Morgunblaðið - 12.03.2007, Síða 2

Morgunblaðið - 12.03.2007, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði ÍSLANDS MÁLNING Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður Sætúni 4, S. 517 1500 - Skútuvogi 13, S. 517 101 við hliðina á Bónus Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag Unni Elfu Þorsteinsdóttur þykir Vík í Mýrdal fallegasti staðurinn í heim- inum og vill hvergi annars staðar búa. Þar segir hún að sé öflug fé- lagsstarfsemi og að talsverð uppbygging hafi verið þar á síðustu árum.| 2 Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Vík - uppáhaldsstaðurinn! mánudagur 12. 3. 2007 fasteignir mbl.is Skúfdrekinn afar vinsæll í gegnum tíðina sem stofublóm » 43 fasteignir ENGIN TÆKI ERU EILÍF SJÁLFVIRKA, HITASTÝRÐA BLÖNDUNARTÆKIÐ ÞARF UMHIRÐU SEGIR Í LAGNAFRÉTTUM SIGURÐAR GRÉTARS GUÐMUNDSSONA >> 10 Gæti lán í erlendri mynt verið lausnin? Myntlán SPRON Myntlán eru veitt til fjármögnunar vegna kaupa, framkvæmda eða endurfjármögnunar á íbúðar- og atvinnu- húsnæði. Núna býðst viðskiptavinum að skuldbreyta Opnum íbúðalánum í SPRON Myntlán. Upplýsingar í næsta útibúi SPRON í síma 550 1200 eða á spron.is A RG U S / 07 -0 18 3 VEXTIR FRÁ AÐEINS Miðað við myntkörfu 4, Libor-vextir 29.1.2007. 3,2% Frjálsi fjárfestingarbankinn býður afar hagstæð lán í erlendri mynt með lánstíma til allt að 40 ára. Lántaki getur valið að greiða einungis vexti af láninu fyrstu þrjú árin og lágmarkað þannig greiðslubyrði sína. Reiknaðu hvernig greiðslubyrði þín lækkar á www.frjalsi.is eða hafðu samband við lánafulltrúa okkar. Þannig er mál með vexti ... ... að það er hægt að létta greiðslubyrðina. F í t o n / S Í AStjórnstöðvar fyrir hitakerfi Vor- og sumarlisti er kominn út hjá breska fyrirtækinu Lauru Ashley. Þar kennir margra nýrra grasa. „ Róm- antíkin ræður ríkjum núna,“ segir Rósa Björg Óladóttir verslunarstjóri. „Speglahúsgögnin halda velli en hvít- máluð húsgögn eru líka vinsæl. | 10 Morgunblaðið/Ásdís Vorlína Lauru Ashley Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 23/26 Staksteinar 8 Menning 29/32 Veður 8 Leikhús 30 Úr verinu 12 Myndasögur 68 Viðskipti 13 Dægradvöl 33 Erlent 14 StaðurStund 34/35 Menning 15 Dagbók 34/35 Vesturland 16 Víkverji 34 Daglegt líf 17/19 Velvakandi 34 Forystugrein 20 Bíó 34/37 Umræðan 22 Ljósvakamiðlar 38 * * * Innlent  Að minnsta kosti 150 björg- unarmenn tóku þátt í leit að mönn- um sem lögðu í ferð á Langjökul þrátt fyrir að spáð var aftakaveðri á laugardag. Mennirnir fundust í aust- urhlíðum Skjaldbreiðs á sjötta tím- anum aðfaranótt sunnudags. » Forsíða  Víðtæk leit var gerð að fíkniefn- um á Suðurnesjum um helgina. 36 lögreglumenn, fjórir tollverðir og tveir fíkniefnahundar tóku þátt í að- gerðunum. Farið var í sex húsleitir, þar af fimm á sama tíma og fundust fíkniefni í öllum tilfellum. » Baksíða  Fjölmennur borgarafundur var haldinn á Ísafirði í gær um atvinnu- mál á Vestfjörðum þar sem m.a. var spáð að ef svo færi sem horfði myndi heilsársbyggð á svæðinu hverfa eftir nokkra áratugi. Fram kom að brýn- asta verkefnið fyrir Vestfirðinga væri að flutningskostnaður yrði jafnaður. » Forsíða og miðopna  Kröftug elding er talin hafa or- sakað röð truflana og bilana á suð- vesturhorni landsins í gær. Afleið- ingar þess voru m.a. líklega mesti vatnsleki sem Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins hefur þurft að kljást við á einum stað, en allt að tvö þúsund tonn af vatni flæddu inn í kjallara hússins Sólvallagötu 80–84 í gær- morgun eftir að dælustöð bilaði við Ánanaust, auk þess sem lengi var lokað fyrir heitt vatn í Árbænum. » Baksíða og 4 Erlent  Jacques Chirac, forseti Frakk- lands, tjáði þjóð sinni í gær að hann ætlaði ekki að bjóða sig fram á ný en kosið verður í apríl/maí. Chirac er 74 ára og hefur verið forseti síðan 1995. Hann nýtur lítils stuðnings núna og kenna margir honum um lélegt efna- hagsástand og mikið atvinnuleysi. Samflokksmaður hans, Nicolas Sar- kozy, hefur mestan stuðning forseta- frambjóðenda, 29%, samkvæmt nýrri könnun. Þau Segolene Royal og Francois Bayrou eru með jafn- mikið fylgi, 23%. »14  Deilt er um það í Bandaríkjunum hvort raunverulegt gagn sé að með- ferð sem veitt er kynferðisglæpa- mönnum í von um að þeir brjóti ekki af sér aftur þegar fangelsisvist lýk- ur. Kannanir benda til þess að lítið sem ekkert gagn sé að meðferð. »14 ÍSLANDSFLOKKURINN er vinnu- heitið á áformuðu þingframboði sem Margrét Sverris- dóttir og Ómar Ragnarsson hafa unnið að undanfarn- ar vikur. Sam- kvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins skýrist það á allra næstu dögum hvort þetta er endanlegt heiti. Framboðið hefur þegar tryggt sér lénið islandsflokkurinn.is. Eins og áður hefur komið fram er ætlunin sú að flokkurinn leggi áherslu á umhverfi, nýsköpun og velferð og haldi sig hægra megin við miðju. Stefnt er að framboði í öllum kjör- dæmum. Nafnið skýrist fljótlega Margrét Sverrisdóttir Hafa tryggt sér lénið islandsflokkurinn.is UM fjörutíu fermingarbörn tóku fyrstu skóflustunguna að nýju safnaðarheimili Kársnessóknar í gær. Athöfnin hófst í Kópavogskirkju með söng og ávörpum. Þaðan var gengið að lóð safnaðarheimilisins við Hamraborg þar sem Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, blessaði byggingarreitinn og alla þá sem að byggingunni koma. Morgunblaðið/ÞÖK Fjörutíu fyrstu skóflustungur Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÁGÚST Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Fjarkönnunar ehf., segir mjög brýnt að afla mun ítar- legri upplýsinga um mengunina á höfuðborgarsvæðinu en nú standi til boða, einföldun sé að einblína um of á þátt nagladekkja í svifryksmengun. Hann er jafnframt þeirrar hyggju að endurvarp varma frá snjóbræðslu- kerfum eigi þátt í rykmenguninni og að auðvelt sé að bæta loftskipti með því að skrúfa fyrir þau á sumrum. „Það eru til mælingaraðferðir og kerfi til að framkvæma slíkar mæl- ingar, sem kosta ekki mikla pen- inga,“ segir Ágúst. „Hér er fyrst og fremst um að ræða landfræðilegar upplýsingar og skráningu þeirra sem nauðsynlegt er að nota þegar ákvarðanir eru teknar um byggða- þróun í skipulag- inu.“ Inntur eftir því hvort nóg sé að mæla svifryks- mengun á tveim- ur mælistöðum auk hreyfanlegr- ar stöðvar í borginni, segist Ágúst telja að mæla þurfi á mun fleiri stöðum. Taka þurfi með í reikn- inginn hitastig og vindáttir, því þar komi fram hvernig náttúrulegt loft- streymi leiki um borgina eins og hún hafi byggst upp. Á eftir evrópskum stórborgum „Almennt er kalt á nóttunni og hlýtt á daginn í náttúrunni en hita- kerfi raska þessu og koma í veg fyrir loftskipti, ásamt því sem þau eiga vafalítið þátt í svifryksmenguninni með því að hraða niðurbroti stein- efna, sem klofna hraðar í hita. Ágúst hefur fylgst vel með um- fjöllun Morgunblaðsins um mengun- armál að undanförnu. Hann telur of mikið gert úr þætti nagladekkja, því svifryksmengun sé samspil margra ólíkra þátta. Hann bendir máli sínu til stuðnings á athugun sem hann hafi gert á varmaendurvarpi frá mið- borginni, sem sýni að næturhiti í gangstéttum og opnum svæðum sé víða yfir 22 gráður á sumrum. Hann hafi sýnt borginni hvernig megi að þýskri fyrirmynd setja gögn um margvíslega mengun inn í líkan, sem yrði bylting í upplýsingaflæði um mengunarmál hér. Reykjavík sé mörgum árum á eftir evrópskum stórborgum hvað þetta varði. Nánar verður greint frá samtali blaðsins við Ágúst fyrir helgi í blaðinu í vikunni. Þörf á miklu ítarlegri mengunarmælingum Ágúst Guðmundsson „VIÐ fórum bara með bænirnar og reyndum að stappa stálinu hver í annan,“ segir Stefán Jónsson, einn þriggja vélsleðamanna sem í gær- morgun fundust heilir á húfi skammt frá Skjaldbreið. Aðspurður sagðist Stefán bæði þreyttur og slæptur eftir tólf tíma veru í snjóskafli og með vott af kali á fingri hægri handar. Segir hann góð- an fatnað og rétt viðbrögð hafa bjargað þeim félögum en þeir eru allvanir að fara í fjallaferðir. Spurður hvers vegna þeir hefðu farið í vélsleðaferðina þrátt fyrir við- varanir um vonskuveður svarar Stef- án: „Ef maður gæti nú bara svarað því.“ Tekur Stefán fram að þeir hafi verið sannfærðir um að þeir næðu til byggða áður en veðrið brysti á. „Við vorum einmitt á leið til baka til byggða þegar veðrið skall snögglega á.“ Að sögn Stefáns voru þeir félagar ekki einir á ferð á svæðinu því þeir höfðu rekist á nokkurn fjölda ann- arra vélsleðamanna fyrr um daginn og rákust á jeppa sem voru á leið upp á jökul þegar þeir félagar voru á leið til baka. Stefán segir þá félaga hafa verið með NMT-síma, en ekki náð neinu sambandi. Aðspurður segist Stefán hafa lært mikið af þessari lífsreynslu. „Það má klárlega taka betur ígrundaðar ákvarðanir áður en maður gerir svona,“ segir Stefán. Spurður hvort hann hafi orðið hræddur um líf sitt meðan hann beið svarar Stefán því neitandi. „En maður hugsaði auðvit- að hvort það yrðu endaloks manns að liggja úti í skafli og drepast.“ Stefán vildi að lokum koma bestu þökkum á framfæri til allra þeirra sem að björguninni stóðu. „Ef maður gæti nú svarað því“ Í HNOTSKURN »Hátt í 150 björgunarmenntóku þátt í leit að vél- sleðamönnunum þremur. »Þeir fundust í aust-urhlíðum Skjaldbreiðs á sjötta tímanum í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.