Morgunblaðið - 12.04.2007, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigurlaug SoffíaBjörnsdóttir
fæddist í Vík í Héð-
insfirði 13. maí 1921.
Hún lést á Dval-
arheimilinu Dalbæ
29. mars síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru þau Björn
Ásgrímsson, f. 29.
júní 1885, d. 22 apríl
1943 og Anna Lilja
Sigurðardóttir, f. 19.
september 1890, d.
3. desember 1964.
Þau eignuðust níu
börn en þau voru: Ása María, Sig-
urður Halldór, Ásgrímur Guð-
mundur, Halldóra Guðrún, Birna
Kristbjörg, Stefanía Sóley, Sig-
urlaug Soffía, Kristín Ingibjörg og
Stefán Zophanías. Þau eru öll látin
nema Ingibjörg.
Soffía ólst upp í Héðinsfirði en
sína stuttu skólagöngu sótti hún til
Siglufjarðar og greiddi fyrir fæði
og uppihald með barnagæslu og
léttri heimilisþjónustu. Um 1940
fluttist hún til Reykjavíkur þar sem
hún vann við heimilisstörf þar til
hans Björg, Alexander Hugi og
Ísak Máni. Soffía Sigurlaug, dóttir
hennar Sigríður Björg. Björn Júl-
íus, í sambúð með Hildi Lilju Guð-
mundsdóttur. Jónína Sigríður. 3)
Guðmundur Ásgrímur, f. 29. nóv-
ember 1950, d. 12. nóvember 1984.
4) Þorsteinn Kristinn, f. 31. desem-
ber 1952, kvæntur Guðfinnu Ásdísi
Arnardóttur, börn þeirra eru:
Helga Kristín, gift Timothy John
Senior, sonur þeirra Michael Máni.
Ingvar Örn, í sambúð með Söru
Maríu Kristinu Hinriksson. Stein-
þór. Bryndís. 5) Björn Ásgrímsson,
kvæntur Elísabet Erlendsdóttur,
börn þeirra eru Heimir og Thelma,
fyrir átti Elísabet soninn Sturlu
Höskuldsson, í sambúð með Krist-
ínu Hólm Þórleifsdóttur. Auk þessa
átti Soffía fjóra langa-lang-
ömmudrengi en þeir eru Davíð
Freyr, Ívan Dagur, Óðinn Þór og
Björn Ísak.
Soffía vann við ýmis verkakonu-
störf á Siglufirði, Akureyri og í
Reykjavík en lengstan starfsaldur
hafði hún er hún vann við ræst-
ingar í Seðlabanka Íslands eða í um
40 ár. Síðustu árin bjó hún á Dval-
arheimilinu Dalbæ á Dalvík.
Útför Soffíu verður gerð frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
hún giftist, hinn 13.
desember 1941, Birni
Júlíusi Grímssyni, f.
15. júní 1917, d. 21.
júní 1968. Börn þeirra
eru: 1) Halldóra Guð-
rún, f. 16. júlí 1942, d.
21. ágúst 2006, gift
Páli Kristjánssyni.
Börn þeirra eru: Að-
albjörg, gift Steindóri
Jóni Péturssyni, börn
þeirra Pétur Ágúst
og Anna Lilja, fyrir
átti Aðalbjörg dótt-
urina Halldóru Maríu.
Björn, kvæntur Berglindi Lúðvíks-
dóttur, dætur þeirra Halldóra Guð-
rún, Sigríður Sæunn og Rakel Ýr,
fyrir átti Berglind soninn Lúðvík
Aron. Sigurlaug Soffía, gift Guðna
Þorvaldsyni, dóttir þeirra er Sig-
urhildur, fyrir átti Sigurlaug son-
inn Pál. Anna Lilja, gift Ívari Guð-
mundssyni, börn þeirra Anna
Líney, Andri Kristján og Sara Lind.
2) Grímur Sigurður, f. 18. janúar
1945, kvæntur Björgu Jósepsdóttir,
börn þeirra eru: Jósep, í sambúð
með Regínu Ómarsdóttur, börn
Elsku mamma, þá er kveðju-
stundin runnin upp og ég, eins og
vonandi allir synir og allar dætur
mæðra á Íslandi, ber kvíða í hjarta
mínu fyrir þessari stund, vitandi þó
það að hún kæmi. Hún var erfið, sér-
staklega vegna þess bjargarleysis
sem ég fann fyrir þegar stundin
kom. Vitandi þó það að það góða fólk
sem annaðist þig á Dalbæ gerði þér
allt til góða sem mögulegt var. Hafi
það þökk fyrir.
Mamma var fædd að Vík í Héðins-
firði og ólst þar upp við venjuleg
störf sem unnin voru til sveita á
þessum tíma. Samgöngur við Héð-
insfjörð voru erfiðar og tilheyrði
hann þá eins og nú Siglufirði og varð
hún því að sækja skólagöngu sína
þangað, sem reyndar varð ekki mikil
vegna fátæktar og erfiðleika heima-
við. Faðir hennar Björn var tekinn
og vistaður á Laugarnesspítala, því
það var haldið að hann þjáðist af
holdsveiki. Hann var fjarri heimilinu
í 12 ár og var það mikil blóðtaka að
fyrirvinnan skyldi þurfa að hverfa að
heiman með þessum hætti. Hann
reyndist síðan ekki hafa sýkst af
þessum hræðilega sjúkdómi og fékk
heimferðarleyfi en náði reyndar
ekki að verða viðstaddur fermingu
yngsta barns síns, Stefáns.
Þrátt fyrir þessa reynslu í æsku
þá var móðir mín frekar glaðvær
kona og reyndi ætíð að greiða götu
hvers manns og var margur ættingi
og vinur sem fékk húsaskjól og mat
hjá henni. Enda var ætíð mann-
margt heima hjá mér í æsku þar
sem gestir komu og fóru og fengu
allan þann viðurgjörning sem til var
í húsinu, þau góðu gildi íslenskrar
gestrisni voru í hávegum höfð hjá
henni.
Þegar faðir minn lést 1968 eftir
erfið veikindi var eins og hluti af
mömmu dæi með honum, því hjóna-
band þeirra var bundið mikilli vin-
áttu og ástríki. Hún fann sér farveg í
að sinna fjölskyldunni og barna-
börnunum sem fjölguðu eftir því
sem árin liðu. Ég veit að þau öll eiga
ljúfar minningar þegar þau komu í
heimsókn til ömmu Soffíu í Drápu-
hlíðinni og nutu ástar og umhyggju
hennar. Þannig var hún, lítil kona
með stórt og mikið hjarta og það var
ætíð rými þar fyrir einn til viðbótar
enda leið henni best með sem flest
börn í kringum sig.
Starfsvettvangur mömmu var al-
menn störf verkakonu. Sem barn
þurfti hún að vinna fyrir sér með
barnagæslu og léttum heimilisstörf-
um þegar hún var í barnaskóla á
Siglufirði. Síðar var það heimilis-
hjálp hjá ýmsum, bæði á Akureyri
og í Reykjavík og eftir að hún giftist
pabba voru það ýmis störf sem
hjálpuðu til við að afla tekna til
heimilisins. Eftir 1950 hóf hún störf
við ræstingar hjá Landsbanka Ís-
lands, síðar hjá Seðlabankanum og
lauk sinni starfsævi hjá Seðlabank-
anum í nýja húsinu við Kalkofnsveg.
Henni líkaði vel að vinna í bankan-
um og fórum við oft, börnin hennar,
með henni þangað að aðstoða hana
og var svo einnig með flest eldri
barnabörnin og sjálfsagt hefur þeim
fundist það nokkuð spennandi að
skottast með henni í vinnuna.
Þegar árunum fjölgaði hrakaði
heilsunni og síðustu sex árin hefur
hún notið umhyggju og þeirrar al-
úðar sem starfsfólk Dvalarheimilis
Dalbæjar á Dalvík veitir íbúum þar.
Fyrir tæpu ári síðan hélt hún upp á
85 ára afmælið sitt að hætti sínum
og bauð til sín fólkinu sínu. Þetta var
ánægjulegur dagur og gaman fyrir
alla þá sem komu og nutu þessa
dags með henni að sjá hversu lík hún
var ætíð sjálfri sér, mikil „partí-
kona“.
Það er eins með þessi skrif um
hana mömmu og ævi hennar, allt á
sinn enda. Ég veit einnig að bið
hennar eftir endurfundum hennar
og pabba er einnig á enda eftir nærri
40 ára. Ég veit að það var fríður hóp-
ur sem tók á móti henni, pabbi, Dóra
systir og Gummi bróðir, auk allra
þeirra vina og vandamanna sem
henni þótti svo vænt um.
Þinn sonur
Þorsteinn Björnsson.
Við gengum tvö, við gengum tvö
í rökkurró,
við leiddumst hljóð, við leiddumst hljóð
um ungan skóg.
Þú varst yndi, þú varst yndi
og ástin mín,
og stundin áfeng, stundin áfeng
eins og vín.
Við hlýddum tvö, við hlýddum tvö
í húmi ein,
er blærinn kvað, er blærinn kvað
við blöð og grein.
Ég var nóttin, ég var nóttin
þögla þín,
og þú varst eina, þú varst eina
stjarnan mín.
Á meðan norðurljósin leiftra
um bláan himininn,
þá sit ég ein og þrái
kveðjukossinn þinn.
(Valdimar Hólm Hallstað)
Með þessu uppáhaldsljóði Soffíu
langaði mig bara að fá að þakka
henni tengdamóður minni fyrir sam-
fylgdina í gegnum súrt og sætt þessi
tæp 30 ár sem við áttum samleið. Við
náðum strax vel saman við fyrstu
kynni og vorum alltaf miklar vinkon-
ur. Þær voru ófáar sumarbústaða-
ferðirnar sem við fórum í saman og
ógleymanlegt var þegar hún og móð-
ir mín heimsóttu okkur í einn mánuð
þegar við bjuggum í Svíþjóð í eitt ár.
Vinir okkar þar gátu ekki skilið
hvernig í ósköpunum við treystum
okkur í það að fá bæði móður mína
og tengdamóður í heimsókn í svo
langan tíma. En það var svo sann-
arlega ekki vandamál og þetta var
alveg yndislegur tími. Nú eru þær
báðar blessaðar horfnar yfir móðuna
miklu en við eigum sem betur fer all-
ar góðu minningar til að ylja okkur
við um ókomin ár.
Soffía bjó á heimili okkar í ein 8 ár
og var börnum okkar sem önnur
móðir. Það er þeim gott veganesti til
framtíðar að hafa haft ömmu sína á
heimilinu og ég trúi því að hún fylg-
ist með þeim enn. Hún var barnelsk
með eindæmum og það eru sann-
arlega margir sem hafa kynnst því.
Hún setti líka ávallt velferð annarra
framar sinni eigin.
Fyrir 6 árum síðan var svo komið
að hún þurfti því miður heilsu sinnar
vegna á meiri umönnun að halda en
við gátum veitt henni á heimili okk-
ar. Það verður bara að segjast að
vegna lélegra aðstæðna í hjúkrunar-
málum aldraðra í Reykjavík varð
það úr að hún fluttist búferlum á
Dvalarheimilið á Dalvík. Þar undi
hún hag sínum vel enda vel um hana
hugsað þar í alla staði. Þar fékk hún
líka tækifæri til að umgangast þann
hluta fjölskyldu sinnar sem bjó fyrir
norðan og það var okkur mikil hugg-
un að hún hafði þau sér við hlið.
Soffía var ótrúlega létt á sinni og
alltaf stutt í kátínuna hjá henni þrátt
fyrir öll áföllin sem hún hafði orðið
fyrir um ævina. Jafnvel fram á síð-
ustu stundu dró hún fram hnyttin
tilsvör. Við eigum eftir að minnast
hennar þannig og hafa jákvæðni
hennar að leiðarljósi. Ég veit að hún
er nú í góðum félagsskap og að það
hefur verið tekið vel á móti henni.
Hafðu þökk fyrir allt, Soffía mín,
og Guð varðveiti þig.
Elísabet.
Mig langar að minnast elsku
Soffíu ömmu minnar í nokkrum orð-
um. Fyrsta minningin sem kemur
upp í huga mér þegar ég hugsa til
ömmu eru kúlurnar sem hún átti
alltaf í veskinu sínu. Það var alltaf
gleði að hitta Soffíu ömmu og ekki
minnkaði gleðin þegar hún laumaði
nokkrum kúlum í lófa manns, já kúl-
urnar hennar ömmu brögðuðust
ekkert eins og venjulegar kúlur!
Það var alltaf svo gaman að koma
í heimsókn í Drápuhlíðina, oftar en
ekki tók ilmandi kleinulykt á móti
manni, en kleinurnar hennar ömmu
þóttu þær bestu í heimi! Það var svo
gaman að fá að gista hjá henni,
skoða allt spennandi dótið hennar,
spila og/eða leggja kapal.
Amma bjó í Drápuhlíðinni þar til
allir stigarnir fóru að vera henni erf-
iðir, þá flutti hún til Bjössa frænda
og fjölskyldu. Það var alltaf svo gott
að koma í heimsókn til þeirra í Graf-
arvoginn og spjalla við þau og ömmu
um alla heima og geima. Síðustu ár
hefur amma svo búið á Dalbæ, það
leið því oft langt á milli heimsókna
en ég gerði mér ferð til hennar á
hverju sumri. Það var alltaf vel tekið
á móti mér og mínum á Dalbæ og
best þótti mér að sjá hversu vel
ömmu leið þar og vel var hugsað um
hana.
Það er erfitt að þurfa að kveðja
þig í hinsta sinn, elsku amma mín.
Ég er svo þakklát fyrir þær stundir
sem ég átti með þér og mun geyma
þær vel í hjarta mér. Ég veit að afi,
Gummi frændi og Dóra frænka hafa
tekið vel á móti þér á himnum. Ég
veit líka að þú munt vaka yfir mér og
gullmolanum mínum um ókomin ár.
Hvíl í friði, elsku amma mín.
Þín nafna,
Soffía S. Grímsdóttir.
Elsku frænka. Okkur langar að
minnast þín með nokkrum orðum.
Af mörgu er að taka, en það sem
okkur er minnistæðast er hvað þú
reyndist okkur vel þegar við misst-
um móður okkar ung að aldri. Þú
opnaðir heimili þitt fyrir okkur og
við vissum að við vorum ávallt vel-
komin. Oft bauðstu okkur að borða
með fjölskyldunni sunnudagssteik-
ina þína, sem var engri lík. Svona til
gamans langar okkur að minnast á
atvik sem lýsir gæsku þinni vel.
Maðurinn þinn, Björn, var sjómaður
og því ekki alltaf heima. Svo var það
einu sinni að við systur vorum stadd-
ar í miðbænum um nótt, þá ungling-
ar, og strætó hættur að ganga. Við
ákváðum því að fara til þín þar sem
þú bjóst skammt frá miðbænum og
biðjast gistingar. Ekkert var sjálf-
sagðara og við skriðum upp í hlýtt
rúmið til þín. Seinna um nóttina kom
svo maðurinn þinn heim af sjónum.
Þá var ekkert pláss fyrir hann hjá
þér og mátti hann gista í sófanum þá
nóttina. Þetta litla atvik sýnir hvað
þið hjónin voruð samtaka um að láta
okkur finnast við vera eins og heima
hjá okkur.
Þrátt fyrir að þú hafir reynt mikið
í gegnum tíðina varstu ætíð lífsglöð.
Þú elskaðir að vera í hópi góðra vina
enda var oft glatt á hjalla þar sem þú
varst. Okkur er minnistæð vísa sem
föðurbróðir okkar orti til þín á átt-
ræðisafmæli föður okkar sem þú
sást um fyrir hann, og hún er svona:
Þú ert enn af fegurð full
flíkar línum fínum.
Þú átt skilið skíra gull
af skáldavörum mínum.
Þú hafðir ákveðnar skoðanir á
mönnum og málefnum og voru póli-
tískar umræður þér að skapi. Við
kveðjum Soffíu með söknuði og
þökkum henni samfylgdina. Guð
varðveiti minningu hennar.
Börnum hennar og fjölskyldum
þeirra vottum við innilega samúð.
Ásmundur, Anna og Ragnheiður.
Elsku amma mín.
Það var svo erfitt að vera svona
langt í burtu frá þér og vita af þér
svona veikri. Ég veit að það var vel
hugsað um þig og núna ertu kominn
á góðan stað og það hefur verið vel
tekið á móti þér, enda löng bið um
endurfund hjá þér og afa Bjössa.
Það er skrítið að hafa þig ekki
lengur hjá okkur. Þú varst búin að
ganga í gegnum svo margt, en alltaf
stóðstu þig eins og hetja, amma mín.
Það eru svo margar minningar sem
koma upp í hugann þegar maður
hugsar til baka, eins og kleinudunk-
urinn þinn sem var alltaf fullur af
kleinum, þegar ég fékk kókópuffs
hjá þér úr flottu rauðu skálinni með
myndinni á botninum, pítsan sem
beið eftir manni eftir ferðalagið suð-
ur. Síðan eru það kúlurnar þínar
sem þú áttir alltaf nóg af og gafst
öllum. Það var alltaf svo gaman að
koma til þín í Drápuhlíðina og til
Bjössa frænda, en ég man hvað ég
var oft feiminn við þig fyrst en sú
feimni var nú alltaf fljót að fara. Þú
komst alltaf norður til okkar á sumr-
in og það voru góðir tímar, enda
deildum við oft herbergi og var alltaf
gott að kúra hjá ömmu. Þegar ég og
Steinþór ætluðum að gista í tjaldi yf-
ir eina nótt en ekki entist ég þar
lengi og endaði uppi í rúmi hjá þér.
Það var alltaf svo gott að hafa þig
heima hjá mér á meðan mamma og
pabbi voru að vinna. Þú sagðir mér
alltaf söguna af því þegar mamma
og pabbi fóru til Ameríku og þá hafði
ég fengið þig til að labba með mér á
andarpollinn í Ólafsfirði og gefa önd-
unum brauð, þetta var dágóður spöl-
ur að labba en það stoppaði þig ekki.
Gjafirnar frá þér voru alltaf góðar
og átti maður alltaf nóg af ullarsokk-
um, vettlingum og húfu og í pakk-
anum fylgdi alltaf eitt súkku-
laðistykki með.
Það verða erfiðir tímar framund-
an að hafa þig ekki lengur hjá okkur
og hélt ég alltaf að það væri ekkert
sem gæti stoppað þig frá því að vera
lengur hjá okkur. En það er alltaf
gott að hugsa til baka og rifja upp
góðu minningarnar sem ég átti með
þér. Ég veit að þér líður vel núna og
ætli þú sért ekki í Mílanó sem þig
langaði alltaf að fara til. Núna er
komið að kveðjustund og vona ég að
þú verðir hjá mér, fylgir mér í gegn-
um lífið og ég geri þig stolta. Ég veit
að þú skemmtir þér hinum megin
ásamt afa, Dóru og Gumma og bið
ég að heilsa þeim.
Pabbi þinn samdi ljóð um þig og
langar mig að kveðja þig með því.
Ofur lítið á ég hnoss
á það skal nú benda
elsku pabbi ætlar koss
ungu fljóði að senda.
(B.Á.)
Guð geymi þig, amma mín.
Bryndís Þorsteinsdóttir
Soffía Björnsdóttir
✝
Okkar ástkæri sonur, faðir, afi, bróðir og
sambýlismaður,
FRIÐRIK ADOLFSSON
verkfræðingur,
Faxaskjóli 26,
verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn
13. arpíl kl. 15.00.
Guðríður Egilsdóttir,
Agla Jael Rubner Friðriksdóttir,
Kjartan Jónatan Rubner Friðriksson,
Egill Moran Rubner Friðriksson,
Dagur Benjamín Rubner Kjartansson,
Þórður Adolfsson,
Elke Herrel
og aðrir aðstandendur.
✝
Okkar ástkæri bróðir, mágur og frændi,
HAFSTEINN KARLSSON,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í dag, fimmtu-
daginn 12. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á minningarkort Heilaverndar,
sem fæst í síma 588 9220.
Soffía Karlsdóttir, Grétar Garðarsson,
Halldór Ingi Karlsson, Lára Jóhannsdóttir,
Hilmar Karlsson, Dórothea Sigurjónsdóttir
og frændsystkini hins látna.