Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 43 ✝ HafsteinnKarlsson fædd- ist í Hafnarfirði 4. ágúst 1962. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspít- alans við Hring- braut sunnudaginn 1. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Karl Hafsteinn Gunn- laugsson, f. í Reykjavík 16. júní 1925, d. 11. nóv- ember 1996, og Þorbjörg Halldórsdóttir, f. í Hafnarfirði 19. janúar 1926, d. 23. janúar 1985. Systkini Haf- steins eru: 1) Soffía, f. 9. mars 1944, gift Grétari Garðarssyni, synir þeirra eru Garðar Karl, Sigurjón, Gunnlaugur og Bene- dikt. 2) Halldór Ingi, f. 11. maí 1947, kvæntur Láru Jóhanns- dóttur, sonur þeirra er Ingþór. 3) Hilmar, f. 30. nóvember 1948, kvæntur Dórotheu Sigujóns- dóttur, dóttir þeirra er Andrea. Hafsteinn hóf sambúð með Önnu Jóhannesdóttur fóstru, f. 27. októ- ber 1963, d. 3. jan- úar 1989. Hafsteinn og Anna voru stofn- félagar Heila- verndar, samtaka sem stuðla að rannsóknum á arf- gengri heilablæð- ingu. Hafsteinn lauk vélvirkjun frá Iðn- skóla Hafnarfjarðar 1982, með verksamning við vélsmiðjuna Klett. Viðbótarnámi lauk hann frá Vélskóla Íslands 1986, var hann þá kominn með réttindi á vélar bæði til lands og sjávar. Lengst af vann hann hjá Stáls- miðjunni í Reykjavík og síðustu tíu árin vann hann í Álverinu í Straumsvík. Hafsteinn verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Símtal til Kanarí að morgni pálmasunnudags. „Hann Haddi er dáinn!“ Litli bróðir, sprelligosinn, sem lék á als oddi í afmælinu mínu 9. mars, og knúsaði mig fyrir hálfum mánuði, þegar hann óskaði okkur Grétari góðrar ferðar! Hann hélt að hann væri með flensu en eftir að hann fór á spítalann kom annað og verra í ljós. Við vonuðum að skurðaðgerð nægði til að komast fyrir meinið, en því miður var það orðið of seint. Við héldum í vonina en honum hrakaði stöðugt, samt óraði engan fyrir því að þessu lyki svona fljótt. Litli bróðir, í fyrstu minningunni svo lítill að skókassi hefði dugað hon- um sem rúm. Alltaf glaðlyndur og yndislegur, en ákveðinn og fastur á sínu, svo stundum þótti manni nóg um. Eins og einn af okkar strákum, enda jafnaldri og leikfélagi þeirra eldri, og áhugasamur og góður frændi þeirra yngri líka. Það styrkt- ist enn frekar þegar mamma dó 1985 og pabbi 1996. Hamingjusamur með Önnu sinni í sex ár, niðurbrotinn og aldrei samur eftir að hún dó 1989. Alltaf hugsaði hann samt vel um ömmu hennar, og systur. Í góðum hópi var hann hrók- ur alls fagnaðar, og hafði mjög gam- an af að ferðast. Elsku strákurinn minn, minning- arnar eru endalausar, þær geymum við í hjarta okkar og allar eru þær um góðan dreng. Við hefðum svo gjarnan viljað ná heim, en það varð ekki. Við erum öll í losti en okkar huggun er sú að þjáning þín var stutt og að vel hefur verið tekið á móti þér. Við Grétar, strákarnir og þeirra fjöl- skyldur þökkum fyrir þann tíma sem við fengum með þér, Guð blessi þig. Soffía systir. Elsku Haddi frændi minn er dá- inn. Tekinn frá okkur svo ungur og með svo litlum fyrirvara, að við sitj- um eftir orðlaus í sorginni. Mínar minningar um Hadda frænda tengjast sprelli, hlátri og góðum stundum. Það á eftir að verða tómlegt í Djúpavatni án þín, Haddi minn. Þá á ég svo sannarlega eftir að sakna þinna landsfrægu 200 metra kasta og ærandi gargsins frá ferða- útvarpinu þínu. Mikið verður skrýtið að heyra ekki „Hó hó hó“ í dyragættinni hjá mömmu um jólin og fá ekki ein- hverja skelfilega b-mynd í jólagjöf frá þér. Það er sárt að kveðja góðan dreng svo snemma en ég hugga mig við þá staðreynd að þú ert loksins að kom- ast í faðminn á henni Önnu þinni, þar sem þér leið sannarlega alltaf best. Það hafa nokkur tárin fallið á lyklaborðið við þessi skrif en ég ætla nú samt að minnast Hadda frænda míns með bros á vör. Þannig varst þú og þannig mun ég muna þig, elsku vinur minn. Benedikt frændi. Elsku Haddi. Það erfiðasta sem ég hef þurft að gera er að sjá þig svona veikan eins og þú varst þegar ég kom til þín uppá spítala. Það lifnaði samt yfir þér þeg- ar pabbi sagði þér að ég væri komin og þú baðst um að ég kæmi nær svo að þú gætir séð mig. Mér fannst þetta samt ekki vera þú. Haddi sem var alltaf svo hress. Eina sem ég hugsaði var það hvað þetta væri óréttlátt. Af hverju koma slæmir hlutir fyrir svona gott fólk eins og þig og Önnu. Eina skýringin sem mér datt í hug var að ömmu, afa og Önnu langaði að fá þig til sín en okk- ur langaði líka að hafa þig hjá okkur. Ég hefði ekki getað séð þig þjást lengi svona eins og þú gerðir og var fegin að það tók ekki lengri tíma fyrst svona þurfti að fara. Ég er sátt við að þú hafir fengið frið, þótt mað- ur sé reiður að þú hafir verið tekinn frá okkur en samt líður mér vel að vita af ykkur Önnu saman. Þegar ég hugsa um þig líður mér vel. Það er bara hægt að segja góða hluti um þig og það var alltaf gaman hjá okkur. Mér fannst ég alltaf vera í uppáhaldi hjá þér, þú varst mér allt- af svo góður. Ég get endalaust skrif- að fallegar minningar um þig, en nú er kominn tími til að kveðja. Mér þykir svo vænt um þig og mun alltaf gera og nú veit ég að það mun verða vel tekið á móti mér þeg- ar þar að kemur og þarf ég því ekki að kvíða neinu. Þú verður alltaf minn uppáhaldsfrændi. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ég elska þig og sakna þín elsku Haddi minn. Þín Andrea. Hafsteinn Karlsson Persónuna. Sesselja var í æðstu met- orðum hjá Lárusi og Persónunafn- giftin var staðfesting á því. Seinna flutti hann í sambýlið í Sigluvogi og síðar með sambýlisfólki sínu þar í Lálandið. Ég var svo heppinn að dveljast oft langdvölum á heimili afa og ömmu og kynntist því Lárusi vel. Hann var yf- irleitt í lykilhlutverki í leikjum barnanna í fjölskyldunni á þeim tíma. Hans uppáhaldshlutverk var oftast í gervi læknisins eða prestsins. Ef við vorum veik mætti hann með lækn- istöskuna og ef jarða þurfti fugl eða kött þá söng hann yfir moldu. Lalli frændi var léttur og kátur og átti auðvelt með að gera að gamni sínu. Áhugi hans og aðdáun á hinu kyninu var eilíft úrlausnarefni og ráðgáta. Í þeim efnum hafði hann ávallt eitt- hvað á prjónunum en þó var það oftar meira í orði en á borði, enda ekki allt- af ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. Vinkonum og aðdáendum átti hann gnótt af og því var oft úr vöndu að ráða. Þegar horft er yfir farinn veg og kynnin við Lárus Hjálmarsson eru vegin og metin þá situr eftir minning um stórmenni. Minning um mann sem var þannig af guði gerður að honum voru settar miklar skorður. Þrátt fyrir skorðurnar var ekki margt sem stoppaði hann. Hann var iðjusamur og heiðarlegur, foringi af guðs náð, einstakur vinur vina sinna og elskaður af öllum sem hann þekktu. Geri aðrir betur! Fyrir hönd okkar Jóhönnu og strákanna votta ég mömmu, bræðr- um hennar og fjölskyldum, sambýlis- fólki Lárusar, starfsfólki í Lálandi og öðrum ættingjum og vinum okkar innilegustu samúðarkveðju. Minning um góðan dreng lifir. Óskar Bergsson. Smá kveðja við fráfall höfðingjans Lalla frænda. „Lalli biður að heilsa þér.“ Þessa kveðju hef ég fengið árum saman í hvert sinn sem Ólöf vinkona Lalla hefur hringt í okkur. Það var ekki að spyrja að ættrækninni á þeim bæ. Ekki lítið nafn sem Lalli bar, Lár- usar á Klaustri, og ekki vantaði reffi- legheitin. Síðustu jólin sem Lalli átti heima í sýslumannshúsinu á Seyðisfirði var okkur bræðrum haldið þar undir skírn af langömmum okkar. Lalli var þá sex ára og eftir áramótin flutti fjölskyldan í sýslumannshúsinu suð- ur. Í stað þess að Lalli yrði frændi númer eitt heima á Seyðisfirði, varð hann það hér syðra. Þannig var það á æskudögum þegar ég átti leið frá Höfn til Seyðisfjarðar og staldrað var við í Drápuhlíðinni. Þá var ekki ónýtt að komast í gullin hans og þvælast úti með honum, eða þá að njóta hjartahlýju öðlingskonunnar, Sigrúnar móður hans. Lalli ólst upp í skjóli foreldra sinna og ömmu, einnig Stebbu og vitanlega systkina sinna og var heimili þeirra einskonar miðstöð ættarinnar og fór vel á því. Þessari kveðju fylgir því þakklætiskveðja til þess góða heim- ilis. Það var því ekki ónýtt að geta endurgoldið þeim lítilsháttar gest- risni þeirra og margan góðan viður- gerning þegar þau hjón og Lalli sóttu okkur heim að Eiðum fyrir aldar- fjórðungi, þegar þau komu austur í síðasta sinn. Hjálmar var þá að afla gagna að sögu sinni um heimahag- ana. Þá var Lalli í essinu sínu. Á ættarmótinu eystra, fyrir hálf- um áratug, kom Lalli fram sem fulltrúi ættarinnar og hátíðlegt að sjá þegar hann lagði kransinn á leiði þeirra Bjargar og Vilhjálms á Há- nefsstöðum; á legsteininn sem afi gerði þeim foreldrum sínum. Þá þótti mér óverðugum ekki síðra að fá að þjóna þeim systkinum við mynda- töku af þeim í Hjálmarshúsinu og ógleymanlegt þegar Lalli fékk að líta þar við í gamla herberginu sínu. Það var hjartnæm stund. Lalli varð eiginlega með tímanum einskonar samnefnari í Hánefsstaða- ættinni, sameinandi. Það skýrist bæði af eiginleikum hans sjálfs og af- stöðu frændfólksins til hans og hefur og sést í þeim höfðinglegu stóraf- mælisveislum sem honum hafa verið haldnar, eða öllu heldur hann sjálfur okkur hinum. Þá skyldi sko slektið mæta. Óborganlegt þegar hann flutti af munni fram, nú síðast á sextugs- afmæli sínu í nóvember, þulu sem Björg, amma hans og ættmóðir okk- ar, hafði kennt honum áratugum fyrr. Aðdáanleg er umhyggjan sem honum hefur jafnan verið sýnd af hans nánustu. Ég mun sakna kveðjanna frá hon- um, en minning hans er ljúf. Hjalti Þórisson. Kveðja íbúa í fjölskyldu- heimilinu Lálandi Hinn ljúfi Lárus Hjálmarsson, ég gleymi ekki gömlu tímunum með þér. Það var gott að vera með þér, þú varst alltaf sprækur, léttur eins og fis. Húmorinn var alltaf í fyrirrúmi hjá þér Lalli. Horfðum á Nonna og Manna, svo horfðum við á sakamála- myndir og Dallas-þættina. Ferðuð- umst í Stykkishólm, fórum í bátasigl- ingu út fjörðinn. Það var mjög gaman. Lalli stríddi Steinunni í Stykkishólmi og kitlaði Gíslínu oft. Þú varst hvers manns hugljúfi. Við fórum líka oft saman í bíltúr í bílnum okkar. Það var gaman að tala við þig um ættfræði, þú varst fullur af fróð- leik. Mér leið eins og ég væri í kennslustund með þér Lalli, þú vissir svo mikið. Þinn vinur, Haraldur Viggó Ólafsson. Ég talaði oft við Lalla inni í her- bergi í Lálandi. Lalli vinur. Ég talaði við Lalla í Lálandi þegar hann var labbandi um gólfið. Ég talaði við Lalla í Lálandi, biðja Lillu að gera eitthvað í Lálandi. Nú getur Lalli ekki flutt í Láland, nú er Lalli dáinn. Þín vinkona, Gíslína Gunnarsdóttir. Elsku Lalli minn, við vorum vinir í meira en 40 ár. Á Sólheimum vorum við með okkar lögfræðiskrifstofu og við vorum líka að binda inn bækur og gera fleira skemmtilegt. Lalli sagði að ég væri besti vinur hans. Við vor- um tveir í spilaklúbbnum okkar, við spiluðum kapal, veiðimann og þjóf. Pabbi hans var sýslumaður á Seyð- isfirði. Lalli flutti á undan mér frá Sólheimum en við hittumst aftur í Sigluvoginum þegar ég flutti þangað en þá bjó Lalli þar og við fluttum svo saman í Lálandið. Guð blessi þig, mér þykir vænt um þig, vertu sæll Lalli minn. Þinn vinur, Jón Úlfar Líndal. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Vertu sæll, kæri vinur. Gunnar Gunnarsson. Kæri frændi. Það var gaman að kynnast þér. Nú ertu kominn til mömmu þinnar, pabba og Konráðs afa. Ég vona að þér líði vel núna Lalli minn. Ég og Aldís hugsum til þín, og trúum því ekki að þú, þessi góði drengur, sért farinn. Þú varst alltaf svo kátur og glaður og gaman var að tala við þig um daginn og veginn. Nú er komið að kveðjustund kæri vinur. Sjáumst hinum megin. Þínir vinir, Stefán og Aldís. ✝ Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÍÐAR EIRÍKU GÍSLADÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heiðarbæjar. Alúð ykkar og umhyggja er ómetanleg. Rafn Kristjánsson, Ingibjörg Rafnsdóttir, Magnús Rafnsson, Arnlín Óladóttir, Sigríður Rafnsdóttir, Rafn Jónsson, Auður Rafnsdóttir Bett, James Bett, Hjördís Rafnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. FRÉTTIR  Fleiri minningargreinar um Lárus Hjálmarsson bíða birt- ingar og munu birtast næstu daga. SAMORKA, samtök orku- og veitu- fyrirtækja, hefur tekið saman upp- lýsingar um fjölda háskólamennt- aðra starfsmanna aðildarfyrirtækja sinna, sem og um fjármagn sem þessi fyrirtæki verja til rannsókna, hönnunar og vísinda. Samkvæmt yfirlitinu vörðu orku- og veitufyrirtækin alls um 15.000 milljónum króna vegna hönnunar og rannsókna á árunum 2001 til 2006, auk 500 milljóna í styrki til rann- sókna- og vísindastyrkja á annarra vegum. Byggt er á upplýsingum úr bókhaldsgögnum íslenskra orku- og veitufyrirtækja. „Tilefnið er hávær umræða þar sem orkufyrirtækjum er ítrekað stillt upp sem andstæðu við svonefnd þekkingarfyrirtæki, þrátt fyrir tíðar fréttir af útrás orkuþekkingar. Ljóst er að engin innistæða getur talist fyrir því að stilla íslenskum orku- og veitufyrirtækjum upp sem einhvers konar andstæðu við þekkingarfyrir- tæki,“ segir í frétt frá Samorku. 730 ársverk háskóla- og tæknimenntaðra starfsmanna Hjá íslenskum orku- og veitufyr- irtækjum starfa 330 manns með há- skóla- og tæknimenntun, þar af 226 verk- og tæknifræðingar. Aðkeypt sérfræðiþjónusta árið 2006 nam 400 ársverkum háskóla- og tæknimennt- aðra, þar sem ætla má að séu meðal annars 273 ársverk verk- og tækni- fræðinga, auk fjölda ársverka við- skiptafræðinga, jarðfræðinga og fleiri hópa. Samtals gerir þetta 730 ársverk háskóla- og tæknimennt- aðra, þar af 499 ársverk verk- og tæknifræðinga. Útrásarfyrirtæki á orkusviði eru ekki með í þessum töl- um frá Samorku. Þá voru 475 ársverk iðnaðar- manna innt af hendi fyrir orku- og veitufyrirtæki á árinu 2006, og má þar telja rafvirkja, vélsmiði og vél- fræðinga. Loks teljast tæplega 600 starfsmenn fyrirtækjanna til ófag- lærðra. „Varðandi þá sem flokkast sem ófaglærðir skal þess getið að með- alstarfsaldur er með allra hæsta móti hjá orku- og veitufyrirtækjum, eða tæp sextán ár samanborið við sjö ára meðaltal á íslenskum vinnu- markaði. Þá hafa þessi fyrirtæki lengi verið í fararbroddi á sviðum endur- og símenntunar. Mikil þekk- ing býr meðal starfsfólks orku- og veitufyrirtækja, hvort sem horft er til háskólamenntaðra eða annarra í þessum hópi,“ segir í frétt Samorku. Félög í Sam- orku verja milljörðum í hönnun og rannsóknir Villa í fyrirsögn VILLA var í fyrirsögn um fylgis- könnun í Reykjavíkurkjördæmi suð- ur í blaðinu í gær. Það voru Sjálf- stæðisflokkur og Samfylking sem voru með mest fylgi en ekki Sjálf- stæðisflokkur og VG. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.