Morgunblaðið - 23.03.2007, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 23. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
ÍSLANDSHREYFINGIN
Íslandshreyfingin, sem kynnt varí gær og boðaði framboð í öllumkjördæmum, getur haft tölu-
verð áhrif á úrslit þingkosninganna í
vor. Hreyfingin kynnir sig sem
grænt framboð til hægri við miðju
en líkurnar eru mestar á því, að hún
sæki fylgi sitt til vinstri við miðju.
Kjarninn í fylgi Íslandshreyfing-
arinnar byggist væntanlega á fyrri
kjósendum Frjálslynda flokksins,
sem fylgja Margréti Sverrisdóttur
og stuðningsmönnum hennar yfir í
hina nýju stjórnmálahreyfingu.
Áherzlan á grænt framboð mun
höfða til margra kjósenda, sem á
undanförnum vikum hafa ekki talið
sig eiga annarra kosta völ en að
kjósa Vinstri græna. Nú fá þessir
kjósendur nýjan valkost.
Og þekkt andlit úr Samfylking-
unni eða í námunda við hana geta
orðið til þess, að sá flokkur missi
eitthvert fylgi til Íslandshreyfingar-
innar.
Ómar Ragnarsson, formaður
bráðabirgðastjórnar Íslandshreyf-
ingarinnar, hefur um áratuga skeið
verið eins konar þjóðareign. Hann
hefur ekki áður tekizt á við hinn
pólitíska vettvang, þótt hann hafi
smátt og smátt orðið einn af for-
ystumönnum umhverfisverndar-
sinna í landinu. Ómar á eftir að
verða Íslandshreyfingunni drjúgur í
atkvæðaöflun. Veikleiki hans sem
frambjóðanda er sá, að hann hefur
meiri æfingu í að spyrja spurninga
en svara, og verður fróðlegt að sjá
hversu fljótur hann verður að laga
sig að breyttum aðstæðum og nýju
hlutverki.
Íslandshreyfingin er fyrst og
fremst grænn flokkur. Sem slíkur
mun hann ógna stöðu Vinstri grænna
í skoðanakönnunum. Önnur stefnu-
mál flokksins eru óskýr. Það kann að
breytast í kosningabaráttunni.
Tilraunir Íslandshreyfingarinnar
til þess að höfða til kjósenda á hægri
kantinum duga skammt, einfaldlega
vegna þess, að sumir þeirra einstak-
linga, sem hafa komið fram fyrir
hönd hreyfingarinnar, laða ekki að
kjósendur frá hægri kantinum held-
ur ýta þeim frá.
Það breytir því hins vegar ekki, að
möguleikar Íslandshreyfingarinnar
á að ná til sín kjósendafylgi á vinstri
kantinum eru það miklir að hin nýja
stjórnmálahreyfing getur breytt
þeirri mynd í pólitíkinni, sem blasað
hefur við síðustu vikur.
Frjálslyndi flokkurinn eða sá hluti
hans sem eftir stendur og býður
fram í nafni þess flokks mun eiga
erfitt uppdráttar í kosningabarátt-
unni. Flokkurinn höfðar einfaldlega
ekki til nútímans. Mesta möguleika
hefur hann í litlum sjávarplássum úti
á landi en jafnvel þar á hann undir
högg að sækja. Einar Oddur Krist-
jánsson er ekki síður maður grasrót-
arinnar í Norðvesturkjördæmi en
Guðjón A. Kristjánsson.
Gengi Íslandshreyfingarinnar í
kosningunum mun þó fara eftir því,
hvernig talsmönnum flokksins tekst
til í kosningabaráttunni. Það er auð-
velt að eyðileggja góð tækifæri.
EINKAFRAMTAK, VAL OG VELFERÐ
Forvitnilegar umræður áttu sérstað á ráðstefnu þróunarfélags-
ins Þyrpingar um þjónustu við aldr-
aða fyrr í vikunni. Þar var meðal ann-
ars rætt um möguleika á
einkaframkvæmd þjónustu við aldr-
aða og fjallað um reynsluna frá ýms-
um nágrannalöndum okkar.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, að-
stoðarmaður forsætisráðherra, hélt
afar athyglisvert erindi á þessari ráð-
stefnu. Hún benti á að ekki ætti að
draga fólk í dilka eftir aldri eingöngu.
Einstaklingar á efri árum hefðu mis-
mundandi þarfir, sem horfa ætti til,
en draga úr hóphugsun.
„Ég vil sjá fjölbreytt úrræði, hvort
sem um vistun, heimaþjónustu, tóm-
stundastarf eða læknisþjónustu er að
ræða,“ sagði Ragnheiður. „Ég vil sjá
fjölbreytt rekstrarform, ég vil leyfa
einkaaðilum að spreyta sig í þessum
málaflokki í miklu meiri mæli, eink-
um hvað varðar búsetuform. Sú
tregða eða „tabú“ sem hefur verið
ríkjandi í garð einkareksturs í heil-
brigðis- og öldrunarmálum er með
öllu óskiljanleg. Hið opinbera getur
áfram greitt fyrir þjónustuna þó svo
að einkaaðilar veiti hana.“
Ragnheiður benti m.a. á hvernig
kraftur einkaframtaksins hefði gjör-
breytt háskólaumhverfinu á Íslandi á
fáeinum árum og það sama gæti gerzt
í öldrunarþjónustu.
Hún setti fram þá hugmynd að
teknar yrðu upp einhvers konar þjón-
ustuávísanir, þannig að hver einstak-
lingur gæti beint viðskiptum sínum
þangað sem hann kysi; til opinberra
aðila eða sjálfstætt starfandi fyrir-
tækja, eftir því hvað hentaði honum
betur. Þetta gæti átt við um heima-
þjónustu, dvalarheimili og hjúkrun-
arþjónustu.
„Með þessu greiðsluformi skapast
meiri fjölbreytni í framboði og eft-
irspurn og neytandinn sjálfur ræður
meiru hvert hann beinir viðskiptum
sínum,“ sagði Ragnheiður. „Þetta
held ég að geti ekki verið svo flókið í
framkvæmd. Peningarnir koma
áfram úr sama sjóðnum en breytingin
er sú að notandi þjónustunnar hefur
val um hvernig þjónustu hann kaupir.
Allir græða.“
Hugmyndir af þessu tagi hljóta að
verða til umræðu í kosningabarátt-
unni, sem í hönd fer, þar sem gera má
ráð fyrir að velferðarmálin verði fyr-
irferðarmikil.
Þau stjórnmálaöfl, sem leggjast
gegn því að notendur opinberrar
þjónustu hafi val á milli ólíkra þjón-
ustukosta og ólíkra rekstrarforma,
eru ekki sannfærandi þegar sýnt hef-
ur verið fram á ótvíræða kosti slíks
fyrirkomulags, bæði hér á landi og í
nágrannalöndum okkar.
Málið snýst um að nýta kosti einka-
framtaksins til þess annars vegar að
nýta skattfé betur í þágu velferðar-
innar og hins vegar að gefa fólki
meira val og þar með meira vald yfir
eigin lífi. Hver ætlar að vera á móti
því?
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Geir H. Haarde forsætisráðherra hef-
ur þegar boðað forsvarsmenn Faxaflóa-
hafna til fundar í dag til að ræða um hug-
myndir fyrirtækisins um að það taki að
sér að leggja Sundabraut. Með honum á
fundinum verða Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra og Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra. Gísli Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Faxaflóhafna, segir að
undirbúningur að þessari framkvæmd
komi til með að taka miklu skemmri tíma
heldur en undirbúningur að gerð Hval-
fjarðaganga. Aðstæður séu allt aðrar á
fjármagnsmarkaði, áhætta óveruleg og
verkþekking miklu traustari.
Í vegalögum er reiknað með að Sunda-
braut kosti 20 milljarða. Endanlegur
kostnaður fer þó eftir því hvaða leið verð-
ur farin og hvaða útfærsla verður falin.
Mestur áhugi er á að fyrri hluti leiðarinn-
ar, frá Sæbraut yfir í Gufunes, verði í
jarðgöngum. Kostnaður við göngin er
áætlaður 16 milljarðar, en svokölluð innri
leið er talin ódýrari. Kostnaður við seinni
áfangann, frá Gufunesi í Kollafjörð, er
talinn vera um 10 milljarða. Þar er reikn-
að með fjögurra akreina vegi með mis-
lægum gatnamótum. Sé miðað við göng
og fjögurra akreina veg gæti því heild-
arkostnaðurinn verið um 25 milljarðar.
Breyttar aðstæður á
fjármagnsmarkaði
Stjórn Faxaflóhafnar hefur lýst ein-
dregnum áhuga og vilja til að koma að
framkvæmdum Sundabrautar og leiða
þær til lykta. Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra hefur fagnað þessum
hugmyndum og lýst áhuga á að ræða við
forsvarsmenn fyrirtækisins.
Í nýjum vegalögum, sem samþykkt
voru skömmu fyrir þinglok, er opnað fyr-
ir þann möguleika að bygging og rekstur
samgöngumannvirkja sé falinn ákveðnu
félagi. Líklega getur ríkið gert samning
við Faxaflóahafnir án þess að bjóða verk-
efnið út. Hins vegar er ljóst að fram-
kvæmdir við sjálfa Sundabraut fara í út-
boð.
Sérstök lög voru samþykkt á Alþingi
um fjármögnun Hvalfjarðaganga sem
Spölur á og rekur. Sú reynsla sem Spölur
aflaði sér mun án efa nýtast Faxaflóa-
höfnum, ef fyrirtækinu verður falið að
leggja Sundabraut. Spölur var formlega
stofnaður árið 1991, en það liðu hins veg-
ar fimm ár frá stofnun félagsins þar til
framkvæmdir við Hvalfjarðargöng hóf-
ust.
Gísli Gíslason, framkvæmdastjóri
Faxaflóahafna, vann ásamt fleirum að
stofnun Spalar allt frá 1987, sat lengi í
stjórn félagsins og þekkir vel hvernig er
að koma svona verkefni á koppinn. Hann
telur að það taki alls ekki fimm ár að
hefja framkvæmdir við Sundabraut.
„Aðstæður í dag eru allt aðrar en þeg-
ar verið var að undirbúa gerð Hvalfjarða-
ganga,“ sagði Gísli. „Á þeim tíma sem lið-
inn er frá gerð Hvalfjarðarganga er
fjármagnsmarkaður miklu þroskaðri og
auðveldari. Í öðru lagi er áhættan við
svona verkefni orðin óveruleg miðað við
það sem áður var. Í þriðja lagi er verk-
þekking manna bæði á fjármögnunar-
samningum og framkvæmdum miklu
traustari en það sem menn glímdu við á
sínum tíma. Ég held að við eigum fag-
menn á öllum þessum sviðum sem gætu
unnið hratt og örugglega og gætu komið
þessu á framkvæmdatíma á miklu
skemmri tíma en Spölur glímdi við á sín-
um tíma.“
Við undirbúning svona viðamikils
Aðstæður mjög b
Hvalfjarðargöng
Sundabraut Þessi mynd sýnir síðari hluta Sundabrautar sem
jarðgöngum sem liggja frá Sæbraut, við enda Kringlumýrarb
Fjármögnun Sundabrautar mun taka mun skemmri tí
við verkið er einnig minni. Undirbúningi framkvæmda
Það verður tæplega búið að meta umhverfisáhrif vegna
Sundabrautar fyrr en í lok þessa árs. Drög að matsskýrslu
hafa verið lögð fram, en ekki er búið að senda inn formlega
matsáætlun vegna framkvæmdarinnar til Skipulagsstofn-
unar.
Drög að matsáætlun vegna Sundabrautar voru lögð fram
tvennu lagi. Í fyrsta lagi er um að ræða Sundagöng sem
liggja frá Sæbraut yfir í Gufunes. Í öðru lagi er um 8 km veg
og brýr að ræða sem liggja frá Gufunesi upp í Kollafjörð.
Reiknað er þó með því að þegar formleg matsáætlun verður
lögð fram verði þetta lagt fram í einu lagi. Þegar áætlunin
hefur verið lögð fram hefur Skipulagsstofnun 8 vikur til að
fara yfir hana. Síðan tekur sá sem vinnur umhverfismatið
sér tíma til að fara yfir athugasemdir og bæta inn í skýrsl-
Sundagöng kalla á breytin
Jarðgöng Það liðu fimm ár frá því að Spölur var formlega stofnað þangað til framkvæmdir við gerð Hv
Aðstæður eru núna mikið breyttar og mun auðveldara að fjármagna slíkt verk. Vel hugsanlegt er að öl
verks þarf að horf
er að vinna að u
verður tími er í að
við að þessari vin
það gæti þó dregis
Formlegri skipu
að velja endanleg
Ólafur Bjarnason
framkvæmdasviði
sagði að ein ástæð
búið að velja leiðin
ið að ljúka jarðfr
hefðu viljað hafa
rannsóknir áður
um leiðina væri te
Búið er að vinn
á svæðinu, en þa
unum sem gerðar