Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 51
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
HIN svo kallaða frjálshyggja geng-
ur út á það meðal annars að efla
fríverslun og frjáls viðskipti. Sam-
runaþróun Evrópusambandsins
(ESB) gengur út á slíkt hið sama.
Um þetta má lesa í bók Richards
Bronk, Progress and the Invisible
Hand. En af einhverjum ástæðum
eru frjálshyggjumenn, sem svo eru
nefndir, andstæðingar aðildar Ís-
lands að frekari samruna ESB með
fullri aðild Íslands að því. Þetta
gengur í berhögg við grundvall-
aratriði frjálshyggju, eins og þeim
er til dæmis lýst í inngangi Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar,
prófessors í stjórnmálafræði, að
bók Adams Smith um Auðlegð
þjóðanna á íslensku.
Eini íslenski stjórnmálaflokk-
urinn sem er hlynntur aðild Íslands
að ESB er Samfylkingin. Hún á
allan stuðning sem hún fær skilinn.
Kjósum X-S.
KJARTAN E. SIGURÐSSON,
stjórnmála- og þjóðhagfræð-
ingur.
Af Evrópumálum í að-
draganda kosninga
Frá Kjartani Emil Sigurðssyni
MÉR skilst að nú séu að koma kosn-
ingar. Sérfræðingar ASÍ hafa fundið
út að kraftaverk þurfi að koma til
svo frambjóðendur geti staðið við
loforð sín. Öll þeirra loforð eru eins
og hús reist á sandi. Þannig að mað-
ur verður einfaldlega að reyna að
geta sér til um hvernig flokkarnir
ætla að forgangsraða loforðum sín-
um. Hvað ætla þeir ekki að standa
við?
Ég sá einhvers konar úttekt í gær
á auglýsingabruðli flokkanna,
Framsókn bruðlaði mest. Í morgun
sá ég að Capacent hafði reiknað
skakkt. Framsóknarmenn bruðluðu
ekki mest. Hvað með það? Þeir eru
búnir að sitja í ríkisstjórn hundlengi
og árangur þess mun ákvarða hvort
menn kæri sig um þá lengur. Það
sem mér þótti athyglisvert var að
Sjálfstæðisflokkurinn hafði eytt
minnstu í áróður en mælist stærri
og feitari eins og púki á fjósbita í
hverri könnuninni á fætur annarri.
Og þeir hafa verið lengur að strögla
í ríkisstjórn, með og án Dabba. At-
hyglisvert.
Ég ætla að kjósa eftir fyrstu út-
gönguspár á kosningadag. Ég hef
trú á því að það sé rétti tíminn til
þess að gera upp hug sinn. Bíða með
það að taka ákvörðun þar til á síð-
ustu stundu. Maður veit aldrei hvort
menn munu koma upp um sjálfa sig
með kommentum í brjálæði á síð-
ustu stundu.
Kannski hatar formaður vinstri
grænna konur, formaður sjálfstæð-
ismanna verður handtekinn fyrir
ætlaða þátttöku í fíkniefnasölu, for-
maður Samfylkingarinnar er rasisti,
formaður Ómars og félaga reynist
hafa urðað spilliefni á Þingvöllum,
formaður frjálslyndra verður uppvís
að vörslu barnakláms. Hver veit?
Ég veit það fyrir víst, að ég vil að
flokkarnir, allir flokksbundnir Ís-
lendingar, skili helmingi þessara
auglýsingablóðpeninga aftur út í
samfélagið með sjálfboðavinnu hjá
skólum, leikskólum, háskólanum,
lögreglunni, tollinum, við upp-
græðslu og trjárækt, á heilbrigð-
issviðinu, skúri sjúkrahús, lesi fyrir
gamla fólkið, bjóði fátæklingum af
götunni heim til sín í fæði og hús-
næði, eldi á Litla-Hrauni, þrífi og
baði á Grund, tíni rusl, sópi götur,
taki að sér eftirlit eftirlitslausra
unglinga á nóttunni, hjálpi til á
heimilum langveikra, útrétti fyrir
fólk sem á bágt með að komast ferða
sinna og síðast en ekki síst gefi þeim
fjölmörgu sem mælast undir fátækt-
armörkum helming þess auglýsinga-
bruðls sem eftir stendur og flokk-
unum þykir svo nauðsynlegt.
Við erum að tala um 70 millur til
fátækra og 75 þúsund vinnustundir
til betrunar velferðarkerfisins, unn-
ar af fólki sem elskar þessa þjóð,
jafnvel hámenntað og ber afkomu
þjóðarinnar í heild fyrir brjósti. Og
það er kosningaloforð sem er nokk-
uð auðvelt að klára án þess að það
komi niður á ríkiskassanum, ekki
satt?
EYRÚN HEIÐA
SKÚLADÓTTIR,
Víðimel 38, 107 Reykjavík
Heilindi í pólitík, hugsjónafólk
eða valdagráðugt hyski?
Frá Eyrúnu Heiðu Skúladóttur
Við sem skilum auðu viljum geta
treyst stjórnmálamönnum til að
sinna starfi sínu, sem er fyrst og
fremst þjónusta við fólkið í land-
inu; ekki bara hagsmunahópa,
ekki bara einkavini, ekki bara þá
sem greiða í kosningasjóði, heldur
líka okkur hin: almenna borgara,
unga sem aldna, heila sem óheila.
Þrátt fyrir brosgrettur frambjóð-
enda, sem annars eru ævinlega
mjög ábúðarfullir á svip, erum við
sem skilum auðu ekki enn sann-
færð um ágæti eða heilindi þeirra
sem vilja þiggja þingsetu frá þjóð-
inni. Það gera sér fáir grein fyrir
því að auður atkvæðaseðill er eina
lýðræðislega NEI-ið sem við höf-
um kost á. Og það NEI er mjög
sterk sögn. Sú sögn er í stuttu
máli þessi:
„Enginn sem er í framboði hef-
ur traust mitt til að fara með völd.
Ég gef ekki atkvæði mitt heilum
flokki, þó svo að einn eða fleiri
einstaklingar þar innanborðs geti
komið til greina. Ég vil fá auð
sæti á Alþingi, í samræmi við hlut-
fall auðra seðla, sem borgaralega
áminningu til þingmanna og rík-
isstjórnar um að sinna starfi sínu
af fagmennsku og heilindum.“
Ef þú, lesandi góður, telur þig
vera sammála þessum orðum, þá
ber þér að skila auðu hinn 12. maí.
Fram að þessu hafa auðir kjör-
seðlar verið taldir upp um leið og
ógildir seðlar. Þetta hefur gert
það að verkum að fólki finnst al-
mennt að auður seðill sé næsti
bær við ógildan seðil. Þetta er
auðvitað alrangt, en hins vegar
hentar það hagsmunum flokkanna
að almenningur sé ekki upplýstur
um slagkraft auða seðilsins, og í
ljósi þeirra hagsmuna voru gerðar
eftirfarandi breytingar á kosn-
ingalögum 2003 og 2006, og þar
segir orðrétt:
100. gr. Atkvæði skal meta
ógilt:
a. ef kjörseðill er auður.
Með þessari lagagrein hefur
NEI-ið verið þaggað niður í lýð-
ræðislegum kosningum á Íslandi,
sem eru þá ekki lengur lýðræð-
islegar. Við sem skilum auðu
krefjumst þess að fá okkar NEI
aftur í hendur – og lýðræðið þar
með. Í sömu lögum segir:
125. gr. Það varðar sektum:
c. ef kjósandi ónýtir af ásettu
ráði atkvæðaseðil sinn við kosn-
ingu á kjörfundi eða við kosningu
hjá utankjörfundarkjörstjóra.
Semsagt, ef ég skila auðu hef
ég ónýtt atkvæðaseðil minn sbr.
100 gr. a) og þarf að þola sekt.
Og enn segir:
128. gr. Það varðar fangelsi allt
að fjórum árum:
a. ef maður beitir þving-
unarráðstöfunum eða ofbeldi eða
hótunum um ofbeldi til að raska
kosningafrelsi manns, annaðhvort
á þann hátt að meina honum að
greiða atkvæði eða neyða hann til
að greiða atkvæði á annan veg en
hann vill.
Í þessari síðustu lagagrein er
Alþingi búið að úthluta sjálfu sér
fjögurra ára fangelsi, því sann-
arlega er 100 gr. a) ásamt 125 gr.
c) ekkert annað en þving-
unarráðstöfun; það er verið að
meina mér að greiða atkvæði á
þann veg sem ég vil, sem er að
skila auðu, sem er að segja NEI.
Í leiðinni er útilokað að fá jafn-
mörg auð sæti á Alþingi og hlut-
fall auðra seðla segir til um.
Hvernig áhrif auðra seðla á þing-
sæti gætu virkað treysti ég hins
vegar fyllilega þeim að reikna út,
sem gerðu ofantaldar breytingar
á kosningalögunum. Slíkur út-
reikningur hlýtur að vera barna-
leikur hjá því að koma ríkisvald-
inu í fjögurra ára fangelsi,
óskilorðsbundið.
FRIÐRIK ERLINGS
býr í Hveragerði
og fæst við ritstörf.
Við sem skilum auðu
Frá Friðriki Erlings
ÞAÐ er dapurlegt að nokkrir
þingmenn skuli ætla að næla sér
í atkvæði með því að ala á andúð
í garð útlendinga. Engu síður en
þegar þingmenn sem hafa komið
hér á ströngustu innflytj-
endalögum sem gilda á byggðu
bóli sniðganga lögin þegar
venslamenn eiga í hlut. Á eyj-
unni í norðri, þar sem það tók
meir en 10 aldir að ná 300.000
íbúum, aðallega vegna nátt-
úrulegra harðinda, höfum við
verið svo heppin undanfarin ár
að búa við frjálslynda atvinnu-
stefnu. Stefnu sem hefur skapað
mörg ný störf sem kallað hafa á
fólk frá öðrum löndum. Það hef-
ur verið þrautin þyngri fyrir at-
vinnurekendur að manna öll ný
störf, enda nær ekkert atvinnu-
leysi í mörg ár.
Veiting atvinnuleyfa fyrir aðra
en aðila innan Evrópubandalags-
ins er nánast úr sögunni. Sama
gildir um heimsóknir ættingja
nýbúa frá fjarlægari löndum,
sem þurfa vegabréfsáritun til að
koma hingað sem gestir eða
ferðamenn. Hertari reglur hafa
svo mismunun og neikvæð áhrif á
nýbúa og börn þeirra.
Mikill menningarlegur auður
hefur komið með ólíkum nýbúum.
Ekki höfum við þurft að mennta
þá eða ala upp, né kostað miklu
til. Þeir hafa unnið langan vinnu-
dag og stuðlað að meiri tekjum
ríkis, bæja og lífeyrissjóða.
Nú hafa nokkrir þingmenn
Frjálslynda flokksins boðað í
stefnu sinni enn strangari inn-
flytjendalög. Nýlega bætist þeim
nýr liðsmaður, „utangarðs-
stjórnmálamaður“ sem hefur svo
lengi sem elstu menn muna reynt
að komast á þing, Jón Magnússon
lögmaður. Hentistefnumaður, sem
ekki er að sjá að hafi náð neinum
pólitískum árangri. Nýjustu skoð-
anakannanir benda til þess að
hann komist nú á þing. Fyrir
hverju skyldi hann svo ætla að
berjast á alþingi? Hertri lækn-
isskoðun fyrir Pólverja og aðra
frá Eystrasaltslöndunum. Enn
meiri skriffinnsku vegna atvinnu-
leyfa. Veit hann ekki að Evrópu-
bandalagið myndi um leið fara
fram á álíka takmarkanir fyrir Ís-
lendinga sem eru að fjárfesta og
leita tækifæra í Evrópu?
Er heilbrigðisástandið það
slæmt í þessum ríkjum að þörf sé
á slíku? Trúlega ekki. Enda þótt
kommúnistastjórnir í 50 ár hafi
niðurlægt, drepið og haldið fólki í
helsi var alla tíð viðundandi lækn-
isþjónusta í löndum Austur-
Evrópu. Til hvers vorum við fyrst-
ir til að viðurkenna sjálfstæði
þeirra, ef ekki má veita þeim at-
vinnustuðning meðan þeir rétta úr
kútnum? Það eru ekki nema tvö ár
síðan Pólverjar losnuðu við gamla
kommúnista úr stjórn landsins.
Þeir hafa búið við allt að 20% at-
vinnuleysi í mörg ár og leita nú til
eyjanna út í Atlantshafi til að
bæta upp glötuð tækifæri. Á Bret-
landseyjum eru þeir nærri milljón
og í Dublin einni um 80 þúsund.
Þar hafa þeir verið drifkraftur
aukins hagvaxtar, líkt og hér.
Ætlar Jón að úthýsa þessum
mönnum og taka þar með þátt í
stöðnun atvinnulífs? Ekki er að
sjá að Frjálslyndi flokkurinn hafi
komið mörgum málum í gegn á
Alþingi, þrátt fyrir mikinn
bægslagang. Sjálft nafnið virkar
eins og öfugmæli.
SIGURÐUR R. ANTONSSON,
Þernunesi 1, Garðabæ.
Þverlyndi flokkurinn
Frá Sigurði R. Antonssyni
Á síðasta kjörtímabili tókst okkur að efna öll okkar gömlu
kosningaloforð. Við ætlum því að nota þau enn og aftur:
Á næsta kjörtímabili bjóðum við
okkur fram til eftirtalinna verka fyrir þig:
• Að tryggja þér traust og áfallalaus fasteignaviðskipti.
• Ábyrga ráðgjöf starfsmanna með yfir 130 ár samanlagt í fasteignasölu.
• Að tryggja örugga meðferð eigna þinna og fjármuna.
• Að gæta réttmætra hagsmuna þinna hvort sem þú kaupir eða selur.
• Aðláta aðeins fólk með mikla reynslu sjá um mál þín.
HEIÐRAÐI KJÓSANDI
X-VALHÖLL
Áratuga reynsla tryggir fagleg vinnubrögð.
Ingólfur Geir Gissurarson lögg.fasteignasali.