Morgunblaðið - 12.03.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.03.2007, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND Blönduós | Það var frábært úrval gæðinga á Svínavatni á ísmótinu á laugardaginn, Svínavatn 2007, sem hestamannafélögin Þytur í V- Húnavatnssýslu og Neisti í A- Húnavatnssýslu stóðu fyrir. Það voru alls 170 skráningar og keppt var í fimm mismunandi flokkum. Vegleg peningaverðlaun voru í boði og fóru nokkrir knapar með verald- legan auð af ísnum, en vonandi allir með mikla ánægju og gleði að hafa tekið þátt í þessu stóra móti. Segja má að Sigurður Sigurð- arson hafi komið, séð og sigrað, en hann náði efsta sæti, bæði í opnum flokki í tölti og í A-flokki gæðinga. Fékk hann að launum, auk bikara og bókaverðlauna, 100 þúsund krónur fyrir hvorn sigur. Þá varð hann í þriðja sæti í B-flokki gæð- inga og fékk þar 10 þúsund kr. verðlaun eftir að hafa tapað hlut- kesti um annað sætið. Framkvæmd mótsins tókst mjög vel og voru bæði knapar og áhorf- endur á því að þarna væri frábær aðstaða. Ísinn var traustur og góð- ur og snjóþekja afmarkaði brautir vel. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Tilþrif Þórður Þorgeirsson með glæsihestinn Ás frá Ármóti en þeir lentu í öðru sæti í A-flokki gæðinga á ísmótinu. Úrval gæðinga á stórmóti hestamanna á Svínavatni Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur gve@ismennt.is Borgarnes | Um 15 km frá Borgarnesi við Ólafsvíkurveg er merkið SÓLA sem vísar á handverk Snjólaugar Guðmundsdóttur á Brú- arlandi. Snjólaug hefur búið þar frá árinu 1975 en opnaði vinnustofuna 1997. Þar vinnur hún í ull, tré, skeljar, steina, og hefur ýmsa muni til sýnis og sölu. ,,Áður en ég opnaði hafði ég unnið við eldhúsborðið heima, en þegar feðg- arnir byggðu bílskúr fékk ég 20 fm aðstöðu í öðrum endanum. Það skipti sköpum þó að sú aðstaða sé í rauninni orðin of lítil. Áður var ég víða með vörur, t.d. í Ullarselinu á Hvanneyri, í Reykjavík og á Ísafirði. Nú er ég er alveg hætt þessu, sel bara hér og eftir pöntunum.“ Ein hugmynd býr til aðra Snjólaug sem er fædd og upp alin á Ísafirði, er menntaður vefnaðarkennari og þegar hún var tvítug kom hún að Varmalandi til að kenna í Hússtjórnarskólanum. Ekki leið á löngu þangað hún hitti draumaprinsinn Guðbrand Brynjólfsson sem var nemandi á Hvanneyri. ,,Það var þannig að nemendur í Bændaskól- anum og á Varmalandi hittust gjarnan við há- tíðleg tækifæri. Nemendur í framhaldsdeild- inni á Hvanneyri voru oft eldri en við kennararnir og þeir fengu okkur stundum sem borðdömur. Ég hitti Brand einmitt við slíkt tækifæri og tók eftir að hann ruglaði mér sam- an við aðra konu. Ég var staðráðin í að skoða þennan mann betur og þegar ég leit í augun á honum varð ekki aftur snúið, það var ást við fyrstu sýn.“ Þau giftu sig 1972 og fóru að búa á Brúarlandi 1975 og eiga tvo syni. ,,Ég trúi því ekki að þetta hafi verið tilviljun, maður ræður kannski ekki alveg sínum örlögum en getur haldið utanum þau. Eins er með hug- myndir, ef maður segir frá hugmyndum sín- um, fara þær af stað og maður, já, eða einhver annar framkvæmir eða ný hugmynd kviknar. Maður á ekki að halda hugmyndum sínum leyndum, mér finnst það vera oft þannig í mín- um geira, fólk eignar sér hugmyndir en ein hugmynd býr til aðra, fólk fær innblástur og þess vegna finnst mér um að gera að henda öllum hugmyndum út í loftið, sérstaklega ef þær eru góðar.“ Kvenfélagið bjargaði mér frá léttgeggjun Snjólaug sinnti barnauppeldi og heim- ilisstörfum um hríð og kenndi í tvö ár við útibú grunnskólans á Varmalandi á Lyngbrekku. ,,En ég get ekki sagt að ég hafi verið dugleg í bústörfunum, ég sinnti skepnunum aldrei neitt en tók þátt í heyskap. Svo eftir að Brand- ur var kosinn oddviti var skrifstofan hér og fundir. Ég var alltaf eitthvað að vefa meðfram heimilisstörfum, og tók þátt í félagsstörfum. Ég fór í kvenfélagið og það bjargaði mér frá að verða léttgeggjuð, ég var svo einöngruð fé- lagslega. Svo fór ég að kynnast fólkinu hérna, og starfaði í Kvennalistanum.“ Snjólaug tók sæti á lista og fór í hálfan mánuð á Alþingi. ,,Ég kom meira að segja með tillögu sem var samþykkt, en hún var á þá leið að farið væri ofan í gamalt handverk og áhersla lögð á að varðveita það og ferja til nútímans. Hér áður ferjaðist kunnáttan frá einni kynslóð til ann- arrar, en ekki lengur, þessi þráður nánast slitnaði. Á þessum tíma var líka samdráttur í landbúnaði og handverkið var það sem konur horfðu til, sem gæti orðið þeim atvinna jafnvel þó að þær gætu ekki lifað af því, en margt smátt gerir eitt stórt.“ Í framhaldi af tillögu Snjólaugar var sett á laggirnar nefnd og fjár- magn veitt til verkefnisins Handverk og hönn- un. Heldur námskeið í flóka Um 1986 fór Snjólaug að vinna skartgripi. ,,Ég fann skeljabrot í fjörunni sem mér fannst svo flott, boraði í það gat og hengdi í eyrað. Það var byrjunin með skartgripina en ég hef alltaf ofið og unnið í flóka. Mér finnst voða gott að nota það sem er við fæturna á manni, nýta náttúruna og umhverfið.“ Fyrir utan að hanna, sýna og selja heldur Snjólaug nám- skeið í flóka. ,,Því held ég áfram á meðan fólk vill koma. Ég tek mest fjóra í einu og minnst tvo. Fólk lærir undirstöðuatriðin í flóka og getur haldið áfram sjálft. Ég reyni að gera kennsluna þannig að fólk geti byggt ofan á. Ég kenni fyrst að þæfa sléttan hlut, þæfa á mót, og svo á snið. Þæfing er aldagömul aðferð við meðferð ullar. Hirðingjar í Asíu hafa t.d. þæft húsin sín úr ull, þessi aðferð er eldri en vefn- aður og spuni, og hefur kannski uppgötvast fyrir tilviljun. Á Íslandi var þessi aðferð ekki mikið notuð, samt í reiðsessur, skikkjur, hatta og húfur, þetta er þrælsterkt þegar búið er að lemja þetta sundur og saman. Þessi aðferð var alltaf meira notuð á Norðurlöndunum en hér. En auðvitað var það alþekkt hér að þæfa sokka og vettlinga, þeir urðu miklu hlýrri.“ Snjólaug segið að traffíkin hjá sér sé þokka- leg, aðallega þó á sumrin. ,,Það er opið allan sólarhringinn, allt árið ef ég er heima,“ segir Snjólaug og hlær. Hún bætir við að sér finnist mjög gaman að taka á móti fólki og tekur gjarnan á móti hópum. ,,Ég safna líka hand- verki frá öðrum og þá kynni ég það og sýni. Og býð upp á kleinur og kaffi, kleinurnar mín- ar þykja góðar.“ Hún hefur sýnt verkin sín víða um land og næst liggur fyrir að sýna á Hrafnseyri. ,,Mér finnst það mikill heiður að vera boðið að sýna verkin mín þar í sumar, en þar verður opnað 17. júní. Á næsta ári er búið að bjóða mér að vera með sýningu á heimilis- iðnaðarsafninu á Blönduósi svo ég má halda vel á spöðunum.“ Opið allt árið, allan sólarhringinn Morgunblaðið/Guðrún Vala Mannblendin Snjólaug segir að sér finnist mjög gaman að taka á móti fólki. LANDIÐ KYNFERÐSLEGT ofbeldi á börnum á Íslandi hefur um langt skeið verið viðkvæmt umfjöllunarefni, en fé- lagasamtökin Blátt áfram hafa opn- að fyrir umræður og sinnt öflugu forvarnarstarfi sem vakið hefur at- hygli. Blátt áfram heldur námskeið og fyrirlestra, heimsækir skóla og leikskóla og nýtur fulltingis Brúðu- leikhússins við að nálgast viðkvæmt umfjöllunarefnið og gera yngstu kynslóðinni kleift að tjá sig án sekt- arkenndar. Alcoa-Fjarðaál hefur afhent Blátt áfram styrk upp á hálfa milljón króna til forvarnarstarfs í skólum á Austurlandi. Sigríður Björnsdóttir hjá Blátt áfram segir styrkinn mjög mikilvægan starfi samtakanna og að peningarnir komi að góðum notum. „Alcoa Fjarðaál er svo sannarlega að sýna bæjarfélagi sínu og um- hverfi hvað fyrirtækið er tilbúið að leggja af mörkum til samfélagsins. Þetta er samfélagslegur vandi sem hægt er að leysa og gjöf Alcoa Fjarðaáls er skref í þá átt,“ segir Sigríður en Blátt áfram og Brúðu- leikhúsið munu innan skamms leggja upp í sýningarferð um Aust- urland þar sem rætt verður um þessi mál við börnin. Styrkur Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa-Fjarðaáls, og Sigríður Björnsdóttir hjá Blátt áfram, með leikurum Brúðuleikhússins. Hálf milljón til styrktar forvarnarstarfi gegn kynferðislegu ofbeldi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.