Morgunblaðið - 12.04.2007, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MJÁ... MJÁ... MJÁ... MJÁ... MJÁ...
ÞAÐ ER
TIL MÍN
MJÁ
GRÍPTU
SJNÓKORNIN
MEÐ
TUNGUNNI! MÉR
FINNST
ÞESSI
BARA
FÍN
ÞAÐ ER OF SNEMMT...
ÉG BORÐA ALDREI
SNJÓKORN Á VETURNA...
ERTU AÐ
PAKKA?
NÁÐU Í
TANNBURSTANN
ÞINN, HOBBES.
VIÐ ERUM Á
FÖRUM
ÞAÐ ER HRÆÐILEGT HVAÐ
FULLORÐNA FÓLKIÐ ER BÚIÐ
AÐ GERA VIÐ ÞESSA
PLÁNETU! ÉG NEITA AÐ
TAKA VIÐ
HENNI! ÉG
ER FARINN
HÉÐAN
HVERT
ÆTLAR ÞÚ
AÐ FARA?
ÞAÐ ER
ALLTAF SAMA
VESENIÐ Á
ÞÉR! ÉG GET
ALDREI GERT
NEITT!
ÉG BARA
SPURÐI
Í FRAMTÍÐINNI, EF EIGINMAÐUR ÞINN KEMUR
HEIM Í MAT FIMM KLUKKUTÍMUM OF SEINT OG
BYRJAR AFSÖKUNINA SÍNA Á ÞVÍ AÐ SEGJA,
„ÞÚ ÁTT EKKI EFTIR AÐ TRÚA ÞESSU...“
ÞÁ ER HANN
AÐ LJÚGA
ÉG VALDI
ÞESSA Í GÆR.
ÞAÐ ER FÁTT
EINS GOTT EINS
OG LYKTIN AF
NÝRRI BELJU
KALLI!
ÞAÐ ER ÞRIÐJUDAGUR,
DAGURINN ÞEGAR ÉG SÆKI ÞIG Í
SKÓLANN OG KEYRI ÞIG Í
TRÚARBRAGÐASKÓLANN.
VARSTU BÚINN AÐ GLEYMA ÞVÍ?
NEI
ÉG VAR BARA AÐ REYNA
AÐ KOMA MÉR Í BURTU ÁÐUR
EN ÞÚ SÆIR MIG
INN Í
BÍLINN
MEÐ ÞIG!
SMITHSON VILL KOMAST AÐ
ÞVÍ HVORT AÐ BLÓÐIÐ ÚR MÉR
GETI LÆKNAÐ SJÚKDÓMA
HANN HEFUR EKKI KOMIST AÐ
NEINU UM KÓNGULÓARBITIÐ
EN
SPURNINGIN
ER...
VÆRI RÉTT
AF MÉR AÐ
STOPPA
HANN?
dagbók|velvakandi
Lúxussalurinn í
Sambíóunum, Álfabakka
ÉG fór í Sambíóin í Álfabakka um
páskana í lúxussalinn og ekki var
það eins þægilegt og því var lýst.
Mér finnst ekki í lagi að vera rukk-
aður um fullt gjald í lúxussalinn sem
er 1800 krónur ef bíósalurinn er ekki
alveg í 100% standi. Þegar ég kom
inn í salinn voru nokkur sæti laus og
þau sem voru laus voru biluð og ekki
var hægt að nota rafdrifnu leð-
ursætin, stilla þau upp og niður og
fleira. Þetta var bara nákvæmlega
eins og venjulegur bíósalur þar sem
gjaldið inn er 900 krónur. VIP sal-
urinn er búinn glæsilegum raf-
drifnum leðursætum sem eru sér-
hönnuð fyrir hámarksþægindi. Þetta
las ég á netinu á síðu Sambíóanna
áður en ég fór í lúxussalinn en svo
virka ekki sætin. Þá finnst mér ekki
í lagi að láta okkur viðskiptavini
borga fullt gjald fyrir þetta en við
sem vorum með óvirk sæti vorum
látin fá einhvers konar koll undir
fæturna sem var ekki þægilegt. Ef
maður sat fyrir aftan stól sem virk-
aði, sem ég gerði, þá þurfti maður að
færa fæturna að sér þegar sá sem
var fyrir framan lét sætið sitt niður,
sem var ekki þægilegt. Það eina sem
virkaði var poppvélin og kókvélin og
ég ákvað eftir sýninguna að fara og
fá endurgreitt. Í hléinu var rætt við
okkur og beðist afsökunar en það
var bara ekki nóg og bætti ekki
þessa bíóferð.
Þegar myndin var búin fór ég og
ætlaði að fá endurgreitt en þá var
sagt að það væri ekki mögulegt.
Þetta finnst mér mjög lélegt, að láta
ekki einu sinni fólk vita áður en farið
er inn að sætin séu ekki í lagi, og
hvet ég núna fólk sem ætlar í lúx-
ussalinn til að spyrja áður en það fer
inn hvort það fái örugglega sæti sem
eru 100% virk – við erum að borga
þetta mikla gjald og viljum þá auð-
vitað fá það sem við eigum að fá út
úr þessu öllu fyrir peninginn okkar.
Einn óánægður bíógestur.
Önnur áfengismeðferð
ekki gagnslaus
ÞAÐ kom mér á óvart að Guð-
mundur i Mótorsmiðjunni segir að
þeir sem ná ekki að vera edrú eftir
eina meðferð nái aldrei árangri. Nú
þekki ég tvo einstaklinga sem hafa
farið oftar en einu sinni og náð mjög
góðum árangri. Annar þeirra hefur
farið oftar en 10 sinnum og hefur
verið edrú í 12 ár. Hvað segir
Mummi við þessu? Það er að heyra
að Mummi telji að alkóhólismi sé
ekki sjúkdómur. Hvað yrði sagt við
mann sem fengi hjartaáfall og fengi
lækningu en kæmi síðan aftur upp á
hjartdeild eftir 6 mánuði eftir að
hafa fengið hjartaáfall? Heyrðu vin-
ur minn, þú ert búinn að koma áður
og við getum ekki gert neitt fyrir
þig. Nei, þetta yrði aldrei sagt. Mað-
urinn fengi sína lækningu. Af hverju
er Mummi að vitna í SÁÁ af þessu
tilefni? Spyr sá sem ekki veit.
Guðjón Sigurðsson, Hátúni 10, b.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Með hækkandi sól fjölgar ferðum Reykjavíkurbúa í Laugardal. Þessi fjöl-
skylda tók forskot á sumarið og gaf öndum og gæsum brauð.
Morgunblaðið/Ómar
Fjölskylduferð í Laugardal