Morgunblaðið - 30.04.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.04.2007, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is EKKI hefur verið gengið frá sölu á 65% hlut í búlgarska símafélaginu BTC, eins og gefið var í skyn í erlendum og innlendum fjölmiðlum um helgina. Hefur Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, kauprétt að þessum hlut en hann hefur verið í sölumeðferð síðan um áramót hjá Lehman Brothers. Verði af sölunni gæti sölu- hagnaður orðið vel á annað hundrað milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru það einkum tveir aðilar sem keppast nú um BTC, annars vegar bandarískur fjárfestingasjóður og hins vegar tyrkneskt símafélag. Er haft eftir Björgólfi Thor í búlgörskum fjölmiðlum að það muni væntanlega skýrast í lok vikunnar hvað verður um hlutinn í BTC. Munu viðræður við fyrr- nefnda aðila vera á lokasprettinum. Síðastliðinn föstudag var gengið frá sölu á ríf- lega 10% hlut í gríska farsímafélaginu Forthnet. Hluturinn er í eigu Novators en félagið heldur eft- ir álíka stórum, ef ekki stærri hlut í Forthnet. Kaupendur að bréfum Novators eru evrópskir fjárfestingasjóðir og bankar en markmið með söl- unni var að breikka hluthafahóp félagsins. Nova- tor verður eftir sem áður leiðandi fjárfestir í eig- endahópi Forthnets. Áætlað heildarverðmæti félagsins er um 400 milljónir evra þannig að hlut- ur Novators fór á um 3,8 milljarða króna. Ekki að yfirgefa símafélög í A-Evrópu Í fréttum erlendra fjölmiðla var gefið í skyn um helgina að Björgólfur Thor væri jafnt og þétt að draga sig út úr eignarhaldi á símafyrirtækjum í Austur-Evrópu. Talsmaður Björgólfs Thors sagði þetta ekki vera sannleikanum samkvæmt, í samtali við Morgunblaðið, og benti á að félög á vegum Björg- ólfs væru t.d. að auka fjárfestingar sínar í Póllandi um þessar mundir. Eðli Novators væri að vera umbreytingafjárfestir, keyra í gegn breytingar á þeim félögum sem keypt væri í og koma að nýjum stjórnendum. Slíkar breytingar hefðu verið gerð- ar á BTC og félagið væri nú komið á beina braut. Viðræður um sölu á hlut Novators í BTC á lokastigi Novator hefur selt hlut í grísku farsímafélagi á jafnvirði 3,8 milljarða króna Í HNOTSKURN »Við einkavæðingu búlgarska síma-félagsins BTC árið 2004 keypti Novator hlut í félaginu, sem nú er samanlagður um 65%. Við kaupin var andvirði hlutarins um 20 milljarðar króna. »Miðað við framkomin tilboð gæti sölu-hagnaður Novators numið vel yfir 100 milljörðum króna. Yrði það mesti innleysti söluhagnaður sögunnar hjá íslenskum fjár- festum. FJÖLMARGAR kvartanir bárust lögreglunni á Akureyri í gær vegna sinuelds á jörð bónda í Eyjafirð- inum. Lögreglan gat fátt gert sök- um þess að bóndinn hafði öll til- skilin leyfi til þess að brenna sinu. Meðal þeirra sem höfðu ama af reyknum var móðir ungs barns sem gat ekki látið barnið sofa úti í barnavagninum vegna reykmeng- unar. Þá hafði faðir drengs sam- band við lögregluna og kvartaði undan því að pilturinn, sem er með astma, gæti ekki leikið sér úti. Lögreglan segir að bóndinn hafi tilkynnt að hann hygðist brenna sinuna en honum var hins vegar bent á að það væri kannski ekki æskilegt. Hann bar því hins vegar við að hafa öll tilskilin leyfi til þess að brenna sinu á sinni landareign. Á höfuðborgarsvæðinu var einn- ig nokkuð um útköll slökkviliðs vegna sinubruna. Kvartað undan sinubruna í Eyjafirði SLÖKKVILIÐI höfuðborgarsvæð- isins barst tilkynning um eld í íbúð- arhúsi í Hafnarfirði á tíunda tím- anum í gærmorgun. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins hafði eld- ur læst sig í viftu fyrir ofan eldavél í eldhúsi. Húsráðanda hafði hins vegar tekist að slökkva eldinn af eigin rammleik þegar slökkviliðs- menn bar að garði. Slökkviliðið þurfti því aðeins að reykræsta íbúð- ina. Þá var þyrlusveit Landhelg- isgæslunnar beðin um aðstoð vegna sjúkraflugs til Hólmavíkur á laug- ardagskvöld vegna anna hjá áhöfn sjúkraflugvélar við annað verkefni. Áhöfn á TF-LIF-þyrlunni fór frá Reykjavík klukkan 22:34 og kom til Hólmavíkur klukkustund síðar. Kom hún aftur til Reykjavíkur með sjúklinginn klukkan hálfeitt eftir miðnætti. Húsráðandi réð við eldinn Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is FYRSTA, annað, þriðja – slegið! Það var handagangur í öskjunni í Súlnasal Sögu í gær þegar listmuna- salan Gallerí Fold bauð upp alls 150 muni, aðallega málverk, grafík og prent en einnig skúlptúra, persnesk teppi og ljósmyndir. Þarna voru verk eftir meistara á borð við Þór- arin B. Þorláksson, Nínu Tryggva- dóttur og Kjarval en einnig erlenda og alþjóðlega snillinga. Þeir Jóhann Ágúst Hansen og Tryggvi P. Friðriksson buðu verkin upp. Salurinn var þéttsetinn, um 300 manns á staðnum. Flestir sátu stillt- ir með töluspjaldið sitt sem maður á að lyfta hátt þegar boðið er, upp- boðshaldarinn þarf að vera vökull þegar hann hvimar augunum yfir salinn. Nokkur kátína varð þegar starfsmenn Fold- ar báru inn á sviðið geysi- stórt málverk eftir Nelson Diego af kviknakinni, ljós- hærðri stúlku með þrýstinn barm, að ekki sé tekið dýpra í árinni. Og myndin, Fljóð í fjörunni, fór á 42 þúsund krónur. „Gættu þín, ef þú birtir þetta verðurðu að ritskoða hana,“ sagði uppboðshald- arinn þegar ljósmyndarinn beindi linsunni að fljóðinu fagra. Hæsta verðið fékkst fyrir olíu- málverk eftir Jón Stefánsson, Blómauppstillingu, hún seldist á 3,9 milljónir. Auk verðsins þarf kaup- andi síðan að greiða uppboðsgjald og höfundarréttargjald sem samanlagt er gjarnan um 15% og leggst ofan á söluverðið, hæsta gjaldið er á dýr- ustu verkunum. Skúta í kvöldsól eft- ir Jóhannes Kjarval, mynd frá 1918, var metin á fimm til sex milljónir en fór á 3,8 milljónir fyrir utan gjöld. Nokkur verk voru dregin til baka þar sem ekki fékkst nógu hátt boð, meðal þeirra var litljósmynd eftir Cindy Sherman, Nipple with Dia- mond. Þrykk eftir Dieter Roth fór á 200 þúsund krónur, mynd eftir Rich- ard Serra fór á 350 þúsund og mynd eftir Andy Warhol á 750 þúsund. „Sumt fór hærra, annað lægra en ég bjóst við en oftast var þetta nokk- uð fyrirsjáanlegt,“ sagði Tryggvi. „Mynd eftir Nínu Tryggvadóttur fór á 3,5 milljónir, svo voru myndir sem komu á óvart. Lítil mynd eftir Krist- ínu Jónsdóttur, Frá Bergstaða- stræti, aðeins 23 x 34 sm, fór á 550 þúsund. Tvö mjög lítil þrykk eftir Svavar Guðnason, 13 x 14, fóru á 150 þúsund og 160 þúsund,“ sagði Tryggvi P. Friðriksson. Blómauppstilling slegin á 3,9 milljónir Bergstaðastræti eftir Kristínu Jónsdóttur fór á 550 þúsund krónur á uppboðinu. Olíumálverkið Blómauppstilling eftir Jón Stefánsson. SÍÐDEGIS í gær var sýnd óperan La Traviata í íþróttahúsinu í Varmahlíð í Skagafirði. Troðfullt var á sýningunni en yfir 600 manns sóttu hana. Í lok sýningarinnar fögnuðu áhorfendur úkraínsku söngdívunni Alexöndru Cherny- shova, Guðrúnu Ásmundsdóttur, leikstjóra sýningarinnar, og stjórn- anda Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands, Guðmundi Óla Gunnarssyni. Alexandra Chernyshova var frumkvöðull að þessum tónlistar- viðburði, en hún flutti til Hofsóss ásamt fjölskyldu sinni fyrir tveimur árum. Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson Á sjöunda hundrað á frumsýningu La Traviata EIÐUR Aðalgeirsson langhlaupari var meðal þeirra sem tókst að ljúka hinu 100 km langa Sri Chinmoy- hlaupi sem fram fór á laugardag í námunda við Amsterdam. Hiti var mikill þegar keppendur þreyttu hlaupið og luku sjö hlaupinu af þeim 10 sem ræstir voru. Tími Eiðs var um 13 klukkustundir, sem er óstaðfestur tími. Eiður Aðalgeirsson fæddist 1955 og er margreyndur maraþonhlaup- ari. Eiður hljóp 100 km í Hollandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.