Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 61 ársbyrjun 1968. Nokkrir forverar hans í starfi höfðu lagt ágætan grunn að tæknimálum bæjarins en oft við nauman starfstíma. Björns biðu risavaxin verkefni í einum af stærstu og elstu bæjum landsins þar sem uppbygging í byggða- og atvinnumálum átti eftir að verða meiri og hraðari en áður hafði þekkst. Með Birni Árnasyni skap- aðist ákveðin kjölfesta í tæknimál- um og uppbyggingu bæjarins, þannig að eftir var tekið og Hafn- arfjörður býr enn að störfum hans. Til Björns leituðu tæknimenn sveitarfélaga af öllu landinu með álitamál og hann lagði jafnan mikið á sig til þess að leiðbeina og upplýsa starfsbræður sína. Það fór enginn tómhentur frá Birni Árnasyni. Samstarf sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu í tæknimálum var honum alltaf hugleikið og hann lagði sig alltaf allan fram um það að ná fram því besta fyrir heildina á þeim vettvangi, þótt smáborgaraleg hreppapólitík vofði yfir. Tæknideildir sveitarfélaga utan Reykjavíkur voru mjög fámennar og iðulega mannaðar tímabundið með ungu fólki. Björn Árnason varð því mótandi fyrir marga og hans föstu vanar og styrku stjórnunar- hættir urðu mörgum fyrirmynd. Við sem ólumst upp hjá Birni vorum kannski ekki alltaf sáttir við það að þurfa að heyra hann taka þrjú sím- töl á meðan við vorum að stynja upp einu erindi við skrifborðið hans, en eftir á að hyggja, þá leysti hann þannig greiðlega úr fjölda mála sem annars hefðu bara farið lengri leið- ina með tilheyrandi óþægindum og tímasóun. Björn gat verið býsna hvass ef á þurfti að halda en ég fullyrði að hann var aldrei ósanngjarn og mörgu málinu kippti hann í lag og í farsælan farveg með því að tala tæpitungulaust. Hörð steinsteypan og svart mal- bikið var daglegt viðfangsefni Björns en skógræktin varð hans ástríða. Aðrir eru betur til þess fallnir að fjalla um afrek hans á því sviði en líklega munu skógarnir sem hann bjó til lengi halda nafni hans á lofti. Aðstandendum sendum við hugheilar samúðarkveðjur. Það er með þökkum og sérstakri virðingu sem við minnumst heiðursmannsins Björns Árnasonar. Starfsfólk Vatnsveitu Hafnarfjarðar. ✝ KristjanaBjarnadóttir (Nanna í Breiðanesi) fæddist í Reykjavík 9. mars 1936. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands á Selfossi 6. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarni Nikulásson bifreiðarstjóri á Stokkseyri og síðar Selfossi, f. 10. ágúst 1910, d. 19. nóv. 1995, og Sesselja Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 27. des.1912, nú til heimilis að Hjalla- túni, Vík í Mýrdal. Systkini Nönnu eru Bragi bílasmiður f. 7. des. 1937, kvæntur Sigrúnu Ásgeirs- dóttur, f. 7. mars 1943, og Hall- dóra Margrét ljósmóðir og hjúkr- unarfræðingur f. 29. okt. 1949. Eftir hefðbundna skólagöngu á Stokkseyri og Selfossi tók Nanna landspróf frá Gagnfræðaskóla Sel- foss. Þá var hún einn vetur á Kvennaskólanum á Blönduósi. Hún vann hjá Kaupfélagi Árnes- inga, fyrst á Stokkseyri svo á Sel- hildur, f. 31. maí 1994 og Páll Ás- geir, f. 4. feb. 1996. 3) Helga Guð- rún, f. 8. júlí 1965. 4) Hrafnhildur, f. 14. júlí 1966, gift Ingvari Bjarna- syni, f. 5. feb. 1960, sonur þeirra er Loftur Bjarni f. 23. feb. 2001. 5) Loftur Sigurður Loftsson, f. 31. maí 1975, sambýliskona Kristrún Björg Loftsdóttir, f. 2. júní 1977. Nanna sinnti aðallega húsmóð- urstörfum, en þegar börnin voru að mestu farin að heiman, vann hún m.a. á saumastofunni á Brautar- holti á Skeiðum og sem heimilis- hjálp í Gnúpverjahreppi. Hún var virkur félagi í Kvenfélagi Gnúp- verjahrepps, átti sæti í Orlofsnefnd sunnlenskra kvenna, og var for- maður Kvenfélagsins um tíma. Kvenfélagið gerði Nönnu að heið- ursfélaga, þegar hún varð sjötug. Kórsöngur var hennar yndi alla tíð, bæði söng hún með kirkjukórunum á Stokkseyri og Selfossi og eftir að hún flutti í Breiðanes söng hún lengi með Söngfélagi Stóra- Núpskirkju. Þá var hún einn af stofnfélögum Árneskórs (síðar Vörðukórs) og söng þar meðan heilsan leyfði. Hún var gerð að heiðursfélaga Vörðukórs árið 2006. Nanna verður jarðsungin frá Stóra-Núpskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. fossi, lengst af í apó- tekinu. Hinn 26. ágúst 1961 giftist Nanna Lofti Sigurði Lofts- syni frá Sandlæk í Gnúpverjahreppi, f. 5. apríl 1937, d. 18. júní 1997. Foreldrar hans voru hjónin Loftur Loftsson bóndi þar, f. 8. okt. 1896, d. 14. mars 1978 og Elín Guð- jónsdóttir húsfreyja, f. 14. sept. 1901, d. 2. febr. 1991. Nanna og Lolli settust að á Sandlæk og byggðu sér hús, sem þau nefndu Breiðanes. Þar bjuggu þau alla sína tíð. Börn þeirra eru: 1) Sesselja, f. 27. júní 1961, var gift Jónasi Helga Sveins- syni (skildu), f. 20. mars 1953, dæt- ur þeirra eru: a) Kristjana f. 20. júní 1984, sambýlismaður Pétur Bjarnason, f. 22. des. 1982, sonur þeirra er Ari Freyr f. 3. jan. 2007, og b) Klara f. 17. apríl 1986. 2) Gunnhildur, f. 12. nóv. 1962, sam- býlismaður Björn Árnason, f. 21. maí 1959, börn þeirra eru: Ragn- Nálgast nóttin kær, nætur mildur blær niðar í laufi hlýr og vær. Ég ætla að ganga út í kvöld í aftan sólar glóð og blærinn heyrir einn mitt litla ljóð. Þegar húmið hnígur yfir grund. Hugur ávallt leitar á þinn fund. Því þú átt mig ein, – þú átt mig ein. Þig eina vil ég eiga hverja stund. Þannig kvað Loftur bróðir minn og vinur okkar til unnustu sinnar, Krist- jönu Bjarnadóttur frá Selfossi, fyrir um hartnær 47 árum. Það er margs að minnast frá fyrstu heimsókn Nönnu að Sandlæk, sem ungrar nýtrúlofaðrar stúlku, og til dagsins í dag. Örfá minningabrot líða öðrum fremur gegn um hugann þegar litið er til baka. Undirbúningur að stofnun lítils heimilis í hluta kjallarans heima á Sandlæk og síðan stofnun nýbýlis í Breiðanesi þar sem byggt var upp af miklu kappi. Börnin komu svo eitt af öðru á báðum heimilunum, Sandlæk og Breiðanesi, sem urðu síðan nánast eins og einn systkinahópur. Allt lék í lyndi og bjart virtist framundan, en þá tóku örlögin í taumana. Lolli lenti í slysi er orsakaði það að hann var að mestu leyti í hjólastól það sem eftir var ævinnar. Frá því breyttist allt í Breiðanesi og reyndar Sandlæk líka – svo samofið var líf okkar hér í Sand- lækjartorfunni. Ekki væri það að skapi Nönnu að fara að rekja þá ör- lagasögu hér nánar, enda mörgum kunn. En því er á þetta minnst að þá komu best í ljós þegar á reyndi, hvílík mannkosta manneskja hún var í raun og gegnheil ævina á enda. „Að gefast upp“ var ekki til í orðaforða fjölskyld- unnar í Breiðanesi. Lolli fór í nám við söngkennaradeild Tónlistaskóla Reykjavíkur er hann hafði náð sér á strik á ný og bjó fjölskyldan að hluta til sunnan heiðar meðan á námi stóð. Nanna og ungu dæturnar fjórar, Sesselja, Gunnhildur, Helga Guðrún og Hrafnhildur, veittu þann stuðning sem hann þurfti öll námsárin. Áttu þau öll góðar minningar frá þeim ár- um þó lífið hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Gott var að fá þau aftur al- komin í Breiðanes og lífið fór að ganga sinn vana gang á ný. Þar eign- uðust þau soninn Loft Sigurð, sem var kærkominn sólargeisli í fjölskyld- unni. Tónlistarkennsla og kórstarf setti fljótlega mark sitt á allt heim- ilislíf í Breiðanesi ásamt heimilistón- listinni er iðkuð var í „torfunni“ hve- nær sem tilefni gafst til. Er ljúft að minnast þeirra stunda er börn og full- orðnir söfnuðust saman við píanóið kring um Lolla og Nönnu á öðrum hvorum bænum og sungu af hjartans list. Þá eru okkur kærar minningar um ferðalög með þeim í byggðum og óbyggðum sem voru þeirra hjartans áhugamál alla ævi. En þau eignuðust fljótlega góðan jeppa, eftir námsárin. Kórstarf skipaði stóran sess í lífi þeirra beggja en Lolli stofnaði og stjórnaði Árneskórnum í um 20 ár eða meðan heilsa og líf entist. Nanna var ein af stofnendum hans ásamt okkur hjónunum og söng með flest árin. Lolli lést svo árið 1997, eftir nokkurra ára vanheilsu. Enn eitt áfallið og enn hélt lífið áfram hjá fjölskyldunni og okkur öllum. Nanna vann nokkur ár utan heimilis að hluta. Þá sinnti hún félagsmálum fyrir Kvenfélagið og SSK. Allstaðar var hún hrókur alls fagnaðar, tókst að dreifa glaðværð og góðvild í kringum sig. Einnig vann hún við heimilishjálp í sveitinni með- an heilsan leyfði. Hún varð fljótt au- fúsugestur hjá þeim er þess nutu – enda margfróð og vel menntuð af líf- inu, ekki síst í mannlegum samskipt- um. Áfram hélt Nanna að syngja er Vörðukórinn var stofnaður, allt til þess að heilsan bilaði. Í kórferð til Kaupmannahafnar síðastliðið sumar var hún gerð að heiðursfélaga og var það að verðleikum. Við viljum færa hjartans þakkir fyrir samfylgdina gegn um árin og biðjum fyrir kveðjur yfir móðuna miklu. „Þar bíða vinir í varpa, sem von er á gesti.“ Við send- um systkinunum í Breiðanesi og fjöl- skyldum þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu Nönnu í Breiðanesi. Guðrún og Erlingur, Sandlæk. Við systkinin höfum þekkt Krist- jönu Bjarnadóttur, eða Nönnu í Breiðanesi eins hún var kölluð, alla okkar ævi, allt frá þeim tíma sem þrjú heimili voru í stóra húsinu á Sandlæk. Frá þeim tíma eru fyrstu minningar um Nönnu, úr kjallaranum, þar sem hún dansaði twist og tjútt með Lolla og baðaði ljóshærðar stelpuhnátur í skolþrónni í þvottahúsinu. Svo gerð- ust þau Breiðnesingar en frá upphafi var mikill samgangur og samvinna milli Sandlækjar og Breiðaness bæði í búskap og frístundum. Áhugamál for- eldranna á bæjunum fóru um margt saman. Við vorum lánsöm að alast upp í þessu umhverfi. Við krakkarnir lékum okkur saman öllum stundum. Þegar við vorum Breiðanesmegin, þurfti stundum að leita til Nönnu. Hún veitti vel og sýndi okkur umhyggju á sinn glaðværa en hógværa hátt, gladdist yfir sigrum okkar og sýndi okkur samhug í sorg- um og mótlæti. Börn okkar og makar nutu þess sama þegar þau fóru að venja komur sínar í Breiðanes. Þann- ig var hún alla tíð. Þótt við hleyptum heimdraganum hefur viðkoma við eldhúsborðið í Breiðanesi verið sjálf- sagður liður í helgarheimsóknum á heimaslóðirnar. Þegar við komumst til vits og ára fórum við að átta okkur á því að Nanna var ekki bara sjálfsögð sem mamman í Breiðanesi, heldur líka manneskja sem fékk að reyna ýmis- legt um sína daga, bæði blítt og strítt. Hún tók því sem að höndum bar með jákvæðri þrautseigju og hafði lag á að lifa lífinu lifandi. Kindurnar, garður- inn og handavinnan veittu henni ánægju. Þau Lolli voru miklir félagar, deildu áhugamálum sínum og hugð- arefnum. Þau lásu mikið og miðluðu til barnanna og annarra. Nanna varð áheyrandi að allri þeirri músík sem æfð var og flutt í Breiðanesi og tók oft þátt sjálf þar heima og annars staðar. Hún var líka sú sem hann Lolli orti til þegar andinn kom yfir hann eða ef vantaði nýtt lag og texta fyrir dans- hljómsveit, kór, tríó eða kvartett. Þrátt fyrir þær hömlur sem lömun Lolla setti, naut fjölskyldan þess að ferðast um landið og vera úti í nátt- úrunni. Öðru hvoru slógumst við á Sandlæk og jafnvel fleiri með í förina, öllum til ánægju. Þetta voru ótal sunnudagsbíltúrar, veiðiferðir og berjaferðir, í Þjórsárdal, inn á hálend- ið eða til sjávar. Í þessum ferðum opnuðust augu okkar fyrir töfrum náttúrunnar. Þessi tvö síðustu ár síðan Nanna veiktist hefur hún af sinni alkunnu þrautseigju notið lífsins eftir megni, m.a. ferðast til Vestfjarða og Dan- merkur, haldið upp á sjötugsafmælið sitt, og upplifað það að verða langamma. Með hjálp og stuðningi barna og sinna og barnabarna gat hún verið í Breiðanesi nánast til hinstu stundar. Nú er stóllinn við borðsendann auður. Nanna farin frá okkur öllum inn í eilífðina, aftur til hans Lolla sem hefur tekið á móti henni sinni styrku hendi og leitt hana út í ljósa vornóttina. Nú hamla lam- aðir fætur og bilað þrek ekki lengur för um fjöll og firnindi. Úr eilífðinni munu þau fylgjast með afkomendun- um sem eftir standa. Fyrir höndi fjölskyldna okkar sendum innilegar samúðarkveðjur til kærra frændsystkina okkar í Breiða- nesi, þeirra Sesselju, Gunnhildar, Helgu Guðrúnar, Hrafnhildar og Lofts Sigurðar og fjölskyldna og einnig annarra aðstandenda. Við þökkum Nönnu í Breiðanesi allt það góða sem hún lagði okkur til í lífinu, við erum ríkari eftir. Elín, Valgerður og Loftur Erlingsbörn frá Sandlæk. Lolli og Nanna í Breiðanesi hugð- ust verða venjulegir bændur eins og hefð var fyrir á Sandlækjartorfunni. Fjárbúið varð að veruleika, en örlögin höguðu því þannig til að þau urðu tón- listarbændur en ekki kúabændur. Sú staðreynd hafði sérstök og jákvæð áhrif á lífið í Sandlækjartorfunni, smám saman urðu allir virkjaðir til þátttöku í músíkinni, sem varð grund- völlurinn að okkar skemmtilegustu samverustundum við spjall, söng og sprell við undirleik ótal hljóðfæra. Komdu út í kvöld, komdu út með mér, mig langar til að lýsa því, hve lífið gjöfult er. Þær gjafir eru gersemar sem gull ei kaupa kann, ég syng minn söng um allt það sem ég ann, allt sem best ég ann. Ljósar nætur langa daga, lóukvak og þrastaklið, lítil börn og lömb í haga, laufgan kvist og vatnanið. Glampar sól á grund og voga, gælir blítt við gróðurnál. Aftanský í eldi loga. Ljósar nætur langa daga fær landið mál. (Loftur Sigurður Loftsson) Þessar lag- og ljóðlínur voru sam- ofnar tilveru Nönnu í Breiðanesi. Við kveðjum hana með þessum línum. Syngjum, syngjum sofendum draum, vöktum vökuljóð. Barni bænum bjartari heim, sigurljóð og ástaróð. Huggum, huggum hvar sem er þörf, þann er sorgir þjá. Vermum hann með vinarhug lát hann fá oss hugsvölun hjá. Söngurinn þá svo ef ég má, sefi harm og þrá. (LSL) Blessuð sé minning hennar og heimilisins í Breiðanesi. Samferðafólk úr Sandlækjartorfunni. Við vorum fimm vinkonur sem urðu óaðskiljanlegar í árdaga lífs okk- ar. Sumar höfðu þekkst frá barn- æsku, aðrar komu seinna í hópinn. Þessi vinabönd rofnuðu aldrei þótt ör- lögin höguðu því þannig að við gengj- um hver sinn veg. Nú hefur ein úr hópnum kvatt. Kristjana Bjarnadóttir, Nanna, eftir stranga baráttu við illvígan sjúkdóm, sem hún tókst á við af miklu æðru- leysi. Minningarnar streyma fram tengdar Nönnu. Unglingsárin – setið við eldhúsborðið á Lyngheiði 9, hjá Sesselju og Bjarna, alltaf velkomnar í spil og spjall. Uppi í herbergi að spá í föt og stráka. Þórsmerkurferðirnar ógleymanlegu í boddýbílum. Öll skemmtilegu böllin og ævintýrin sem við rötuðum í. Þar var vinsælust Hljómsveit Óskars Guðmundssonar, sem var elt um Suðurland þvert og endilangt og þar varð upphaf kynna Nönnu og bassaleikara hljómsveitar- innar, Lofts Sigurðar Loftssonar, Lolla, frá Sandlæk í Gnúpverja- hreppi, sem enduðu með hjónabandi. Nanna og Lolli byggðu úr landi Sandlækjar nýbýlið Breiðanes og bjuggu þar til æviloka. En ekki fer allt eins og ætlað er. Lolli lenti í hrika- legu slysi þegar Nanna gekk með fjórða barn þeirra hjóna og var bund- inn við hækjur og hjólastól upp frá því. Þá reyndi á vinkonu okkar og alla tíð síðan. Hún var vakin og sofin yfir manni sínum og studdi hann með ráð- um og dáð. En hann átti streng í hörpu sinni sem hann gat nýtt sér og fjölskyldu sinni til framdráttar, það var tónlistin. Hann dreif sig í Tónlist- arskólann í Reykjavík, með góðra manna hjálp, og gerðist síðan tónlist- arkennari við Tónlistarskóla Árnes- inga og mikilvirkur kórstjóri, laga- og textahöfundur. Nanna missti mann sinn fyrir all- nokkrum árum, en heilsu hans hrak- aði smátt og smátt þegar líða tók á ævina. Þau Lolli eignuðust fimm mannvænleg börn sem stutt hafa við bak foreldra sinna og nú síðast móður sinnar eftir að hún veiktist. Það verð- ur ekki á neitt þeirra hallað þó við nefnum sérstaklega Sesselju dóttur þeirra. En hún hætti í vinnu og flutti til móður sinnar í Breiðanes svo hún gæti verið sem lengst heima. Elsku vinkona okkar fékk hægt andlát eftir erfiða raun. Nú er hún farin til æðri heima til samfundar við Lolla sinn og aðra ástvini sem á und- an eru gengnir. Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að Ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. – Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. (Jón frá Ljárskógum) Fjölskyldunni allri sendum við innilegar samúðarkveðjur. Steinunn Helga Sigurðardóttir, Margrét Lúðvígsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir og Elín Arnoldsdóttir. Kristjana Bjarnadóttir Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningar- greinunum. Undirskrift | | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.