Morgunblaðið - 12.03.2007, Page 40
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MÁNUDAGUR 12. MARS 71. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 200 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Norðan- og
norðvestan 5–13
m/s og slydda eða
él, úrkomulítið
norðaustan til fram eftir
degi. » 8
Heitast Kaldast
5°C 0°C
ELDINGU laust niður í flugvél Icelandair
í gær, sem var á leið til landsins frá Stokk-
hólmi með um eitt hundrað farþega innan-
borðs.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, segir atvikið hafa átt sér stað
um þremur mínútum fyrir lendingu, en
um var að ræða vél af gerðinni Boeing
757.
Þegar eldingunni sló niður varð mikill
hvellur og blossi, sem ekki fór fram hjá
neinum farþeganna, en áhrif á vélina
sjálfa voru engin.
„Þegar vélin var lent talaði flugstjórinn
við farþegana, útskýrði fyrir þeim hvað
gerst hafði og bauð þeim sem vildu áfalla-
hjálp, en enginn þáði það boð,“ segir Guð-
jón.
Eldingu laust
niður í flugvél
Morgunblaðið/Jim Smart
Flugvél Vél af gerðinni Boeing 757.
RANNSÓKNIR á bergsprungum í Borg-
arfirði og á Suðurlandi hafa leitt í ljós að í
Borgarfirði var áður jarðskjálftabelti sem
varð til af sömu orsökum og jarð-
skjálftabeltið á Suðurlandi. Sprungur í
bergi í Borgarfirði líkjast skjálftasprung-
um á Suðurlandi. Sumar þeirra hafa opn-
að leiðir fyrir innskot kviku og ráðið
miklu um hringrás jarðhita. Þetta er með-
al niðurstaðna úr verkefni sem kallað er
rannsókn á bergsprungum og jarðvís-
indamenn hafa unnið að undanfarin ár.
Leiðandi jarðfræðingur í þessum rann-
sóknum er dr. Maryam Khodayar. Sam-
starfsmenn hennar hafa verið dr. Páll Ein-
arsson prófessor, dr. Hjalti Franzson og
Freysteinn Sigurðsson. Yfirumsjón með
verkefninu hefur verið í höndum Svein-
björns Björnssonar, fyrrum deildarstjóra
á Orkustofnun.
Skjálftabeltið á Suðurlandi virðist fær-
ast suður með tíma. Það hefur skilið eftir
sig sprungur í uppsveitum Árnessýslu sem
skýra mikinn jarðhita þar. Rannsóknirnar
þykja hafa skýrt betur ýmislegt í jarðsögu
Íslands. | 10–11
Nýjar upplýs-
ingar úr göml-
um sprungum
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
„VIÐ vonum að meintir brotamenn festi sér
þetta kvöld í minni því þetta á eftir að end-
urtaka sig,“ segir Jóhann R. Benediktsson
sem er lögreglustjóri Suðurnesja. Um
helgina gerðu lögregluyfirvöld umfangs-
mikla rassíu í fíkniefnamálum á svæðinu.
„Við sameiningu embætta tollstjóra og
lögreglu á Suðurnesjum myndast aukinn
slagkraftur og það er auðveldara á allan
hátt að skipuleggja svona stærri aðgerðir,“
segir Jóhann. Auk þess sé nú verið að þétta
samstarf við sérsveit og greiningardeild
Ríkislögreglustjóra en aðgerðir fóru fram í
samstarfi við þær. „Við erum einfaldlega að
herða okkur í baráttu gegn sölu og dreif-
ingu fíkniefna á Suðurnesjum.“
Um var að ræða alhliða aðgerðir á öllu
svæðinu en alls tóku 36 lögreglumenn, fjórir
tollverðir og tveir fíkniefnahundar þátt í
þeim. Farið var í sex húsleitir og þar af
voru fimm framkvæmdar á sama tíma á
laugardagskvöld. Í öllum tilfellum fundust
fíkniefni; samtals 135 grömm af hassi, 65
grömm af hvítu efni og 10 e-pillur. „Þetta
var árangur umfram væntingar, jafnvel þótt
við hefðum rökstuddan grun um að allt
þetta fólk tengdist notkun, sölu og dreifingu
fíkniefna,“ segir Jóhann. Einnig var eftirlit
hert og farið í markvissar aðgerðir á
skemmtistöðum þar sem leitað var á tutt-
ugu manns og fundust tvö grömm af am-
fetamíni á einum.
Allir sem við sögu komu í húsleitum
eiga afbrotaferil að baki. Spurður um
tengsl við annars konar glæpastarfsemi
segir Jóhann að sjaldan sé ein báran stök
í þessum efnum. Fólk tengist oft annars
konar glæpum, svo sem þjófnaði og pen-
ingaþvætti auk þess sem vændi hafi
löngum verið fylgifiskur mikillar neyslu
ungra kvenna.
„Nú er farið að bera á því að fólk leyni
neyslu minna en áður. Það er auðvitað
mjög slæm þróun sem við ætlum að
sporna mjög ákveðið við.
„Þetta kvöld á eftir að endurtaka sig“
Fjörutíu lögreglumenn og tollverðir á Suðurnesjum fóru í hús og skemmtistaði í leit að fíkniefnum
Aukinn slagkraftur með sameiningu embætta og hert barátta gegn dreifingu og sölu fíkniefna
Ljósmynd/Víkurfréttir/Þorgils
Húsleitir Lögreglumenn og tollverðir í að-
gerðum sínum á Suðurnesjum um helgina.
KRÖFTUG elding er talin hafa or-
sakað röð truflana og bilana á suð-
vesturhorni landsins í gær. Afleið-
ingarnar voru m.a. líklega mesti
vatnsleki sem Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins hefur þurft að
kljást við á einum stað, auk þess að
lengi var lokað fyrir heitt vatn í Ár-
bænum.
Landsnet hf. annast dreifingu
raforku á landinu, en samkvæmt
upplýsingum þaðan er talið að eld-
ingin hafi kl. 03.28 valdið skamm-
hlaupi í línu sem liggur milli að-
veitustöðva á Kolviðarhóli og
Geithálsi. Verulegt spennufall varð
en aðeins í 0,1 sekúndu þar sem
kerfi Landsnets frátengdi línuna
strax. Þórður Guðmundsson, for-
stjóri Landsnets, segir hins vegar
ljóst að gera þurfi ítarlega úttekt á
varnarbúnaði aðila sem tengjast
flutningskerfinu því áhrifin hafi
ekki átt að verða svona víðtæk.
Hitaveitu- og frárennslisdælur í
Reykjavík voru meðal þess bún-
aðar sem varð fyrir áhrifum. „Þeg-
ar svona sjokk kemur á kerfið erf-
iða dælurnar svo að þær verja sig
gegn bilun með því að slökkva á
sér. Þær eiga svo að fara strax aft-
ur af stað en þá getur eitthvað
ruglast,“ segir Guðmundur Sigur-
vinsson hjá Orkuveitu Reykjavík-
ur.
Í Árbænum minnkaði vatns-
þrýstingur á aðalæð hitaveitu en
jókst svo aftur og við það brustu
rör. Af þessum sökum voru Árbæ-
ingar heitavatnslausir frá klukkan
hálfátta til fimm í gær og var orðið
kalt. Dælustöð OR við Ánanaust
varð óvirk þar sem neyðarloki opn-
aðist ekki. Tölvukerfi sýndi bil-
unina ekki og hún uppgötvaðist því
ekki fyrr en starfsmenn mættu til
vinnu kl. hálfátta. Kristinn Tóm-
asson stöðvarstjóri segir að í raun
hefði ekki verið hægt að sjá bil-
unina fyrir og gera íbúum viðvart
en afleiðingar hennar urðu stór-
felldur vatnsleki í kjallara fjölbýlis-
húss við Sólvallagötu og víðar. Að-
eins þurfti eitt handtak til að ræsa
stöðina aftur og hálftíma seinna
var neyðarástandi þar aflétt.
Orkuveitan ætlar að bæta tjón ef
ábyrgð verður rakin til hennar.
Elding olli víðtækum
truflunum og bilunum
Í HNOTSKURN
» Truflanir vegna spennu-falls sem eldingin olli
voru ýmiss konar.
» Bilanir í dælustöð viðÁnanaust og í aðalæð
hitaveitu til Árbæjar.
» Truflanir hjá ALCAN íStraumsvík og Norðuráli
á Grundartanga.
» Truflanir eða stöðvanirvið Nesjavallavirkjun,
Hellisheiðarvirkjun, Hraun-
eyjafossvirkjun, Reykjanes-
virkjun og allt norður í
Kröfluvirkjun.
Morgunblaðið/Júlíus
Tjónsbifreið Slökkvilið og tryggingamenn huga að Benz-bifreið Jóns Sigurðssonar en vatn flæddi inn í hana við leka á Sólvallagötu í gær.
Bilun í dælustöð við Ánanaust uppgötvaðist ekki strax og olli miklum leka
Vatnið náði | 4