Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 59 félagsins. Hann var mjög vel liðinn og átti auðvelt með að fá fólk til starfa með sér. Hann vildi vita um allar ákvarðanir deilda félagsins og hafði mikið samstarf við formenn deildanna. Ég ber mikla virðingu fyrir starfi hans sem formanns Fylk- is. Á þessum árum var húsnæði Fylk- is nánast ekkert, úr vöndu var að ráða þegar tilefni var að gera sér glaðan dag eins og kom fyrir oftar en einu sinni þegar Fylkir komst upp um deild, Kjallarinn hjá Gylfa og Hönnu var opnaður og boðið til veislu. Þetta voru frábær kvöld sem líða mér ekki úr minni. Líklega hefur enginn orðið eftir til að þrífa eða ganga frá, þetta hefur væntanlega lent á Hönnu sem kvartaði aldrei. Í dag þurfum við í Fylki Fylkishöll en í þá daga dugði kjallarinn í Glæsibæ 8. Gylfi fékk augnsjúkdóm um 1980 og dvaldist á spítala í London þar sem ég heimsótti hann. Við fórum á völlinn og sáum Tottenham spila við Southamton sem voru með bestu lið- um á sínum tíma. Við áttum mjög góða helgi sem gleymist mér aldrei, þarna sáum við frábær lið og leik- menn á heimsmælikvarða. Við hjónin Magga og ég ferðuð- umst töluvert með Gylfa og Hönnu. Ein ferð er okkur mjög minnisstæð, við vorum saman á Rimini þar sem við áttum góða daga með börnin okk- ar, Gylfi og Hanna fóru heim viku á undan okkur, við fylgdum þeim út í rútu og þegar Gylfi kveður okkur réttir hann Birgi okkar 50.000 lírur að gjöf, Birgir okkar varð mjög hrærður og sagði eftir að þau voru farinn: Við Birna höfum þá ekki ver- ið fyrir eða leiðinleg fyrst hann gaf okkur alla þessa peninga: Vasapen- ingar þeirra var 5.000 lírur á dag. Leiðir okkar hafa legið saman í Rotary-klúbbnum í Árbænum en Gylfi var einn af stofnfélögum. Við höfum notið þess að borða saman og hlustað á erindi nánast í hverri viku í mörg ár og höfum orðið fróðari um margvísleg málefni sem skipta okk- ur miklu máli. Mér er efst í huga fyr- ir nokkrum misserum þegar hann kom á fund með tvo krabbameins- lækna sem voru með hann til með- ferðar vegna ristilkrabbameins. Þessi fyrirlestur snart mig mjög mikið og marga í klúbbnum. Í nóvember fór Rotary-klúbbur- inn til Berlínar þar sem við áttum frábæra helgi saman. Gylfi og Hanna blómstruðu af ánægju með lífið og geislaði af þeim hamingja og ást. Megi guð vera með ykkur á kom- andi árum, Jóhanna, Oddgeir, Kjart- an, Unnur, Felix og barnabörn. Jón Magngeirsson Mikill merkismaður hefur nú lagt upp í sína hinstu ferð eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Gylfi Felixson er okkur vinahópnum úr Árbæjarhverfi að góðu kunnur enda óhætt að segja að við höfum verið heimalningar í Glæsibænum þar sem þau hjónin bjuggu sér stórt og fal- legt heimili. Þar voru ætíð velkomnir og tíðir gestir, æskuvinir Felixar, yngsta sonar þeirra hjóna Gylfa og Hönnu. Eftir því sem árin liðu varð heimili þeirra miðpunktur vinskapar okkar strákanna sem hófst strax í leikskóla og Glæsibær 8 á stóran þátt í því að halda saman góðum hópi sem hefur ræktað vinskap sinn í 30 ár. Þaðan eigum við fjölmargar minningar allt frá barnsaldri fram á fullorðinsár. Gufuböð okkar piltana í kjallara G8 voru fastur liður á menntaskóla- og háskólaárunum. Reglufesta, náungakærleikur og hæfilegur agi einkenndu þetta góða heimili en þar var okkur misóþekk- um drengjunum ætíð tekið fagnandi. Á heimili þeirra lærðum við góða siði og alltaf var gleði og kærleikur í há- vegum hafður þar. Mikið voru þau þolinmóð. Gylfi var kraftmikill og vinamarg- ur maður. Um það leyti sem við vor- um að vaxa úr grasi varð hann for- maður í litlu íþróttafélagi sem fékk nafnið Fylkir. Landsmenn allir þekkja þetta góða félag í dag sem spilar í úrvalsdeildum í fjölmörgum íþróttagreinum en er þó kunnast fyr- ir knattspyrnu. Vöxtur þessa félags í Árbæ hefur átt ríkan þátt í að skapa ólýsanlega stemningu í hverfinu þar sem allir sameinast í appelsínugul- um lit undir merkjum félagsins með miklu stolti. Gylfi hefur því skilið eft- ir sporin víða og mun vinahópurinn og Fylkismenn allir heiðra minningu hans á fyrsta heimaleik félagsins eft- ir rúma viku. Gylfi Felixson var afar sjarmer- andi maður sem átti gott með að hrífa aðra með sér og hans verður sárt saknað. Æskuvini okkar Felix, Klöru hans og Ísold, sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur og sömuleiðis Hönnu, börnum og barnabörnum. Minning um góðan mann mun lifa með okkur alla tíð. F.h. æskuvina Felixar úr Árbæ, Elvar, Freyr, Christopher og Pálmi. Það var okkur mik- ið áfall að heyra að Bryndís, vinkona okk- ar, væri horfin á braut svo óvænt og langt fyrir aldur fram. Nokkrum dögum fyrir andlátið hafði hún samband við okkur þrjár „stelpurnar hennar“ sem unnum undir hennar stjórn í Verzlunar- bankanum fyrir margt löngu og við höfðum ákveðið að hittast og rifja upp gamla tíma. Ætlunin var að finna dag í byrjun júní þar sem hún var á leið til Portúgals og hugðist dvelja þar fram að næstu mánaða- mótum og njóta sólarinnar og sam- vista við vinafólk. Því miður náði hún ekki að koma til baka í lifanda lífi. Bryndís var okkur sérlega góður yfirmaður. Hún kenndi okkur margt sem hefur reynst okkur gott veganesti út í lífið og hún var fyr- irmynd okkar í svo mörgu. Hún hafði ótrúlega mikla þjónustulund og var alltaf svo geislandi með sitt fallega og hlýja bros. Þrátt fyrir að við hefðum farið hver sína leið á vinnumarkaðnum og samverustund- unum fækkað þá þreyttist Bryndís aldrei á því að senda okkur kveðjur reglulega, fylgjast með lífshlaupi okkar og fullvissa sig um að okkur liði vel. Með söknuði kveðjum við góða vinkonu og sendum aðstandendum hennar okkar innilegustu samúðar- kveðjur Anna Bergs, Anna Maggý og Bergþóra Kristín. Kveðja frá fyrrverandi starfsfélögum í Verslunar- banka og Íslandsbanka Fallin er frá Bryndís Svavars- dóttir, fyrrverandi starfsmaður Verslunarbankans og Íslandsbanka. Við sem vinnum bankastörf eig- um mörg hver því láni að fagna að Bryndís Svavarsdóttir ✝ Bryndís Svav-arsdóttir fædd- ist í Reykjavík 7. apríl 1946. Hún lést í Faro í Portúgal 28. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkj- unni 11. maí. kynnast fjölda fólks sem þiggur þjónustu okkar. Oft erum við að fjalla um mál sem eru mjög mikilvæg fyrir viðskiptavini okkar, þar sem traust og trúnaður skiptir öllu máli. Þá er mik- ilvægt að viðskipta- vinurinn finni að bankastarfsmaðurinn er allur af vilja gerður að aðstoða og greiða úr málum. Þar var Bryndís á heimavelli. Þeir sem hún átti samskipti við fundu fljótt að þar var komin kona sem var tilbúin að setja sig í spor viðskiptavinarins og vildi gera það sem í hennar valdi stóð. Fólk laðast að slíkum starfsmönnum og slíkt fólk er bankanum verðmætt, því ánægðir viðskiptavinir eru forsenda fyrir góðum rekstri. Bryndís hóf störf í Verslunarbankanum árið 1964 og vann þar og í Íslandsbanka allt til ársins 1997 eða í 33 ár. Hún kynntist á þeim tíma miklum fjölda fólks, bæði viðskiptavinum og sam- starfsmönnum sem minnast hennar með jákvæðum huga. Gott dæmi um það er að í mörg ár eftir að Bryndís hætti í bankanum kom hún um hver áramót til okkar og fékk dagbækur sem hún sendi til þeirra sem hún hafði myndað sterkust tengsl við. Á kortin með bókunum hefur hún án efa skrifað með penna með rauðu bleki enda var rautt blek og rautt í bland í klæðnaði, hennar einkenni. Árið 1997 var breytingarár hjá Bryndísi. Hún hafði þörf fyrir að breyta til og langaði að takast á hendur nýjar áskoranir. Hún hætti því að vera samstarfs- maður, en hélt alla tíð síðan sam- bandi við sinn gamla vinnustað og við fundum vel að henni fannst hún eiga enn talsvert í okkur þó árin liðu. Kæra fjölskylda Bryndísar. Við sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur við fráfall hennar. Björn Sveinsson. Þegar ég flutti í stigaganginn í Efstalandi 6 var mér tekið opnum örmum af nýjasta nágranna mínum, Bryndísi Svavarsdóttur. Frá fyrsta degi fór vel á með á okkur og spjöll- uðum við oft um daginn og veginn, allt frá málefnum stigagangsins sem okkur þótti báðum vænt um að væri í sem bestu standi, til viðburða í lífi okkar. Þar með fékk ég að kynnast helstu leikmönnum í henn- ar lífi, hitti suma og þekkti aðra fyr- ir, eins og son hennar, Hauk, sem ég vann með eitt sumar í Lands- bankanum einu sinni. Jóhanna, vin- kona hennar, var ein af þeim sem ég heyrði mikið um enda held ég að betri vinkonu hefði Bryndís ekki getað átt. Hún heimsótti hana til Portúgals þegar hún hafði kost á og hlupu þær undir bagga með hvor annarri þegar á þurfti að halda. Þar var sterk vinátta á ferð og er því missir Jóhönnu ekki síður mikill en fjölskyldu Bryndísar. Þegar Bryndís fór til Portúgals eða brá sér af bæ var ég vön að taka póstinn fyrir hana og sömuleið- is var hún alltaf boðin og búin að gera slíkt hið sama fyrir mig. Hjartahlýja hennar leyndi sér held- ur ekki þegar hún bankaði upp á hjá mér til að gauka að mér ein- hverju smálegu, ýmist þegar ég hafði tekið póstinn fyrir hana í smá- tíma eða bara af því að hana langaði til að gleðja mig. Litlir hlutir eins og jólaleg dós sem í leyndist lítill bangsi úr málmi sem hægt var að stilla upp á hillu og vaggaði aðeins ef maður ýtti við honum, páska- skraut til að hengja á greinar og skrautblóm. Allt rataði þetta til mín fyrir þakklætis sakir eða einfaldlega af því að hún var þannig innrætt að hún hafði ánægju af að gleðja aðra. Hún hafði einnig ánægju af því að fegra umhverfið sem sást best á því að á stigapallinum milli hæða var ætíð að finna einhvers konar skrautmuni úr smiðju hennar. Um páska kom páskaskraut, um jól jóla- skraut. Þess á milli skipti hún út alls konar silkiblómum, plastblóm- um og inn á milli stundum annars konar munum. Allt var þetta smekklegt og lífgaði upp á stiga- ganginn. Mér þótti alltaf gaman að sjá hvað hún hugsaði vel um stiga- pallinn okkar og hafði gaman af að sjá hvað kom næst þegar eitthvað var búið að vera svolítið lengi og ég vissi að hún myndi fara að breyta til. Mér þótti óskaplega vænt um Bryndísi og mun ekki bara minnast hennar sem nágranna heldur einnig sem brosmildrar og hjartahlýrrar vinkonu. Ég mun sakna hennar úr Efstalandinu. Heiða Dögg Jónsdóttir. gleði með þínum innilegu samræðum um lífið og tilveruna. Við höfðum lengi undirbúið okkur undir það að þú gætir kvatt okkur hvenær sem var en samt varð það erfiðara en okk- ur hafði grunað. Þú varst okkur mjög náinn og kom það oft fyrir að þú spyrðir hvort þú mættir kalla okkur „mömmu“ og „pabba“ og var því greinilegt að við áttum stóran sess í hjarta þínu þessi seinustu ár þín. Nú hugsar maður til þess með brosi. Það eru margar góðar minningar sem sækja á þegar horft er til liðins tíma. Þú varst afskaplega ákveðinn og vild- ir halda í góðar hefðir innan heimilis- ins. Þótt þú vildir stundum ráða þá vildirðu samt hafa alla góða og varst tilbúinn til að gefa þeim stórt knús sem á þurftu að halda ef þeim leið illa. Það var ósjaldan sem þið Freyr fóruð saman í messu enda varstu mjög trúaður, og var það gott því þú hræddist ekki dauðann, þótt þú vissir að hann væri á næsta leiti. Frekar sagðist þú bíða spenntur eftir að hitta foreldra þína og fleiri skyld- menni sem þú saknaðir sárt. Þú varst mikill safnari og safnaðir bíómynd- um í stórum stíl. Þið Freyr fóruð oft saman í Kolaportið að kíkja á mynd- ir. Þú spurðir eitt sinn hvort Sandra safnaði ekki einhverju úr blöðunum en hún sagði þá að sér þætti fallegur boðskapur í dálknum „ást er“. Ekki leið á löngu þar til þú gafst henni heilan bunka af þeim myndadálki og hafðirðu þá klippt þetta út fyrir hana dag eftir dag í langan tíma. Svoleiðis varstu, alltaf að hugsa um aðra. Þeg- ar við hugsum til þín núna þá sjáum við þig fyrir okkur í sólinni í Lálandi, með úrklippurnar, Ragga Bjarna á fóninum, en í þetta sinn ertu rjóður í kinnum og súrefnisvélin hvergi sjá- anleg. Við söknum þín Lalli minn en vitum að þér líður vel þar sem þú ert núna. Er svíf ég yfir fannhvít fjöll, sál sem fiður, fannhvít mjöll, sem breiðir yfir bæ og sveitir, sæng sína og skjól þeim veitir. En líkami minn eftir liggur, þungur er og friðinn þiggur, er faðir minn á móti tekur, sál minni og sorgir hrekur. (Sandra Clausen) Kveðja, Sandra, Freyr og fjölskylda. Lárus naut ávallt mikillar virðing- ar hvar sem hann kom og ekki var undantekning á því á heimili hans. Við urðum þeirrar ánægju aðnjót- andi að vinna á heimili hans sem hon- um var mjög í mun að væri titlað sem fjölskylduheimili. Í Lálandinu mátti oft heyra kunn- uglegar setningar úr herbergi Lalla þegar hann var að horfa á Nonna og Manna. Þeir þættir voru í sérstöku uppáhaldi enda kunni hann þá utan að. Yndislegt var að komast með hon- um á söguslóðir Nonna og Manna nú í haust þegar íbúar Lálands héldu í ferðalag til Akureyrar. Þá voru Nonnahús, Skipalón og Möðruvellir heimsótt. Fleiri ferðalög voru farin í gegnum tíðina, til dæmis var oft farið í sumarbústaði, bæði í hans bústað á Þingvöllum sem og aðra. Minningin um svarta peningakass- ann er skemmtileg. Lárus talaði gjarnan um að „nú væri hann skít“ þegar hann vantaði peninga. Þá hringdi hann í Villa einkabanka- stjóra, bróður sinn, og bað um pen- ing. Ekki þurfti Lalli að bíða lengi þar til peningur var kominn í kass- ann á ný og þá var hægt að fara í verslunarleiðangur. Lárus var mikill foringi í eðli sínu. Hann var til að mynda fundarstjóri á flestum fundum og var þá gjarnan í sýslumannsvestinu. Hann gat jafnvel stjórnað með augnaráðinu einu sam- an. Lárus var ákveðinn í að sækja um stöðu starfsmannastjóra næst þegar hún yrði laus hjá Styrktarfélaginu enda voru starfsmannamálin honum mjög hugleikin. Þegar starfsfólk vantaði í Lálandið var hann fyrsti maður til að leita að þroskaþjálfum í símaskránni og pikkaði þá út þau nöfn sem honum leist best á. Hann reiknaði út vaktir, hélt bókhald um hvern og einn, skipaði okkur í hin ýmsu embætti og síðast en ekki síst var hann mjög duglegur að klippa út ýmsar greinar úr dagblöðum sem hann taldi að myndu nýtast okkur. Kaffibolla færði hann okkur beðinn og óbeðinn. Okkur konurnar skjall- aði hann hvenær sem tækifæri gafst. Á kvöldin var fastur liður að fara með bænirnar með honum, fyrst var farið með Faðirvorið og í kjölfarið fylgdu bænir fyrir fjölskyldu og vini, blessunarorð og heilu messukaflarn- ir. Lárus var vinnusamur og hafði mjög gaman af að vinna ýmis verk, til dæmis var hann röggsamur í salat- gerðinni og þvottinn braut hann sam- an af miklum myndarbrag. Þegar Lalli hætti að vinna úti tilkynnti hann að hann væri kominn á eftirlaun. Ekki sat hann auðum höndum heima heldur hófst handa við að klippa nið- ur blöð af miklum móð sem hann gaf á staði sem gátu nýtt pappírinn til endurvinnslu. Lalli var mikill trúmaður og naut þess mjög að fara í kirkju með Frey, vini sínum, og í nærbol fór hann aldr- ei án þess að signa sig. Mörg hugtök og setningar koma upp í hugann þegar hugsað er til Lárusar. Hann fékk sér til dæmis alltaf „kríu“ á daginn og „lagðist á hrygginn“, hann þurfti alltaf að „undirbúa sig“ undir nóttina og sagði „ég skal fyrirgefa þér“ þegar hann var að biðjast afsökunar. Nú er komið að kveðjustund og þú ert búinn að fá hvíldina sem þú tal- aðir svo oft um. Með þessum minningarorðum kveðjum við þig, kæri vinur. Starfsfólk á fjölskylduheimilinu Lálandi 23. Lárus Hjálmarsson var mikill heiðursmaður og var ég heppin að fá að kynnast honum. Þegar ég kom fyrst á heimili Lár- usar í Sigluvog 5, en Lárus vildi að Sigluvogur 5 bæri heitið fjölskyldu- heimili, var árið 1994. Á þessu heimili var mikið heiðursfólk sem tók vel á móti mér og var gott að vera hjá. Lárus var góður sögumaður og gaman var að hlusta á hann segja frá æskuárum sínum á Seyðisfirði, árun- um á Sólheimum og árunum í Drápu- hlíðinni. Hann var mjög ættfróður. Þegar ég kom í fyrsta sinn til Seyð- isfjarðar var það fyrsta verk mitt að finna húsið sem Lárus ólst upp í, Sýslumannshúsið. Láta taka mynd af mér við húsið til að gefa Lárusi, einn- ig varð ég að hringja í Lárus frá Seyðisfirði til að fá hans staðfestingu að ég væri við rétt hús og fá fleiri upplýsingar um Seyðisfjörð og Há- nefsstaðaættina sem var ættin hans. Það eru margar minningar sem ég á um þennan heiðursmann sem alltaf var mikil reisn yfir og allir báru mikla virðingu fyrir. Ég gæti skrifað margar blaðsíður um allar þessar minningar sem er svo gott að eiga. Þegar stefnt var að því að flytja úr Sigluvoginum og finna nýtt hús voru félagarnir Lárus og Jón Úlfar Líndal ótrúlega duglegir að skoða fasteigna- auglýsingar og mörg voru húsin sem við skoðuðum. Við sögðum oft á þess- um tíma að við gætum farið að opna fasteignasölu eða fasteignaráðgjöf. Það var alltaf stutt í skemmtilega húmorinn. Ég gleymi aldrei þeim tíma þegar farið var í sumarbústað Lárusar við Þingvallavatn – það var einstök upplifun og einstakur staður. Ekki er akvegur að bústaðnum en bátur sem við rerum á með farang- urinn. Lárus var mikill skipulags- maður og hafði markmið með öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Eitt markmiðið var að ferðast hringinn í kringum landið og voru Færeyjar einnig teknar með. Sumarið 1996 var hringnum lokað með ferð til Vest- fjarða sem ég varð aðnjótandi og fékk að koma að skipulagningu – þetta var frábær ferð. Margt var skoðað og farið í margar heimsóknir. Ég var svo stolt af Lárusi þegar hann stóð upp og hélt þakkarræður fyrir góða móttökur. Ég vil votta fjölskyldu Lárusar, sambýlisfólki og vinum mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Minning- arnar um Lárus lifa. Laufey Elísabet Gissurardóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.