Morgunblaðið - 12.03.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.03.2007, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÝLEGA var kynnt skýrsla tveggja breskra sérfræðinga um stöðu mála innan íslenska mennta- kerfisins með tilliti til blindra og sjónskertra nemenda. Blindra- félagið fékk þá hingað til lands í október á síð- asta ári til að gera út- tekt á þjónustu við blinda og sjónskerta nemendur og koma með hugmyndir að úr- bótum. Ástæða þess að Blindrafélagið ákvað að ráðast í slíka úttekt er einkum sú að for- eldrar blindra og sjón- skertra barna telja þau ekki fá þjónustu við hæfi í skólakerfinu, Blindradeild Álftamýrarskóla hefur verið lögð niður og eftir það bar eng- inn opinber aðili ábyrgð á því að börnin hlytu menntun við sitt hæfi. Í dag starfar aðeins einn sérmennt- aður blindrakennari í einum skóla og sinnir hann einu blindu barni. Hinn 1. febrúar hóf störf sérfræðingur sem ætlað er að sinna ráðgjöf við öll blind og sjónskert börn landsins. Hér er um að ræða samvinnuverk- efni Reykjavíkurborgar, mennta- málaráðuneytisins og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Til þess að menn geti glöggvað sig á umfangi verkefnisins skal þess getið að sam- kvæmt skrá Sjónstöðvar Íslands eru u.þ.b. 120 blind og alvarlega sjón- skert börn á Íslandi. En þurfa blind og sjónskert börn einhver sérúrræði? Áður en þeirri spurningu verður svarað skal það tekið fram að greinarhöfundur er blindur og hefur verið það frá fæð- ingu. Í vor verða 24 ár síðan ég útskrif- aðist úr grunnskóla. Ég leyfi mér að fullyrða, og get stutt það mörgum rökum, að á þeim tíma voru náms- aðstæður blindra og sjónskertra mun betri en þær eru í dag. Á þeim tíma var starfandi sérdeild fyrir blind og alvarlega sjónskert börn sem hafði á að skipa sérmenntuðum blindrakennurum sem veittu ráðgjöf og stuðning þeim kennurum sem höfðu sjónskerta á sínum snærum. Þegar ungt fólk eignast barn, ger- ir það sér miklar væntingar. Ef í ljós kemur að barnið fæðist fatlað, t.d. blint eða alvarlega sjónskert, hrynur heimurinn. Allir foreldrar eiga þá ósk heitasta fyrir hönd barna sinna að þau öðlist sjálfstæði, verði nýtir þjóðfélagsþegnar og hafi til að bera öryggi og sjálfstraust sem er forsenda þess að lifa af í hörðum heimi. Til þess að svo megi verða verður barnið að öðlast þekkingu og færni til jafns við samtíðarmenn sína. Það gerist aðeins ef sérstaklega er að því hugað og því sinnt af kostgæfni. Lítil börn læra ýmislegt með því einfaldlega að horfa á aðra og reyna svo. Blindu barni þarf að kenna margt sérstaklega. Ekki er hægt að ætlast til að foreldrar sjálfir sjái um slíka kennslu og ekki er sjálfgefið að þeir átti sig á hvers vegna barnið þeirra er „öðruvísi“. Börn læra t.d. borðsiði með því að horfa á fullorðið fólk nota þá, þau horfa á útigrillið og vita hvernig það virkar, þau horfa á ryk- suguna og átta sig á hlutverki henn- ar og stærð, þau horfa á landakortið og átta sig á legu landanna á því, þau horfa á skólatöfluna og lesa það sem þar er skrifað, þau horfa á steypubíl- inn vinna og vita hvað gerist og þannig mætti lengi telja. Ekkert af þessu liggur ljóst fyrir blindu og al- varlega sjónskertu barni. Sumt af þessu virðist kannski ekki ýkja merkilegt, en er þó allt liðir í þroska- ferlinu. Við lifum á mikilli tækniöld, nú er allt hægt, hægt að græða GSM- símann í handarbakið og hvaðeina. Blindir og sjónskertir hafa sann- arlega notið góðs af öllum þeim tækniframförum sem orðið hafa síð- astliðna áratugi, sérstaklega hvað varðar tölvutæknina og möguleikar þeirra til að fylgjast með og taka þátt til jafns við aðra þjóðfélags- þegna hafa aukist gríðarlega. Meðal þess sem auðvelt er að leysa er að al- varlega sjónskert börn geti fylgst með töflukennslu í skólastofunni sinni. Við sem byggjum hér vest- rænt velferðarþjóðfélag eigum ekki að láta um okkur spyrjast að við þekkjum ekki og notum ekki þá tækni sem býðst í öðrum löndum. Árið 2007 á það vandamál að börn sjái ekki á töfluna að vera úr sög- unni. Það vandamál að blindir nem- endur geti ekki lesið námsefnið sitt á að vera úr sögunni, þ.e.a.s. ef ís- lenskt samfélag og ráðamenn þess átta sig á því hvað þarf til. Í fyrrnefndri skýrslu um stöðu blindra og sjónskertra nemenda í ís- lensku samfélagi kemur glöggt fram að forsenda þess að börnin og ung- mennin geti notið þeirrar fræðslu sem þau eiga skýlausan rétt til sé miðlæg þekkingarmiðstöð, miðstöð sem hefur á að skipa sérfróðu fólki sem kann og veit hvernig taka skal á málum. Það er engum til hagsbóta að almennir kennarar þurfi, hver og einn í sínu horni, að finna lausnir á vel þekktum vandamálum sem upp koma þegar kenna á t.d. blindu barni að lesa. Blint barn les aðeins blindraletur og hver á að kenna? Ég skora á menntamálayfirvöld þessa lands að tryggja blindum og sjónskertum börnum og ungmenn- um tafarlaust lögbundinn rétt sinn til náms. Með aðstoð sérfræðinga og réttri ráðgjöf er engum blöðum um það að fletta að blindir og sjón- skertir geta vel fótað sig í íslensku samfélagi og geta orðið „fullgildir“ þjóðfélagsþegnar sem sinna sam- félagslegum skyldum sínum með sóma. Tími vangaveltna er liðinn og upp er runninn tími aðgerða og fram- kvæmda! Þurfa blindir og sjónskertir menntun? Ágústa Gunnarsdóttir fjallar um stöðu mála innan íslenska menntakerfisins með tilliti til blindra og sjónskertra nemenda »Ég skora á mennta-málayfirvöld þessa lands að tryggja blind- um og sjónskertum börnum og ungmennum tafarlaust lögbundinn rétt sinn til náms. Ágústa Gunnarsdóttir Höfundur er ritari stjórnar Blindra- félagsins. VIRÐING skiptir svo gríðarlega miklu máli þegar kemur til hjóna- skilnaða svo að hinir fullorðnu og börnin, sem eru ef til vill í spilinu, hljóti ekki skaða af. Það er því mikilvægt að freista þess að vinna vel úr hlutunum þegar svo er komið að hjón eða sam- búðarfólk á ekki sam- leið lengur, burtséð frá því hvort hinir frá- skildu kjósa sér annan maka eða ekki. Þrátt fyrir að hjónaskilnaðir séu tíðir á Íslandi eru margir, sem sjá ekki leiðir út. Við hjóna- skilnað eða sambúð- arslit snýst tilveran svolítið við og allt breytist, ýmist á jákvæðan eða neikvæðan hátt fyrir viðkomandi. Vinátta upp að vissu marki er mik- ilvæg ef börn eru til staðar þrátt fyrir að skilnaðarferlið hafi verið langt, erfitt og sársaukafullt, en forðast skal, eins og heitan eldinn, að nota börnin sem bitbein milli for- eldra eða til að bera þrætumál á milli hinna fullorðnu. Nái fólk ekki að höndla þetta upp á eigin spýtur er alltaf rétt að leita sérfræðiað- stoðar, t.d. hjá sálfræðingum eða fjölskylduráðgjöfum. En til hvaða ráða er hægt að grípa samfara skilnaði til að sættast við orðinn hlut, sjálfa/n þig, fyrrver- andi maka þinn og tilveruna alla? 1. Áfallið. Þú getur reynt að átta þig á breyttum aðstæðum og gert þér grein fyrir að þú ert ein/n á báti. Þú getur reynt að fá fyrr- verandi maka til baka. Þú situr og bíður að- gerðalaus og ekkert breytist til batnaðar. 2. Depurðin. Lífið hefur engan tilgang lengur og þú ert upp- full/ur af biturð, hatri og hefnigirni. Þú dregur þig inn í skel og forðast mannamót. Þú kvelur þig á því að þú hafir ekki reynt allt til að bjarga hjóna- bandinu. 3. Úrlausnin. Viðurkenndu það fyrir þér að fyrrverandi maki snýr ekki aftur svo biðinni ljúki end- anlega. Þú þarft ekki lengur að ótt- ast tilfinningar þínar við að hitta hann/hana. Þér finnst nýr kunn- ingsskapur alls ekki vera óhugsandi. Forðastu að ásaka þig og pína meira en orðið er. 4. Ný framtíð. Þú setur þér ný markmið, breytir lífinu til hins betra og endurmetur áhugamálin og vina- hópinn. Það er þér í sjálfsvald sett hversu lengi skilnaðarferlið varir. Þú kemst ekki hjá því að fara í gegnum öll stig þessa ferlis, en þú ákveður tímamörkin sjálf/ur. En hvað ber að forðast í þróun nýs vinskapar? Erfitt er að þróa nýtt samband án skuldbindinga. Mikilvægt er að hefja ekki nýtt samband til þess eins að flýja gamla sambandið og vinátta við hitt kynið er heldur ekki vænlegt ef henni er aðeins ætlað að fylla tómarúm og stoppa upp í göt. Slík sambönd eru aðeins meiðandi og hafa ekkert með vináttu að gera. Kynlíf með fyrrver- andi maka yrði aðeins til að flækja málin og vekja falsvonir. Forvitni og hnýsni um fyrrverandi maka virkar meiðandi. Nýtt samband er aðeins fýsilegt ef fortíðin hefur í alvörunni verið afgreidd sem fortíð og vottur af sjálfsvirðingu þarf að fylgja við- komandi einstaklingum inn í nýja framtíð til að öllum, fullorðna fólk- inu jafnt sem börnunum, geti liðið vel og þau nái að dafna. Virðing og vinátta Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar um hjónaskilnaði »Mikilvægt er aðhefja ekki nýtt sam- band til þess eins að flýja gamla sam- bandið … Birgitta Jónsdóttir Klasen Höfundur er náttúrulæknir, fjöl- skylduráðgjafi og rithöfundur. NÚVERANDI mennta- málaráðherra hefur nýtt meinta lagaheimild sína til að víkja frá gildandi lögum um skólaskyldu vegna afmarkaðs tilraunastarfs og hefur heimilað nokkr- um framhaldsskólum að innrita nemendur beint úr 9. bekk grunnskóla á næsta skólaári. Sem skólastjóri í grunnskóla tel ég mig knúinn að vekja at- hygli á að hér er því miður frjálslega farið með annars ágætt ákvæði til handa ráð- herra til að heimila frávik frá gildandi grunnskólalögum til að liðka fyrir tíma- bundnu tilrauna- og þróunarstarfi: Í fyrsta lagi hefur tilraunin verið við lýði á Akureyri í tvö ár og samkvæmt upplýs- ingum grunn- skóladeildar ráðuneyt- isins fer engum sögum af faglegri út- tekt og niðurstöðum þeirrar tilraunar. Áð- ur en lengra er haldið þyrfti að ljúka því starfi. Í öðru lagi er sá fjöldi nemenda sem nú er boðað að bætist í til- raunastarfið æði mikill – nú þegar er vitað að heimildin nái a.m.k. til inntöku 90 nemenda 9. bekkjar í þrjá framhaldsskóla. Í þriðja lagi er heimildin veitt á forsendum framhaldsskólans og frávikið frá ákvæðum laga um rétt- indi og skyldur grunnskólanemenda verulegt og spurningar vakna um hvort gjörðin standist landslög. Í fjórða lagi er samráðið við grunnskólann lítið ef eitthvað er. Skólastjórar fjölmennra grunnskóla frétta af þessu tiltæki á skot- spónum eða lesa um það í dag- blöðum. Í fimmta lagi er tilraunin fallin til að rýra virðingu unglinga grunn- skólastigsins fyrir þeim lögum sem gilda um skólaskyldu og er ávísun á mismunun og ójöfnuð nemenda við inntöku í framhaldsskóla. Í stuttu máli snýst tilraunin um að framhaldsskólarnir fái til sín bráðgera 14–15 ára nemendur án þess að þeir ljúki tilskildu grunn- skólanámi samkvæmt landslögum. Framhaldsskólinn fær heimild til að leika sér með kröfur um hvort við- komandi nemendur hafi lokið sam- ræmdum prófum eða ekki. Einu gildir um aðrar námsgreinar grunn- skólans sem ekki eru samræmdar. Grunnskólanum er að því er virðist eingöngu ætlað að meta hvort nem- endur hafi „námslegan“ og „fé- lagslegan þroska“ til að stunda nám í framhaldsskóla? Hvernig það verður gert veit enginn enn sem komið er. Á þessu ári munu koma út nýjar námskrár í öllum námsgreinum grunnskólans. Þar er tíundað það efni sem taka ber fyrir í grunnskól- anum. Í lögum er skýrt kveðið á um að nemendum sé skylt sækja grunnskóla í 10 ár og ef nemendur útskrifast úr grunnskóla á skemmri tíma þurfi þeir að hafa lokið til- skildu námi sem tilgreint er í þeim námskrám sem ráðuneytið er að gefa út um þessar mundir. Við í grunnskólanum skýrum þessi landslög og reglur fyrir nem- endum okkar og tjáum þeim hver inntökuskilyrði fram- haldsskólana eru. Með- al annars fá nemendur upplýsingar um hvaða samræmdum prófum þurfi að ljúka og hvaða einkunnum þurfi að ná til að komast inn á til- teknar brautir fram- haldsskóla. Líkur eru á að í vor þurfi allnokkrir ágætir nemendur grunnskóla sem þá ljúka öllum samræmdum prófum úr 10. bekk að horfa upp á einu ári yngri nemendur í sama skóla, taka sæti í til- teknum framhalds- skólum sem þeir sjálfir fá hugsanlega ekki inn- göngu í t.d. vegna plássleysis. Að vísu er því enn ósvarað hvort til séu foreldrar allt að 90 nemenda í 9. bekk grunnskóla sem treysta14–15 ára börn- um sínum í fullorðinslíf framhaldsskólanna þar sem nem- endum þeirra er á stundum er boð- ið upp á „bjórkvöld“ og fréttir herma að á dansleikjum framhalds- skólanema sé gert ráð fyrir „dauða- herbergi“ fyrir þá sem verða af- velta? Við í grunnskólanum höfum mörg lengi haft efasemdir um gildi og mikilvægi samræmdra prófa og margir skólastjórar hallast að því að þau eigi að leggja niður og að grunnskólanum verði að fullu treyst fyrir útskrift nemenda sinna. Menn sætta sig á hinn bóginn engan veg- inn við að þetta vald verði framselt skólameisturum framhaldsskólanna þrátt fyrir að auðvelt sé að skilja ótta þeirra og taugatitring vegna fyrirhugaðrar styttingar á náms- tíma framhaldsskólanema. Vinnubrögð menntamálaráðherra að heimila svo alvarlegt frávik frá kröfum um fullgilt grunnskólanám eru að mínu viti ámælisverð. Áleitin spurning vaknar hvort þarna hafi ekki handhafi framkvæmdavalds keyrt fram úr meðalhófi og án um- boðs tekið að sér eins konar lög- gjafarvald með heimildarákvæði til tilraunastarfs að yfirvarpi. Gjörð sem vegur að trúverðugleika ákvæða í grunnskólalögum um rétt- indi og skyldur nemenda og kröfur til náms. Lögbundið hlutverk grunnskóla í útskrift nemenda sinna eftir 10 ára skyldunám er virt að vettugi. Æðibunugangurinn er síðan óskiljanlegur á sama ári og sami ráðherra gefur út breytt grunnskólalög sem fela í sér þriggja ára aðlögunartíma að nýrri aðalnámskrá. Gjörð ráðherra er þjófstart úr takti við veruleika skólakerfisins og ég vona að fingurbrjóturinn verði leiðréttur og senn fari fram raun- veruleg og fagleg umræða um skynsamlegt flæði nemenda á milli grunn- og framhaldsskóla/ atvinnulífs á meðal skólafólks, nem- enda, foreldra og samtaka atvinnu- lífsins. Hugsanlega vilja pólitíkusar einnig koma að lýðræðislegum um- ræðum um skynsamlegar breyt- ingar á skyldunámi í skólakerfi sem betur fer er ekki einkamál ráð- herra. Ámælisverð vinnubrögð ráð- herra menntamála Ragnar Gíslason skrifar um 14 og 15 ára börn í framhaldsskóla Ragnar Gíslason » Vinnubrögðmennta- málaráðherra að heimila svo alvarlegt frávik frá kröfum um fullgilt grunn- skólanám eru að mínu viti ámæl- isverð. Höfundur er skólastjóri Garðaskóla í Garðabæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.