Morgunblaðið - 12.03.2007, Page 36
Söngkonan Hafdís Huld Þrast-ardóttir hefur verið valin í hóp
þeirra listamanna sem koma fram á
frönsku tónlistarhátíðinni Les Fem-
mes S’en Melent í apríl og maí. Há-
tíðin hefur verið haldin árlega síðan
árið 1997 og fagnar því 10 ára af-
mæli sínu í ár.
Dagskrá hátíðarinnar miðar að
því að kynna fyrir fólki það áhuga-
verðasta sem er að gerast meðal
kvenna í heimi tónlistarinnar ár
hvert. Þátttakendur í ár eru úr öll-
um heimshornum og hæst ber að
nefna Hollywood-leikkonuna Juli-
ette Lewis sem kemur fram ásamt
hljómsveit sinni Juliette and The
Licks.
Hafdís Huld mun alls koma fram á
níu tónleikum hátíðinni á tímabilinu
24. apríl til 7. maí.
Leikkonan Salma Hayek er trú-lofuð og á von á fyrsta barni
sínu með kaupsýslumanninum
Francois-Henri Pinault. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá umboðs-
manni Hayek en aðrar upplýsingar
eru ekki gefnar, svo sem hvenær von
sé á barninu.
Hayek, sem er fertug að aldri, er
frá Mexíkó og hóf feril sinn í mexí-
kóskum sápuóperum. Hún flutti til
Hollywood árið 1991 og vakti fyrst
alþjóðlega athygli í myndinni Despe-
rado þar sem hún lék á móti Antonio
Banderas. Hún var tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna fyrir myndina Frida
árið 2002.
Hayek framleiðir nú sjónvarps-
þættina Ljótu Betty, sem hafa feng-
ið mikið lof og leikur einnig ritstjór-
ann Sofiu Reyes í þáttunum.
Pinault, unnusti Hayek, er for-
stjóri fyrirtækisins PPR, sem fram-
leiðir m.a. fatnað undir merkjum
Gucci, Yves Saint Laurent, Stellu
McCartney og Balenciaga.
Fólk folk@mbl.is
36 MÁNUDAGUR 12. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
/ KRINGLUNNI
NORBIT kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
BLOOG DIAMOND kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára DIGITAL
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 5:50 LEYFÐ
TELL NO ONE (NE LE DIS A PERSONE) kl. 5:40 - 8
PARIS, JE T'AIME kl. 10:20
LES BRONZES kl. 5:45
LE POULPE kl. 8
LA SEPARATION kl. 10:15
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í HÁSKÓLABÍÓ 3.MARS TIL 1. APRÍL
Heillandi meistarverk sem sameinar fjöldan allan
af þekktum leikstjórum og leikurnum frá öllum
heimshornum í samsafni af stuttmyndum sem eiga
það sameiginlegt að vera ástaróður til Parísarborgar
„ÞEIR SEM ELSKA PARÍS OG
GÓÐA KVIKMYNDAGERÐ
ÆTTU AÐ BREGÐA SÉR Á BÍÓ!“
- SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR, RÁS 1
BLOOD & CHOCOLATE kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 12 ára
BREAKING AND ENTERING kl. 10:40 B.i. 12 ára
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 8 B.i. 16 ára
PERFUME kl. 8 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 5:30 LEYFÐ
FORELDRAR kl. 6 LEYFÐ
BABEL kl. 10:40 B.i. 16 ára
eee
VJV, TOPP5.IS
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN
BESTA ERLENDA MYNDIN
ÓSKARS-
VERÐLAUN
,,TÍMAMÓTAMYND"
eeeee
V.J.V. - TOPP5.IS
Hefur þú einhvern
tímann gert
mjög stór
mistök?
HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ FRAMLEIÐENDUM
“UNDERWORLD”
Sýnd í Sambíó Kringlunni
BREAKING
AND
ENTERING
20% AFSLÁTTUR
EF GREITT ER MEÐ
SPRON-KORTI 2
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Vonandi hættir Stefán
Matthíasson ekki
ÉG ER ein af þeim mörgu so-
gæðasjúklingum sem eiga Stefáni
Matthíassyni mikið að þakka.
Vinstri fóturinn á mér var u.þ.b.
þrefaldur fyrir nokkrum árum.
Einn af okkar þekktustu æða-
skurðlæknum var búinn að segja
að ekkert væri hægt að gera. Fjór-
um sinnum hef ég fengið heima-
komu og var í sérsmíðuðum skóm.
Af tilviljun frétti ég að Theodór
Sigurðsson læknir væri staddur
hér á landi (þetta var 18.05.’95).
Ég fékk tíma hjá honum og hann
skoðaði fótinn mjög vel með óm-
tæki, en það hafði aldrei vert áður.
Hann taldi að sennilega væri of
seint að hafast eitthvað að og að
ekkert væri hægt að gera.
Ég sá viðtal við Stefán Matt-
híasson æðaskurðlækni í sjónvarp-
inu og fékk tíma hjá honum. Hann
lofaði engu varðandi bata en vildi
þó prófa að fjarlægja æð úr fæt-
inum. Eftir það hef ég verið miklu
betri í fætinum. Ég vonast til þess
að íslenskar heilbrigðisstofnanir
sjái hag í því að hafa Stefán áfram
hér að störfum.
Inga.
Strætó og mengun
ÉG vil svo sannarlega taka undir
orð einnar sem notar strætó. Ég
vil geta notað strætó en við breyt-
ingarnar sem urðu á sl. árum hef
ég nokkrum sinnum reynt að taka
strætó en það var ekki gæfulegt,
eitt skiptið var ég klukkutíma og
tíu mín, að komast ca 5 km leið.
það var farið um hverfin sem ég
þurfti alls ekki að kanna, hring-
sólað og reyndar lenti upp í Graf-
arvogi og til baka og var þá komin
aftur á upphafsstað, þá átti vagn-
inn eftir að fara víðsvegar um
Breiðholtið og upp í Mjódd. Þá
loks tók hann stefnu niður í bæ.
Síðan reyndi ég þetta aftur að
nokkrum tíma liðnum, en viti
menn þá var búið að breyta stæð-
inu þar sem ég tók vagninn, svo ég
fór enn aðra vitleysuna en reyndar
var aðeins fljótari á leiðinni, eina
klukkustund.
Svona hefur þetta gengið og er
nú alveg búin að gefast upp, fer
bara í einkabíl þótt ég vilji annað.
Þetta er nú nokkuð broslegt þar
sem maður er búinn að nota
strætó í yfir 60 ár. Ég man að
okkur var lofað að hafa vagnana á
10 mín. fresti, hef ekki orðið vör
við það. Nú fer ég fram á það við
Strætó bs. að þeir standi við loforð
sitt. Lagi kerfið og fari á 10 mín.
fresti.
Ein sem vill geta notað strætó.
velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90ára af-mæli.
Lára F. Há-
konardóttir
fyrrverandi
kaupmaður í
Blómabúðinni
Runna, Hrísa-
teigi 1, Reykja-
vík, verður níu-
tíu ára í dag, l2.
mars. Af því tilefni tekur hún á móti
ættingjum og vinum á afmælisdaginn í
Félagsheimili KR, Frostaskjóli 2, milli
kl. l7–20.
Víkverji er alveg írusli í dag. Hann
langar svo til að skrifa
um ruslvenjur en vill
um leið forðast að
setja sig á háan hest
og hrósa sjálfum sér
óbeint fyrir snyrti-
mennsku með því að
skamma sóðana. En
það verður ekki bæði
sleppt og haldið.
Fyrst langar Vík-
verja til að kvarta yfir
því að margar versl-
anir og sjoppur eru
greinilega með of fáar
ruslatunnur við húsa-
kynni sín. Sums stað-
ar má það heita undantekning að
þær séu ekki kengfullar þegar líður
á daginn og afleiðingin er óhjá-
kvæmilega að út af flóir. Ruslagám-
ar ættu líka að vera miklu fleiri í
íbúðarhverfum eins og víða tíðkast
erlendis. Þar er algengt að sjá
stutta gáma sem ekki fer meira fyr-
ir en svo að enginn amast við þeim.
Þar geta allir, líka þeir sem ekki
eiga bíl, auðveldlega losað sig við
stóra hluti eins og ónýt húsgögn
svo að dæmi sé nefnt.
x x x
Annað er að Víkverji er alltafjafn hissa á því að fólk skuli
ekki hafa rænu á að stinga smádóti
eins og bréfi utan af
sælgæti í vasann ef
það er ekki nálægt
ruslatunnu. Þá er
hægt að fleygja drasl-
inu síðar við betra
tækifæri. En þetta
virðist vera ofraun fyr-
ir marga, þeir nota
götuna.
Vinkona Víkverja
(þær eru til) sagðist
hafa verið orðin leið á
að sjá allt bréfaruslið
sem hafði borist inn á
grasblettinn við blokk-
ina þar sem hún býr.
Hún tók sig til einn
daginn og tíndi það í
poka og var auðvitað harla ánægð
með sinn hlut þegar verkinu var
lokið. Hún sagðist líka vona að veg-
farendur tækju eftir því hvað blett-
urinn væri fínn og hugsa sig um áð-
ur en þeir notuðu götu fyrir
ruslafötu. En margir taka ekki eftir
neinu misjöfnu fyrr en sóðaskap-
urinn er orðinn svo yfirgengilegur
að hann fer ekki fram hjá fólki
nema frosið hafi fyrir öll skilning-
arvit.
Víkverji veltir oft fyrir sér þegar
hann sér snyrtilegt fólk fleygja í
sinnuleysi frá sér rusli á ólíklegustu
stöðum hvort það gleymi líka ann-
arri snyrtimennsku, til dæmis að
skipta reglulega um nærföt.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.650 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 200 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 300 kr.
Í dag er mánudagur
12. mars, 71. dagur
ársins 2007
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.)
50 ára afmæli. Í dag, mánudaginn12. mars, verða tvíburarnir
Ragnheiður og Hjördís Valgarðs-
dætur fimmtugar. Ragnheiður hefur
búið í Danmörku í 20 ár og starfar sem
sjúkraliði. Hjördís er á 3ja ári í kenn-
aranámi í Skaarup Seminarium. Báðar
eru þær búsettar í Svendborg á Fjóni.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynn-
ingar um afmæli, brúðkaup, ættarmót
og fleira lesendum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf að
fylgja a og/ eða nafn og símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569 1100,
senda tilkynningu og mynd á netfangið
ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynn-
ingu og mynd í gegnum vefsíðu Morg-
unblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn
„Senda inn efni“. Einnig er hægt að
senda vélritaða tilkynningu og mynd í
pósti. Bréfið skal stíla á
Árnað heilla Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.