Morgunblaðið - 12.03.2007, Page 26

Morgunblaðið - 12.03.2007, Page 26
26 MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðlaug ÁstaMagnúsdóttir fæddist í Hergilsey í Breiðafirði þann 16.7. 1935. Hún var bráðkvödd að heimili sínu í Reykjavík þann 3.3. 2007. Guðlaug lætur eftir sig 4 upp- komnar dætur. a) Þórey Aspelund f. 25.9. 1955 gift Lúðvík Baldurssyni f.1950. Börn þeirra eru Linda Rós f. 1976, Ásta Soffía f.1980. b) Maggý Kristín Aspelund f. 25.3.1959 gift Hákoni Pálma Aspelund f. 1957 börn þeirra eru Einar Þór f. 1980, Elvar Svan f. 1983, Helena Berglind f. 1991 c) Berglindi Gestsdóttir f. 12.8 1966 sem var ættleidd til hjónanna Gests Magnússonar f. 9.6.1928 d.5.11.2005 og Guðbjargar Elínar Guðnadóttir f. 22.12.1929 d. 10.8. 1994 Maki Berglindar er Víðir Pétursson f. 1969 börn þeirra eru Arnór Ármann f. 1987, Gauti f. 1992, Unnur Freyja f. 1996, Vaka f. 2002, d) Halldóra Sædís Halldórsdóttir f. 5.3.1968 gift Guðmundi Pétri Bauer f. 1966. Sonur þeirra er Adam Erik Bauer f. 1989. Foreldrar hennar voru hjónin Bentína Kristín Jónsdóttir húsmóðir, fædd á Kleifum á Selströnd 30.10. 1900 d. 6.2.1992 og Magnús Ein- arsson bóndi og verkamaður fæddur á Brekkuvöllum á Barðaströnd 2.7. 1905 d. 28.12. 1989 Þau eru bæði lát- in. Systkini Guðlaugar eru Elísabet Matthildur f. 1924, Sigríður f. 1927, Óskar f. 1933, tvíburabróðir hennar Hafliði Þórður f. 1935 og Ásdís Guð- rún f. 1940 d. 1996. Uppeldisbræður dvaldist á Vífilsstöðum og síðar á Reykjalundi til 20 ára aldurs en þar kynntist hún fyrrum eiginmanni sín- um Erling.. Í New York sinnti Guðlaug heim- ilisstörfum. Þau skildu árið 1959. Guðlaug bjó hjá foreldrum sínum á Gilsbakka á Bíldudal næstu 2 árin ásamt dætrum sínum og sinnti þar heimili. Árið 1961 fluttist Guðlaug ásamt Ásdísi systur sinni með börn sín að Sólheimum á Bíldudal. Árið 1965 fluttist Guðlaug svo með dætur sínar ásamt Ásdísi systur sinni til Reykjavíkur og bjó lengst af við Kleppsveg í Reykjavík. Guðlaug starfaði mestan hluta ævinnar sem saumakona hjá saumastofunni Mód- el Magasín og síðar hjá Saumastof- unni bót. Síðustu árin starfaði hún í þvottahúsinu Fönn og Grýtu þar til hún endaði langan og samvisku- saman starfsferil sinn þá orðin 70 ára gömul. Guðlaug sinnti leiklistarstörfum á Bíldudal á meðan hún bjó þar og var listhneigð. Hún var feimin og ákaf- lega hógvær og bjartsýn kona með mikinn baráttuvilja. Hún var mikill tónlistarunnandi og elskaði að dansa. Hún var dýravinur mikill og náttúrubarn í eðli sínu. Hún dáði fugla og gerði ekki uppá milli þeirra frekar en annara. Hún elskaði sólina og naut hennar í hvert sinn þegar færi gafst. Guðlaug var mikill og fengsæll veiðimaður og kunni hún best við sig við lygn silungavötn á heiðum. Guðlaug var talnaglögg og hafði gaman af að spila Bingó og eignaðist hún góða vini í gegnum þann félagsskap. Útför Guðlaugar Ástu fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 12. mars kl. 11:00. og systrasynir eru Jón Ástvaldur f. 1943 og Smári Bent f. 1958. Guðlaug var gift Er- ling Aspelund, fyrrum hótelstjóra Loftleiða f. 28.2. 1937 frá árinu 1954 til 1959 og átti með honum 2 dætur. Þeirra fyrsta heimili var í Drápuhlíðinni í Reykjavík 1954 en þau fluttu til New York í Bandaríkjunum ári síðar ásamt þeirra fyrsta barni og voru búsett þar í um 4 ár. Guðlaug trúlof- aðist Halldóri Sævari Kristjánssyni f. 26.9.1941 d. 8.2. 1983. Saman áttu þau 2 dætur. Árið 1978 kynntist Guðlaug sambýlismanni sínum Skyldi Eyfjörð Stefánssyni, fyrrum sjómanni og leigubílstjóra f. 13.8. 1931 d. 20.5. 1990. Þau voru í sam- búð frá árinu 1978-1990 Börn hans úr fyrra hjónabandi eru Sonja Ey- fjörð Skjaldardóttir f. 1955, Ingi- björg Eyförð Skjaldardóttir f. 1956, Fannar Eyfjörð Skjaldarson f. 1958 og Halldóra Eyfjörð Skjaldardóttir f. 1960 Guðlaug ólst upp við almenn sveitastörf í Hergilsey til sex ára ald- urs. Þaðan fluttist fjölskyldan til Arnarfjarðar árið 1942 og bjó á jörð- inni Steinanesi. Fjölskyldan fluttist þaðan yfir á jörðina Otradal í Arn- arfirði en þaðan fluttust þau í Mar- íuhús á Bíldudal. Stuttu síðar fluttist fjölskyldan svo að Hóli á Bíldudal þar sem Magnús tók að sér að reka kúabú á jörðinni. Guðlaug lauk skyldunámi frá barnaskólanum á Bíldudal og starfaði við bústörf á heimili foreldra sinna til 16 ára ald- urs en veiktist þá af berklum og Elsku amma mín, Aldrei hélt ég að ég myndi setjast niður núna og rita til þín nokkur orð. Þú varst bráðkvödd frá okkur, aldrei grunaði mig að áramótin síðustu yrðu okkar síðasta stund saman. Ég hef hugsað mikið um þær stund- ir sem við höfum átt saman. Ég kom alltaf heim til þín á Seilugranda þegar ég var lítil og gisti þar oft um helgar. Í jóladagsmáltíðina kom fjölskyldan svo öll saman, öll ættin heima hjá þér í hangikjöt með systur þinni Díu sem er líka látin. Svo minnist ég ferðalaga okkar á húsbílunum, ég, þú, Skjöldur heitinn og foreldrar mínir. Við fórum um Norðurlöndin. Minningarnar streyma fram enda varstu eina amman sem ég þekkti mjög vel, enda heiti ég í höfuðið á þér. Var skírð Ásta enda héstu Guðlaug Ásta. Ég mun aldrei gleyma árinu okkar saman. Ég flutti suður frá Akureyri til þín og ég bjó hjá þér frá byrjun maí 2004 þar til í apríl 2005. Við horfðum oft á Survivor saman því að þér þótti svo gaman að því og spurðir mig spjör- unum úr hvað myndi gerast næst en auðvitað sagðist ég ekkert vita meira en þú, elsku amma, það var alltaf hlát- ur og fjör yfir Survivor. Það var ákaf- lega gott að spjalla við þig eftir vinnu. Ég kom heim klukkan þrjú og þá beið alltaf matur eftir mér. Þú hafðir alltaf áhyggjur af að ég borðaði ekki nóg í vinnunni. Jafnvel snúðar, pönnsur og mjólk beið mín alltaf. Þitt helsta áhugamál var bingó, þér þótti svo gaman að fara í bingó með Siggu, vin- konu þinni. Þú reyndir mjög oft að draga mig með og sagðir að þetta væri svo skemmtilegt, en ég lét ekki gab- bast. Þú hafðir gaman af mörgu og hafðir alltaf nóg að gera. Það var aldrei lognmolla í kringum þig. Þú hafðir allt- af áhyggjur af öðrum en þér, áhyggjur af fötunum mínum og braust þau alltaf vel saman því að ég gerði það ekki nógu vel, ég henti þeim alltaf á stólinn. Allt þetta gerði þig svo einstaka og hugulsama. Ég er mjög fegin að hafa fengið að eyða heilu ári með þér einni, fengið að kynnast þér mjög vel og ég er mjög þakklát fyrir það. Þú varst alltaf falleg og stórglæsileg kona. Við ömmubörnin kölluðum þig alltaf ömmu „beib“, þú leist ekki út fyr- ir að vera nýorðin 70 ára. Okkur fannst þú alltaf vera 20 árum yngri, svo glæsi- leg varstu, létt og ungleg í sál og fasi. Við ömmubörnin eigum eftir að sakna þín mikið. Jæja, elsku amma mín. Ég mun alltaf minnast þín með bros í hjarta og vona að þér líði vel við hlið Díu systur og Skjaldar afa. Allar áhyggjurnar eru farnar og þú getur hvílt þig og fundið friðinn. Við sjáumst seinna og förum í bingó saman. Þín Ásta Soffía. Elsku Lauga mín, ég á enn svo erfitt með að sætta mig við að þú sért farin frá okkur. Kvöldið sem ég ætlaði að líta inn hjá tengdó varð að kveðjustund, líf- ið getur verið svo ósanngjarnt þar sem við vildum ekki kveðja þig á þessari stundu. Við fjölskyldan áttum svo oft góðar stundir saman með þér, Sædís var svo stolt af móður sinni og Adam leit svo upp til ömmu sinnar. Það var alltaf notalegt að hitta þig, hvort sem það var til að kíkja heim til þín í uppá- haldskaffið mitt eða þegar við sátum saman heima hjá okkur og borðum saman góða máltíð. Við eigum svo góð- ar minningar um alla hátíðisdagana sem þú varst hjá okkur, öll jól, afmæli, páska og afmælisdaga. Sumar næturnar sem við litla fjöl- skyldan áttum saman, annaðhvort við litla vatnið rétt hjá Blönduósi eða við Ölvesvatn uppi á Skagaheiði. Þú varst uppáhaldsveiðifélagi minn og alltaf svo mikil aflakló. Þegar við stóðum, stund- um hlið við hlið, var það nokkuð öruggt mál – þú fékkst alltaf fyrsta fiskinn, stærsta fiskinn og flesta fiskana. Þau voru svo skemmtileg kvöldin sem við fjölskyldan áttum saman í fellihýsinu okkar Sædísar á sumrin, annaðhvort að spila eða bara að segja skemmti- legar sögur, þú varst svo stór hluti af litlu fjölskyldunni okkar. Fyrsta kvöld- ið sem við hittumst er svo enn ferskt í minni, þó svo að það séu að verða 20 ár síðan. Ég og Sædís vorum enn að kynnast, litla stelpan þín sem var þá að verða 20 ára, þið Skjöldur komuð heim seint eftir bingó, ég var svo stressaður að hitta ykkur en svo reyndust þið vera svo afslöppuð og góð við mig. Við urð- um strax vinir og mér hefur alltaf þótt svo vænt um þig, þú varst mér full- komin tengdamóðir. Elsku Lauga mín, nú kveðjum við þig í bili, þú ferð frá okkur með svo mikilli reisn, alltaf jafn glæsileg og flott. Ég hef oft nefnt það við vini og kunningja hvað ég var stolt- ur af tengdó, þú varst svo glæsileg, blíð og góð, þú hugsaðir alltaf fyrst um alla aðra en þig sjálfa. Þú hefur gefið okk- ur svo mikið og þær minningar sem við eigum með þér eru ómetanlegar. Það er stutt í vorið og þá fer ég að draga fram veiðidótið okkar, það verð- ur söknuður að hafa þig ekki með í veiðitúra okkar á næstu árum, vonandi áttu eftir að fylgjast með og vaka yfir okkur. Þú átt svo stórt og mikið pláss í hjarta mínu, elsku Guðlaug mín. Guð geymi þig, því ég mun sakna þín. Þinn tengdasonur, Pétur Bauer. Elsku systir mín, Guðlaug Ásta, mikill er söknuður við að missa þig. Ég beið eftir vori en frétti af andláti þínu. Vina nú ertu farin áður en vorið kom með sinn hlýja væng, dögg á grasi og vonina um mildi daganna sem framundan eru með sól, regn og ilm af öllu í endalausri birtu daga og nátta um stund. Þú ert farin þangað sem birtan varir að eilífu. (B.Eir.) Hér áttu blómsveig bundinn af elsku, blíðri þökk og blikandi tárum. Hann fölnar ei en fagur geymist í hjörtum allra ástvina þinna. (H. Loftsdóttir) – Vorið beð þinn vökvar tárum, vakir sól á ystu bárum, greiðir hinzta geislalokkinn, grúfir sig að brjóstum hranna. Moldin að þér mjúk skal hlúa, móðurlega um þig búa, rétta þér á rekkjustokkinn rós úr lundum minninganna. (M.Á.) Sigríður Magnúsdóttir. Guðlaug Ásta Magnúsdóttir ✝ Óskar HinrikÁsgeirsson fæddist í Hnífsdal 28. júlí 1932. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 4. mars 2007. Foreldrar hans voru Ásgeir Guðmunds- son og Elín Engilráð Sigurðardóttir. Systkini Óskars voru Sigurður og tvíburasystir hans Sesselja, þau eru bæði látin. Óskar kvæntist 9. júní 1957 Lilý Erlu Adamsdóttur kennara frá Akureyri. Óskar og Lilý eignuðust fimm börn. 1) Adam Ásgeir f. 1958, kona hans er Hugrún Helgadóttir og þau eiga þrjú börn, Lilý Erlu, Ósk- ar Helga og Ásgeir Andra. 2) Elías Örn f. 1959, kona hans er Agnes Eyfjörð og þau eiga þrjú börn Rúnar Þór, Evu Ósk og Birki Örn. Rúnar Þór er í sambúð með Regínu Margréti Gunnarsdóttur og hún á soninn Gunnar Sölva. Eva Ósk er í sambúð með Davíð Krist- inssyni. 3) Sigurð Viðar f.1960, kona hans er Ulrike Sillus. 4) Hörð f.1964, kona hans er Erna Rós Ingvarsdóttir og þau eiga þrjú börn, Dag, Magna og Arnheiði Björk. Hörður á Arnór Orra frá fyrra hjónabandi. Arnór er í sambúð með Þórhöllu Ásgeirs- dóttir og þau eiga eina dóttur. 5) Bryndísi f.1971, maður hennar er Ólafur Aðalgeirsson og þau eiga þrjár dætur, Klöru, Katr- ínu og Sunnevu. Óskar átti áður dótturina Bellu Vestfjörð f. 1955. Bella átti dótturina Petreu. Þær fórust í snjóflóði á Súðavík 16. janúar 1995. Óskar og Lilý byrjuðu sinn bú- skap á Ísafirði þar sem hann var vélstjóri á ýmsum bátum og togar- anum Sólborgu sem gerður var út frá Ísafirði. Hann lærði pípulagnir og vann við þær í nokkur ár á Ísa- firði. Árið 1963 fluttist fjölskyldan til Akureyrar þar sem Óskar setti á fót pípulagningafyrirtækið Mið- stöð. Hann vann við iðn sína þar til 1982 en þá gerðist hann vélstjóri á flutningaskipinu Drang. Hann sá um rekstur ketilhúss Sam- bandsverksmiðjanna í nokkur ár en síðustu ár starfsævinnar starf- aði hann sem húsvörður hjá Pósti og Síma á Akureyri. Útför Óskars verður gerð frá Akureyrarkirkju mánudaginn 12. mars kl. 13:30. Óskar mágur minn er fallinn frá eftir erfið veikindi. En svona er víst lífið, það gefur og tekur og enginn veit sína æv- ina fyrr en öll er. Ég þekkti Óskar í um það bil hálfa öld og alltaf var jafn ánægjulegt að hittast. Sem ungur strákur á Akureyri fannst mér Lilý stóra systir fara fjarska langt í burtu þegar hún réð sig sem kennari til Hnífsdals, vorkenndi ég henni að vera svona langt í burtu ein og yfirgefin. En viti menn, þar kynntist hún þessum ljúfa og skemmtilega manni, Óskari, sem kunni ógrynni að töfrabrögðum og dægurþrautum frá Ströndum. En Óskar kunni líka að leysa þær þrautir sem upp komu í lífi og starfi, þar voru engin vandamál, verkefnin voru bara leyst. Þau hjónin Óskar og Lilý settust að á Ísafirði og ég litli bróðir fékk að fara til þeirra í heimsóknir. Það voru ánægjulegar vikur, skemmtilegar hjólaferðir með Óskari þegar hann sýndi mér heimahagana sína. Við hjól- uðum til Hnífsdals, Bolungarvíkur og Súðavíkur. Adam, 10 árum yngri en ég, fékk að sitja á slánni hjá pabba, ný- hættur að nota bleiu. En eftir nokkur ár í nýbyggða rað- húsinu á Ísafirði ákvað fjölskyldan að vestan að flytja til Akureyrar. Þau komu á „grána gamla“, sendiferðabíln- um sem hafði það af að skila þeim alla leið. Nú, ekkert var þá sjálfsagðara en byggja hús yfir fjölskylduna á Akur- eyri, lóð fannst við Byggðaveginn og ég, unglingurinn, fékk sumarvinnu við að hjálpa Óskari við uppsláttinn. Húsið reis, heimilið varð hlýlegt og þarna hafa Óskar og Lilý lifað og hrærst síð- an og börn þeirra slitið barnsskónum. Í Byggðaveginum voru alltaf margir við eldhúsborðið, börn, vinir, ættingjar að ógleymdum öllum barnabörnunum. Ekki var heldur vandamál að fá næt- urgistingu þegar komið var við á Ak- ureyri, enda tel ég mig hafa gist í öllum herbergjum húss þeirra að geymslunni meðtalinni. Óskar var mannblendinn og var fljótur að kynnast fólki á Akureyri. Varð hann fljótt eftirsóttur sem traust- ur, duglegur og vandvirkur iðnaðar- maður. Hann leysti málin og ekkert vesen. En lífið er ekki bara vinna. Ósk- ar var líka mikill fjölskyldumaður sem sífellt var að lagfæra og hlúa að heim- ilinu með snyrtimennskuna í fyrirrúmi. Áhugamál Óskars voru mörg, þátttaka hans í karlakór og veiðiferðir. Ferðalög voru þeim hjónum hugleikin. Óskar keypti eitt sinn sendiferðabíl sem ætl- aður var undir rör, snittvélar og önnur tól. Aldrei voru þó flutt rör í þeim bíll, hann var snarlega innréttaður sem ferðabíll og þjónaði þeim tilgangi í meira en aldarfjórðung. Hann „rauður gamli“ stendur enn gljábónaður norðan við húsið í Byggðaveginum. Veikindi gerðu vart við sig hjá Óskari fyrir þónokkru. Hann harkaði þau af sér að vestfirskum sið svo lengi sem hann gat. Þegar Óskar hætti að vinna hugðist hann njóta komandi ára með börnin og barnabörnin í kringum sig í Byggðaveginum og ferðast um landið með Lilý sinni. En svo fór að veikindin höfðu yfirhöndina. Við Margrét og fjölskylda okkar vottum Lilý, börnum þeirra Óskars og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu sam- úð. Reynir Adamsson. Þá er komið að hinstu kveðjustund. Mér finnst það óraunverulegt að hugsa til þess að fá ekki oftar að sjá eða heyra frá honum. Oft vorum við þó búin að spjalla saman og hlæja, því alltaf var stutt í húmorinn hjá Óskari. Við höfðum oft gaman af að rifja upp þegar við vor- um börn í Furufirði. Margar skemmti- legar minningar fljúga í gegnum hug- ann frá þeim árum sem við höfum svo oft rifjað upp seinna í lífinu. Óskar var sérlega hlýr og vildi öllum gott gera. Snemma kom í ljós að hann var einnig kappsamur og fylginn sér, sem átti eftir að nýtast honum á lífsleiðinni. Ég sé hann fyrir mér þegar hann kom fyrst til okkar með konuna sína, hana Lilý, svo glaður og stoltur, enda voru þau bæði samrýnd og glæsileg hjón alla tíð. Þau eignuðust fimm mann- vænleg börn sem hann var ekki síður stoltur af og bar hag þeirra fyrir brjósti. Þau ferðuðust mikið saman, bæði inn- anlands og utan. Það var gaman að heyra hann segja frá því sem fyrir augu og eyru bar því hann var bæði fróð- leiksfús og stálminnugur. Elsku Lilý mín, samúð mín er hjá þér, börnum ykkar og barnabörnum. Guð geymi ykkur öll. Ég þakka Óskari vináttuna alla tíð, hana mun ég geyma sem fjársjóð. Blessuð sé minning þessa góða manns. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæll á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd (Guðrún Jóhannsdóttir) Margrét Þorvaldsdóttir. Óskar Hinrik Ásgeirsson  Fleiri minningargreinar um Ósk- ar Hinrik Ásgeirsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Tryggvi Gísla- son, Sirrí og Þórey og Karl Har- aldsson ogSævar Benediktsson  Fleiri minningargreinar um Guð- laugu Ástu Magnúsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Sigríður Sæland Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.