Morgunblaðið - 12.03.2007, Síða 31

Morgunblaðið - 12.03.2007, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 31 menning SAGNRÉTT forntónlistartúlkun var fyrir aldarfjórðungi iðulega ávís- un á sjóveiki á þurru landi. Hætt er við að alsléttur og lengi vel hálf- falskur stroktónninn frá frum- herjum stefnunnar (að ógleymdri klukkudýnamík meðan ýktust var!) hafi fyrrum haft fælandi áhrif á fjölda eldri hlustenda sem enn kunna að sitja eftir. En þeir tímar eru blessunarlega liðnir. Upphafshyggjan hefur nefni- lega löngu slitið barnsskónum, eins og berlega kom í ljós á þokkalega vel sóttum tónleikunum í lestrarsal Þjóðmenningarhússins við Hverf- isgötu á laugardag. Nordic Affect („Affetto Nordico“ á alþjóðamáli tón- listar?) debúteraði í Norræna húsinu í fyrra sem dúó fiðlu og lútu, en hafði nú stækkað í oktett þegar mest var og því fær í flestan fornsjó – nema þá helzt í stórkonsertgreinina þar sem strokhljóðfærin þurfa að vera a.m.k. helmingi fleiri til að mynda tilskilda hópandstæðu við concertino-tríóið. Allur strokhópurinn nema víól- ínan lék fyrst „ground“ Purcells, Chacony, á léttum upphafshyggju- hraða við að vísu ögn hvassan fiðlu- tón. 3. svíta úr Op. 35 Boismortiers (1689-1755) flíkaði ofurviðkvæmum barokkflautublæstri Georgiu Browne, og í 4. Sónötu da camera Corellis stóðu uppúr seiðandi hægi forleikurinn og sveiflandi lokagikk- urinn. Aukin festa færðist á með þýzkum kontrapunkti Telemanns í Sónötu hans í F TWV 43:F1 Inn- gangsþátturinn var sérkennilega söngleslegur, en fúgatóstæltur fí- nallinn aftur sprellfjörugur og kank- vís í anda. Stuttur 2. Ballett Marinis (1587– 1665) var kryddaður það djörfum hljómagangi í upphafi að minnt gat á Gesualdo. Ciaccona norður-ítalska landa hans Merula (1594–1665) var hins vegar nánast lauflétt fornpopp við aðeins 4 takta þrábassastef og, líkt og fyrri verkin, leikin af sam- stilltri stílinnlifun. Síðust var hin alkunna Svíta Bachs í h-moll fyrir strengjasveit og flautu í fylgirödd („obbligato“). Hún var áður talin frá Köthenárunum 1717–23, en nú flokkuð með smíðum hans fyrir laugardagstónleika stúd- entahljómsveitarinnar Collegium Musicum í leipzigsku kaffihúsi Zim- mermanns kringum 1730 þar sem Kaffikantatan fræga leit síðar dags- ins ljós. Túlkunin hljómaði hvað „ný- stárlegust“ í forleiknum vegna óvenjulegra áherzlna og bogasetn- inga, en var engu að síður bráð- skemmtileg áheyrnar, enda leikin hnífsamtaka af spræku æskufjöri. Browne skilaði leiftrandi Badinerie í lokin gæddri smekklegu einleiks- flúri. Að vísu skildi ég ekki ekkó-eklu Bourrée I-II, úr því Pólónesuna næst á eftir prýddi hin hofferðugasta bergmáladýnamík. En allt um það var hér geysivel að verki staðið, og er áreiðanlega óhætt að spá NOA hagstæðri framtíð í fortíðarmús- íkinni með sömu ástundun. Framtíðar- væn fortíð Björt framtíð „En allt um það var hér geysivel að verki staðið, og er áreiðanlega óhætt að spá NOA hagstæðri framtíð í fortíðarmúsíkinni með sömu ástundun,“ segir Ríkarður Ö. Pálsson meðal annars í dómi. TÓNLIST Þjóðmenningarhúsið Tónlist eftir Purcell, Boismortier, Corelli, Telemann, Marini, Merula og J. S. Bach. Upphafshljóðfærahópurinn Nordic Affect (Georgia Browne flauta, Halla Steinunn Stefánsdóttir & Sara DeCorso fiðla, Guð- rún Hrund Harðardóttir víóla, Steinunn Stefánsdóttir selló, Karl Nyhlin þjorba, Gunnlaugur Torfi Stefánsson violone og Guðrún Óskarsdóttir semball). Laug- ardaginn 3. marz kl. 17. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson mbl.is smáauglýsingar Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.