Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Munið listmuna- og handverkssýn- inguna í dag kl. 13–7. Til sýnis listmunir sem unnir hafa verið af gestum félagsmiðstöðvarinnar. Jónas Þórir og Hjörleifur Valsson leika á píanó og fiðlu kl. 14. Hátíðarkaffi kl. 15. Félagsstarf Gerðubergs | Mánud. 14. maí kl. 16.30. ,,Vortónfundur’’ gítarnemenda Tónskóla Sigur- sveins D. Kristins. umsj. Símon Ívars. Alla föstud. kl. 10 er ,,Bragakaffi – Dægurmálastofan“ (nýjung) heitt á könnunni, spjall um dægurmál,óvæntir gest- ir o.fl. Kl. 10.30 er lagt af stað í létta göngu um ná- grennið, allir velkomnir. S. 575-7720. Hæðargarður 31 | Allir velkomnir í félagsstarfið. Alla laugardagsmorgna kl. 10 er farið í gönguferð eitthvað út í bláinn. Gengið er í 30 mín., teygjuæf- ingar á eftir, kíkt í blöðin með smáspjalli um málefni dagsins. Kíktu við. S. 568-3132. asdis.skuladott- ir@reykjavik.is. Kvenfélag Bústaðasóknar | Félags- og skemmti- fundur mánudaginn 14. maí í safnaðarheimili Bú- staðakirkju kl. 20. Kvenfélagið Fjólan frá Vogum á Vatnleysuströnd kemur í heimsókn. Kaffiveitingar. Vesturgata 7 | Mánudagur: kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30 handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–12 leikfimi. Kl. 11.45–12.45 hádegis- verður. Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Handverkssýning í dag kl. 13–16, sýndir eru munir sem gestir stöðvarinnar hafa unnið. Hátíðarkaffi, söngur og dansað við und- irleik harmónikkuhljómsveitarinnar Vitatorgs- bandsins. Allir velkomnir. Kirkjustarf Glerárkirkja | Barnakór Glerárkirkju, Æskulýðskór Glerárkirkju, nemendur úr Tónlistarskóla Akureyr- ar, Geiri gleðigaur, fuglinn Konni og fleiri hittast í Glerárkirkju á vorhátíð sunnudaginn 13. maí. Hátíð- in hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11 og stend- ur til kl. 13. Hoppukastalar, pylsur og fleira í boði. Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58–60, 3.h. Kristniboðsfélag karla heldur fund mánudaginn 14. maí kl. 20. Biblíulestur í umsjá Bjarna Gíslasonar. Allir karlmenn velkomnir. Landakirkja í Vestmannaeyjum | Guðsþjónusta og skírn. M.a. fjallað um stöðu móðurinnar á öllum tímum. Kirkjudagur Oddfellow-systra. Konur úr Rebekkustúkunni Vilborgu lesa úr Ritningunni og flytja lokabæn. Bænadagur á vori. Beðið fyrir ný- kjörnum alþingsmönnum og löggjafa Alþingis. Kaffisopi á eftir og spjall í safnaðarheimilinu. Laugarneskirkja | Vorhátíðin Laugarnes á ljúfum nótum verður á morgun sunnudaginn 13. maí kl. 14– 16 á lóð Laugarneskirkju. Leikskólabörn úr hverfinu syngja auk Barnakórs Laugarness, brúðuleikrit, hoppukastali, hljómsveitir, trúbador, grillaðar pyls- ur, kaffi og margt fleira. Lágafellskirkja | Sumarhátíð barna- og æskulýðs- starfs Lágafellskirkju verður haldið í kirkjunni kl. 11 á morgun, sunnudag. STOPP-leikhópurinn flytur okkur leikritið Eldfærin, grillað og farið í leiki. Allir velkomnir. 96ára afmæli. Í dag, 12.maí, verður níutíu og sex ára Sveinbjörg Her- mannsdóttir, Dalbraut 27. Sveinbjörg er glöð og hress og ætlar að kjósa snemma. Hún afþakkar allar gjafir en sendir innilegar þakkir til fjölskyldu sinnar og vina fyrir alla liðna afmælisdaga. Sveinbjörg verður að heiman í dag. dagbók Í dag er laugardagur 12. maí, 132. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.) Fuglahundadeild Hunda-ræktarfélags Íslands efnirtil fuglahundahátíðar umhelgina. Haldin eru próf í unghunda-, opnum og meistaraflokki veiðihunda en dagskrá hátíðarinnar nær hámarki á sunnudag þegar haldin verður fuglahundasýning í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Ólafur Örn Ragnarsson situr í stjórn fuglahundadeildarinnar og segir að von megi eiga á að líf verði í tuskunum á sýningunni á sunnu- dag: „Dómari frá Noregi kemur hingað til lands til að útlitsdæma hundana en að þessu sinni keppa Schnauzerhundar, Breton, Pointer, snögghærður Vorseth og Weim- araner, Ungversk Viszla, Enskur setter, Írskur setter og Gordon set- ter,“ segir Ólafur Örn. „Mikið er í húfi að eiga fallegasta hundinn og er von á spennandi keppni.“ Sigurveg- ararnir fá íslensk meistarastig og verðlaun sem styrkt eru af Royal Canin. Fuglahundadeild HRFÍ stendur regulega fyrir námskeiðum, prófum og mótum fyrir veiðihunda og eig- endur þeirra: „Ákveðnar tegundir hunda hafa verið sérstaklega rækt- aðar vegna eiginleika sem gagnast við veiðar. Þetta eru samvinnuþýðir hundar með góða hlaupeiginleika og næmt nef. Hægt er að kenna þessum hundum að leita að fugli upp í vind- inn og „taka stand“ á bráðina á með- an þeir bíða eftir eigandanum,“ segir Ólafur Örn. „Töluverð vinna liggur að baki þjálfun á góðum veiðihundi en áður en byrjað er að kenna hundinum veiðar þarf hann að hafa fengið góð- an grunn í hlýðniþjálfun. Hins vegar hljóta allir veiðihundaeigendur að geta verið sammála um að þessi vinna er sérlega ánægjuleg og gef- andi bæði fyrir eiganda og hund.“ Á heimasíðu fuglahundadeildar má finna ítarlegar upplýsingar um starf- semi deildarinnar, vinnueiginleika hundanna og skipulagðar æfinga- göngur sem deildin stendur fyrir. Slóðin er http://deildir.hrfi.is/vhd. Dýrahald | Hundasýning í reiðhöll Sörla á sunnudag frá 11 til 17 Fuglahundar til sýnis  Ólafur Örn Ragnarsson fædd- ist í Reykjavík 1957. Hann lauk sveinsprófi í bif- vélavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík 1978. Ólafur Örn hefur starfað sem verk- taki í byggingariðnaði í þrjá áratugi. Hann hefur setið í stjórn fugla- hundadeildar Hundaræktarfélags Ís- lands frá 1999. Ólafur Örn er kvæntur Emilíu Söe- bech lífeindafræðingi og eiga þau þrjá syni. Tónlist Angelo | Eldhúsið er opið til kl. 3 og þú getur setið í sófanum í góðra vina hópi og notið ljúfra tóna frá biggo. Komdu og kíktu á eina alvöru „lounge“-barinn á Ís- landi. Deephouse-kryddað með dassi af techno-naumhyggju. Bar 11 | Hljómsveitin Ask the Slave heldur tónleika. Café Paris | DJ Börkur alias Kuggur spilar það helsta í soul funk hiphop/rnb. Myndlist Gallerí Fold | Listamannaspjall við Guðrúnu Öyahals verður í dag kl. 15 í Gallerí Fold við Rauðarár- stíg. Þar mun Guðrún ræða um sýningu sína Arakne, sem nú stendur yfir. Að þessu sinni sýnir Guðrún teikningar unnar með lími og blýi auk smáskúlptúra úr postulíni og tvinna. Gerðuberg | Af hjartans lyst: Al- þýðulistamaðurinn Ágúst Jóns- son sýnir málverk í Boganum í Gerðubergi. Ég bið að heilsa: Sýn- ing á bútasaumsverkum sem unnin voru í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jónasar Hall- grímssonar. Sjá upplýsingar um listamanninn og tíma sýninga á www.gerduberg.is. Grafíksafn Íslands | Geoþrykk. Ellen Karin Mælhlum er norsk grafíklistakona. Verk þau sem hún sýnir nú í sal Íslenskrar graf- íkur eru unnar út frá gögnum sem hún safnaði í rannsóknarleiðöng- um á Svalbarða sem hún fór með leiðangursmönnum frá GPG (Physics of Geological Procesees http://www.fys.uio.no/pgp/). Op- ið kl. 13-17. Uppákomur Gallerí Sævars Karls | Sævar Karl kynnir á kosningadaginn nýju sumarlínuna „sævarkarl col- lection sumar ’07“ Jakkaföt, jakka, skyrtur og peysur. Áhersl- an beinist að smáatriðunum, efn- um, litum, vefnaði og frágangi. Fötin eru aðskorin, samt þægileg. Efnin eru frá frægustu vefurum á Ítalíu en klæðskerarnir frá Napólí. THANYARAT Jirapatpakorn, sem sést fyrir miðið á mynd- inni, varð í gær hlutskörpust í fegurðarsamkeppni kyn- skiptinga, eða Ungfrú Alheimur Tiffanýs. Keppnin var haldin í borginni Pattaya í Taílandi. Þær sem urðu í öðru og þriðja sæti sjást óska henni til hamingju, Parawee Chapakorn (t.v.) og Pimchanok Hongsopa. Fagrir kynskiptingar í Taílandi Reuters Skartgripir Fjallkonunnar Reynomatic Café Mílanó -hágæðaheimilistæki vi lb or ga @ ce nt ru m .is GJAFABRÉF Með Magimix safapressunni má töfra fram girnilega og heilsusamlega drykki með lágmarks fyrirhöfn. Verð frá kr.: 23.500 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 -www.eirvik.is Aðrir söluaðilar:Kokka, Laugavegi, Egg, Smáratorgi Villeroy&Boch, Kringlunni, Líf og list, Smáralind Maður lifandi, Borgartúni og Hæðarsmára Fyrir heilsuna Safapressa Fáðu sms-fréttir í símann þinn af mbl.is MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynn-ingar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.