Morgunblaðið - 12.03.2007, Page 9

Morgunblaðið - 12.03.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Hörbuxur - hörskyrtur           !   " MARGT var um manninn á 100 ára afmælishátíð Íþróttafélags Reykjavíkur sem haldin var í gær. Í tilefni afmælisins afhenti Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arstjóri ÍR formlega til afnota nýj- an gervigrasvöll, sem gerður hefur verið við félagsheimili ÍR í Skógarseli. Við þetta sama tækifæri var skrifað undir samkomulag ÍR og Reykjavíkurborgar um framtíðar uppbyggingu og skipulag á svæð- inu í Suður-Mjódd, sem mun að mati Úlfars Steindórssonar, for- manns ÍR, hafi mikil og góð áhrif á starf félagsins. „Ég geri mér vonir um að á næstu 2–3 árum verði al- gjör bylting á svæðinu sem á eftir að efla starfið til muna, enda lyk- ilatriði fyrir íþróttafélag að hafa sem mest af starfsemi sinni á ein- um og sama staðnum,“ segir Úlfar. Aðspurður segir hann nýja gervi- grasvallarins lengi hafa verið beð- ið með mikilli óþreyju og tók fram að völlurinn myndi skipta sköpum fyrir knattspyrnudeild félagsins. Á afmælishátíðinni kynnti Ágúst Ásgeirsson nýja bók sem hann hef- ur skrifað um ÍR og spannar 100 ára sögu félagsins. Ágúst er blaða- maður og kunnur ÍR-ingur, var í mjög sigursælu frjálsíþróttaliði ÍR um árabil og er fyrrverandi for- maður félagsins. Bókin er rúmlega 650 blaðsíður og hana prýða yfir 500 myndir. „Þetta er gríðarlega metnaðarfullt rit, sem segir merki- lega sögu af öflugu íþróttafélagi,“ segir Úlfar og tekur fram að þegar fólk fletti bókinni eigi öllum að vera ljóst hve margir hafi komið að starfi félagsins á umliðnum ára- tugum og sagan geri félagsmenn afar stolta. Aðspurður segir hann á þriðja þúsund manns koma að starfi félagsins nú um stundir. Í tilefni dagsins bættust tíu nýir heiðursfélagar ÍR í hóp þeirra sem fyrir voru. Einnig voru veittar samtals hundrað gull- og silfurvið- urkenningar til einstaklinga sem tilnefndir höfðu verið af stjórnum allra þeirra níu deilda sem eru inn- an ÍR. Fjölmenn af- mælishátíð ÍR Morgunblaðið/ÞÖK Gamlir og fræknir ÍR-ingar Meðal gesta í afmælisveislunni voru eldri ÍR-ingar sem sett hafi mikinn svip á sögu fé- lagsins. Þeir eru frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Finnbjörn Þorvaldsson, Örn Clausen, Ingólfur Steinsson og Þor- steinn Bernharðsson. Þess má geta að Reynir og Þorsteinn eru fyrrverandi formenn félagsins. Ljósmynd/Hafsteinn Óskarsson Bók um sögu ÍR í 100 ár Í tilefni afmælisins var formanni ÍR afhent ný bók um sögu félagsins. Jón Þ. Ólafsson, formaður ritnefndar, Úlfar Stein- dórsson, formaður ÍR, og Ágúst Ásgeirsson, höfundur bókarinnar. Morgunblaðið/ÞÖK Vítaspyrna Björn Ingi Hrafnsson, formaður ÍTR, tók nýja grasvöllinn formlega í notkun með þrusu- spyrnu að marki. Morgunblaðið/ÞÖK Borgarstjórinn Meðal gesta á afmælishátíðinni voru Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, Guðrún Kristjánsdóttir og Matthías Johannessen skáld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.