Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 67 ar, sr. Guðmundur Karl Ágústsson, sr. Svavar Stefánsson og Ragnhild- ur Ásgeirsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Gerðubergskórinn undir stjórn Kára Friðrikssonar syngur og leið- ir almennan safnaðarsöng og org- anisti er Lenka Mátéová. Guðrún Jónsdóttir, forstöðukona fé- lagsstarfs Gerðubergs og Gunnar Hauksson, formaður Fellasóknar, lesa ritningarlestra. Eftir guðs- þjónustuna er boðið upp á kaffi og meðlæti sem Soroptimistar Hóla og Fella sjá um í safnaðarheimili kirkj- unnar. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju. Listafélag Grafarvogs- kirkju stofnað Á undanförnum árum hefur Graf- arvogskirkja staðið fyrir mörgum listviðburðum. Tónleikar eru fjöl- margir á hverju ári. Leiksýningar hafa verið settar upp og margar myndlistarsýningar einnig. Nú er ætlunin að stofna Lista- félag kirkjunnar. Til að ýta því úr vör hefur verið stofnuð undirbún- ingsstjórn en í henni eru: Að- alsteinn Ingólfsson listfræðingur, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir text- ílhönnuður, Einar Már Guðmunds- son rithöfundur, Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur, Pálmi Gestsson leikari, Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri og Theódór Blöndal tæknifræðingur. Fjölskylduguðsþjón- usta í Árbæjarkirkju Sunnudaginn 13. maí kl. 11 er fjöl- skylduguðsþjónusta. Leikhópurinn Perlan heiðrar okkur með nærveru sinni eins og þau hafa gert und- anfarin ár á öðrum sunnudegi í maí. Það verður hefðbundin fjöl- skyldumessa með fullt af skemmti- legum söngvum, fróðleik og skemmtan. Eftir að stundinni í kirkjunni lýkur verður boðið upp á grillaðar pylsur og meðlæti. Minn- um á skráningu í safnaðarferðina í Þórsmörk sunnudaginn 20. maí. Messa með suðræðu sniði í Laugarneskirkju Á morgun sunnudaginn 13. maí kl. 20 verður flutt Argentísk messa í Laugarneskirkju, Misa Criolla. Kór Laugarneskirkju flytur messuna ásamt hljómsveit hússins. Ein- söngvarar eru Örn Arnarson og Guðlaugur Viktorsson. Stjórnandi er Gunnar Gunnarsson organisti kirkjunnar. Sr. Hildur Eir Bolla- dóttir prédikar og þjónar við alt- arið í messunni ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálpara. Að messunni lokinni býðst kirkjugestum að þiggja samfélags- eflandi molasopa, djús eða vatn í safnaðarheimilinu í umsjá Gunn- hildar Einarsdóttur kirkjuvarðar. Allir velkomnir. Þess ber að geta að frá sunnu- deginum 13. maí til 24. júní verða messur öll sunnudagskvöld í Laug- arneskirkju kl. 20 en engar að morgninum. Höklasýning og hátíða- messa í Langholts- kirkju Við hátíðamessu kl. 11 hinn 13. maí verður opnuð í Langholtskirkju sýning á 10 höklum og stólum sem Herder Andersson, sóknarbarn í Langholtssöfnuði, hefur saumað undanfarið ár. Hann saumaði einn- ig forkunnarfagran altarisdúk og altarisklæði sem voru helguð við messur haustið 2006. Herder hann- aði sjálfur allan þennan forkunn- arfagra kirkjuskrúða og saumaði í höndunum. Er þessi vinna Herders án efa einsdæmi hér á landi og óvíst að samjöfnuð megi nokkurs staðar finna. Séra Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar ásamt sókn- arpresti og Kammerkór Langholts- kirkju syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar. Boðið verður upp á súpu eftir opnun sýningarinnar. Kl. 17 þenn- an sama daga heldur Kammerkór Langholtskirkju tónleika í kirkj- unni. Dagur aldraðra í Laugarneskirkju Í mörgum kirkjum hefur uppstign- ingardagur á síðari árum verið gerður að degi aldraðra og er það vel um leið og við minnumst upps- tigningar Jesú Krists til himna. Hátíðarmessa tileinkuð öldr- uðum verður í Laugarneskirkju á uppstigningardag kl. 14. Sr. Hildur Eir Bolladóttir prédikar og þjónar í messunni ásamt Sigurbirni Þor- kelssyni meðhjálpara, þjónustuhóp kirkjunnar, Gunnari Gunnarssyni organista og kór Laugarneskirkju. Að messunni lokinni býður sókn- arnefnd kirkjunnar upp á tertu- sneið og notalegan og samfélagsefl- andi kaffisopa. Umsjón hefur Gunnhildur Einarsdóttir kirkju- vörður. Þegar flestir hafa rennt tertunni niður mun Gunnar Gunn- arsson organisti setjast við flygilinn og við tökum saman nokkra gamla, góða og hressandi íslenska vor- og sumarsöngva. Allir velkomnir. Sumarhátíð og kirkju- reið hestamanna í Lágafellssókn Sumarið er komið og náttúran að vakna um byggðir og ból, lömbin sér brátt leika og fuglarnir syngja um haga og á hól. Allt vaknar í um- hverfinu úr dvala vetrar og kallar okkur mannfólkið út úr híbýlum okkar, til að njóta fegurðar og mik- ilfengleika sköpunar Guðs og finn- an vaxandi þrótt með sumarkomu. Kirkjan, við, hinn kristni söfnuður, lofum Guð fyrir sköpun sína og kraft, gleðjumst og þökkum vet- urinn sem liðinn er. Sumarhátíðin: Sunnudaginn 13. maí kl. 11 verður haldin sumarhátíð barna og æskulýðsstarfs Lágafells- kirkju. Stoppleikhópurinn kemur og flytur leikritið um Eldfærin. Eft- ir leiksýninguna verður farið í úti- leiki og boðið upp á grillaðar pyls- ur. Allir eru hjartanlega velkomnir. Kirkjureiðin: Sunnudaginn 13. maí verður hin árlega kirkjureið hestamanna úr hestamannafélag- inu Herði í Mosfellsbæ til guðsþjón- ustu í Mosfellskirkju. Lagt verður af stað frá hesthúsahverfinu í Mos- fellsbæ kl. 13 og riðið verður inn hinn fagra Mosfellsdal að hinum forna og sögufræga kirkjustað Mosfelli. Hestagirðing verður á staðnum. Guðsþjónusta verður í Mosfells- kirkju kl. 14. Ræðumaður Marteinn Magnússon, hestamaður. Karlakór- inn Stefnir syngur og leiðir söng undir stjórn Atla Guðlaugssonar. Einsöngvari Birgir Hólm Ólafsson. Organisti Jónas Þórir. Prestur. Ragnheiður Jónsdóttir. Allir vel- komnir. Prestarnir. Nánd hringmessunnar í Fríkirkjunni í Reykjavík Samræðu- og hringmessa kl 20. Við finnum nándina er við sitjum saman í hring, syngjum, lesum og ræðum orð ritningarinnar. Textar: Pré. 3:1-8, Gal. 6:2-10 og Lúk. 11:5-13. Vinsamlega komið með Biblíuna meðferðis! Tónlistina leiðir Carl Möller við flygilinn, Ása Björk Ólafsdóttir leiðir messuna og um- ræður ásamt Nöndu Maríu. Alt- arisganga í hringnum. Allir eru hjartanlega velkomnir. Morgunblaðið/ÓmarHafnarfjarðarkirkja Ragnheiður og Ómar sterkust á lokasprettinum Ragnheiður Nielsen og Ómar Ol- geirsson reyndust sterkust á loka- sprettinum á Íslandsmótinu í par- atvímenningi sem háð var um helgina 5.–6. maí og skarta því titl- inum Íslandsmeistarar í paratví- menningi 2007. Ómar og Ragnheiður voru alla tímann í toppbaráttunni, reyndar oftast í fyrsta sæti og voru þegar upp var staðið með rúmlega 1% forystu á annað sætið. Björgvin Már Kristinsson stjórn- aði mótinu af röggsemi eins og hann er vanur en lokastaða efstu para varð þessi: Ragnheiður Nielsen – Ómar Olgeirss. 56,8% Dröfn Guðmundsd. – Ásgeir Ásbjss. 55,7% Arngunnur Jónsd. – Kristján Blöndal 55,3% Guðrún Jóhannesd. – Jón H. Elíasson 54,5% Ljósbrá Baldurs – Sverrir Ármanns. 54,4% Esther Jakobsd. – Guðm. Hermannss. 53,2% Briddsfélag Kópavogs Það var mikil spenna á toppnum á lokaspilakvöldi BK. Efstu pör: Guðni Ingvarsson - Sigfús Þórðarson 184 Eiður M Júlíuss. - Júlíus Snorrason 181 Erla Sigurjónsd.- Loftur Pétursson 180 Snorri Steinsson - Þórður Jónsson 168 Andrés Þórarinss.- Halldór Þórólfss. 158 BK þakkar öllum sem tóku þátt í spilamennskunni í vetur og vonast til að sjá sem flesta við græna borðið í haust. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 4. maí var spilað á 15 borðum. Meðalskor var 312. Úrslit urðu þessi í N/S: Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 377 Oddur Jónsson – Eyjólfur Ólafsson 354 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 353 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 328 Sveinn Jensson – Jóna Kristinsd. 328 A/V Magnús Oddsson – Óli Gíslason 424 Knútur Björnsson – Elín Björnsd. 366 Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 357 Bragi Björnss. – Jón Sævaldsson 348 Þriðjudaginn 8. maí var spilað á 15 borðum. Meðalskor var 312. Úrslit urðu þessi í N/S Bjarnar Ingimars. – Friðrik Hermanns. 376 Jón Hallgrímsson – Bjarni Þórarinsson 356 Ólafur Ingvars. – Sigurberg Elentínus 337 Jóhann Benediktss..– Pétur Antonss. 331 A/V Knútur Björnsson – Elín Björnsdóttir 372 Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 367 Sveinn Snorrason – Gústav Nílsson 344 Magnús Oddsson – Óli Gíslason 344 Gullsmárinn Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilaði tvímenning á 11 borðum mánudaginn 7. maí. Miðlungur 220. Efst NS: Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 267 Guðrún Gestsd. – Bragi V. Björnsson 254 Kristín Óskarsd. – Gróa Þorgerisdóttir 248 Leifur Kr. Jóhanness – Guðm. Magnúss. 236 Efst AV: Þórður Jörundss – Hrafnhildur Skúlad. 269 Sigríður Gunnarsd. – Björn Björnsson 254 Elís Kristjánsson – Páll Ólason 252 Halldór Jónsson – Valdimar Hjartarson 239 Spilaður var tvímenningur fimmtudaginn 10. maí. Miðlungur 126. Efst NS Eysteinn Einarsson - Jón Stefánsson 142 Þorgerður Sigurg.d. - Stefán Friðbjss. 133 Heiður Gestsd - Jóhanna Gunnlaugsd. 132 Björn Björnsson - Sigríður Gunnarsd 127 Efst AV Sigtryggur Ellertss - Þorsteinn Laufdal 167 Ragnar Ásmundars. - Óli Gíslason 136 Bragi Björnsson - Ármann Lárusson 133 Halldóra Thorodds.-Hlaðgerður Snæbjd.121 Spilað verður 14. mai. Spil fellur niður 17. mai. Sumarbrids í Síðumúlanum Hin sívinsæla sumarspilamennska hefst miðvikudaginn 16. maí á slag- ina sjö í húsakynnum BSÍ í Síðumúla 37 – tvímenningur með „monrad-ba- rometer“ sniði, sem hentar öllum, konum og körlum, ungum og öldn- um, reyndum sem óreyndum. Spilað verður þrjú kvöld í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, og hefst spilamennska alltaf kl. 19. Umsjón- armenn eru Sveinn Rúnar Eiríksson og Guðmundur Páll Arnarson, en þeir félagar hafa í hyggju að brydda upp á ýmsum nýjungum í sumar. Spilarar eru minntir á að mæta tímanlega, svona fimmtán mínútum fyrir flugtak. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Síðasta spilakvöld hjá Breiðfirð- ingum á þessu vori var sunnudaginn 6. maí. Spilaður var tvímenningur. Hæstu skor kvöldsins voru eftirfar- andi: Norður-Suður Gunnar Guðmss. – Sveinn Sveinsson 210 Unnar Guðmss. – Jóhannes Guðmanss. 208 Sigurjóna Björgvins. – Karólína Sveins. 171 Austur-Vestur Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 199 Hörður Einarsson – Benedikt Egilsson 188 Jón Jóhannsson – Birgir Kristjánsson 188 Við byrjum að spila aftur í haust sunnudaginn 23. september. Við ósk- um Arnóri Ragnarssyni og félögum hans á Morgunblaðinu gleðilegs sumars og þökkum fyrir samstarfið á liðnum vetri. Frímann Stefánsson vann Topp 16 einmenning BA Síðastliðinn þriðjudag fór fram einmenningur hjá bridsfélagi Akur- eyrar þar sem þeir 16 spilarar sem flest bronsstig höfðu fengið um vet- urinn reyndu með sér. Keppnin var mjög spennandi framan af en Frí- mann náði góðri forystu með góðum setum gegn efstu mönnum og þegar upp var staðið var niðurstaðan býsna afgerandi. Þess má geta að af fimm efstu eru þrír ættaðir frá Mývatni. Frímann Stefánsson 68,1% Sveinbjörn Sigurðsson 55,9% Pétur Gíslason 54,8% Sigurður Erlingsson 52,6% Björn Þorláksson 51,9% Þriðjudaginn 15. maí kl. 19.30 verður svo haldinn aðalfundur BA og eru spilarar hvattir til góðrar mæt- ingar í aðalfundarstörf, veitingar og spil. Efstu pör Þrjú efstu pörin í paratvímenningnum. Frá vinstri eru Ásgeir Ásbjörnsson og Dröfn Guðmundsdóttir sem enduðu í öðru sæti, Ragnheið- ur Nielsen og Ómar Olgeirsson Íslandsmeistarar og Arngunnur Jónsdóttir og Kristján Blöndal sem enduðu í þriðja sæti. Lengst til hægri er Guð- mundur Baldursson, forseti BSÍ sem afhenti verðlaunin. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.