Morgunblaðið - 12.03.2007, Page 8
8 MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Tekst Siglingastofnun að leggja margra alda reynslu Eyja-sægarpa að velli í „sjómanni“
um Bakkafjöruna?
VEÐUR
Fari svo að ríkisstjórn verði mynd-uð að kosningum loknum á
vinstri kantinum eru yfirgnæfandi
líkur á, að það verði fyrsta rík-
isstjórnin á Íslandi, sem að meiri-
hluta verði skipuð konum.
Ástæðan fyrirþví er sú að
innan bæði Sam-
fylkingar og
Vinstri grænna
mun myndast
mikill þrýstingur
á forystu beggja
flokkanna um að
skipa fleiri konur en karla ráðherra.
Á þann máta einan sé hægt að sýnaí verki vilja flokkanna til þess að
rétta hlut kvenna í íslenzku sam-
félagi.
Ganga má út frá því sem vísu aðkarlar í þessum tveimur flokk-
um muni ekki taka slíku þegjandi en
yfirgnæfandi líkur eru á að þeir eigi
engra kosta völ.
Það er því eins gott fyrir þá karla íflokkunum tveimur, sem telja
sig eiga tilkall til ráðherraembætta
að átta sig á gjörbreyttri stöðu.
Hreyfing af þessu tagi mun líkastuðla að því að slík ríkisstjórn
yrði yngri en almennt hefur tíðkazt.
Ríkisstjórn sem að meirihluta yrðiskipuð konum mundi að öllum
líkindum verða töluvert öðruvísu en
ríkisstjórnir hafa verið.
Konurnar eru líklegri til að verafaglegri í störfum sínum og ekki
jafn reiðubúnar til þess að taka þátt í
alls kyns baktjaldamakki og karl-
arnir. Þær eru líklegri til að fylgja
settum reglum en karlarnir.
Áhugavert?
STAKSTEINAR
Ríkisstjórn kvenna
SIGMUND
!
"#
$ %&
' (
)'
* +,
- %
.
/
*,
01 0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
9
)#:;
!
" #$
%
&'
% ) ##: )
! " #$
"$
%
&$ '&
<1 <
<1 <
<1
!%$#()*+,&-
;
<
!
"
#
, .
/
-
"&
)
0
-/
!&"
$*,
. #,1&
$
&,&
2,&
)
0
5
1
!&,&"
$*,
.,$&
&
) 34)&
). $*,
&2,"
)&$"')
0
)"&-
5/
&66
&$ 3&
, &()
2&34 =3
=)<4>?@
)A-.@<4>?@
+4B/A (-@
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Júlíus Júlíusson | 10. mars
Nóg af snjó!
Í þessum rituðu orðum
erum ég og börnin
komin í gallann … sólin
skín, veðrið er svalt og
allir í janusnum sínum.
Við erum búin að kúra
og horfa á barnaefni í
morgun. Það tekur okkur aðeins 3
mínútur að fara á skíðasvæði okkar
Dalvíkinga, hér er búið að vera opið í
allan vetur og snjóbyssurnar hafa
heldur betur gert gagn á snjóléttum
dögum. Það er engin spurning að það
á að gera þetta í Bláfjöllum …
Meira: juljul.blog.is
Sylvía | 10. mars
Engin lækning í
sunnudagaskólanum
Ég fór reglulega í
sunnudagaskóla í
æsku og einu sinni
ætlaði ég sko ekki að
missa úr þó ég væri
veik. Ég var viss um
að Guð myndi lækna
mig og þá sérstaklega í sunnudaga-
skólanum. En það fór nú þannig að
ég kastaði nú bara upp á rauða
teppið í kirkjunni, en ég var ekkert
svekkt út í Guð samt.
Meira: sylviam.blog.is
Tómas Þóroddsson | 11. mars
Bitið í stofuborðið
Það gæti verið að ég
myndi bíta í stofu-
borðið í hádeginu. Ef
myndatökumaðurinn
sem tekur upphafs-
ræðu Egils í Silfrinu á
morgun lætur mynda-
vélina ganga frá andliti Egils og að
ljósakrónu og svo aftur á Egil, svo
yfir á næsta borð, þá … já. Svona af-
líðandi myndataka er óþolandi. Get-
ur verið að myndatökumaðurinn sé
búinn að horfa á of mörg kynlífs-
atriði í James Bond
Meira: [...]. tommi.blog.is
Anna K. Kristjánsdóttir | 11. mars
Fleiri göng!
Ég hefi löngum verið
hrifin af jarðgöngum
til að stytta leiðir á
milli landshluta og
héraða og gera ferða-
mátann öruggari og
þægilegri. Hvalfjarð-
argöng, Vestfjarðagöng og Fá-
skrúðsfjarðargöng hafa öll sannað
gildi sitt, stytt vegalengdir og gjör-
breytt og bætt möguleika fólks til
lífsbjargar. Nú eru háværar kröfur
um ótal fleiri göng og skyndilega
virðist nóg af peningum til að bora í
gegnum hvert fjallið á fætur öðru,
undir firði og hafsbotna til Vest-
mannaeyja.
[…]
Úr því allt í einu er til svona mik-
ið af peningum, ætla ég að leggja
fram eftirfarandi tillögu um jarð-
gangagerð:
Boruð verði göng frá Ártúns-
brekkunni og stystu leið að Hofs-
jökli. Þar verði borað út risastórt
neðanjarðar hringtorg. Frá hring-
torginu verði svo boruð göng í allar
áttir, ein til Vestmannaeyja, önnur
til Akureyrar, þriðju til Ísafjarðar,
fjórðu til Egilsstaða, auk þess sem
endalaust verður hægt að bæta við
göngum í allar áttir og til allra
byggðakjarna eftir því sem þurfa
þykir. Síðan verði gerður ytri hring-
ur sem tengir þéttbýlisstaðina sam-
an neðanjarðar, helst svo að bílarnir
þurfi aldrei að koma upp á yfirborð-
ið og því hægt að safna útblæstri
bílanna í síum í göngunum. Þar með
verður hægt að banna snjódekk og
aldrei þarf að fara út að moka snjó
framar, enda verður þá öll innan-
bæjarumferð komin í stokk.
Frá miðju hringtorginu undir
Hofsjökli verði boruð ein lóðrétt
göng upp á yfirborð Hofsjökuls. Þar
verði byggt eitt stykki risastórt
samkomu- og safnahús á hjólum þar
sem má koma fyrir öllum helstu
þjóðarsöfnum og leikhúsum þjóð-
arinnar, þar á meðal Alþingi og rík-
isstjórn, en efst uppi verði svo veit-
ingahús með útsýni yfir allt landið
og miðin.
Mér finnst þessi hugmynd svo
sniðug að ég kem henni hér með á
framfæri. Það er bara eitt vandamál
sem ég er ekki enn búin að leysa.
Hver vill keyra alla leið frá Reykja-
vík til Akureyrar eða Egilsstaða í
dimmum göngum alla leið?
Meira: velstyran.blog.is
BLOG.IS