Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 77
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ var ekki laust við að hjartað
tæki nokkur aukaslög þegar Ris-
essan gekk til móts við mig á Frí-
kirkjuvegi í gærmorgun. „Risastór
Björk Guðmundsdóttir,“ var það
fyrsta sem mér datt í hug þegar ég
leit þessa trébrúðu augum sem kom
hingað til lands til að bjarga okkur
frá reiða risanum föður sínum sem
hefur látið öllum illum látum í borg-
inni síðan hann var vakinn af mörg
hundruð ára dvala sínum. Miðbær
höfuðborgarinnar iðaði af lífi þegar
Risessan vaknaði við Hljómskálann
og hóf göngu sína, hundruð skóla-
barna störðu agndofa á þetta fyr-
irbæri sem franska götuleikhúsið
Royal de Luxe færir okkur í tilefni
Listahátíðar í Reykjavík og frönsku
menningarveislunnar Pourquoi Pas?
En það voru ekki aðeins börnin sem
glöddust því fullorðnir brostu líka
sínu breiðasta enda ekki ástæða til
annars þegar slíkur menningar-
viðburður gengur um götur, svo
spillti veðrið ekki fyrir.
Blundaði við Hallgrímskirkju
Heil hljómsveit í vagni fylgdi Ris-
essunni í upphafi og ýtti undir
stemninguna, fyrir framan Mennta-
skólann í Reykjavík varð Risessan
undrandi er hún leit eitt skemmd-
arverk föður síns augum; stræt-
isvagn klofinn með hníf sem stóð í
sárinu, við Dómkirkjuna stoppaði
hún til að skvetta úr skjóðunni og
hélt svo sem leið lá að gatnamótum
Austurstrætis og Pósthússtrætis
þar sem hún var klædd í húfu og
hlífðargleraugu og steig á hlaupa-
bretti sem hún renndi sér á að Gróf-
inni þar sem hún skoðaði goshver
sem hafði sprungið upp úr malbik-
inu. Á Lækjartorgi lék hún sér að-
eins við börnin og settist síðan á bíl
sem bar hana upp að Hallgríms-
kirkju þar sem hún fékk sér hádeg-
isblund en hélt síðan áfram að leita
föður síns í miðborginni og endaði á
hafnarbakkanum þaðan sem hún
hefur ferðina í dag.
Í viðtali við Morgunblaðið fyrr í
vikunni sagði leikstjóri Royal de
Lux, Jean Luc Courcoult, að hann
vildi að íslenskir áhorfendur fyndu
ástríðu og hamingju í hjörtum sér
þegar þeir fylgdust með sögu Ris-
essunnar. Ég er ekki frá því að það
hafi ræst í gær enda mikil karnival-
stemning í miðbænum sem gat ekki
annað en brætt hrímið af vetr-
arhjörtum Íslendinga.
Þeir sem misstu af ferðum Risess-
unnar í gær geta fylgst með henni í
dag þegar hún hittir Risann föður
sinn og lokkar hann að hafnarbakk-
anum til að bjarga Reykjavík frá
frekari eyðileggingu.
Í sól og sumaryl hóf Risessan ferð sína um miðborgina í gær
Risessan vakti undrun og hamingju
Gleði Kát börn á öllum aldri fylgdu Risessunni eftir um borgina.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Uppgefin Risessan fékk sér hádegisblund við Hallgrímskirkju.
'
(
)
(
*
+
,
+
+
,
+
+
+
,
+
'
/
0
(
1
.
+
*
+
,
+
*
2 1
3
*
+
(
,
C!
!
'
$
%
&'( "
)
*+
- *+
(
-
.
(
$
*+
- )+
+
& 0 + +
" + 11 0 )+
2
(
-
"+(30
)+(
-0 ) + -
( $
"
0
"
) 00 4
,0 )3(
)
4
*
+
-
9#, B
M5G$
G
$
** B
6**M$#
#
M
*%
0 &$ & + (
E "
<#8%
B
)
/
! " #
$ %
5
% &'( "
- *+
(- . ( $
*+
)+/$ +
"
1
0
)+
"
+(
3
0
) 00 4 ,0 )
+
3
0
5 -+
)
+
$
)3(
) 1
0
4
1 * 0
"
0* 0
%
& + + 0
($0 0
"
6
0
" 0
%
) - /
* 2 (
-
"-$
)+$ * + -
0 &$ !$ %
M
**M
<$
$ $ //
"
<#( $
0*'&?
&