Morgunblaðið - 12.04.2007, Side 50
... er faðir Dannielynn,
dóttur Önnu Nicole
Smith heitinnar, samkvæmt
niðurstöðum erfðaefnisrann-
sóknar. 59
»
reykjavíkreykjavík
STUÐMENN og Sálin hans
Jóns míns leika fyrir matar- og
ballgesti á sérstökum tón-
leikum í Kaupmannahöfn síð-
asta vetrardag, 18. apríl næst-
komandi. Annars vegar leika
hljómsveitirnar undir borðum
fyrir matargesti, en eftir mat-
inn verður slegið upp balli.
Hótelpantanir í Kaupmanna-
höfn, www.kaupmannahofn.dk,
stendur fyrir skemmtuninni í
samstarfi við Icelandair, en hún
verður haldin í Circusbygn-
ingen í Jernbanegade í miðborg
Kaupmannahafnar. Að sögn
Sigurðar K. Kolbeinssonar,
skipuleggjanda skemmtunar-
innar, leika hljómsveitirnar
fyrst fyrir 800 matargesti, en
að loknu borðhaldi verður sleg-
ið upp balli og þá slást 300
gestir til í hópinn. Borðhald
stendur frá 19.30–22, en dans-
leikurinn frá 22 til 2 um nótt-
ina.
Sigurður segir að löngu upp-
selt sé á ballið, en nokkrir mið-
ar séu eftir fyrir matargesti.
Hann segir að um helmingur
matargesta komi frá Íslandi, en
annars séu þeir Íslendingar
sem búsettir séu erlendis, að-
allega í Danmörku en einnig á
öðrum Norðurlöndum.
Þorvaldur Flemming verður
veislustjóri, en einnig treður
sérstakur leynigestur upp með
hvorri hljómsveit sem Sigurður
neitar að gefa upp hverjir séu.
Leynigestur á tónleikum
Stuðmanna og Sálarinnar
Morgunblaðið/Golli
Sálin Stefán Hilmarsson með
Gospelkórnum í Höllinni.
Nýtt lag frá
vinsælustu
hljómsveit síð-
asta árs, Jeff
Who?, er vænt-
anlegt í spilun
innan skamms.
Lagið heitir
„She’s Got the Touch“.
Nýtt lag væntanlegt frá
félögunum í Jeff Who?
Íslandsmót kaffibarþjóna hefst í
dag í hótel og veitingarskólanum í
Kópavogi (MK). Undankeppni fer
fram í dag og á morgun en úrslit
ráðast á laugardag. Sigurvegarinn
keppir um heimsmeistaratitilinn í
Tókíó um mánaðamótin júlí, ágúst.
Keppt um hver blandar
besta hanastélið
Á morgun kl. 18 fer fram
áheyrnarprufa í TÞM fyrir söng-
leikinn Jesus Christ Superstar sem
Vesturport setur upp. Um er að
ræða prufu fyrir kórinn en hann
gegnir stóru hlutverki í sýningunni.
Prufa hjá Vesturporti
Reiði guðanna, heimildamynd
Jóns Gústafssonar um gerð kvik-
myndarinnar Bjólfskviðu, hlaut um
síðustu helgi áhorfendaverðlaun
Oxford International Film Festival,
sem haldin var í fyrsta skipti um
páskana í Ohio í Bandaríkjunum.
Myndin hlaut áhorfendaverðlaunin
í flokki heimildamynda í fullri
lengd. Frá þessu segir á logs.is mál-
gagni íslensku sjónvarps- og kvik-
myndakademíunnar.
Reiði guðanna hlýtur
áhorfendaverðlaun
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÉG ER ekki búinn að sjá það og veit ekki hvern-
ig mér á eftir að verða við,“ segir hinn hógværi
Garðar Thór Cortes um útiskilti sem hangir af
honum á einni fjölförnustu götu Lundúnaborgar.
Skiltið, sem er um 130 m² að stærð, gnæfir yfir
Tottenham Court við enda Oxfordstrætis og
mun hanga þar í tvær vikur í tilefni útkomu
fyrstu plötu Garðars í Bretlandi. Platan, sem ber
titilinn Cortes, kemur út næstkomandi mánudag
og er gefin út af Believer Music undir stjórn Ein-
ars Bárðarsonar.
„Efnisökin á Cortes eru voða svipuð og á
disknum sem kom út á Íslandi jólin 2005. Við tók-
um út þrjú lög af honum og settum inn fimm ný í
staðinn,“ segir Garðar.
Í gær var Cortes komin í 3. sæti yfir mest
seldu klassísku plöturnar á vef HMV-hljóm-
plötubúðanna og er eingöngu um fyrirfram
pantanir að ræða.
Garðar stendur föstum fótum á jörðinni þrátt
fyrir mikla velgengni og spurður hvort hann sé
endanlega búinn að gefa sig poppklassíkinni á
vald segist hann fyrst og fremst vera óp-
erusöngvari. „Þetta er verkefni sem ég gef tíma
núna og ef það gengur vel held ég áfram í því en
ég ætla aldrei að sleppa hinu sem ég lærði.“
Einar Bárðarson segir plötuna verða í sölu í
öllum plötubúðum og stórmörkuðum í Bretlandi
og Íslendingar megi eiga von á henni í verslanir í
maímánuði. Það er ekkert gefið eftir til að koma
Cortes á koppinn og í útgáfuvikunni fer af stað
markaðsherferð upp á tugi milljóna til að útgáf-
an fari ekki framhjá Bretum.
„Garðar hefur allt með sér; fallegan ytri og
innri mann og mikla hæfileika. Það er ástæða til
að vera bjartsýnn með gott gengi hans í Bret-
landi,“ segir Einar og bætir við að ef vel gangi
þar verði farið í áframhaldandi útrás í Evrópu.
Einar hefur litið útiskiltið af Garðar augum og
segir það glæsilegt. „Það er ekki leiðinlegt fyrir
vegfarendur að hafa hann þarna fyrir augunum,
held að kvenþjóðin kunni að meta þetta.“
Cortes Garðar Thór gnæfir yfir vegfarendum í miðborg London næstu tvær vikurnar í tilefni útkomu fyrstu plötu hans í Bretlandi á mánudaginn næsta.
Fyrir allra augum
Garðar Thór Cortes er kominn í þriðja sæti klassíska metsölulista HMV-hljóm-
plötubúðanna með plötuna Cortes sem kemur út á mánudaginn í Bretlandi
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is