Morgunblaðið - 12.03.2007, Side 15

Morgunblaðið - 12.03.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 15 MENNING E N N E M M / S ÍA / N M 2 6 3 8 5 Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 15. mars 2007 kl. 17.00 á Nordica hotel. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi þurfa að berast stjórn eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Gögn vegna skiptingar skv. 8. dagskrárlið hafa legið frammi frá birtingu skiptingaráætlana í Lögbirtingablaðinu, 25. janúar 2007, og eru hluthöfum Símans hf. aðgengileg á skrifstofu félagsins að Ármúla 25, 108 Reykjavík. Dagskrá fundarins, endanlegar tillögur svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhent hluthöfum á aðalfundardaginn frá kl. 16.00 á fundarstað að Nordica hotel. Stjórn Símans Aðalfundur Símans2007 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári. 2. Skýrsla forstjóra um rekstur félagsins og endurskoðaður reikningur fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs. 4. Kosning stjórnar félagsins. 5. Kosning löggilts endurskoðanda. 6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir störf þeirra. 7. Ákvörðun um skiptingu Símans hf. i. Skipting A. Tillaga stjórnar Símans hf. um að félaginu verði skipt í samræmi við fyrri skiptingaráætlun, dags. 19. desember 2006, sbr. 133. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Í skiptingunni felst að tilteknir eignarhlutar í Símanum hf. og dótturfélögum Símans hf. renna inn í sérstakt hlutafélag, sem verður móðurfélag samstæðunnar, sbr. nánari skýringar í skiptingaráætlun. Samþykktir Símans hf. og hins nýja móðurfélags liggja fyrir. ii. Skipting B. Tillaga stjórnar Símans hf. um að félaginu verði skipt í samræmi við seinni skiptingaráætlun, dags. 19. desember 2006, sbr. 133. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Við skiptinguna færast fasteignir félagsins ásamt tilteknum skuldum yfir í sérstakt einkahlutafélag. Þá færist fjarskiptanet félagsins, viðskiptavild því tengd ásamt tilteknum skuldum inn í sérstakt einkahlutafélag, sbr. nánari skýringar í skiptingaráætlun. Samþykktir Símans hf. og viðtökufélaga liggja fyrir. 8. Tillaga félagsstjórnar um að móðurfélag samstæðunnar verði skráð í kauphöll fyrir árslok 2007. 9. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu. 10. Önnur mál. DAGSKRÁ BANDARÍSKA rithöfundinum Jonathan Littell, sem hlaut ein helstu bókmenntaverðlaun Frakklands, Goncourt, hefur ver- ið veittur franskur ríkisborg- araréttur. Littell fékk verðlaunin í nóvember fyrir skáldsögu sína „Les Bienveillantes“, en hún fjallar um minningar SS foringja. Í franska dagblaðinu Le Fig- aro kemur fram að Littell hafi tvívegis verið hafnað þegar hann hefur sótt um franskan ríkisborgararétt en það var áður en bók hans, sem er metsölubók, kom út í ágúst í fyrra. Frönsk stjórnvöld höfðu hafnað umsóknum hans á þeirri forsendu að hann uppfyllti ekki þau skil- yrði sem sett væru um að umsækjendur þyrftu að búa í landinu í að minnsta kosti sex mánuði á ári. Littell býr í Barcelona á Spáni ásamt belgískri eiginkonu og tveimur börnum. Littell, sem er fyrr- verandi hjálparstarfsmaður, er sonur njósnasögu- höfundarins Roberts Littells. Jonathan Littell fæddist í New York árið 1967 en bjó síðar í Frakklandi. Littell fær rík- isborgararétt Hefur verið hafnað í tvígang Jonathan Littell ÚT er kominn geisladiskurinn Úr skel með Kára Árnasyni og félögum sem leika frumsamda jazztónlist. Ásamt Kára, sem leikur á trommur, eru flytjendur og höf- undar úr fremstu röð íslenskra jazz- tónlistarmanna; Sigurður Flosason á altó-saxófón, Ómar Guðjónsson á gítar og Agnar Már Magnússon á hammond- orgel. Diskurinn er gefinn út til styrktar umönnunarsjóði Árna Ibsens og rennur allur ágóði af sölu hans beint í sjóðinn. Tónlist Úr skel kominn út Kári Árnason 80. Skáldaspírukvöldið verður haldið í Eymundsson í Austurstræti kl. 20.15 annað kvöld. Þar mun Sigurður Skúlason leikari lesa úr skáldsögunni Ógæfusama konan og nokkur ljóð í þýðingu Gyrðis Elíassonar úr safnritinu Snúa aftur. Einnig verður lesið úr þýðingu Harðar Kristjánssonar á skáldsögunni Helj- arslóðarhatturinn sem Lafleur útgáfan gaf út. Aðgangur er ókeypis, og hægt að taka með sér veitingar frá Te og Kaffi. Bókmenntir 80. Skáldaspírukvöldið Sigurður Skúlason Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is LEIKRITIÐ Alveg brilljant skiln- aður, sem sýnt er í Borgarleikhús- inu, verður sýnt í 150. skipti annað kvöld, en það er jafnframt næstsíð- asta sýning á verkinu. Verkið hefur verið sýnt í þrjú ár, en það var frumsýnt í mars árið 2004. Edda Björgvinsdóttir, sem leikur einleik í verkinu, segir að hugsanlega sé um einhvers konar met að ræða. „Ég hef allavega ekki fundið neitt verk síðustu ár sem hefur gengið eins vel, fyrir utan Hellisbú- ann hans Bjarna Hauks,“ segir Edda. „Það hefur verið nánast uppselt alltaf, og svo fór ég um allt land í sumar og þá var nánast alltaf fullt líka.“ Edda segir að ástæða þessarar miklu velgengni sé trúlega sú að um mjög gott leikrit sé að ræða. „Í þessu verki eru margir punkt- ar sem hræra verulega í hjörtum allra, alveg sama hvort kynið er og á hvaða aldri fólk er. Fólk fær brjálæðisleg hlátursköst af því það þekkir svo vel tilfinningarnar sem konan er að ganga í gegnum á svið- inu. Svo grætur það líka með henni,“ segir Edda sem er ekkert orðin leið á að leika í verkinu þrátt fyrir þennan mikla fjölda sýninga. „Það er nefnilega svo skrítið, og það er það sem áhorfendur ekki vita, að þeir eru þessi óvænti leikari í hverri einustu sýningu. Það er aldrei sama upplifunin að leika á sýningunum. Án áhorfenda væri þetta náttúrlega ekki neitt.“ Alveg brilljant skilnaður fjallar um Ástu, miðaldra konu sem veitir áhorfendum einlægan og op- inskáan aðgang að sínum innstu hugarfylgsnum skömmu eftir að elskulegur eiginmaður hennar til þrjátíu ára yfirgefur hana til að taka saman við yngri konu. Leik- stjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir, höfundur Geraldine Aron og þýð- andi og höfundur íslenskrar leik- gerðar er Gísli Rúnar Jónsson. Hrærir verulega í hjörtum allra Leikritið Alveg brilljant skilnaður sýnt í 150. skipti Langlíf Edda segir áhorfendur eiga stóran þátt í velgengni sýningarinnar. www.borgarleikhus.is Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is FLUTNINGUR á áður óheyrðu leikriti eftir Matthías Johannessen, Bláu eyjunni, var hljóð- ritaður í síðustu viku á vegum Ríkisútvarpsins. Í upptökunni bregða margir af þekktustu leik- urum þjóðarinnar sér í hlutverk ýmissa andans manna þjóðarinnar frá síðari hluta síðustu ald- ar, en verkið segir frá sögumanni sem fer sál- förum og hittir fyrir margan merkismanninn í handanheimi. Ásdís Thoroddsen leikstýrir verk- inu og hefur jafnframt „hagrætt“ að flutningi í útvarpi, eins og hún orðar það sjálf. „Þetta er mjög skemmtilegt verk. Þarna koma fyrir karakterar sem fólk þekki frá tutt- ugustu öldinni, eins og Eggert Stefánsson, Steinn Steinarr, Þórbergur Þórðarson, Ás- mundur og Gunnlaugur og fleiri góðir,“ segir leikstjórinn og kveður þann handanheim sem í verkinu er lýst óneitanlega bera sterkan svip þess er við þekkjum hvað best. „Þegar ég las verkið fyrst fannst mér svo skemmtilegt hvað það nær anda þessa tíma vel.“ Ásdís segir fríðan flokk leikara hafa lagt mannmargri upptökunni lið og nefnir sem dæmi bæði leikara af yngri kynslóð, s.s. Þröst Leó Gunnarsson, sem leikur sögumanninn, Hilmi Snæ Guðnason og Benedikt Erlingsson, og leik- ara á borð við Róbert Arnfinnsson, Erling Gíslason, Þóru Friðriksdóttur, Guðrúnu Steph- ensen, Árna Tryggvason og Baldvin Hall- dórsson. Að sögn Hallmars Sigurðssonar, leiklist- arráðunautar Ríkisútvarpsins, er reiknað með að Bláu eyjunni verði útvarpað með haustinu. Bregða sér í hlutverk and- ans manna frá síðustu öld Morgunblaðið/Árni Sæberg Á æfingu Þröstur Leó Gunnarsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Benedikt Erlings- son koma öll við sögu upptöku Ríkisútvarpsins á Bláu eyjunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.