legg í umræðu síðustu missera um
stoðir íslensks efnahagslífs og þá sér
í lagi íslensks fjármálamarkaðar,“
segir Karl.
Morgan Stanley
lánar Milestone
BANKARNIR veittu alls 305 íbúða-
lán í nýliðnum janúarmánuði fyrir
samtals tæplega 2,7 milljarða
króna. Lánin hafa ekki verið jafn fá
og heildarlánsfjárhæðin ekki jafn
lág frá því að bankarnir hófu að
veita íbúðalán í ágúst árið 2004.
Frá þessu er greint í vefritum
greiningardeildar Landsbankans
og Kaupþings í gær.
Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans segir að ný íbúðalán
hafi dregist mikið saman síðastliðið
haust en aukist svo aftur þar til
komið var fram í janúar.
Í hálf fimm fréttum greining-
ardeildar Kaupþings segir að þegar
horft sé til þessara upplýsinga sé
vert að hafa í huga að almennt hafi
dregið úr umsvifum á fast-
eignamarkaði á þessum árstíma.
Samdráttur í íbúðalánum bankanna
Morgunblaðið/ÞÖK
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA aðallista Kaup-
hallarinnar, OMX á Íslandi, hækkaði
um 1,0% í gær og er lokagildi hennar
7.172 stig.
Mest hækkun varð á hlutabréfum
Exista í gær, en þau hækkuðu um
6,3%. Þá hækkuðu bréf Glitnis
banka um 2,8% og bréf Kaupþings
banka um 1,4%.
Af þeim félögum sem lækkuðu í
Kauphöllinni í gær varð mest lækkun
á bréfum Teymis, eða 1,7%, og Eim-
skipafélagsins, 1,0%.
Krónan styrktist lítillega í gær,
eða um 0,08%. Gengisvísitalan var
121,45 stig í upphafi dags en end-
aði í 121,35 stigum.
Dollarinn er nú 67,93 krónur,
breska pundið 133 krónur og evra
88,53 krónur.
Hækkun í Kauphöll
TAP af rekstri Símans á síðasta ári nam 3,6
milljörðum króna. Árið áður nam hagnaður fyr-
irtækisins 4,0 milljörðum króna. Ástæðan fyrir
því hvað afkoman versnaði mikið á milli ára er
sú að fjármagnsliðir voru jákvæðir um tæplega
700 milljónir króna á árinu 2005 en þeir voru
hins vegar neikvæðir um 8,9 milljarða í fyrra.
Þar munar mest um að gengistap fyrirtækisins
nam um 5,8 milljörðum á árinu 2006 en hins vegar var
gengishagnaður þess 760 milljónir árið áður. Gengisþró-
un krónunnar hafði því mikið að segja um afkomu Símans
á árinu 2006.
Til viðbótar við óhagstæða gengisþróun námu vaxta-
gjöld og verðbætur fyrirtækisins um 4,0 milljörðum
króna í fyrra, samanborið við um 1,5 milljarða
árið 2005.
Að mestu hagstætt ár
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, segir í
tilkynningu að árið 2006 hafi verið Símanum að
mestu hagstætt. Reksturinn gengið vel og fram-
legð aukist um 17%, sala um 16% og rekstrar-
hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) hafi aukist um 13%.
Hins vegar hafi óhagstæð gengisþróun krónunnar tölu-
verð áhrif á rekstrarniðurstöðuna, eins og hjá fleiri inn-
lendum fyrirtækjum.
Exista er stærsti hluthafinn í Símanum með um 44%
hlut og Kaupþing banki næststærstur með um 28%.
Síminn tapar 3,6 milljörðum
EXISTA er nú
komið með
15,48% hlut í
finnska trygg-
ingafélaginu
Sampo Group.
Markaðsvirði
hlutar Exista er
um 1,9 milljarðar
evra, eða um 170
milljarðar króna,
sem gerir þetta eina af stærstu fjár-
festingum, ef ekki þá stærstu, sem
íslenskt félag hefur ráðist í á erlend-
um vettvangi. Exista er stærsti ein-
staki hluthafinn í Sampo Group en
þar á eftir kemur finnska ríkið með
ríflega 13% hlut.
Exista var að kaupa 9,5 milljón
hluti í Sampo en fyrir átti félagið 25,3
milljónir hluta. Kaupgengið var 20,5
evrur á hlut en seljandi var Tchengu-
iz Family Trust, sem tekur við hluta
af söluandvirðinu í formi hlutabréfa í
Exista. Er sjóðurinn kominn með
4,92% hlut í Exista og hefur verið
lögð fram tillaga um að Robert
Tchenguiz taki sæti í stjórn Exista á
aðalfundi félagsins í næsta mánuði. Í
tengslum við viðbótarkaup í Sampo í
gær stendur til að nýta heimild til
hlutafjáraukningar í Exista um 526
milljónir hluta, en öll þessi viðskipti
eru háð samþykki fjármálaeftirlits-
stofnana í viðkomandi löndum.
Sem fyrr eru Bakkavararbræð-
urnir Lýður og Ágúst Guðmunds-
synir stærstu eigendur í Exista með
um 45% hlut.
Meðal
stærstu
kaupa
Exista með 15,5%
í Sampo Group
Robert Tchenguiz
SAMTÖK fjármálafyrirtækja (SFF)
eru ný heildarsamtök fjármálafyr-
irtækja á Íslandi. Þau hafa tekið við
starfsemi Samtaka banka og verð-
bréfafyrirtækja (SBV) og Sam-
bands íslenskra tryggingafélaga
(SÍT).
Félagsmenn SFF eru viðskipta-
bankar, sparisjóðir, vátrygginga-
félög, fjárfestingarbankar, verð-
bréfafyrirtæki, eignaleigur og
kortafyrirtæki.
Framkvæmdastjóri SFF er Guð-
jón Rúnarsson, sem var fram-
kvæmdastjóri SBV, en formaður
stjórnar er Bjarni Ármannsson, for-
stjóri Glitnis.
Ný samtök fjár-
málafyrirtækja
♦♦♦