Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
myndu koma í beina útsendingu um
kl. 23:30 og aftur um kl. tvö um
nóttina. Hún sagði að sérfræðingar
myndu rýna í tölurnar með frétta-
mönnum Stöðvar 2, en auk þess
yrði útsendingin blönduð skemmt-
an og fróðleik.
KOSNINGAR 2007
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
FYRSTU tölur í alþingiskosning-
unum birtast í kvöld laust eftir kl.
22 þegar kjörstöðum hefur verið
lokað. Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva breytir þar engu
um, en henni er að ljúka á svipuðum
tíma. Reiknað er með að búið verði
að birta fyrstu tölur í öllum kjör-
dæmum hálftíma eftir að kjör-
stöðum er lokað. Sjónvarpsstöðv-
arnar leggja mikinn metnað í
kosningasjónvarpið og lofa áhorf-
endum ítarlegum upplýsingum og
skemmtun.
„Úrslit söngvakeppninnar eiga
að vera ljós fyrir kl. 10. Það kann að
vera að það eigi eftir að endurflytja
sigurlagið og við munum klippa á
það rétt fyrir 10. Síðan munum við
birta fyrstu tölur í kosningunum og
endurflytja svo sigurlagið stuttu
síðar,“ sagði Páll Benediktsson,
umsjónarmaður kosningasjónvarps
RÚV, þegar hann var spurður
hvernig sjónvarpið ætlaði að koma
úrslitum söngvakeppninnar og
fyrstu tölum í alþingiskosningum til
skila.
Samkvæmt ákvæði í samningum
evrópsku sjónvarpsstöðvanna um
söngvakeppnina eru stöðvar sem
senda keppnina út skuldbundnar til
að senda hana alla út. Páll sagði að
RÚV liti svo á að stofnunin upp-
fyllti ákvæði samningsins þó að það
yrði gert með þessum hætti. Hann
sagði að það hefði áður gerst að
sama kvöld væru kosningar og
söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva.
Kjörstöðum verður lokað kl. 22
og verða fyrstu tölur í einstökum
kjördæmum birtar stuttu síðar. Ef
ekkert óvænt kemur upp á verður
búið að birta tölur í öllum kjör-
dæmum hálftíma eftir að kjör-
stöðum hefur verið lokað. Báðar
sjónvarpsstöðvar verða með beinar
útsendingar frá talningarstöðum.
Páll sagði að formenn stjórn-
málaflokkanna myndu fylgjast með
fyrstu tölum í útvarpshúsinu og um
kl. 22:30 yrði leitað álits þeirra á
tölunum í beinni útsendingu. For-
mennirnir kæmu síðan aftur í út-
sendingu um kl. eitt um nóttina.
Páll sagði að RÚV myndi notast
við fimm örbylgjusenda sem gerði
sjónvarpinu kleift að senda beint út
frá fleiri stöðum en áður. Lögð yrði
áhersla á ítarlegar talnaskýringar,
en jafnframt myndi sjónvarpið
leggja áherslu á að varðveita and-
ann frá söngvakeppninni. Það yrði
því létt yfirbragð yfir útsending-
unni og m.a. yrði sent út frá veislu
sem haldin verður á Markúsartorgi
í útvarpshúsinu.
Stöð 2 byrjar sitt kosninga-
sjónvarp kl. 21 með upphitun áður
en tölur birtast. Elín Sveinsdóttir
útsendingarstjóri sagði að í útsend-
ingunni yrði áhorfendum boðið upp
á nýja gerð af sýndarveruleika sem
ekki hefði áður sést í íslensku sjón-
varpi. Bein útsending yrði frá taln-
ingarstöðum og tölur birtar um leið
og þær lægju fyrir. Hún sagði að
útsendingu myndi ljúka þegar búið
væri að birta endanlegar tölur
nema eitthvað óvænt kæmi upp á
sem myndi tefja birtingu úrslita um
marga klukkutíma.
Elín sagði að formenn flokkanna
Leggja mikinn metnað í útsendinguna
Morgunblaðið/RAX
Rúv Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóssins, og Elín Hirst fréttastjóri á myndversæfingu fyrir stóra daginn.
Morgunblaðið/Kristinn
Stöðin Edda Andrésdóttir, Logi Bergmann Eiðsson og Kristján Már Unnarsson í myndveri Stöðvar 2 í gær.
Í HNOTSKURN
»Fyrstu tölur verða birtarlaust eftir kl. 22 og er gert
ráð fyrir að búið verði að birta
tölur frá öllum kjördæmum
um hálftíma síðar.
»Erfitt er að fullyrða umhvenær endanleg úrslit
liggja fyrir, en ef ekkert
óvænt kemur upp á í talning-
unni gæti það verið milli kl.
fimm og sex um nóttina.
AÐ SÖGN Arnars Páls Hauks-
sonar fréttamanns sem sér um
kosningaumfjöllun Ríkisútvarps-
ins verða fréttir með hefðbundnu
sniði á Rás eitt á kjördag og þær
verða „fleytifullar af kosninga-
umfjöllun, kjörsókn og slíku“.
Kosningavaka Rásar eitt hefst
klukkan 21.30 um kvöldið „og
henni lýkur ekki fyrr en allar töl-
ur liggja fyrir. Það er í sjálfu sér
útsendingin sem við leggjum
áherslu á,“ segir hann. Búist er
við fyrstu tölum klukkan 22 og
þær munu eftir það berast mjög
ört. „Það er búist við tölum úr
öllum kjördæmum á fyrstu 15
mínútunum,“ segir Arnar Páll.
Að hans sögn verður lögð áhersla
á það fyrst og fremst að koma út
tölunum og skýra þær. Útvarps-
fólk verður á kosningavökum
víða um land. „Svo njótum við
góðs af því að sjónvarpið verður
með heilmikla veislu og hér verð-
ur mikið af fólki. Við leyfum okk-
ur svolítið að spila þetta eftir
eyranu,“ segir Arnar Páll að lok-
um um leið og hann leggur
áherslu á að heilmikið verði um
að vera.
Á Rás tvö verða sagðar fréttir
á hálftíma fresti og tónlist leikin
á milli. Á sunnudeginum verður
svo þáttur á Rás tvö þar sem far-
ið verður yfir úrslitin og við-
brögð fengin við fréttum nætur-
innar í þætti milli ellefu og tólf
fyrir hádegi.
Rás eitt á
púlsinum
STARFSHÓPI um málefni útlend-
inga á íslenskum vinnumarkaði, sem
félagsmálaráðherra skipaði í júní
2006, þykir nauðsynlegt að efla sam-
vinnu stjórnvalda sem koma að þess-
um málaflokki, svo sem lögreglu,
skattyfirvalda, Fyrirtækjaskrár,
Tryggingastofnunar ríkisins, Útlend-
ingastofnunar, Vinnueftirlits ríkisins,
Vinnumálastofnunar og Þjóðskrár.
Auk þess þurfi að auðvelda stjórn-
völdum að hafa yfirsýn yfir fjölda er-
lendra ríkisborgara sem starfa á ís-
lenskum vinnumarkaði. Starfshópur-
inn sem var skipaður fulltrúa stjórn-
valda og samtaka aðila vinnu-
markaðarins hefur lokið störfum og
skilað skýrslu með tillögum til ráð-
herra.
Í fréttatilkynningu um skýrslu
hópsins kemur fram að mikilvægt sé
að fjölgun erlendra fyrirtækja og út-
lendinga hér á landi raski ekki
reglum og samskiptahefðum sem
mótast hafa á íslenskum vinnumark-
aði. Nefndin leggur m.a. til að gefin
verði út tímabundin skattkort annars
vegar í samræmi við gildistíma EES-
dvalarleyfis og hins vegar í samræmi
við gildistíma atvinnuleyfis eftir því
sem við á.
Jafnframt er lögð til sú breyting að
hafi atvinnurekandi eða annar lög-
aðili ekki sótt um kennitölu til Þjóð-
skrár á því tímamarki sem viðkom-
andi EES-borgari sækir um
EES-dvalarleyfi til Útlendingastofn-
unar geti stofnunin framsent beiðni
um útgáfu kennitölu fyrir viðkom-
andi EES-borgara til Þjóðskrár.
Til hagræðingar eru lagðar til þær
breytingar frá núverandi fram-
kvæmd að atvinnurekandi sæki ekki
um kennitölu fyrir viðkomandi út-
lending fyrr en fyrir liggur að dvalar-
og atvinnuleyfi verði veitt, ef um er
að ræða ríkisborgara ríkis utan EES.
Starfshópurinn telur brýnt að upp-
lýsingagjöf til erlendra ríkisborgara
sem koma til starfa hér á landi verði
bætt. Tryggja verði að þeir eigi
greiðan aðgang að upplýsingum um
réttindi sín og skyldur hér á landi
strax við komuna til landsins.
Starfshópurinn leggur áherslu á að
erlendir aðilar geti á auðveldan hátt
nálgast allar upplýsingar sem nauð-
synlegar eru til að þeir geti starfað
með lögmætum hætti hafi þeir hug á
að hefja atvinnustarfsemi hér á landi.
Stjórnvöld efli samstarf
í málefnum útlendinga
Morgunblaðið/Kristinn
Breytingar Mikilvægt er talið að
fjölgun erlendra fyrirtækja og út-
lendinga raski ekki samskipta-
hefðum sem mótast hafa á Íslandi.
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt karlmann í sex mánaða
fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundið,
fyrir að hafa verið með í vörslu sinni
6.548 ljósmyndir og 179 hreyfimynd-
ir sem sýndu börn á kynferðislegan
og klámfenginn hátt. Þá voru tölvur
og harður diskur, sem myndirnar
fundust á, gerð upptæk.
Í dómnum segir að um hafi verið
að ræða mikið magn af myndum. „Er
þar að finna myndir af mjög ungum
börnum, nánast niður í reifabörn,
sem svívirt eru á ruddalegan og
klámfenginn hátt. Í gögnum málsins
kemur fram að ákærði kvaðst hafa
„einhverja söfnunarþörf“ á svona
klámefni og hefði safnað því undan-
farin tvö ár þegar lögreglan lagði
hald á tölvur hans. Ákærði sagðist
hafa talið að löglegt væri að eiga slíkt
efni og auk þess sagðist hann hafa
talið að efnið væri svo tryggilega
geymt að enginn annar kæmist í það.
„Bendir það til þess að ákærði hafi
ekki verið í góðri trú með vörslur
efnisins,“ segir ennfremur í dómn-
um.
Dæmdur
í fangelsi FRAMTÍÐ ratsjár- og loftvarnar-
kerfisins á Íslandi var til umfjöll-
unar á viðræðufundi Íslendinga og
Bandaríkjamanna í Reykjavík í
gær.
Samkvæmt upplýsingum frá ut-
anríkisráðuneytinu var áfram rætt
um fyrirkomulag og fjármögnun á
kerfinu og miðaði viðræðum vel
áfram.
Stefnt er að því að halda næsta
viðræðufund fljótlega.
Viðræður um
loftvarnarkerfið
REYKJAVÍKURBORG hefur
ákveðið að selja Alliance-húsið á
Grandagarði 2. Kaupandi er Inn
Fjárfesting ehf. og verðið 925 millj-
ónir króna eða sama upphæð og
borgin greiddi fyrir eignina í lið-
inni viku.
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs, segir að borgin hafi
keypt fasteignina til að stuðla að
verndun hússins og til að treysta
skipulagið á svæðinu. Það hafi tek-
ist án kostnaðar fyrir borgina.
Borgin selur
Alliance-húsið