Morgunblaðið - 12.03.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.03.2007, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís FULLTRÚAR frá Capacent Gallup komu á föstudag færandi hendi á Barna- og unglingageðdeild Landspít- alans, BUGL, og afhentu styrk upp á eina milljón krón- ur, sem ætlað er til innréttinga í biðstofu nýs húsnæðis. Myndin var tekin við það tækifæri en f.v. eru Auður Þorgeirsdóttir, Ægir Már Þórisson, Gunnar Haugen og Alma Guðmundsdóttir, öll frá Capacent, síðan Linda Kristmundsdóttir, deildarstjóri göngudeildar, Kristinn Tryggvi Gunnarsson, forstjóri Capacent, og Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir BUGL. Capacent gaf BUGL eina milljón Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is FÉLAG heyrnarlausra stóð nýverið fyrir veglegri uppskeruhátíð. Tilefni hátíðarinnar var margþætt, því auk þess að útnefna mann ársins 2006, voru fyrirtækjum og einstaklingum veittar viðurkenningar fyrir gott starf í þágu heyrnarlausra á síðasta ári, þakkir voru færðar sjálf- boðaliðum, auk þess sem ný og end- urbætt heimasíða félagsins (www.deaf.is) var kynnt. Táknmálsviðmót á heimasíðunni Að sögn Kristins Jóns Bjarnason- ar, framkvæmdastjóra félagsins, var þetta í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin með þessu sniði en stefnt er það því að gera hátíðina að árlegum viðburði hér eftir. Spurður um hina nýja heimasíðu segir Kristinn mark- miðið hafa verið að gera síðuna að- gengilegri fyrir alla, bæði heyrn- arlausa sem og aðra notendur Netsins. Sett verða inn myndskeið sem nefnd hafa verið táknmáls- viðmót, en um er að ræða myndskeið á táknmáli á flestum fréttum sem rata á textaformi inn á síðuna, þannig að heyrnarlausir hafi aðgengi að upp- lýsingum á móðurmáli sínu. Þeir sem hlutu viðurkenningu fé- lagsins fyrir gott starf á árinu 2006 voru Háskóli Íslands, fyrir stórbætta þjónustu við heyrnarlausa haustið 2006, Draumasmiðjan, fyrir afrek í leikhúsmálum heyrnarlausra, RÚV – Sjónvarpið – Fréttastofan, fyrir já- kvæða umfjöllun um heyrnarlausa í sjónvarpi, Akureyrarbær, fyrir mjög góða samvinnu og mikinn stuðning við Félag heyrnarlausra, 112, fyrir að vera með bestu neyðarsímaþjónustu fyrir heyrnarlausa sem þekkist í heiminum, TM-Tryggingamiðstöðin, fyrir að setja að eigin frumkvæði upp táknmálsviðmót á heimasíðu sína og sjálfboðaliðar fyrir starf sitt annars vegar á norrænu menningarhátíð heyrnarlausra sem haldin var á Ak- ureyri og hins vegar á norrænu æskulýðsmóti heyrnarlausra í Þórs- mörk. Vegleg uppskeruhátíð Morgunblaðið/Sverrir Gleði Glatt var á hjalla á uppskeruhátíð Félags heyrnarlausra í Norræna húsinu sl. föstudag. Félag heyrnarlausra hélt uppskeruhátíð sína í Norræna húsinu sl. föstudag. Veittar voru viðurkenningar og end- urbættur vefur félags- ins kynntur. SKÓLASKYLDA fimm ára barna gæti leitt til þess að nemendur lykju grunnskóla á því aldursári sem þeir eru nú í 9. bekk, að mati Unnar Stef- ánsdóttur, leikskólastjóra í Kópa- vogi. Hún kveðst hafa hugleitt í nokkur ár að fimm ára börn verði skólaskyld og kennsla þeirra fari fram í leikskólum. Unnur lagði fram tillögu um leik- skólastigið á 29. flokksþingi Fram- sóknarflokksins nýlega og var álykt- un í þá veru samþykkt. Þar segir m.a. að mikilvægt sé að tryggja öll- um börnum aðgang að gjaldfrjálsri kennslu og leiðir til þess séu m.a. að skólaskylda hefjist við fimm ára ald- ur í leikskóla. Gjaldfrjáls kennsla fylgi skólaskyldu fimm ára barna. Unnur telur að það yrði auðvelt fyrir sveitarfélögin að taka upp skólaskyldu fimm ára barna og því fylgdi lítill viðbótarkostnaður. Sveit- arfélögin greiði nú þegar a.m.k. 70% af reksturskostnaði leikskólanna, húsnæðið sé fyrir hendi og leikskóla- kennarar. Unnur benti á að með því að taka upp skólaskyldu fimm ára barna yrði hugsanlega hægt að útskrifa grunnskólanema árinu yngri en nú. „Ég hef unnið við skólastjórn í leikskóla í 11 ár og það hefur orð- ið gríðarleg breyting frá því þegar börn voru 4–6 tíma í leikskóla á dag í að vera 8–9 tíma eins og nú. Börnin eru næm á þessum aldri og ef þau hafa nóg að gera þá læra þau mikið,“ sagði Unnur. „Ég sé af þessu mikinn peninga- legan sparnað því að síðasta skyldu- námsárið myndi færast neðar. Ég sé einnig í þessu ákveðin tækifæri fyrir leikskólana, sem hafa átt undir högg að sækja varðandi starfsfólk. Þarna fengju leikskólakennarar tækifæri til að vinna með elstu börnin, en margir hafa áhuga á því.“ Fimm ára börn verði skólaskyld Unnur Stefánsdóttir KYNNINGARFUNDUR um niður- stöður starfshóps um málefni íþrótta á Íslandi verður haldinn á morgun kl. 16 í fundarsal ÍSÍ, Íþróttamið- stöðinni í Laugardal. Fundurinn er öllum opinn og verður á honum tekið á móti ábendingum sem tekið verður mið af þegar íþróttastefnan verður endanlega mótuð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skipaði í byrj- un ársins 2005 starfshóp til þess að fara yfir íþróttamál á Íslandi með það að markmiði að móta íþrótta- stefnu. Í febrúar 2006 lagði starfs- hópurinn fram áfangaskýrslu undir heitinu „Íþróttavæðum Ísland“. Í skýrslunni segir að íþróttastefna Íslands miði að aukinni þátttöku landsmanna, ekki síst barna og ung- linga, í íþróttum sem og reglulegri hreyfingu, að skipa íþróttastarfi veg- legan og verðugan sess í íslensku þjóðlífi, að auknum árangri íslensks íþróttafólks á heimsvísu. Meðal tillagna skýrsluhöfunda er að í leikskólum verði þróuð enn frek- ar skipulögð hreyfing og að í grunn- skólum verði tryggt með námskrá að börnum og ungmennum verði séð fyrir einni skipulagðri hreyfistund á dag. Þá er lagt til að starfsgrundvöll- ur frjálsra íþróttafélaga og sam- banda verði styrktur enn frekar og að sveitarfélög ýti m.a. undir sam- tvinnun íþróttaiðkunar og annarra tómstunda og að íþróttamannvirki í opinberri eigu verði opin almenningi eins og kostur er. Íþrótta- stefnan í mótun „Íþróttavæðum Ís- land“ til kynningar MAÐUR ársins 2006 hjá Félagi heyrnarlausra er Elsa Guðbjörg Björnsdóttir. Hlýtur hún viðurkenninguna fyrir framlag sitt á sviði leiklistar. Elsa Guðbjörg fór með aðalhlutverkið í leikritinu Viðtalið þar sem málefni heyrnarlausra voru til um- fjöllunar. Elsa Guðbjörg var ásamt Tinnu Hrafnsdóttur fjallkonan 17. júní 2006, en það var í fyrsta sinn sem hafðar voru tvær leikkonur í hlutverki fjallkonunnar og að önnur þeirra talaði táknmál. Loks var Elsa Guð- björg einn tveggja skipuleggjenda Drauma 2006 – al- þjóðlegrar leiklistarhátíðar heyrnarlausra sem haldin var á Akureyri í júlímánuði á síðasta ári. Elsa Guðbjörg valin maður ársins 2006 Maður ársins Elsa Guðbjörg Björnsdóttir (t.h.) tekur við verðlaunum úr hendi Önnu Jónu Lárusdóttur. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is HRÖÐ námsferð gegnum efstu bekki grunn- skóla er einn angi skólaþróunar sem staðið hef- ur um nokkurra ára skeið, að mati Steingríms Sigurgeirssonar, aðstoðarmanns Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Hann segir þessa þróun fyrst og fremst ganga út á aukið samstarf grunn- og framhaldsskóla og fljótandi mörk skólastiganna. Nemendur í grunnskólum fóru að geta tekið áfanga á framhaldsskólastigi fyrir síðustu alda- mót, að sögn Steingríms. Ýmist eru þessir áfangar teknir innan veggja grunnskólans eða nemendur á grunnskólaaldri njóta kennslu í framhaldsskólum. Þannig voru á þriðja hundrað nemendur úr grunnskólum Kópavogs við nám í Menntaskólanum í Kópavogi á liðnu hausti. Löng hefð er fyrir slíkri samvinnu grunn- og framhaldsskóla á Suðurnesjum og í Garðabæ. Sem kunnugt er gaf menntamálaráðherra MA heimild haustið 2005 að taka inn 17–18 nem- endur úr 9. bekk í tilraunaskyni og annar eins hópur hóf nám við MA á liðnu hausti. Þá fékk Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi heimild til að taka inn nemendur beint úr 10. bekk um síð- ustu áramót. Tólf nemendur úr nokkrum grunn- skólum hófu því framhaldsskólanám við FSU á miðjum vetri. Sagði Steingrímur að síðasta vet- ur hefðu tæplega 1.300 grunnskólanemendur á landinu öllu stundað nám á framhaldsskólastigi, ýmist í grunnskólum eða framhaldsskólum. Grunnskólalög í endurskoðun Eftir gildandi lögum eiga börn að vera tíu ár í grunnskóla. Steingrímur sagði að í umræddum tilraunaverkefnum hefðu menn verið að prófa sig áfram með fljótandi skil skólastiga. Fyrir- komulag þeirra yrði skoðað við endurskoðun grunnskólalaga. Mikilvæg breyting í þessu sam- hengi, að mati Steingríms, var gerð á reglugerð í mars 2005. Nú geta nemendur í 8. og 9. bekk, sem að mati skólastjóra og umsjónarkennara hafa staðist þær kröfur sem eru gerðar sam- kvæmt aðalnámskrá, þreytt samræmt lokapróf í einstökum námsgreinum. Þeir sem standast samræmt lokapróf hafa þar með staðist kröfur í þessum greinum varðandi inntöku í framhalds- skóla. MR og VÍ hafa nú fengið heimild mennta- málaráðherra til að taka inn nemendur úr 9. bekk. MR mun ætla að setja það skilyrði að nemendur hafi a.m.k. lokið samræmdu prófi í ís- lensku og VÍ krefjast þess að nemendur hafi lokið samræmdu prófi í íslensku og stærðfræði. Verði fljótandi skil milli grunn- og framhalds- skóla ríkjandi segir Steingrímur nauðsynlegt að setja skýrar reglur um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga vegna nemenda á mörkum skólastiganna. Mörk skólastiga að fara á flot

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.