Morgunblaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Esther Sigur-björg Valdi-
marsdóttir fæddist í
Reykjavík þann 3.
september 1929.
Hún andaðist á
heimili sínu að
Kóngsbakka 1 í
Reykjavík þann 11.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar Est-
herar voru þau
Þorvarður Valdi-
mar Jónsson frá
Eyrarbakka, f.
29.12. 1895, d. 2.10.
1937. Móðir hennar var Sigríður
Pálsdóttir, fædd á Gaddastöðum í
Rangárvallahreppi, 14.10. 1898,
d. 31.01. 1972.
Systkini Estherar voru Svava,
f. 1918, d. 1970, Elín, f. 1920, d.
1993, Jón R., f. 1921, d. 1970,
Helgi, f. 1924, d. 1995.
Esther á þrjú börn, þau eru
1) Valdimar Viðar Leifsson
gæslumaður, f. 16.5. 1947 var
giftur Maríu Ó. Baldursdóttur, f.
1949. Börn þeirra eru Grétar
Örn, f. 22.6. 1967, börn hans eru
Andri Karl, Alexandra og Eiður
Rebekka Rós, f. 29.5. 1984. Sara
Rós, f. 23.8. 1985. Sigurjón Örn, f.
21.8. 1986. Ísak Örn, f. 28.2. 1988.
Daniel Örn, f. 2.2. 1990, dóttir
hans er Ellinor Rós. Jónína Rós, f.
5.12. 1991. Esther Rós, f. 5.2.
1994. Elsta dóttir Sigurjóns með
fyrri sambýliskonu, Regínu V.
Schewing, er Esther, f. 17.2.
1969, gift Haraldi Helga Helga-
syni, börn þeirra eru Alexander,
Ísar Helgi og Klara Valgerður
Inga.
Esther var í sambúð með Leifi
Jónssyni en þau slitu samvistir.
Esther starfaði lengst af sem
þerna á Fossunum og á Hótel
Esju. Síðustu starfsárin starfaði
hún á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi við Hringbraut. Esther
var vel að sér í stjórnmálum. Hún
las mikið, hafði almennan áhuga
á bókum en hafði þó mest dálæti
á ljóðlist og kveðskap. Esther var
einnig mikil áhugamennskja um
brids. Hún ferðaðist oft til að
heimsækja börnin sín sem búsett
eru í Svíþjóð og hafa verið búsett
þar sl. 35 ár, að undanskildum
Valdimari sem flutti til Íslands ár-
ið 1997. Esther var mikil fjöl-
skydumanneskja, ræktaði fjöl-
skyldutengslin af mikilli alúð og
ástúð. Bar hún hag þeirra allra
hæst í sínu hjarta til dánardags.
Útför Estherar verður gerð frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Örn. Páll, f. 29.9.
1969, sambýliskona
hans er Arndís Úlf-
hildur Sævarsdóttir,
börn þeirra eru Sæv-
ar og Eydís María.
Vilhjálmur Viðar, f.
5.1. 1974, börn hans
eru Emillie og Nat-
halí. Margrét, f. 7.8.
1973, dóttir hennar
er María Rós.
2) Charlotta Björk
Leifsdóttir, yfir-
þjónn, f. 18.3. 1949.
Börn hennar eru
Leifur Birgir, f. 7.6. 1967, börn
hans eru Therese, Christian, Hel-
ena og Johan. Ægir Sigurbjörn, f.
5.1. 1969. Björn Halldór, f. 23.4.
1973, sambýliskona Jóhanna. Páll
f. 14.7. 1984.
3) Sigurjón Örn Leifsson, veit-
ingamaður, f. 1.4. 1950, kvæntur
Guðlaugu Ragnarsdóttur, sjúkra-
liða, f. 20.8. 1951. Börn þeirra eru
Margrét Rós, f. 13.12. 1975, sam-
býlismaður, Sigurjón Sigurjóns-
son, barn þeirra er Guðlaug Rós.
Charlotta Rós, f. 27.8. 1978, börn
hennar eru Lukas og Leon.
Með þessum orðum vil ég minnast
þín elsku amma og þakka þér fyrir
allar þær góðu stundir sem við áttum
saman. Það er skrýtin tilhugsun að
geta ekki komið oftar í heimsókn til
þín í Kóngsbakkann, þar sem þú
tókst ávallt vel á móti mér og minni
fjölskyldu. Það var yndislegt að
koma til þín í sunnudagssteikina með
krakkana, þar sem blómkálssúpan
var í miklu uppáhaldi hjá þeim. Ég
veit að þau eiga eftir að sakna þess
að geta ekki komið oftar til þín. Þú
varst falleg kona og lagðir mikið upp
úr því að vera fín og vel til höfð. Það
var gaman að spjalla við þig um dag-
inn og veginn, enda varstu vel lesin
og greind kona. Þú varst með stórt
hjarta og alltaf tilbúin að rétta hjálp-
arhönd. Ég á margar góðar minn-
ingar um þær samverustundir sem
við áttum saman og geymi ég þær í
hjartastað. Elsku amma, hvíldu í
friði og guð geymi þig.
Þín
Esther og fjölskylda.
Elsku amma Esther.
Þú varst vinur okkar og amma.
Tókst alltaf á móti okkur með opnum
örmum. Þú tókst þér ávallt tíma til
að heimsækja okkur alla leið til Sví-
þjóðar. Þú varst besta amma í heimi.
Nú hlýja allar góðu minningar um
þig okkur á þessu erfiðu stundum.
Minningar um góðar stundir með
þér, elsku amma Esther. Nú ert þú
farin en minning þín mun ávallt búa í
hjörtum okkar. Við elskum þig svo
mikið, elsku amma.
Guð geymi þig, elsku besta amma
Esther okkar.
Knús,
Margrét Rós, Charlotta Rós,
Rebekka Rós, Sara Rós,
Jónína Rós, Esther Rós,
Sigurjón Örn, Ísak Örn og
Daníel Örn.
Elsku amma mín. Þú varst ekki
bara amma mín heldur líka góð vin-
kona mín og ég sakna þín. Ég sakna
þess að sitja í sófanum hjá þér og
borða pastað þitt og fá bjórglas „svo
við yrðum stór“, sagðirðu. Já, þú
varst svala amma mín. Við töluðum
saman um allt milli himins og jarðar
og ég vissi að það færi aldrei neitt
lengra, það sem ég sagði þér. Já, þú
varst svo sannarlega vinkona mín,
elsku amma, og er ég mjög þakklát
fyrir allar þær góðu stundir sem við
áttum saman.
Ég man hve dóttir mín sofnaði
vært í fangi þínu þegar þú ruggaðir
henni og söngst „Bí bí og blaka“, sú
minning er ávallt í huga mér, henni
gleymi ég aldrei. Verðmætin í lífinu
eru góðu stundirnar með góðu fólki.
Það eru dýrmætustu minningarnar
sem ég á og geymi í hjarta mínu.
Guð geymi þig, elsku amma mín.
Knús.
Gréta.
Elsku amma okkar.
Við munum sakna þín. Lífið verð-
ur tómlegt án þín. Nú getum við ekki
lengur komið í blómkálssúpu og
lambasteik til þín á sunnudögum.
Við vonum að þú sér komin á góð-
an stað.
Stund sem kom og stund sem fór,
var stærri en lífið allt,
var stærri en nokkur mannleg skynjan veit.
Það sakar okkur ekkert, þó andi stundum svalt
því endurminning sú er nógu heit.
Minningin skal lifa til síðsta sólarlags,
er sálin aftur vitjar upphafs síns.
Það getur enginn tekið frá mérfögnuð liðins
dags
sem falinn er í leyndum hjarta míns.
(SH)
Guð geymi þig, elsku amma okkar.
Koss og knús.
Birgir og Páll.
Mig langar í fáum orðum til að
minnast elskulegrar Estherar Valdi-
marsdóttur.
Þegar mér var tilkynnt andlát
hennar fóru um hugann margar góð-
ar minningar.
Þó ber helst að minnast er Esther
kom til mín í matarboð ásamt barna-
barni sínu Margréti Rós, maka
hennar Sigurjóni og nýfæddu fyrsta
barni þeirra Guðlaugu Rós sl. sumar.
Við nutum þess að elda lengi saman,
hlusta á Edit Piaf, hlæjandi ræða öll
heimsins mál, Esther var ekkert
óviðkomandi. Þess í milli ruggaði
hún barnabarnabarni sínu, henni
Gullý Rós, í fanginu af einstakri alúð
og söng fyrir hana íslenskar vöggu-
vísur. Esther átti stóra fjölskyldu og
naut þess mikið að vera þeim góð
mamma, amma og langamma. Allt
vildi hún gera fyrir hvert og sérhvert
þeirra. Hún fylgdist vel með hvar
þau voru stödd í lífinu. Amma Est-
her, eins og hún var ávallt kölluð, var
sérstök kona, glæsileg í útliti og
ávallt vel til höfð. Ég hafði það oft á
orði við hana að hún yngdist bara
með hverju árinu en hún hló nú bara
að því. Esther hafði þægilega nær-
veru, róleg og dagfarsprúð með ein-
dæmum. Hún háði hetjulega baráttu
við sín veikindi og var sannkölluð
hetja. Hún starfaði langt umfram
starfsaldur og tók starf sitt ávallt al-
varlega enda vel liðin í vinnu. Aldrei
heyrði ég hana kvarta né tala illa um
nokkurn mann, hún sá ávallt það
góða í manninum og gladdist mikið
yfir velgengni annarra. Hún hafði
þann hæfileika að gleðjast yfir öllu
smáu, yfir litlu hlutunum. Hennar
verður sárt saknað og bið ég fyrir
kveðju til fjölskyldu hennar. Megi
góður Guð vera þeim á þessari sorg-
arstundu. Minning um góða konu lif-
ir.
Hvíl í friði, kæra Esther.
Sigurlaug Ragnarsdóttir.
Esther S.
Valdimarsdóttir
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SKÚLI ÞÓRÐARSON,
lést á hjúkrunardeild Höfða, Akranesi, sunnudaginn
22. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Bragi Skúlason, Anna Þuríður Kristbjörnsdóttir,
Hrafnhildur Skúladóttir, Ólafur Jón Guðmundsson,
Hafdís Skúladóttir, Magnús Árnason,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓNAS H. PÉTURSSON,
Hjallavegi 2,
Ísafirði,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 21. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugar-
daginn 28. apríl kl. 14.00.
Elín Valgeirsdóttir,
Guðmunda Ó. Jónasdóttir, Aðalsteinn Kristjánsson,
Pétur Þ. Jónasson, Kolbrún Halldórsdóttir,
Ingibjörg M. Jónasdóttir, Arnar Kristinsson,
Valgeir Jónasson, Elínborg Bjarnadóttir,
Baldur Þ. Jónasson, Halldóra Kristinsdóttir,
Jóhann Jónasson, Sonja Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur pabbi minn, sonur, bróðir, mágur og
frændi,
KARL RÚNAR GUÐBJARTSSON,
lést fimmtudaginn 19. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 2. maí kl. 13.00.
Unnur Steina Knarran Karlsdóttir,
Sigurborg Kristbjörnsdóttir,
Birna Guðbjartsdóttir,
Skúli Skúlason,
Sólrún Guðbjartsdóttir,
Friðrik Tryggvason,
Unnur Guðbjartsdóttir,
Ólafur Tryggvason,
Magnús Guðbjartsson,
Ester Óskarsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
sonur, bróðir, tengdasonur og mágur,
DAÐI HALLDÓRSSON,
Furugrund 14,
Akranesi,
lést fimmtudaginn 19. apríl.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
27. apríl kl. 10.30.
Kristrún Sigurbjörnsdóttir,
Bára Daðadóttir,
Hjalti Daðason, Elísa Guðrún Elísdóttir,
Leó Daðason, Erna Frímannsdóttir,
Halldór Karlsson,
Dröfn Halldórsdóttir, Lárus Hannesson,
Gauti Halldórsson, Guðrún Magnúsdóttir,
Barði Halldórsson, Hólmfríður Kristjánsdóttir,
Sigurbjörn Guðmundsson, Málfríður Ögmundsdóttir,
Elín Sigurbjörnsdóttir, Sveinn Knútsson,
María Sigurbjörnsdóttir, Guðjón Pétursson,
Guðmundur Sigurbjörnsson, Ásta Björk Arngrímsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
ODDNÝ SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Ossý,
lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 20. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Jón Gunnar Sigurðsson,
Guðrún Jónsdóttir, Stefán Pálsson,
Ólöf Jónsdóttir, Viðar Sigurjónsson,
Auður Jónsdóttir, Kristinn H. Þorsteinsson,
Ólafur Th. Jónsson, Hildur Guðjónsdóttir,
Geir Hafsteinn Jónsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
ERNA SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Bústaðavegi 95,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
22. apríl
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pétur Kjartansson.
✝
Útför
JÁTMUNDAR ÁRNASONAR
frá Sólmundarhöfða,
síðast til heimilis á
Einigrund 2,
Akranesi,
fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 26. apríl
kl. 14.00.
Aðstandendur.