Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT GORDON Brown, fjármálaráð- herra Bretlands og líklega næsti forsætisráðherra, viðurkenndi í gær, að margt hefði farið úrskeiðis í Írak. Boðaði hann breytingar á áherslum bresku stjórnarinnar í Íraksmálum. Tony Blair, sem lætur af for- sætisráðherraembætti 27. júní næstkomandi, hefur aldrei beðist afsökunar á þeirri ákvörðun sinni að styðja George W. Bush Banda- ríkjaforseta og innrásina í Írak en þegar Brown var spurður um af- stöðu sína kvaðst hann viðurkenna, að mönnum hefðu orðið á mistök. Hann lagði hins vegar þunga áherslu á, að breska stjórnin myndi standa við skuldbindingar sínar í Írak enda væri á um þær kveðið í ályktunum Sameinuðu þjóðanna. Brown sagði einnig, að setja þyrfti í Bretlandi nýjar reglur um það hvernig ákveðið væri að hefja hernaðar- aðgerðir gegn öðrum ríkjum. Því hefur lengi verið haldið fram, að þeir Bush og Blair hafi leitt þjóðir sínar út í ólög- legt stríð en Brown sagði, að menn yrðu að læra af mistökunum. Blair lýsti í gær yfir stuðningi sínum við Brown sem eftirmann sinn og sagði hann mikinn hæfi- leikamann. Hann væri trúlega besti fjármálaráðherra í sögu landsins og reynsla hans myndi gera hann að góðum forsætisráðherra. Gordon Brown viðurkennir margvísleg mistök í Írak Gordon Brown, lík- legur eftirmaður Tonys Blairs. BANDARÍSKIR og þýskir emb- ættismenn sögðu í gær að talið væri að hryðju- verkamenn væru að undirbúa árás í Þýskalandi. Wolfgang Schäuble, innan- ríkisráðherra Þýskalands, sagði að „mikil hætta“ væri á árás. Talsmaður þýska inn- anríkisráðuneytisins sagði þó í gærkvöldi að þetta væri ekki nýtt mál, heldur tengdist það viðvörun sem gefin var út 20. apríl. Bandaríska sjónvarpið ABC sagði að embættismenn hefðu eink- um áhyggjur af hugsanlegri árás á mannvirki Bandaríkjahers nálægt Stuttgart þar sem bandaríski her- aflinn í Evrópu er með höf- uðstöðvar. Hermt er að meintir hryðjuverkamenn hafi fylgst grannt með mannvirkjunum. „Markmiðið með árás yrði að valda miklu mannfalli meðal Þjóð- verja og bandarískra hermanna,“ sagði Richard Clarke, fyrrverandi yfirmaður baráttu Bandaríkja- stjórnar gegn hryðjuverkum. Talið er að 300-500 manns í Þýskalandi séu í hópum sem tengjast al-Qaeda. Óttast árás í Þýskalandi Wolfgang Schäuble LEIÐTOGI Gíneu, Lansana Conte, samþykkti í gær að hefja viðræður við hermenn sem hafa mótmælt vangoldnum launum síðustu daga í óeirðum sem hafa kostað a.m.k. sjö manns lífið. Tugir manna hafa særst í óeirðunum. Ólga í hernum FRAKKI, sem starfaði á vegum hjálparstofnunar í Afganistan, var leystur úr haldi mannræningja í gær. Talibanar, sem rændu mann- inum 3. apríl, sögðust einnig ætla að sleppa þremur afgönskum starfsmönnum stofnunarinnar. Frakka sleppt JAPÖNSKU bílaverksmiðjurnar Honda hyggjast markaðssetja vetn- isfólksbíl í Bandaríkjunum á næsta ári, í takmörkuðu upplagi þó. Er reynslunni af notkuninni og vetnis- jeppa frá General Motors ætlað að aðstoða við útbreiðslu tækninnar. Honda fer í vetnið KOSOVO-hérað gæti orðið sjálf- stætt fyrir lok mánaðarins, að því er Nicholas Burns, aðstoðarut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, gaf í skyn í gær. Jafnframt sagði Burns fulltrúa Bandaríkjanna mundu dreifa ályktun þessa efnis í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Sjálfstæði í nánd? NÆR milljón manna sótti útimessu í Sao Paulo í Brasilíu í gær þegar Benedikt XVI páfi tók munkinn Antonio de Sant’Ana Galvao í dýrlingatölu. Galvao er fyrsti dýr- lingurinn sem fæddist í Brasilíu, fjölmenn- asta landinu þar sem kaþólikkar eru í meiri- hluta. Galvao var uppi á árunum 1739-1822 og stofnaði klaustur víða í Brasilíu. Hann er þó þekktastur fyrir kraftaverkalækningar og kirkjan telur að rekja megi 5.000 lækningar til hans. Síðar í gær ræddi páfi við um 430 bras- ilíska biskupa í dómkirkju í Sao Paulo. Brasilíumaður í tölu dýrlinga Páfi við messu í Sao Paulo. MÚSLÍMSK kona bíður eftir vatni við Búddahof í Bangladesh en vatnsskortur hefur verið þar sums stað- ar að undanförnu. Settu búddistarnir ekki trúarbrögð- in fyrir sig, heldur létu þeir hjálpsemina ráða för. AP Skortur á vatni í Bangladesh París. AFP. | Nicolas Sarkozy, verðandi forseti Frakklands, er sagður hafa farið með rangt mál er hann sagði, að auðkýfingurinn Vincent Bollore, sem lánaði hon- um lystisnekkju á dögunum, hefði ekki átt nein við- skipti við franska ríkið. Sarkozy var gagnrýndur harð- lega fyrir að hafa notað 60 metra langa snekkju Bollores og að auki að hafa látið einkaþotu auðkýfings- ins flytja sig til Möltu. Sagt var, að samskipti af þessu tagi væru mjög óheppileg og beinn hagsmuna- árekstur. Stórir samningar Þeir Bollore og Sarkozy eru gamlir vinir og báðir svöruðu þeir gagnrýninni með því að fullyrða, að fyrirtæki og fjölmiðlaveldi Bollores hefði ekki átt í neinum samningum við franska ríkið. Annað er þó kom- ið á daginn. Samkvæmt opinberum skjölum, sem hægt er að skoða á Netinu, hefur Bollore-samsteypan gert samninga upp á 40 milljónir evra, um 3,5 milljarða króna, á síðustu tveimur árum. Hefur hún meðal annars gert samninga við franska utanríkis- og varnarmálaráðuneytið. Bollore-fyrirtækið, sem var stofn- að 1822 og sérhæfði sig þá í fram- leiðslu pappírs í biblíur, veltir nú árlega um 500 milljörðum króna. Ekki rétt hjá Sarkozy Nicolas Sarkozy ÁSTRALSKIR vísindamenn skýrðu frá því í gær, að þeir hefðu þróað krabbameinsmeðferð, sem fælist í því að flytja eða koma „banvænum lyfjaskammti“ inn í æxli án þess að aukaverkanir fylgdu, til dæmis ógleði eða hármissir. Jennifer MacDiarmid, einn vís- indamannanna, sagði, að við venju- lega lyfjameðferð væri allur lík- aminn útsettur og raunar gæti hún riðið sumum sjúklingum að fullu. Nýja meðferðin, sem byggist á nanótæki, beinist hins vegar aðeins að krabbameinsfrumunum sjálfum. MacDiarmid sagði, að tæknin fælist í því að láta bakteríur, sem gerðar hefðu verið ófrjóar ef svo má segja, sviptar getu til skipta sér og fjölga, sjá um að ferja lyfin á áfangastað, inni í krabbameinsæxl- ið. Eru þessar bakteríur eða frumur aðeins einn fimmti af stærð venju- legra frumna og eru þær hlaðnar mótefnum, sem dragast að krabba- meinsæxlum. Þegar þangað er komið losna lyfin úr læðingi inni í æxlinu sjálfu. Sagt er frá tilraunum með þetta á músum í bandaríska krabbameins- tímaritinu Cancer Cell og er árang- urinn sagður mjög góður. MacDiarmid segir, að aðferðin bjóði upp á skraddarasaumaðar lyfjablöndur og muni draga veru- lega úr kostnaði vegna þess, að lyfjamagnið verður miklu minna. Bakteríur sem lyfjaferja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.