Morgunblaðið - 23.03.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2007 49
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú getur verið harður í horn að
taka og fullur af krafti. Þú getur tekist á
við visst verkefni og ögrað bara sjálfum
þér. Bogmaður stendur með þér – hlustaðu
á það sem hann hefur að segja.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér finnst þú slappur á versta tíma –
og það er merki um að þú þurfir að taka
málin í þínar hendur. Vítamínrík fæða og
andríkar tilvitnanir hjálpa þér að færa þig í
rétta átt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þínir nánustu vilja þekkja þinn
innri mann. En það sem þeir skilja ekki er
að innra með þér eru margar persónur. Í
dag koma nokkrar þeirra út og ljúka
skyldustörfum. Þú kemur eilíft á óvart.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Í listum ýkir ofurraunsæi málefni
með því að gera smáatriði að aðalatriðum.
Þú lítur ofurraunsætt á það hvernig þú
getur náð markmiðum þínum í peninga-
málum. En þar hefur þú tekið meiriháttar
framförum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er auðvelt að finna eitthvað at-
hugavert við mannkynið. Eru ekki allir
heimskir og latir? Hver veit og hverjum er
ekki sama? Það er erfitt að laðast að ein-
hverju í fari allra, eins og þú reynir að gera.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Við hvern samfund er nauðsynlegt
að skiljast að lokum. Mundu þetta og ekki
taka það persónulega þegar vissar að-
stæður eru yfirstaðnar. Þá er bara að byrja
upp á nýtt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Haltu upp á velgengni þína og viðhaltu
bjartsýninni, en mundu eftir takmörkunum
þínum. Vinur getur bjargað þér með því að
hlekkja þig við raunveruleikann.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Sköpun gefur þér mikla orku.
Það er óheillavænlegt að láta yfirmanninn
nappa sig niðursokkinn við hugmyndavinn-
una. Pásur og matarhlé geta reynst nota-
drjúg.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hafðu opin augu fyrir því hvað
kemur þér í varnastöðu. Er yfirmaðurinn
að yfirheyra þig? Kom brandari makans
við auman blett? Í stað þess að bregðast
ósjálfrátt við skaltu hugsa málið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Manstu þegar þú vildir ólmur
tilheyra vissum hóp – hvort sem það var
vinna eða vinahópur. Svo mikið að þú hefir
borgað fyrir að fá að vera með.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ef maður reynir að vera of gáfu-
legur, verður allt að bulli. Gáfuleg hugsun
sem endurtekur sig svæfir fólk að lokum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Lítið reiðikast á réttum stað getur
gefið þér góða hugmynd að breytingum,
annaðhvort í heiminum eða innan í þér. En
ef þú situr á reiðinni án góðrar ástæðu er
kominn tími til að spyrja sig hvaða tilgangi.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
a6 5. Rc3 b5 6. Bd3 Db6 7. Rb3 Dc7
8. O-O Rf6 9. f4 Bc5+ 10. Rxc5
Dxc5+ 11. Kh1 h5 12. e5 Rg4 13. Re4
Db6 14. Rd6+ Ke7 15. Df3 Rc6 16. a4
b4 17. a5 Dc5 18. Bd2 Hb8 19. Re4
Da7 20. Dg3 Bb7 21. f5 Hbg8 22. fxe6
dxe6 23. Bg5+ Kf8
Staðan kom upp í 1. deild Íslands-
móts skákfélaga sem lauk fyrir
skömmu í Rimaskóla. Benedikt Jón-
asson (2269) hafði hvítt gegn Smára
Rafn Teitssyni (2096). 24. Hxf7+!
Kxf7 25. Rd6+ Kf8 26. Df4+ það
kom einnig til álita að leika hinum
glæsilega leik 26. Dxg4 en textaleik-
urinn var ekki slakari. 26... Rf6 27.
Bxf6 Dd4 28. Bxg7+! og svartur
gafst upp enda var hann óverjandi
mát.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Óvenjuleg litaríferð.
Norður
♠Á952
♥K
♦D8
♣ÁKD754
Vestur Austur
♠ ♠DG7
♥D1052 ♥ÁG987643
♦G103 ♦K
♣G92 ♣3
Suður
♠1043
♥--
♦Á976542
♣1086
Suður spilar 6♦
Roy Welland átti góðu gengi að
fagna á vorleikunum í St. Louis; hann
var í sigursveit Vanderbilt-keppninnar
og vann auk þess veigamesta tvímenn-
inginn (Silidor Open Pairs). Félagi
Wellands í tvímenningnum var Ítalinn
Giorgio Duboin og hann var við stjórn-
völinn í sex tíglum. Austur hafði vakið
á fjórum hjörtum og vestur kom þar út.
Duboin trompaði og hlammaði niður
trompásnum í öðrum slag. Það er
óvenjuleg íferð í slíkan lit, en Duboin
sá að ekkert þýddi að spila litlu á
drottninguna – ef vestur ætti Kxx
myndi hann fara upp með kónginn og
þá væri engin leið að komast heim til
að taka þriðja trompið. Því var ekki um
annað að ræða en að treysta á tígulinn
2–2 eða kónginn blankan. Það gaf nán-
ast topp að vinna slemmuna.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Lausn frá íslensku hugbúbnaðarfyrirtæki hefur veriðlagað að bandarísku tölvupóstkerfi CommuniGate.
Hvað heitir íslenska fyrirtækið?
2 Hvaða þingmaður talaði lengst allra á nýloknu þingieða rúman sólarhring?
3 IceAid og Actavis ætla að aðstoða við að koma upplyfjafyrirtæki í Afríku. Hvar?
4 Tveir leikmenn íslenska landsliðsins í knattspyrnusem leika á Bretlandi hafa boðað forföll á síðustu
stundu fyrir landsleikinn gegn Spáni. Hverjir eru það?
Spurter… ritsjorn@mbl.is
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Doktor í heilsuhagfræði hefur sýnt fram á að holdarfar kvenna
hefur meiri áhrif á atvinnumöguleika þeirra heldur en ofneysla
áfengis. Hver er fræðimaðurinn? Svar: Tinna Laufey Ásgeirs-
dóttir. 2. Herdís Sigurgrímsdóttir er á leið til Íraks á vegum Ís-
lensku friðargæslunnar. Hvaða starfi er hún að taka við? Svar:
Fjölmiðlafulltrúii hjá Nato. 3. Nýr ríkisskattstjóri er ánægður með
mikinn fjölda skila á skattskýrslum á netinu. Hver er hann? Svar:
Skúli Eggert Þórðarson. 4. Hvaða lið eru komin í undaúrslit Ís-
landsmeistaramótsins í körfuknattleik? Svar: KR, Snæfell,
Njarðvík og Grindavík.
dagbók|dægradvöl
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Efstastig
Sudoku
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 Júðana, 8
hlemmarnir, 9 starfið, 10
umfram, 11 forföðurinn,
13 þekkja, 15 hlaup-
astörf, 18 gagnslausa, 21
þar til, 22 líffærin, 23
framleiðsluvara, 24
kompásar.
Lóðrétt | 2 kveða, 3 kven-
dýrið, 4 hrekk, 5 ferskan,
6 ljóma, 7 röska, 12 veið-
arfæri, 14 bókstafur, 15
bráðum, 16 eftirskrift, 17
áma, 18 reykti, 19 fisk-
inn, 20 ójafna.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 trega, 4 hrauk, 7 kofan, 8 gunga, 9 set, 11 ráma,
13 orga, 14 fljót, 15 kufl, 17 assa, 20 arg, 22 tóman, 23 at-
óms, 24 móður, 25 aflar.
Lóðrétt: 1 tekur, 2 elfum, 3 agns, 4 hægt, 5 annar, 6 krafa,
10 erjur, 12 afl, 13 ota, 15 kætum, 16 fumið, 18 stóll, 19
ansar, 20 anar, 21 gata.
NOKKRIR krakkar úr félagsheimilinu Sel-
inu á Seltjarnarnesi komu miðvikudaginn
7. mars sl. í heimsókn á skrifstofu Styrkt-
arfélags krabbameinssjúkra barna. Til-
gangur var að færa unglingahópi SKB
styrk að upphæð 50.000 krónur.
Forsvarsmenn hópsins sögðu að krakk-
ana hefði langað til að láta gott af sér leiða
og helst að það rynni til unglingastarfs.
Ólafur Einarsson og Þórir Valdimarsson úr
unglingahópi SKB tóku við styrknum sem
notaður verður til að efla enn frekar starf
hópsins sem hefur verið einstaklega fjörugt
í vetur.
Styrkur Krakkar úr félagsheimilinu Selinu færa unglingahópi SKB styrk.
Styrkur frá unglingum í Selinu
Styðja hugmyndir
um sameiningu skóla
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýs-
ing Iðnnemasambands Ís-
lands vegna áforma um
sameiningu Iðnskólans í
Reykjavík og Fjöltækni-
skólans:
„INSÍ lýsir yfir ánægju
með hugmyndir um samein-
ingu Iðnskólans í Reykjavík
og Fjöltækniskólans. INSÍ
styður þær hugmyndir að
skólinn verði einkarekinn
með komu hagsunaaðila að
rekstrinum. Forsenda þessa
stuðnings er sú að hér er
um að ræða hagsmuna-
samtök í iðnaði, ekki fyr-
irtæki úr einkageiranum.
Einnig að ekki verði tekin
upp skólagjöld umfram það
sem nú er, þ.e. innritunar-
og efnisgjöld.
INSÍ telur mjög mik-
ilvægt að góð tengsl séu á
milli atvinnulífsins og skóla
og telur að því markmiði
verði náð með þessari
breytingu, sem felur í sér
m.a. uppsetningu fagráða
fyrir hvert svið innan hins
sameinaða skóla.
Við teljum uppsetningu
fagráðanna jákvætt og mik-
ilvægt skref og það muni
leiða af sér nám sem verði
nær því sem gerist á vinnu-
markaði en nú er. Þó teljum
við mikilvægt að námsmenn
hafi sæti í þessum ráðum.
Námsmenn eiga sitt sæti í
skólanefnd og -ráði, lögum
samkvæmt en við teljum að
rödd námsmanna eigi einn-
ig heima í fagráðum.
Við fögnum hugmyndum
um stofnun fagháskóla hér
á landi í þeirri mynd sem
fyrirfinnst á hinum Norð-
urlöndunum. Það er mik-
ilvægt fyrir samkeppn-
ishæfni menntunar á
Íslandi. Stór hluti íslenskra
námsmanna erlendis
stundar nám við faghá-
skóla þar sem slíkt nám
hefur ekki staðið til boða
hér á landi.“