Morgunblaðið - 12.04.2007, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
EFNAHAGSSTEFNA
SAMFYLKINGAR
Samfylkingin kynnti efnahags-stefnu sína á fundi í gærmorg-un. Kynningarrit það sem lagt
var fram á fundinum sker sig úr al-
mennum kosningagögnum að því
leyti til að á bak við það liggur ber-
sýnilega mikil vinna. Það einkennist
af mikilli þekkingu og yfirsýn enda er
Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráð-
herra Alþýðuflokks, augljóslega höf-
undur að meginefni ritsins. Það er
mikill styrkur fyrir Samfylkinguna
að njóta liðsinnis manns sem býr yfir
svo mikilli þekkingu á efnahagsmál-
um sem Jón Sigurðsson gerir.
Í riti Samfylkingar um efnahags-
mál felst þung gagnrýni á stjórn rík-
isstjórnarinnar á efnahagsmálum.
Þetta er jafnframt gagnrýni sem er
byggð á rökum en ekki almennt póli-
tískt tal. Þess vegna er mikilvægt að
talsmenn stjórnarflokkanna svari
þessari gagnrýni á málefnalegan hátt
og með efnislegum rökum. Það er
sjaldgæft að tækifæri gefist í kosn-
ingabaráttu til málefnalegra um-
ræðna um veigamikil mál. Rit Sam-
fylkingar um efnahagsmál leggur
hins vegar grundvöll að slíkum um-
ræðum.
Í þessu riti segir m.a.: „Með auk-
inni samþættingu efnahagsstarfsemi
yfir landamæri verður sjálfstæð pen-
ingamálastefna einstakra ríkja sífellt
erfiðari viðfangs vegna greiðs að-
gangs fyrirtækja að fjármagni á al-
þjóðlegum markaði … Við slíkar að-
stæður er engin von til þess að ná
megi verðbólgumarkmiðinu nema
ríkisvaldið styðji við peningastefn-
una með aðhaldsaðgerðum á sviði rík-
isfjármála og með öðrum ákvörðun-
um sem hafa áhrif á heildareftirspurn
í landinu … Staða ríkissjóðs er nú
orðin þannig, að hann er háður því að
hafa tekjur af ofþenslunni til þess að
mæta ört vaxandi ríkisútgjöld-
um … um þessar mundir skiptir
mestu máli að fjármálastjórn ríkisins
miðist við að sporna við verðbólgu-
þrýstingi svo ekki hvíli allt á stýri-
vöxtum Seðlabankans. Þetta verður
aðeins gert með því að draga úr út-
gjöldum ríkisins og fjárfestingar-
áformum sem ríkisvaldið getur haft
áhrif á.“
Er þetta rétt mat hjá Jóni Sigurðs-
syni og Samfylkingunni? Hvert er
svar ríkisstjórnarinnar við því? Og ef
þetta er rétt mat hljóta stjórnar-
flokkarnir að svara því hvernig þeir
telji að eigi að bregðast við.
En þeir eru ekki einu flokkarnir
sem verða að svara þeirri spurningu.
Úr því að þetta er mat Samfylking-
arinnar hljóta forráðamenn hennar
að upplýsa kjósendur um það hvaða
útgjöldum ríkissjóðs þeir ætla að
draga úr og hvaða fjárfestingar-
áformum þeir ætla að hægja á?
Ætlar Samfylkingin komist hún til
valda t.d. að falla frá fyrirhugaðri
tvöföldun hringvegar til austurs og
vesturs frá höfuðborgarsvæðinu?
Samfylkingin hnykkir á þessum
áherzluatriðum í kynningarritinu þar
sem segir:
„Næstu misserin þarf aðaláherzlan
því að vera á aðhald að útgjöldum þar
sem hagkerfið ber enn öll merki of-
þenslu, sem birtist í verðbólgu, mikl-
um viðskiptahalla og erlendri skulda-
söfnun. Afar skýr merki eru auk þess
um að þegar sé fyrir hendi kerfislæg-
ur halli á ríkisrekstrinum sem birtist
um leið og þensluskeiðinu lýkur.“
Ekki verður betur séð en Samfylk-
ingin boði mikinn samdrátt í öllum
umsvifum hins opinbera og þeim um-
svifum sem ríkisvaldið getur haft
áhrif á. Er það nauðsynlegt? Eru sér-
fræðingar og forystumenn annarra
stjórnmálaflokka sammála því að slík
samdráttarpólitík sé æskileg og
nauðsynleg? Hér er boðuð alveg gjör-
breytt efnahagsstefna sem haft getur
víðtæk áhrif í efnahagslífinu öllu.
Um leið og rit þetta einkennist af
mikilli þekkingu á efnahagsmálum og
yfirsýn koma þar líka fram skrýtnar
vísbendingar um óraunsæi og tak-
markaða þekkingu á því sem er að
gerast í grasrót atvinnulífsins. Í rit-
inu segir:
„Það er því ekki að undra að lækk-
un verðlags í byrjun marz hafi orðið
miklu minni en spáð hafði verið. Ljóst
virðist að mörg fyrirtæki hikuðu við
að lækka verð á vöru sinni og þjón-
ustu vegna óvissu um framhaldið þar
sem hægri höndin virtist ekki vita
hvað sú vinstri gerði í hagstjórninni.“
Fyrst ber að nefna að verðlagseft-
irlit ASÍ sýndi fram á að lágvöru-
verðsverzlanir skiluðu lækkun virð-
isaukaskatts alveg til neytenda sem
sum veitingahús t.d. gerðu ekki. Að-
alatriðið er þó að þeir sem það gerðu
ekki voru að verða sér út um skjót-
fenginn gróða sem hafði ekkert að
gera með hik og óvissu um framhald
hagstjórnar!
Og enn segir í ritinu: „Tregða fyr-
irtækja til þess að bregðast við lækk-
un virðisaukaskattsins með lækkun
vöruverðs er ekki sízt vitnisburður
um vantrú atvinnulífsins á efnahags-
aðgerðir ríkisstjórnarinnar.“
Svona fáránlegar staðhæfingar
draga úr trúverðugleika kynningar-
rits Samfylkingar um efnahagsmál.
Annað dæmi um svona undarlega
sýn á veruleikann í íslenzku sam-
félagi er setning á borð við þessa:
„Þessar ákvarðanir ríkisins vöktu
upp samkeppni milli Íbúðalánasjóðs
og viðskiptabankanna með yfirboð-
um, sem aukið hafa á spennuna í hag-
kerfinu.“ Hvaða vitleysa er þetta? Er
höfundum þessa rits ekki ljóst að það
voru bankarnir með Kaupþing banka
í fararbroddi sem fóru einfaldlega inn
á húsnæðislánamarkaðinn og hófu
stórfellda samkeppni við ríkið um
húsnæðislán?
En hvað sem þessum athugasemd-
um líður fer ekki á milli mála að Sam-
fylkingin hefur með þessu kynning-
arriti tekið ákveðið frumkvæði í
umræðum um efnahagsmál sem aðrir
flokkar, og þá ekki sízt stjórnarflokk-
arnir, verða að bregðast við.
En jafnframt verður Samfylkingin
sjálf að svara sínum eigin spurning-
um og ábendingum og upplýsa hvern-
ig hún mundi bregðast við í ríkis-
stjórn og hvar hún mundi draga úr
fyrirhuguðum framkvæmdum.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Íslenska hagkerfið er í mikluójafnvægi um þessar mundir.Efnahagsvandinn birtist ímeiri viðskiptahalla en
nokkru sinni fyrr. Afar háir vextir,
óstöðugt gengi og verðbólga, sem
enn er tvöfalt eða þrefalt meiri en
2,5% markmið Seðlabankans, ein-
kenna efnahagsástandið. Viðskipta-
hallinn í ár verður naumast undir
15% og fer varla undir 10% á næsta
ári. Þetta segir Jón Sigurðsson, fyrr-
verandi ráðherra, seðlabankastjóri
og forstjóri Norræna fjárfestingar-
bankans.
Jón var formaður starfshóps og
ritstjóri nýs rits Samfylkingarinnar
um stöðu og horfur í efnahagsmálum
sem Samfylkingin kynnti á morgun-
verðarfundi í gær. „Sterk staða rík-
issjóðs og minnkandi ríkisskuldir
hafa verið helsti jákvæði þátturinn í
efnahagsmyndinni upp á síðkastið.
Sá bati hefur þó aðallega byggst á
umframtekjum af ofþenslunni og
sölu ríkiseigna en síður á árangri við
útgjaldastjórn. Nú virðist á hinn
bóginn ljóst að tekjuafgangur ríkis-
sjóðs minnkar mjög á þessu ári og
gæti snúist í halla árið 2008.
Hættan er sú að Ísland missi trú-
verðugleika á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum, en þá væri voðinn vís
með hækkandi vaxtaálagi, gengis-
falli og verðbólgugusu,“ segir Jón í
formála ritsins, sem ber heitið Jafn-
vægi og framfarir – ábyrg efnahags-
stefna.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, sagði á
fundinum í gær að Samfylkingin
legði mikla áherslu á efnahagsmálin
í aðdraganda kosninganna. „Það
ójafnvægi sem nú ríkir í efnahags-
málum vegur verulega að lífskjörum
fólks í landinu,“ sagði hún. Grund-
vallaratriði væri að koma á jafnvægi
í efnahagsmálum, sem væri forsenda
framfara.
Jón Sigurðsson fjallaði um efna-
hagsmálin á morgunverðarfundin-
um og sagði forgangsverkefni að
koma á jafnvægi í þjóðarbúskapnum
og endurheimta stöðugleika „því ís-
lenska hagkerfið er núna í afar miklu
ójafnvægi,“ sagði hann. „Viðskipta-
hallinn í fyrra var 27% af landsfram-
leiðslu, meiri en nokkru sinni fyrr og
meiri en nokkurn tíma hefur sést
meðal aðildarríkja OECD,“ sagði
hann ennfremur.
Jón sagði það umhugsunarefni að
þessi mikli halli væri til staðar á
sama tíma og ytri skilyrði þjóðar-
búsins væru á heildina litið mjög
góð. Eftir öran vöxt 2004 og 2005
hefði hægt mjög á hagvexti í fyrra,
framleiðsla á mann hefði dregist lít-
illega saman. „Vextirnir eru afar há-
ir, gengi krónunnar óstöðugt, verð-
bólgan tvisvar til þrisvar sinnum
meiri en verðbólgumarkmið Seðla-
bankans,“ sagði Jón og benti á að nú
stefndi í halla á ríkissjóði þegar á
næsta ári. „Hættan er sú að Ísland
missi trúverðugleika og traust á al-
þjóðlegum fjármálamörkuðum en
þar geta viðhorfin verið hvikul.
Breytingar á þeim vettvangi geta
haft mikil áhrif á hag okkar þótt
upptök þeirra geti haft ekkert eða
afar lítið með íslensk efnahagsmál að
gera, vegna þess að íslenska krónan
er eins og örsmá bátsskel á ólgusjó
alþjóðlegra gjaldeyrisviðskipta.
Gengi hennar getur breyst snögg-
lega og Ísland á afar mikið undir því
komið að alþjóðlegir fjárfestar og
lánveitendur vilji fjármagna við-
skiptahallann. Við erum því afar við-
kvæm fyrir hræringum á alþjóða-
fjármálamarkaði. Íslensk stjórnvöld
verða því nú að beita samstilltum að-
gerðum til þess að draga úr því
mikla misvægi sem óneitanlega
kastar nokkrum skugga á framtíð-
arhorfur okkar á næstu árum.
Til þess að koma á jafnvægi þarf
auðvitað að draga úr heildareftir-
spurn. Þetta gæti að nokkru leyti
gerst af sjálfu sér við lok stórfram-
kvæmda sem staðið hafa yfir en án
efa þarf að auki almennt aðhald í
hagstjórninni til þess að endur-
heimta stöðugleika,“ sagði Jón.
Hann sagði að við þetta bættist
svo að á næstu árum þyrfti að bæta
fyrir ýmsar vanrækslusyndir síðasta
áratugar á sviði félagsmála og kjara-
jöfnunar.
Í ritinu segir að þrátt fyrir ört
vaxandi tekjur ríkissjóðs í góðærinu
og aukinn hlut ríkisins í þjóðartekj-
unum hafi ýmis skylduverk þess á
sviði félagslegrar þjónustu og lífs-
kjarajöfnunar verið vanrækt á síð-
asta áratug. „Það er því með öllu
ljóst að hagstjórnarvandi næstu rík-
isstjórnar verður ærinn,“
og bætir við að á honum
taka með ábyrgri efnahagss
Skortir samstillingu í stj
fjármála og peningamá
„Það hefur mjög skort á
ingu í stjórn fjármála og
mála,“ sagði hann. „Til dæm
tímasetning skattalækkuna
un þessa árs og reyndar
fyrra árs, mjög tvímælis. E
aldrei í ljós hvort hið tímabu
hald í opinberum framk
sem var tilkynnt um mitt á
hefði einhver marktæk áhr
því var fallið áður en á það r
hefur rýmkun útlánaregln
lánasjóðs bæði nú nýlega
ustu árum, gengið þvert
ingar stjórnvalda um aðha
hagstjórninni. Það er hr
háttur af þessu tagi sem gr
an tilraunum til aðhalds m
un stýrivaxta og þar me
trúverðugleika efnahagsst
í heild. Stefnan í ríkisfjárm
peningamálum verður að v
stillt til þess að verðbólga
skefjum og stuðlað sé að e
umhverfi, sem eflt getur va
framfarir í okkar atvinnulíf
Til þess að tryggja sams
í hagstjórninni þarf nýtt
vinnulag, skýrari heilda
betra samstarf á milli þe
fara með stjórntæki efnaha
Endurheimta
Hætta er á að Ísland
missi trúverðugleika á
alþjóðlegum mörkuðum
og þá er voðinn vís, sagði
Jón Sigurðsson, fyrrver-
andi ráðherra og seðla-
bankastjóri, á fundi
Samfylkingarinnar
í gær um nýtt rit
um efnahagsmál.
Ný vinnubrögð „Til þess að tryggja samstillinguna í hagstjórnin
sýn og betra samstarf á milli þeirra sem fara með stjórntæki efna
Jón Sigurðsson kynnti nýja úttekt á stöðu efnahagsm
sjóðs á næsta ári Hringlandaháttur grefur undan til
ÁRNI M. Mathiesen fjármálaráð-
herra sagði, þegar leitað var við-
bragða hans við gagnrýni á hag-
stjórnina sem fram kom á fundi
Samfylkingarinnar, að það væru
ekki nýjar fréttir að gert væri ráð
fyrir halla á ríkissjóði á næsta ári.
Í langtímaáætlun í ríkisfjármálum
frá sl. hausti væri gert ráð fyrir að
afkoma ríkissjóðs yrði neikvæð á
árunum 2008 og 2009 en afgangur
yrði á árinu 2010.
„Á þessum árum er gert ráð fyr-
ir að ráðstafa hluta af söluandvirði
Símans, sem eru óregluleg útgjöld
og tengjast ekki tekjum viðkom-
andi ára. Við erum að ráðstafa
þessum peningum á þessum árum
vegna þess að við gerum ráð fyrir
að þá verði minni umsvif og lítill
hagvöxtur,“ segir hann. Nota eigi
hluta söluandvirðis Símans til að
glæða efnahagslífið.
Árni s
ef litið s
framhjá
fjármun
eingöng
á reglul
gjöld og
legar te
ríkissjóð
gert ráð
jafnvæg
isútgjöldunum. Hann bend
ig á að langtímaáætlunin f
hausti fyrir árin 2008 til 20
mun betri tekjuafkomu hel
gert var ráð fyrir í langtím
áætlun sem kynnt var haus
2005.
„Hagvöxturinn og kraftu
efnahagslífinu hefur verið
en við áætluðum fyrir hálfu
ári og afkoman er þess veg
en við áætluðum þá. Það að
Árni M. Mathiesen
Reiknað með hall
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is