Morgunblaðið - 09.02.2007, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 17
Eftir Bjarna Ólafsson
bjani@mbl.is
LÍTIL merkjanleg viðbrögð voru á
mörkuðum við þeirri ákvörðun Seðla-
bankans að halda stýrivöxtum
óbreyttum, en bankinn tilkynnti
þessa ákvörðun sína í gær. Vextir
bankans verða sem áður 14,25%, en
greiningardeildir viðskiptabankanna
þriggja, Glitnis, Kaupþings og
Landsbanka, höfðu spáð fyrir um
óbreytta stýrivexti.
Á kynningarfundi í gær sagði Dav-
íð Oddsson, formaður bankastjórnar
Seðlabankans, að verðbólguhorfur til
skamms tíma hefðu batnað og væru
nú betri en gert hafi verið ráð fyrir í
síðustu spá bankans. Verðbólga sé þó
enn sem fyrr langt yfir verðbólgu-
markmiði bankans þrátt fyrir að hafa
hjaðnað.
Ójafnvægi í þjóðarbúskapnum
„Minni verðbólga, betri verðbólgu-
horfur til skamms tíma og hækkun
stýrivaxta á liðnu ári fela í sér veru-
lega hækkun raunstýrivaxta. Þá hef-
ur miðlun stýrivaxta um vaxtarófið
verið greiðari undanfarna mánuði en
oft áður og áhrif þess eiga að lík-
indum enn eftir að koma að fullu
fram. Því kunna núverandi vextir að
duga til þess að verðbólgumark-
miðinu verði náð innan ásættanlegs
tíma,“ sagði Davíð.
Á hinn bóginn sagði Davíð enn
mikið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum.
„Gríðarlegur viðskiptahalli felur í sér
að stöðugleiki krónunnar er háður
vilja alþjóðlegra fjárfesta og lán-
ardrottna til að fjármagna hann.
Reynslan sýnir að jafnvel hóflegar
breytingar á alþjóðlegum fjármála-
skilyrðum geta valdið verulegum
sveiflum á gengi gjaldmiðla. Leiddu
slíkar breytingar til lækkunar á gengi
krónunnar myndu verðbólguhorfur
versna á ný, einkum ef það gerðist á
meðan mikil spenna er enn á vinnu-
markaði.“ Davíð sagði laun hafa
hækkað langt umfram framleiðni
undanfarin ár og að enn sæjust þess
fá merki að farið væri að draga úr
verðbólgu. Versnuðu verðbólguhorf-
ur myndi bankinn bregðast við.
Telja vaxtahækkunarferli lokið
Greiningardeild Glitnis segir spá
sína um þróun stýrivaxta á næstunni
óbreytta þrátt fyrir orðalag í stýri-
vaxtaákvörðuninni í gær. Við teljum
að vaxtahækkunarferli Seðlabankans
sé nú lokið og að vextir verði óbreytt-
ir fram á vor. Í maí reiknum við með
að Seðlabankinn taki til við að lækka
stýrivexti og gerum við ráð fyrir að
þeir verði komnir í 11,5% í árslok,“
segir í Morgunkorni Glitnis. „Að lík-
um mun svo bankinn halda áfram að
lækka vexti á næsta ári. Óvissa spári-
nnar er þó fremur í þá átt að Seðla-
bankinn hefji lækkunarferli sitt síðar
og/eða lækki vexti hægar. Til að
mynda má gera ráð fyrir að ákvörðun
um stækkun álvers Alcan myndi
hægja á, eða jafnvel stöðva, lækk-
unarferli stýrivaxta ef líkur væru á að
slíkar framkvæmdir byrjuðu af
krafti.“
Í Hálffimfréttum Kaupþings segir
að miðað við verðbólguspár megi ætla
að raunstýrivextir nú séu um 11%.
„Það er mat bankans að núverandi
vaxtastig sé að öllum líkindum nægi-
legt til að ná verðbólgu að markmiði
innan ásættanlegra tímamarka.
Þannig hafa verðbólguhorfur batnað
frá því að spá Seðlabankans kom út í
nóvember síðastliðnum,“ segir í Hálf-
fimmfréttum.
Greiningardeild Kaupþings segir
að viðbrögð við tilkynningu Seðla-
bankans í gærmorgun hafi verið lítil
og litlar hreyfingar á krónunni.
Hins vegar hafi mátt greina mikið
flökt í krónunni meðan á frétta-
mannafundi Seðlabankans stóð, sem
endurspegli ef til vill skiptar skoðanir
um þróun mála þegar til lengri tíma
er litið.
Undir lok dagsins hafði krónan
styrkst um 0,09%. Litlar hreyfingar
voru á skuldabréfamarkaði í kjölfar
vaxtaákvörðunarinnar þó hækkaði
ávöxtunarkrafa HFF14 um 7 punkta.
Seðlabankinn birtir næstu ákvörð-
un bankastjórnar um stýrivexti 29.
mars nk., samhliða birtingu þjóð-
hags- og verðbólguspár í Peninga-
málum. Seðlabankinn segir sjálfur að
við mat á verðbólguhorfum muni
bankinn horfa fram hjá mæling-
aráhrifum lækkunar virðisaukaskatts
sem ekki dragi úr undirliggjandi
verðbólgu.
Í takt við væntingar
Seðlabanki Íslands
ákvað í gær að halda
stýrivöxtum bankans
óbreyttum, eða í
14,25%. Viðbrögð við
ákvörðun bankans voru
ekki mikil, enda
ákvörðunin í samræmi
við spár greining-
ardeilda viðskiptabank-
anna þriggja.
Morgunblaðið/Sverrir
Kynningin Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur, og bankastjórarnir Ingi-
mundur Friðriksson, Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson, kynntu ákvörð-
un bankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum í gær.
!
!
&' #()
&$ *$)
( +$)
, - #$$$ #$$%
)
'))*'))1'))) '))% '))' '))2 '))3 '))4
Í HNOTSKURN
» Síðast voru stýrivextirSeðlabankans hækkaðir í
desember 2006 úr 14% í
14,25%.
» Það hækkunarferli Seðla-bankans sem varað hefur
undanfarin ár hófst árið 2004
þegar stýrivextir voru 5,30%.
» Deilt hefur verið umhvort hækkunarferlinu nú
sé lokið, en Seðlabankinn hef-
ur þvertekið fyrir að svo sé.
SAMSTARFI Post Danmark og eig-
enda Nyhedsavisen er lokið en fé-
lögin stóðu í fyrra sameiginlega að
stofnun dreifingarfyrirtækisins
Morgendistribution Danmark sem
dreift hefur Nyhedsavisen. Hlutur
Post Danmark í fyrirtækinu var
49% en 365 Media Scandinavia átti
51% en verður nú eini eigandinn.
Samkvæmt frétt dönsku Direkt-
fréttastofunnar er ástæða slitanna
sú að Post Danmark sá ekki fram á
að geta náð markmiðum sínum á
þessu sviði innan Morgend-
istribution Danmark, m.a. annars
vegna þeirra skorða sem sam-
keppnisyfirvöld hafi sett sem geri
það að verkum að Post Danmark
geti ekki beitt sér sem skyldi í sam-
starfinu. Fram kemur að Post Dan-
mark hafi tapað um 120 milljónum
íslenskra króna í samstarfinu.
Samstarfi Ny-
hedsavisen og
póstsins lokið
GÁMAÞJÓNUSTAN hf. hefur
keypt rekstur Hafnarbakka af Eim-
skip en Hafnarbakki var stofnaður
af Eimskip árið 1988. Frá upphafi
hefur eitt af helstu verkefnum í
rekstri verið sala og leiga á gámum
og gámahúsum af ýmsum gerðum.
Markaður fyrir sérhæfðar lausnir í
gámahúsum hefur vaxið mjög á
undanförnum árum, segir í tilkynn-
ingu um kaupin, og Hafnarbakki
verið leiðandi á Íslandi í þróun
slíkra lausna fyrir m.a. ferðaþjón-
ustu og verktakastarfsemi. Gáma-
þjónustan var stofnuð 1983 en nú-
verandi starfsmenn Hafnarbakka
munu starfa áfram að rekstrinum.
Kaupa Hafn-
arbakkann
Tryggðu
þér áskrift!
Þriðjudaginn 13. febrúar kl. 8:00 – 10:00
Grand Hótel Reykjavík – Gullteig
8:00 Morgunverður og skráning
8:30 Setning
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA
Frumvarp til laga um breytingu á samkeppnislögum
Jónína S. Lárusdóttir, skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Frumvarp til laga um viðurlög við brotum á fjármálamarkaði
Áslaug Árnadóttir, lögfræðingur í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Viðurlög vegna brota á samkeppnislögum
Guðrún Björk Bjarnadóttir lögmaður hjá SA
Viðurlög við brotum á fjármálamarkaði
Gunnar Viðar, forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Landsbanka Íslands
Fyrirspurnir og umræður
10:00 Fundarlok
Fundarstjóri: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA
Þátttökugjald kr. 1.500 með morgunverði.
Skráning á www.sa.is eða í síma 591-0000
VIÐURLÖG VIÐ
EFNAHAGSBROTUM
Morgunverðarfundur Samtaka atvinnulífsins
og Samtaka fjármálafyrirtækja