Morgunblaðið - 12.03.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
AFLAHÆSTI báturinn sem lagði
upp í Siglufirði á síðasta ári var Minna
SI 36. Minna er 10,5 tonn og var gerð
út á línuveiðar og bar að landi fjög-
urhundruð og tíu tonn af fiski og með-
alverð aflans var með því hæsta yfir
landið. Það er útgerðarfélagið ÓK í
Siglufirði sem gerir skipið út og skip-
stjóri er Ólafur Oddgeir Einarsson.
Ólafur býr í Sandgerði en hefur í raun
annað heimili í Siglufirði.
Tíðindamaður Versins hitti Ólaf
um borð í Minnu einn landlegudaginn
fyrir skömmu. ,,Já, þetta gekk bara
ágætlega á síðasta ári. Það var yfir-
leitt gott fiskirí, ekki síst þegar við
vorum norður af Grímsey. Það var
reyndar nokkuð langt stím, um það
bil tveir tímar út og fjórir í land. Það
var að vísu hægt að vera fljótari en þá
verður bara olíueyðslan svo miklu
meiri. En svo vorum við líka hérna út
af firðinum á svokölluðu Felli og líka á
Fljótagrunninu og Eyjafjarðarálnum.
Það var nánast alls staðar fiskur. Afl-
inn fór svo allur á markaðinn hér í
Siglufirði.
Mér finnst að þessi fiskmarkaður
hér sé búinn að sanna rækilega að það
var rétt ákvörðun að koma honum á
laggirnar. Við vorum tveir á bátnum,
reyndar var ég búinn að hafa í allt
fjóra menn með mér yfir árið. Svo
fengum við beitningarmenn hér á
staðnum, máttum víst teljast heppnir
því það verður sífellt erfiðara að fá
fólk til að beita . Mér sýnist að sú stétt
sé nánast að líða undir lok. Ég held að
framtíðin í þessum línuveiðum sé að
hafa beitningarvél um borð,“ sagði
Ólafur.
Ólafur tók við Minnu í febrúar á
síðasta ári en var búinn að róa frá
Siglufirði tvö árin á undan. Hann hef-
ur verið hjá ÓK-útgerð í fimm ár.
Honum líkar vel að gera út frá Siglu-
firði, segir að tvö síðustu sumur hafi
verið ágæt, sérstaklega var sumarið
2005 hagstætt til sjósóknar. Það gekk
á ýmsu hjá Ólafi tvö fyrri árin á Siglu-
firði. Þá lenti hann í talsverðum bil-
unum. En Minnan hefur reynst mjög
vel til þessa og engar frátafir orðið af
þeim sökum. Hins vegar fer árið 2007
ekki vel af stað því veðráttan hefur
verið óhagstæð þannig að sjaldan hef-
ur gefið á sjó.
Minnan aflaði 410
tonna á síðasta ári
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Fiskveiðar Ólafur Oddgeir Jónsson
lítur til veðurs. Það hefur viðrað
illa fyrir smábáta í ár.
Í HNOTSKURN
»Mér finnst að þessi fiskmark-aður hér sé búinn að sanna
rækilega að það var rétt að koma
honum á laggirnar.
»Ég held að framtíðin í þess-um línuveiðum sé að hafa
beitningarvél um borð.
»En svo vorum við líka hérnaút af firðinum, á svokölluðu
Felli og líka á Fljótagrunninu og
Eyjafjarðarálnum.
GENGIÐ hefur verið frá samruna
VBS fjárfestingarbanka og FSP,
fjárfestingarfélags sparisjóðanna,
en viðræður þess efnis hafa staðið
yfir frá því um miðjan febrúar.
Hluthafar VBS munu eiga 52% í
sameinuðu félagi og hluthafar FSP
48%, en félagið mun starfa undir
nafni VSB.
Miðað var við gengið 20,52 í
samrunaviðræðunum og sam-
kvæmt því er markaðsvirði hins
sameinaða félags um níu milljarðar
króna.
Jón Þórisson, framkvæmdastjóri
VBS, segir félagið munu stóreflast
í kjölfar samrunans og að sameinað
verði félagið mun sterkari heild en
félögin eru sitt í hvoru lagi.
Stjórnir félaganna tveggja hafa
samþykkt samrunann og verður
hann lagður fyrir hluthafafundi fé-
laganna á næstunni.
VBS er í eigu 80 hluthafa. Spari-
sjóðir og tengd félög eiga samtals
um 45% hlutafjárins og þar af er
um 35,5% hlutur FSP í VBS. Jón
Þórisson er stærsti hluthafinn á
eftir sparisjóðunum með um 5,5%
hlut og Björn Ólafsson, forstöðu-
maður eignastýringar VBS, á um
3% hlut. FSP er í eigu 20 spari-
sjóða og Icebank. Sparisjóður vél-
stjóra er stærsti hluthafinn og þar
á eftir kemur Sparisjóðurinn í
Keflavík.
VBS og FSP
renna saman
VIÐSKIPTI
ÞETTA HELST ...
● LEIGUBÍLASTÖÐVARNAR Hreyfill
og BSR hafa verið kærðar til sam-
keppniseftirlitsins fyrir meint sam-
keppnislagabrot. Kærendur eru eig-
endur Nýju leigubílastöðvarinnar
sem keyptu nýverið Bifreiðastöð
Hafnarfjarðar og Aðalbíla í Reykja-
nesbæ. Í tilkynningu er markaðs-
hlutdeild Hreyfils og BSR sögð sam-
anlagt yfir 90% þegar litið sé til
fjölda bílstjóra og fjölda verkefna. Er
leigubílastöðvunum m.a. gefið að
sök að hafa unnið náið saman við út-
boð ríkissamnings árið 1996 og þá
eru tengsl Hreyfils við Frama, stétt-
arfélag leigubílstjóra, sögð of náin
og sömu menn sagðir sitja beggja
vegna borðs.
Hreyfill og BSR kærð
fyrir samkeppnisbrot
● FJÖLDI þeirra
sem teljast of-
urríkir í heiminum
jókst um 35% á
síðasta ári, en þá
er átt við þá sem
eiga meira en 70
milljarða króna.
Voru þeir 793
talsins í árslok
2005 en ári síðar
voru þeir orðnir
946. Bill Gates er enn ríkasti maður
í heimi, en hann á andvirði um 3.800
milljarða króna.
Ofurríkum fjölgar
Bill Gates
NÝR lífeyrissjóður, Stapi, hefur
verið stofnaður, en hann verður til
með sameiningu Lífeyrissjóðs
Norðurlands og Lífeyrissjóðs Aust-
urlands. Höfuðstöðvar verða á Ak-
ureyri og skrifstofa á Norðfirði.
Nýr lífeyrissjóður
Ljósmynd/Rúnar Þór