Morgunblaðið - 23.03.2007, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2007 35
✝ Guðrún Krist-mannsdóttir,
fæddist í Narfakoti í
Innri-Njarðvík 23.
júní árið 1919. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 14 mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Þur-
íður Ingibjörg Kle-
mezdóttir, F. 5.
mars 1888, d. 5. júlí
1968 frá Minni-
Vogum Vatnsleysu-
strandarhreppi og
Kristmann Runólfsson, f. 21 febr-
úar 1886, d. 12 ágúst 1954 frá Ás-
láksstöðum Vatnsleysustrandar-
hreppi. Guðrún var önnur í röð
átta systkina, systkini hennar eru;
Klemens f.1917, d. 2004, Runólfur
Haukur, f. 1920, d. 1969, Sigurlaug
Fjóla f.1921, Guðlaug Ragnheiður,
f. 1922, d. 1923, Guðlaugur Ragn-
ar, f. 1924, d.1980, Sigurður, f.
1926 og Fanney Dóra, f.1932. Guð-
rún fluttist með foreldrum sínum
að Hlöðversnesi á Vatnsleysu-
strönd 1922, er Kristmann fékk
Kristmann, f. 29 maí 1946, maki
Þóranna Þórarinsdóttir. Börn
þeirra eru a) Kristján, f. 1970, sam-
býliskona Hanna Helgadóttir, þau
eiga einn dreng og fyrir átti hún 2
börn. b) Guðrún, f. 1971, sambýlis-
maður Einar Birgisson, þau eiga
þrjár dætur og eitt barnabarn. c)
Jóhanna, f. 1973, sambýlismaður
Sveinn Ari Baldvinsson, þau eiga
tvö börn. d) Brynja, f. 1975, maki
Kristinn Björgvinsson, þau eiga
einn dreng en fyrir átti hann einn
dreng. e) Péturína Lára, f. 1991. 4)
Elís Björn, f. 11 febrúar 1949, maki
Valgerður Auðbjörg Bergsdóttir.
Dætur þeirra eru: a) Vigdís, f.
1970. b) Dóróthea, f. 1972, maki
Hilmar Þór Hákonarson, þau eiga
fjögur börn. c) Þuríður Ingibjörg,
f. 1975, maki Halldór Einarsson. 5)
Egill Hallgrímur, f. 10. september
1954. 6) Brynjar, f. 3. desember
1957, dóttir hans er Jódís, f. 1983
maki Gunnar Halldórson, þau eiga
eina dóttur. Móðir Jódísar er
Nanna Jónsdóttir.
Útför Guðrúnar verður gerð frá
Kálfatjarnarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
kennarastarf á
Vatnsleysu-
ströndinni.
Guðrún vann á
yngri árum við
kaupavinnu og sem
vinnukona á ýmsum
heimilum haust og
vetur þar til hún gift-
ist 30. maí 1941
Klemensi Sæmunds-
syni f. 28. desember
1916, d. 10. desember
2002. Börn þeirra
eru: 1) Sæmundur
Kristinn, f. 29. júlí
1941, maki Soffía G. Ólafsdóttir.
Börn þeirra eru: a) Ólafur Gunnar,
f. 1961, maki Hjálmfríður Krist-
insdóttir, þau eiga þrjú börn. b)
Klemens, f. 1963, maki Katrín Sig-
urðardóttir, þau eiga þrjár dætur.
c) Hlíðar, f. 1964, maki Valdís
Edda Valdimarsdóttir, þau eiga
fjögur börn saman en fyrir átti
Valdís tvö börn. Hún á tvö barna-
börn. d) Guðjónína, f. 1970, maki
Bergur Sigurðsson, þau eiga þrjú
börn.
2) Þórður, f. 5 janúar 1943. 3)
Í dag er til foldar borin elskuleg
tengdamóðir mín Guðrún Krist-
mannsdóttir sem var mér ávallt mjög
kær. Margar góðar stundir höfum við
átt saman og er síðasta vor og sumar
mér ofarlega í huga. Hún tengdamóð-
ir mín hafði gaman af því að ferðast
og var það okkur mikil ánægja þegar
hún heimsótti okkur ásamt Dodda og
Agli í Vatnsdalinn þar sem við hjónin
vorum við sauðburð. Í ágúst dvaldi
hún með okkur í Borgarnesi og ferð-
uðumst við um Snæfellsnesið. Þó að
aldur hennar væri orðinn hár kvart-
aði hún aldrei um þreytu þó að hún
ferðaðist langar leiðir, ef maður
spurði þá sagði hún: af hverju ætti ég
að vera þreytt, ég sat nú bara í bíln-
um. Yndislegt var að koma til hennar
á Hólagötuna, alltaf var hún svo hlý-
leg, hress og kát. Aldrei fór maður
þaðan svangur og alltaf var hlaðið
borð. Aldrei voru nein vandamál hjá
henni, það orð hefur líklega aldrei
verið til í hennar orðaforða. Eftir að
hún lagðist inn á heilbrigðisstofnun
Suðurnesja var unun að sjá hversu vel
ættingjarnir umvöfðu hana og fannst
mér ég þá sjá að hún væri að upp-
skera eins og hún hafði sáð. Vil ég nú
þakka henni samfylgdina hér. Hvíl í
friði kæra vina og hafðu þökk fyrir
allt.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna frí
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
(Hallgrímur Pétursson)
Þín tengdadóttir,
Valgerður Auðbjörg Bergsdóttir.
Við systurnar viljum minnast
ömmu Gunnu, eins og hún var ávallt
kölluð, með nokkrum orðum. Amma
var einstaklega vel úr garði gerð,
aldrei sáum við hana skipta skapi og
var hún ávallt létt í lund og sló oft á
létta strengi. Gaman var að kíkja við á
Hólagötunni og alltaf var eitthvað
gómsætt með kaffinu og þóttu okkur
pönnukökurnar hennar ömmu sér-
lega góðar. Það var með eindæmum
hvað amma var fróðleiksfús kona og
spurði alltaf frétta af mönnum og
málefnum. Alveg fram í lokin var hún
að fylgjast með umhverfinu, ættingj-
um og samferðamönnum sínum.
Hún sá jákvæðar hliðar lífsins í
flestu því sem rætt var um nema ál-
versumræðunni en álver vildi hún
ekki sjá hér á Suðurnesjum. Kærleik-
urinn í hjónabandi hennar og afa er
okkur systrunum ofarlega í huga. Þau
voru svo samheldin hjón og virðing
þeirra hvors fyrir öðru skein frá þeim.
Rómantíkin var ömmu Gunnu mjög
hugleikin. Alltaf spurði hún um ásta-
málin og hvernig þau gengju hjá okk-
ur systrunum. Við sáum að halla fór
undan hjá ömmu í desember síðast-
liðnum. Dýrmætur var dagurinn 28.
desember 2006 en þá kom stórfjöl-
skyldan saman heima hjá ömmu, í til-
efni af því að afi hefði orðið níræður.
Munum við systurnar minnast ömmu
Gunnu í sófanum, umvafinni afkom-
endum sínum með bros á vör. Hinn
16. janúar síðastliðinn fór amma á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og var
hún þar til lokadags. Viljum við færa
starfsfólki D-deildar Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja þakkir fyrir
góða umönnun og einstakan hlýhug í
garð ömmu Gunnu. Þá erum við sér-
staklega þakklátar Dodda frænda
fyrir það hvað hann hugsaði vel um
ömmu síðustu æviárin.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum,
hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta.
Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snert-
ir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En
þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug,
lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð
og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt
látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran.)
Vigdís, Dóróthea og Þuríður
Ingibjörg Elísdætur
Glaðværð og jákvæði voru einkenn-
andi fyrir Gunnu ömmu eins og hún
var oft kölluð en hún var föðuramma
eiginmanna okkar. Gunna hafði ákaf-
lega gaman af að vera innan um fólk
og var dugleg að sækja alla mann-
fagnaði í fjölskyldunni. Hún var dug-
leg að halda tengslum við afkomend-
ur sína, enda var hún sameiningar-
punktur fyrir allan hópinn en hjá
henni hittust oft ættingjarnir.
Gunna amma tók vel á móti okkur
inn í fjölskylduna og reyndist börnum
okkar góð langamma og hafði mikinn
áhuga á því sem þau tóku sér fyrir
hendur.
Í veikindum sínum sýndi hún mikið
æðruleysi og var ánægð með alla þá
þjónustu sem hún fékk og kvartaði
aldrei. Hún átti góða og hamingjuríka
ævi og var það lánsöm að fá að búa á
heimili sínu þangað til nú í janúar
þegar hún lagðist inn á sjúkrahús.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt og hjarta
þá sælt er að vita af því.
Þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Við þökkum Gunnu ömmu sam-
fylgdina.
Hjálmfríður og Katrín.
Guðrún Kristmannsdóttir
Þakka þér amma. Ég þakka
öll árin. Ég þakka af hjarta.
Ég þerra burt tárin. Trúfest-
an, jákvæðnin, manngæskan
mesta, góðvildin, glaðværð-
in, amma mín besta. Af ást
og af auðmýkt kveð ég þig
nú. Í frelsarans nafni, því
traust var þín trú.
Ólafur G. Sæmundsson.
HINSTA KVEÐJA
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir,
systir og mágkona,
ÞÓRUNN ENGILBERTSDÓTTIR,
Álftarima 5,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands laugardaginn
17. mars.
Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn
24. mars kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Bjarney Ágústsdóttir, Bjarni G. Emilsson,
Helga Bettý Jónsdóttir, Pétur Herbertsson,
Ágúst, Ríkey, Rakel Steinunn,
Daníel Sindri og Benedikta Diljá,
Engilbert Þórarinsson, Helga Frímannsdóttir,
Jóna Kristín Engilbertsdóttir, Guðfinnur Karlsson,
Heiðar S. Engilbertsson, Guðbjörg Nanna Einarsdóttir,
Dagný Engilbertsdóttir, Brynjar Jónsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ORMHEIÐUR SVERRISDÓTTIR
frá Hjallanesi,
síðast til heimilis á Kumbaravogi,
verður jarðsungin frá Krosskirkju í Austur-Landeyj-
um laugardaginn 24. mars kl. 13:00.
Halldór Helgason,
Ólafur Kristján Helgason,
Jón Helgason,
tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR HALLDÓR ÓLAFSSON,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
16. mars sl.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
26. mars kl. 15.00.
Kristín María Þorvaldsdóttir,
Kolbeinn Sigurðsson, Guðrún Erla Gunnarsdóttir,
Jón Ragnar Sigurðsson, Ólafía Daníelsdóttir,
Davíð Sigurðsson, Sesselja Guðrún Guðjónsdóttir,
Margrét Sigurðardóttir, Ríkey Garðarsdóttir,
Thelma Björk Sigurðardóttir, Roberto Estevez Estevez
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG AXELMA AXELSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Sæborg,
Skagaströnd,
áður til heimilis í Blikahólum 10,
Reykjavík,
var jarðsungin frá Fossvogskapellu í kyrrþey
föstudaginn 16. mars að ósk hinnar látnu.
Jóhanna B. Hallgrímsdóttir, Jakob Skúlason,
Sævar R. Hallgrímsson, Ragnheiður Magnúsdóttir,
Axel J. Hallgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR,
Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku-
daginn 21. mars.
Bárður Sigurgeirsson, Auður Sigurgeirsdóttir,
Jenný Axelsdóttir, Halldór Bjarnason,
Þóra Kristín Bárðardóttir, Sigurgeir Ágúst Helgason,
Sigurgeir Bárðarson, Kristinn Geir Helgason,
Guðmundur Örn Bárðarson, Sindri Örn Björnsson.
✝
Elskuleg móðir okkar,
GUÐLEIF ÁRNADÓTTIR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 21. mars síðastliðinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Þórarinsdóttir,
Sigurjón Árni Þórarinsson,
Björg Þórarinsdóttir,
Guðlaugur Þór Þórarinsson.
✝
HINRIK EINARSSON
frá Hömrum,
Þverárhlíð,
andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi miðvikudaginn 21. mars.
Aðstandendur.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar