Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
50ára afmæli. OddnýHarðardóttir, bæj-
arstjóri í Garði, varð fimmtug
9. apríl. Af því tilefni tekur
hún á móti gestum föstudag-
inn 13. apríl kl. 20 í Samkomu-
húsinu í Garði.
60ára afmæli. Í dag, 12.apríl, er sextugur Þór-
hallur Borgþórsson, bygg-
ingameistari og athafnamað-
ur, Goðalandi 7.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar þurfa
að berast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistilkynn-
ingum og/ eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-
1100, senda tilkynningu og
mynd á netfangið ritstjorn-
@mbl.is, eða senda tilkynn-
ingu og mynd í gegnum vef-
síðu Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja liðinn
„Senda inn efni“. Einnig er
hægt að senda vélritaða til-
kynningu og mynd í pósti.
Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 12. apríl, 102. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa. (Lúk. 9, 56.)
Hvar fékk hún þessa skó? –Stjórnmálakonur og fjöl-miðlar í aðdraganda kosn-inga er yfirskrift fyr-
irlestrar dr. Karenar Ross prófessors
sem fluttur verður í Norræna húsinu á
morgun, föstudag kl. 12.
Rannsóknastofa í kvenna- og kynja-
fræðum og Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála við Háskóla Íslands standa
fyrir fyrirlestrinum ásamt Blaðamanna-
félagi Íslands.
„Síðustu tvo áratugi hefur orðið mikil
breyting á því hvernig fjölmiðlar fjalla
um og fást við stjórnmálamenn. Ein-
kennist umfjöllunin minna af beinni
fréttamiðlun af þingstörfum og við-
tölum, og meira af túlkun þar sem blaða-
maðurinn leggur sjálfur mat á sannsögli
og áreiðanleika stjórnmálamannsins.
Þetta hefur breytt jafnvægi fjölmiðlunar
svo að fréttamaðurinn verður jafnvel
mikilvægari en efnið sem er til umfjöll-
unar,“ segir Karen, sem kennir fjöl-
miðlafræði við Háskólann í Coventry.
„Fréttamiðlun er í æ meira mæli í bita-
stærð, yfirborðskennd og samheng-
islaus, og höfðar æ oftar til lægsta sam-
nefnara þar sem hjúskaparvandamál
stjórnmálamanna þykja merkilegri
fréttir en t.d viðhorf þeirra til kjarn-
orkuvopna og hnattrænnar hlýnunar.
Hvar kvenkyns ráðherra kaupir skóna
sína, eða hvernig sniðið er á dragtinni
hennar fær fleiri dálksentimetra en
skoðanir hennar á Abu Ghraib.“
Karen segir fjölmiðlaumhverfið í dag
gera konum erfiðara en áður að komast
að í fjölmiðlum: „Nema þær segi eða
geri eitthvað yfirgengilegt eða, eins og
mörg nýleg dæmi eru um, að eiginmenn
þeirra valdi hneyksli. Um leið er áhuga-
vert að gefa því gaum hve sárafá dæmi
eru um að karlkyns stjórnmálamenn
lendi í kastljósi fjölmiðlanna vegna ein-
hvers sem eiginkonur þeirra gera sér til
skammar.“
Karen vill einnig halda því fram að
karlkyns blaða- og fréttamönnum hætti
til að sýna stjórnmálakonur í ljósi sem
leggur áherslu á kvenleika þeirra en
dregur úr ímynd þeirra sem leiðtogar og
álitsgjafar: „Þeir ljósmynda stjórn-
málakonur með fjölskyldum sínum, og
„leyfa“ þeim að tala um brjóstaskoðun
frekar en að fjalla um efnahagsmál.“
Fyrirlestur föstudagsins er öllum op-
inn og aðgangur ókeypis. Nánari upp-
lýsingar eru á http://rikk.hi.is.
Jafnréttismál | Fyrirlestur dr. Karenar Ross í Norræna húsinu
Stjórnmál, skór og dragtir
Karen Ross
fæddist á Englandi
1957. Hún lauk
kennaraprófi frá
Tæknihásk. í
Middlesex 1984,
B.A. gráðu í fé-
lagslegri stefnu-
mótun 1986, fram-
haldsnámi í
rannsóknarfr. frá
sama skóla 1987 og doktorsgráðu í
kynja- og þjóðfræði frá háskólanum í
Warwick 1990. Karen hefur starfað
við rannsóknir og fræðastörf frá 1991,
lektor við Háskólann í Coventry 1999
og dósent 2000 í fjölmiðlafr. Hún á
tvær dætur.
Tónlist
Dillon | Melanchoholics frá
Þýskalandi og Sólstafir sameina
krafta sína 12. apríl á Dillon kl. 21.
Frítt inn. Melanchoholics leika
einhvers konar electro/ambient
og hafa túrað um alla Evrópu.
Sólstafir munu einungis flytja
glænýtt efni. www.mel-
anchoholics.de www.mys-
pace.com/solstafir
DOMO Bar | Jóel Pálsson saxó-
fónleikari mætir með hljómsveit
sína í Jazzklúbbinn Múlann nk.
fimmtudagskvöld. Leikin verður
tónlist af nýjustu plötu Jóels,
Varp, en platan hlaut á dögunum
nafnbótina „Hljómplata ársins“ í
flokki jazztónlistar við afhend-
ingu íslensku tónlistarverð-
launanna.
Fyrirlestrar og fundir
Landakot | Fræðslufundur á veg-
um Rannsóknastofu í öldr-
unarfræðum, RHLÖ, verður hald-
inn í kennslusalnum á 7. hæð á
Landakoti, fimmtudaginn 12. apríl
kl. 15. Halldóra Björnsdóttir
íþróttafræðingur flytur erindið:
Hreyfum okkur með morg-
unleikfimi RÚV – nýtum það sem
er til staðar.
Norræna húsið | Norræna húsið
og sænska sendiráðið efna til
málþings og pallborðsumræðna í
tilefni aldarafmælis Astrid Lind-
gren í Norræna húsinu í dag kl.
14. Léttar veitingar að fundi lokn-
um. Enginn aðgangseyrir.
Oddi – Háskóla Íslands | Gísli
Pálsson prófessor flytur fyr-
irlestur hjá Nafnfræðifélaginu
laugardaginn 14. apríl kl. 13.30 í
Odda 201 sem hann nefnir:
Nafnahefðir inúíta: mannfræðileg
sjónarmið.
Verkfræðideild Háskóla Íslands,
VR II, Hjarðarhaga 2–6, stofa
157 | Málstofa verkfræðideildar
HÍ. Bjarni Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Landsvirkjunar.
Fjallað verður um orkulindir Ís-
lands, nýtingarmöguleika og nytj-
ar, náttúruverndarmál, áliðnað,
stóriðju og Kyoto-samninginn.
Einnig verður lagt út frá umræðu
í samfélaginu um þessi mál.
Myndlist
Hafnarborg | Franski ljósmynd-
arinn Bensimon hefur starfað
sem ritstjóri og aðal ljósmyndari
ELLE-tískutímaritsins. Hann hef-
ur hlotið lof fyrir störf sín og
þykja verk hans sameina afburða
ljósmyndun, tísku og hönnun. Á
sýningunni í Hafnarborg eru ljós-
myndir sem spanna 30 ára feril
listamannsins.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Í dag kl. 17
hefjast rússneskir dagar í Bóka-
safni Kópavogs, tileinkaðir geim-
rannsóknum. Ávarp rússneska
sendiherrans, barnaleikhús, fyr-
irlestur: The Philosophy of the
Russian Space Exploration, rúss-
nesk fræðslumynd um geimferðir.
Ókeypis aðgangur, kaffi og klein-
ur.
Í TILEFNI frönsku menning-
arhátíðarinnar Fransks vors
(Pourquoi Pas?) gefur Grá-
mann bókaútgáfa út spennu-
bókina Varúlfinn eftir
franska metsöluhöfundinn
Fred Vargas og er hún vænt-
anleg í bókabúðir á allra
næstu dögum.Varúlfurinn er
önnur glæpasaga Vargas sem
kemur út á íslensku. Hin
fyrri, Kallarinn, kom út 2005 og hlaut afar góðar viðtökur
gagnrýnenda. Varúlfurinn, eins og aðrar skáldsögur Fred
Vargas, er uppfullur af skemmtilegum, skringilegum og
eftirminnilegum persónum.
Bóklmenntir
Varúlfurinn kominn út hjá
Grámanni bókaútgáfu
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl.
12. Léttur hádegisverður á eftir. Samhygð kl. 20:
Sigmundur Sigfússon geðlæknir talar um sorg og
áföll.
Áskirkja | Kl. 10-12: Foreldramorgnar, opið hús. Kl.
14-16: Samsöngur undir stjórn organista Kára Þor-
mars. Kaffi og meðlæti. Kl. 17-18: Klúbbur 8-9 ára
barna. Kl.18-19: TTT-starf. Dagskrá: bíófundur.
Bústaðakirkja | Foreldramorgnar eru sam-
verustundir fyrir foreldra og börn þeirra. Boðið er
upp á hressingu á vægu verði. Mæting á bilinu 10-
12.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.15. For-
eldramorgunn kl. 10 í fræðslusal. Bænastund kl.
12. Barnastarf 6-9 ára kl. 17.15. Unglingastarf fyrir
13 ára kl. 19.30-21.30. www.digraneskirkja.is
Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12.
Fræðandi samverustundir, ýmiskonar fyrirlestrar.
Heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. TTT
fyrir 10-12 ára í Víkurskóla kl. 17-18.
Hjallakirkja | Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl.
12-14. Hádegisverður og samverustund.
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 6-9 ára starf, kl.
16.30-17.30.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM í kvöld kl. 20
á Holtavegi. Kvöldskóli KFUM. Kristín Sverrisdóttir
sér um fundinn. Kaffi á eftir. Allir karlmenn vel-
komnir.
Kristniboðsfélag kvenna | Fundur í dag í Kristni-
boðssalnum að Háaleitisbraut 58 - 60. Kaffi kl. 16.
Betsy Halldórsson er gestur fundarins. Allar konur
velkomnar.
Laugarneskirkja | Adrenalín gegn rasisma, ung-
lingastarf kl. 17. Umsjón sr. Hildur Eir Bolladóttir
og Stella Rún Steinþórsdóttir.
Laugarneskirkja | AA fundur í safnaðarheimilinu
kl. 21.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund í kvöld kl. 21. Tekið er við bæn-
arefnum af prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í
lok stundarinnar.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30.
Jóga kl. 9. Boccia kl. 10. Útskurðarnámskeið kl. 13.
Myndlistarnámskeið kl. 13. Videostund kl. 13.30.
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8-16.30 handa-
vinna. Kl. 9-16.30 smíði/útskurður. Kl. 9.30 boccia.
Kl. 10.30 helgistund. Kl. 11 leikfimi. Kl. 13.30 mynd-
list.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, almenn handavinna, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, bókband,
kaffi.
Á morgun föstudag kl. 10 verður helgistund með
sr. Hans Markúsi, félagar úr Gerðubergskórnum
leiða söng. Félagsvist á morgun, föstudag kl.
13.30. Upplýsingar í síma 5352760
Félag CP á Íslandi | Aðalfundur Félags CP á Ís-
landi verður haldinn fimmtudaginn 26. apríl, kl.
20, að Háaleitisbraut 13, Reykjavík (húsi SLF), 4.
hæð. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og
önnur mál. Eftir aðalfundinn verður fræðslufundur.
Nánari upplýsingar á www.cp.is. Stjórnin.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13.
Félag kennara á eftirlaunum | Bókmenntaklúbb-
urí KÍ-húsi kl. 14 og EKKÓ-kórinn æfir í KHÍ kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl.
9.55. Rammavefnaður kl. 9.15. Málm- og silf-
ursmíði kl. 9.30. Bókband kl. 13. Bingó kl. 13.30.
Myndlistarhópur kl. 16.30. Stólajóga kl. 17.15. Jóga
á dýnum kl. 18. Sýning myndlistarhópsins á vatns-
litamyndum stendur til 20. apríl.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 handavinna,
kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13.00
Bridsdeild FEBK (tvímenningur) og handavinna, kl.
18.15 jóga.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Karlaleikfimi kl.
13 og boccia kl. 14 í Ásgarði. Vatnsleikfimi kl. 13 í
Mýri. Handavinnuhorn eftir hádegi í Garðabergi og
tölvur kl. 17 í Garðaskóla. Garðaberg opið til 16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund,
umsjón sr. Svavar Stefánsson. Frá hádegi: vinnu-
stofur opnar, m.a. myndlist, umsjón Nanna S. Bald-
ursdóttir. Á morgun kl. 10.30 lancier danskennsla
(ath.: karlmenn vantar til þátttöku), undirbúningur
fyrir Landsmót UMFÍ í Kópavogi í júlí, umsjón Kol-
finna Sigurvinsdóttir. S: 5757720.
Hraunbær 105 | Kl. 9-12.30 postulín. Kl. 10-11
Boccia. Kl. 11-12 leikfimi. Kl. 12-12.30 hádegismatur.
Kl. 14-16 félagsvist. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Opið hús kl.
14. Kynning á hugmyndum að nýju hjúkrunarheim-
ili.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir kl. 9-16 hjá Þor-
björgu. Boccia kl. 10-11. Félagsvist kl. 13.30 kaffi og
meðlæti í hléi. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir,
hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Opið frá 9-16. Allir velkomnir.
Kíktu í kaffi og fáðu föstu dagskrána. Hali í Suð-
ursveit 20.-22. apríl. Ást 6. maí. Vorhátíð 25.-31.
maí. Hæðargarður 15 ára. Sendu netbréf og við
sendum þér dagskrána. Síminn er 568-3231.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, föstudag, er
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og
Listasmiðja á Korpúlfsstöðum kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Boccia kl. 10.30.
Sögustund kl. 10.30. Handavinnustofur kl. 13.
Boccia kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Bingó kl.
15. Upplýsingar í síma 552-4161.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu
| Hátúni 12. Skák í kvöld kl. 19.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9-12.30, bók-
band kl. 9-13, handavinnustofa opin allan daginn.
Morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10, glerskurður kl.
13, frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Félagsmið-
stöðin er opin fyrir alla aldurshópa.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og samvera.
Kl. 13 opinn salurinn. Kl. 13.15-14.15 leikfimi. Kl.
14.30 bingó/félagsvist, (bingó og félagsvist til
skiptis).
!
"
!
!# $
$