Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 74
Samhæft sund víkur
fyrir samhæfðum loft-
gítar þar sem allir eru að
pósa… 78
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
EINHVERJIR hafa trúlega rekið
augun í heilsíðuauglýsingu frá fast-
eignasölu hér í bæ í helgarblaði
DV. Auglýsingin var kannski sér-
staklega eftirtektarverð fyrir þær
sakir að annar sölufulltrúinn, sem
stillir sér ábúðarfullur upp, er
Vernharð nokkur Þorleifsson.
Fjölhæfur
Vernharð þekkja margir undir
nafninu Venni Páer en hann fór
með hlutverk hins sjálfsörugga en
seinheppna líkamsræktarþjálfara.
Þættirnir byggðust á hugmynd
Vernharðs en hann hóf leika með
að skrifa hjá sér stutt grínatriði
þar sem efniviðurinn var að ein-
hverju leyti sóttur í margra ára
starf hans sem einkaþjálfari.
Þegar Vernharð blasir við í allt
öðru hlutverki liggur beinast við að
slá á þráðinn til hans og forvitnast
um hvort saga Venna Páers sé öll.
„Nei, nei, getur maður ekki verið
með nokkur járn í eldinum?“ spyr
Vernharð.
Það er jú vissulega möguleiki.
En hvað er að frétta af Venna Pá-
er?
„Það er verið að skeggræða
næstu þáttaröð, hvort hún verður,
hvernig og hvar,“ segir Vernharð.
„Allt efnið er tilbúið, það þarf
bara að setjast niður og ákveða
hvort af þessu verður og þá er
hægt að byrja að skrifa handritið.“
Vernharð segir að áframhaldið
velti fyrst og fremst á því við
hverja verði samið um framleiðslu
á efninu eða hvort yfir höfuð næst
að semja um það.
Spurður um hinn nýja starfsvett-
vang segist Vernharð hafa verið í
fasteignaviðskiptum í tæp tvö ár en
í dag rekur hann fasteignasölu.
Honum er því greinilega margt
til lista lagt.
Venni í Ameríku
„Eins og staðan er í dag á þetta
hug minn allan og ég reyni að sinna
þessu eins vel og ég get enda er
þetta mikilvægt starf,“ segir Vern-
harð en bætir við:
„Síðan reikar hugurinn alltaf að
því að skrifa og gera meira með
hinn blessaða Venna Páer. Það
væri leiðinlegt að skilja hann eftir í
Ameríku.“
Hvar er Venni?
Venni Efniviður er til í fleiri þætti en óvíst er hvort þeir verða framleiddir.
Valdís Þorkelsdóttir þeysist nú
um Bandaríkin með Björk og blæs í
lúður ásamt níu öðrum stúlkum. Á
milli tónleika og æfinga færir Val-
dís það sem fyrir ber inn á blogg-
síðu sína (vallarinn.blogspot.com)
sem kallast því skemmtilega tví-
ræða nafni Á túr.
Björk og fylgdarlið hefur und-
anfarnar vikur verið staðsett í New
York þar sem mikil kynning-
arstarfsemi hefur haldist í hendur
við tónleika á nokkrum af stærstu
hljómleikastöðum borgarinnar og
samkvæmt öllu má reikna með að
vel gangi.
Í nýjustu færslunni skrifar Valdís
um aðstöðuna í tónleikarútunni og
er óhætt að segja að um alvöru
rokkrútu sé að ræða:
„Hópurinn hefur nú byrgt sig vel
upp af allskyns hlutum til afþrey-
ingar, svo sem Tetris-leikjatölvum,
Apolló lakkrís, snúningsspilinu
Twister, DVD-myndum, dömubind-
um og taktmælum.
Næstu 2 vikurnar eða svo munum
við eyða mestum tíma í lúxus-
rútunni, en brassstelpurútan okkar
heitir „Whole lotta Horns“.
Það gilda skýrar reglur á ferða-
lögum í rútunni.
Í fyrsta lagi verða allir að vera
sjúklega hressir og kátir, og í öðru
lagi er stanglega bannað að gera
númer tvö. Ef svo illa vill til að ein-
hverjum verði mál, þarf viðkom-
andi að hóa í rútubílstjórann Tony
og biðja hann um að stansa sem
snöggvast.
Lúxus-rútan ber svo sannarlega
nafn með rentu, en í henni má finna
12 kósý kojurúm með sjónvarpi í
hverju rúmi, eldhús, vírlaust int-
ernet, partýpláss með sjónvarpi og
DVD-tæki, og fleira.“
„Whole lotta Horns“
á ferð um Bandaríkin
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞAÐ voru 15.000 Íslendingar sem hlustuðu dag-
lega á síðustu sakamálaseríu útvarpsleikhússins
á Rás 1,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bach-
mann, leikari og leikskáld, sem er nýskipaður
leiklistarráðunautur útvarpsleikhússins.
„Þannig að það eru rúmlega 700% fleiri sem
hlusta á sakamálaseríuna en sjá sviðsverk að
meðaltali en samt fer lítið fyrir útvarpsleikhús-
inu,“ bætir hún við en ætlun Þórdísar hjá RÚV
er að gera útvarpsleikhúsið sýnilegra og yngja
upp í leikhöfundahópnum og aldurshópnum sem
hlustar. „Mér þykir mjög vænt um útvarpsleik-
húsið í sinni hefðbundnu mynd en ég hugsa að
það megi alveg víkka það út og teygja. Það er
pláss fyrir breiðari hlustendahóp og efni sem
höfðar til fólks sem er kannski ekki hefðbundnir
hlustendur Rásar 1.“ Þórdís segir alltaf ákveð-
inn ótta fyrir hendi meðal leikhúsfólks að út-
varpsleikhúsið leggist af. „Það er eins og með
margt annað í þessu mikla framboði á afþrey-
ingu að maður verður ósjálfrátt hræddur um
listform sem tilheyra öðrum tíma. En útvarps-
leikhúsið hefur þróast líka og það eru jafnvel að
gerast framúrstefnulegri hlutir þar en á sviði.
Útvarpsleikhúsið á Íslandi hefur þorað að taka
áhættu og kynnt umdeilda höfunda fyrir þjóð-
inni, leikskáld sem hafa ekki fengið inn í sviðs-
leikhús. Reyndar má ekkert njóta sín í dag nema
það sé „hagkvæm eining“ og auðvitað eru svona
menningarperlur ekki alltaf hagkvæm eining en
varðveita samt sem áður dýrmæta hlið á sögu
þjóðarinnar og eru mikilvægt framlag í menn-
ingarflóruna.“
Spurð hver staða útvarpsleikhúsa í löndunum
í kringum okkur sé svarar Þórdís að hún sé svip-
uð og hér á landi fyrir utan í Noregi þar sem út-
varpsleikhúsið sé orðið mjög „hipp og kúl“ eftir
að farið var í átak til að fanga nýja hlustendur.
Í júlí hefur útvarpsleikhúsið flutning á tveim-
ur nýjum sakamálaseríum strax að loknum há-
degisfréttum á Rás 1, það eru Mótleikur eftir
Jón Hall Stefánsson og Sá yðar sem syndlaus er
eftir Ævar Örn Jósepsson. Stefna útvarpsleik-
hússins er sú að í framtíðinni megi hlaða niður
útvarpsleikritum af vefnum í svokölluðu hlað-
varpi fyrir ipod-tæki og nú þegar má ná í Tíma
nornarinnar eftir Árna Þórarinsson gjaldfrjálst
af vef Ríkisútvarpsins. „Við fáum margar fyr-
irspurnir um hvort það fari ekki að koma fleiri
leikrit á vefinn. Fólki finnst gaman að hlusta á
útvarpsleikrit í bílnum eða göngutúrnum,“ segir
Þórdís en verk eftir hana verður flutt í útvarps-
leikhúsinu í janúar ásamt fleiri verkum ung-
skálda.
Morgunblaðið/Ómar
Rúv Þórdís Elva er nýskipaður dramatúrgur Ríkisútvarpsins og ætlar að líka að semja eitt leikrit fyrir útvarpsleikhúsið sem verður flutt í janúar 2008.
Menningarperla
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann ætlar að hrista upp í útvarpsleikhúsi
Ríkisútvarpsins með því að ná til nýrra hlustenda og setja upp öðruvísi verk
Björk Guðmundsdóttir er sá tón-
listarmaður sem mest selst eftir í
evrópsku iTunes vefversluninni.
Útgáfa Bjarkar í Bretlandi greindi
frá því í gær. Björk sendi nýverið
frá sér breiðskífuna Volta og er nú
á tónleikaferð um Bandaríkin.
Björk sú sem selur
mest á iTunes