Morgunblaðið - 24.04.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 9
FRÉTTIR
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Fjölbreytt úrval
Nýjar vörur
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
vPóstsendum
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Hvítar
og
svartar
skyrtur
St. 38-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Ný sending - Gallajakkar
Str. 36-56
Sími 567 7776 - Opið virka daga kl. 12-18, laugardaga kl. 11-15
LAGERÚTSALA
í Síðumúla 3-5
40-70% afsláttur af nærfatasettum
á dömur, herra og börn
OPINN fundur um velferðarmál
verður haldinn í kvöld, þriðjudag-
inn 24. apríl, kl. 20 á Grand hóteli. Í
pallborði sitja Geir H. Haarde, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, Stein-
grímur J. Sigfússon, Siv Friðleifs-
dóttir, Guðjón A. Kristjánsson,
Arndís Björnsdóttir og Ómar Ragn-
arsson.
Í fréttatilkynningu segir að í hléi
taki þeir Hannes og Smári (Ólafía
Hrönn Jónsdóttir og Halldóra Geir-
harðsdóttir) snúning á almanna-
tryggingakerfinu. Öryrkjabandalag
Íslands, Landssamtökin Þroska-
hjálp og Landssamband eldri borg-
ara standa fyrir fundinum þar sem
velferðarmál verða í brennidepli.
Forystumenn í pallborði
Fréttir á SMS
FORSVARSMENN Húsaleigu ehf.
og IntJob óskuðu eftir birtingu eft-
irfarandi yfirlýsingar:
„Undanfarin misseri hefur dægur-
þátturinn Ísland í dag fjallað ítrekað
um aðbúnað erlendra verkamanna á
Íslandi. Margt sem fram hefur komið
í umfjölluninni er misvísandi eða
hreint út sagt rangt, þegar tekið er
tillit til allra staðreynda málsins.
Í ljósi þeirra fjölmörgu rang-
færslna sem fram hafa komið sjá for-
svarsmenn Húsaleigu ehf. sig til-
neydda til þess að leita réttar síns
fyrir dómstólum. Lögmanni fyrir-
tækisins hefur verið falið að kæra
Sölva Tryggvason, dagskrárgerðar-
mann hjá Íslandi í dag, Steingrím
Sævar Ólafsson, ritstjóra þáttarins,
og Jakob Skaptason, viðmælanda
þáttarins í kvöld. Kært verður fyrir
ærumeiðingar og rógburð. Þá verður
farið fram á að fjölmörg ummæli í
þættinum í kvöld verði dæmd dauð
og ómerk og að ofangreindur við-
mælandi verði dæmdur ómerkingur
orða sinna.
Forsvarsmenn Húsaleigu ehf. hafa
ítrekað reynt að koma á framfæri
ábendingum og athugasemdum við
forsvarsmenn þáttarins, en jafnan
talað fyrir tómum eyrum. Þegar slík-
ur „fréttaflutningur“ er viðhafður
neyðist fólk til þess að draga þá
ályktun að umræddir fréttamenn
kæri sig ekki um að fréttir þeirra séu
eyðilagðar með staðreyndum.
Tökum dæmi.
Þær sjónvarpsmyndir sem Ísland í
dag notaði í umfjöllunina í kvöld voru
margar hverjar gamlar. Myndirnar
voru teknar skömmu eftir að núver-
andi eigendur fengu húsnæðið afhent
sl. sumar og voru að vinna að breyt-
ingum á því. Óhætt er því að segja að
myndirnar gefi skakka mynd af hí-
býlunum eins og þau eru í dag.
Í umfjöllun Íslands í dag er sagt að
47 menn deili litlu húsnæði þar sem
aðeins eru tvær salernisaðstöður og
ein sturtuaðstaða. Hið rétta er að
fjórar salernisaðstöður og fjórar
sturtuaðstöður eru í húsinu. Þá eru í
húsinu 37 menn á vegum IntJob
starfsmannaleigu, auk þess sem
fimm herbergi eru leigð af öðrum að-
ilum. Leigjendurnir deila með sér
alls 450 fermetrum með sameign.
Allar uppsagnir á leigu leigjenda
miðast við mánaðamót og við 30 daga
fyrirvara. Í þeim tilfellum sem leigu-
samningum hefur verið sagt upp hef-
ur það ætíð verið gert skriflega.
Um mánaðamótin mars-apríl sagði
eigandi hússins, Húsaleiga ehf., upp
öllum leigjendum hússins og tekur sú
uppsögn gildi 1. maí. Frá og með
þeim degi mun húsið allt vera leigt
einum aðila.
Leiguverð húsnæðisins er og hefur
verið markaðsverð á hverjum tíma.
Þar ræður lögmálið framboð og eft-
irspurn. Húsnæðið hefur ávallt verið
fullt og færri fengið en vilja.
Ummæli viðmælanda Íslands í dag
dæma sig sjálf. Þó er rétt að benda á
að umræddur maður er húsvörður í
húsinu og gagnrýni hans á umgengni
og frágang er í besta falli gagnrýni á
hans eigin störf.
Allir starfsmenn IntJob starfs-
mannaleigu, móðurfélags Húsaleigu
ehf., eru með skriflegan ráðningar-
samning, útbúinn af Vinnumálastofn-
un á móðurmáli viðkomandi starfs-
manns. Rétt er að undirstrika að
IntJob starfsmannaleiga fer ávallt í
hvívetna að kjarasamningum.
Að lokum má benda á að ekkert er
hæft í þeim ásökunum að starfs-
mönnum IntJob sé meinað að ráða
sig til annarra fyrirtækja á Íslandi í
tvo mánuði eftir að störfum þeirra
lýkur fyrir IntJob. Enda væri slíkt
ólöglegt með öllu.
Hér að ofan eru tekin örfá dæmi
sem sýna hversu fráleitur málflutn-
ingur Íslands í dag hefur verið.
Svona fréttamennska er til þess eins
fallin að níða af fólki skóinn án þess
að til þess sé nokkur ástæða. For-
svarsmenn Húsaleigu ehf. og IntJob
harma slíkan fréttaflutning og sjá sig
því knúna til þess að bregðast við
með þeim hætti sem að ofan getur.“
„Alvarlegar athugasemdir við
fréttaflutning Íslands í dag“
SAUTJÁN voru teknir fyrir ölv-
unarakstur á höfuðborgarsvæðinu
um helgina. Einn var stöðvaður á
föstudagskvöld, átta á laugardag og
jafnmargir á sunnudag. Tíu voru
teknir í Reykjavík, fjórir í Hafn-
arfirði og þrír í Garðabæ.
Lögreglan segir að um hafi verið
að ræða fimmtán karlmenn og tvær
konur, 18 og 52 ára. Fjórir karlanna
eru undir tvítugu en sá yngsti þeirra
er aðeins 15 ára og hefur því aldrei
öðlast ökuréttindi. Sá var á stolnum
bíl með 16 ára félaga sínum.
Tilkynnt var um 58 umferðar-
óhöpp á höfuðborgarsvæðinu um
helgina en tvö má rekja til ölvunar-
aksturs. Annað var minniháttar en í
hinu urðu miklar skemmdir á tveim-
ur bílum. Þar átti sök 33 ára karl-
maður sem missti stjórn á bíl sínum,
ók á kyrrstæðan bíl og hafnaði síðan
á grindverki. Báðir bílarnir voru
óökufærir eftir óhappið en ökumað-
urinn slapp án teljandi meiðsla.
15 ára ölvaður
ökumaður á
stolnum bíl
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt karlmann á fimmtugs-
aldri í þriggja mánaða fangelsi fyr-
ir að hafa stolið matvöru fyrir
5.089 kr. úr verslun Hagkaupa í
Kringlunni. Maðurinn játaði brotið
þegar málið var tekið fyrir og kvað
Jónas Jóhannsson dómari upp dóm
í kjölfarið. Fram kemur í dómnum
að maðurinn hafi áður verið sak-
felldur í níu skipti fyrir þjófnað,
síðast í 45 daga fangelsi árið 2005.
Fangelsi fyrir
búðarhnupl